Þjóðviljinn - 06.10.1955, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 06.10.1955, Qupperneq 1
Skákmótið Engri skák var lokið á skák- þinginu er blaðið fór í prentuo, Pilnik hélt uppi harðri sókn, gegn Guðmundi Pálmasyni, en Framhald á 11. síðtiL Fimmtudagur 6. október 1955 — 20. árgangur — 225. tölublað Færeyingar biðja íslenzku rilcisstjornina ásjár Yfsrheyrslur og fangelsanir hafnar i Klakksvik, fiskiflotinn á heimleiS Færeyski Þjóðveldisílokkurinn, sem berst fyi'ir sjálf- stæði Færeyinga og á sex menn á Lögþinginu, hefur beðið ríkisstjórn íslands að beita áhrifum sínum við dönsku stjómina til að fá hana til að kalla herskipið Hrólf kxaka frá Færeyjum. Segir í erindi Þjóðveldis-i flokksins, að herskipinu hafij verið beitt við lögregluaðgerðir' gegn óbreyttum borgurum, en með því hafi danska stjórnin fótumtroðið þjóðar- og mann- réttindi Færeyinga. Þrátt fyrir mótmæli haldi danska rikis- stjórnin uppteknum hætti og því sé þess farið á leit við rík- isstjóm íslands að hún biðji dönsku stjómina að kalla her- skipið frá Færeyjum. Sams- konar erindi hefur Þjóðveldis- flokkurinn, sem Erlendur Pat- 2900 mmm franskur her innikróaður í Marokkó Vaxandi iíkur á að stjém Fauæ íalli Frönsku hersveitunum sem sendar hafa verið gegn þjóðfrelsisher Marokkómanna varð lítið ágengt í gær. Fréttamenn í Marokkó segja að þjóðfrelsisherinn hafi króað 2000 manna franskt lið inni á þríhymingsmynduðu svæði í Riff-fjöllum nálægt landamær- um Spanska Marokkó. Liðsauka sem á að leysa Frakkana úr herkvínni sækist seint. Frakk- ar beita nú þrýstiloftsflugvél- um en þær koma að litlu haldi vegna þess hve vel þjóðfrelsis- herinn hefur dreift sér. Ástandið alvarlegt Fréttamenn í París segja að July, ráðherra sá sem fer með mál nýlendnanna í Norður- Afríku, hafi skýrt utanríkis- Framhald á 5. síðu. ursson stjórnar, sent ríkis- stjómum Noregs og Bretlands. Fyrir luktum dyrum 1 gær hóf danska lögreglan handtökur og yfirheyrslur í Klakksvík. Voru fimm menn yfirheyrðir og eimi þeirra úr- skurðaður í hálfs mánaðar varðhald. Dómarinn úrskurðaði að réttarhöldin skyldu fara fram fyrir luktum dymm. Danir tala um uppreisn Sjómenn á færeyska fiski- flotanum sem eru að síld- veiðum norður af Færeyjum hafa ítrekað kröfú sína, að Hrólfur kraki fari frá Klakks- vík. Herma óstaðfestar fréttir að flotinn sé lagður af stað heim til Færeyja. „Ekstrabladet“ í Kaupmanna- höfn komst svo að orði í gær, að ef sjómennirnir haldi heim og reyni að hrekja dönsku lögregluna frá Klakksvík sé um lireina og beina uppreisn að ræða. HflPPDRETTI ÞJDDVIUflflS Á morgun er skiladagur og heitir blaðið á alla, sem hafa peninga undir höndum fyrir selda miða að gera skil. Síðasta vika gaf drjúgar tekjur og er sýnileg hreyfing á sölunni bæði hér í Reykjavík og úti á landi. Hins vegar verður morgun- dagurinn og næsta vika að sýna greinilega framför, svo að ekki komi lægð í söluna, því að óð- úm fer að styttast til fyrri dráttar. Blaðið vill sérstaklega beina þeim tilmælum til útsölumanna úti á landi og annarra kaup- enda, sem hafa miða til sölu, að nauðsynlegt er, að þeir geri skil fyrir það sem þegar er selt eða seljast kann á næstunni, þótt þeir séu kannski ekki bún- ir að selja allt upp. -— Einnig er nauðsynlegt að láta blaðið vita í tæka tíð, ef líkur eru fyrir að hægt sé að seija meira. Verum samtaka og nýtum alla þá sölumöguleika, sem fyrir hendi eru. Frá œfingu á leiknum Góða dátanum Svœk. Róbert Arnfinnsson, sem fer með aðalhlutverkið, er á miðri m.yndinni. (Sjá frétt á 12. síðu). Bcmdczrásk lögregla skýtur á verkamenn Einn drepinn og 10 hæStulega særðir Einn verkamaður beiö bana og tíu særöust alvarlega þegar lögreglan skaut á kröfugöngu í borginni Newcastle í Indiana-fylki 1 Bandaríkjunum í gær. Verkamenn í verksmiðju einni í Manchester hafa verið í verkfalli mánuðum saman og þverneitar atvinnurekandinn að semja við félag þeirra. Verkamenn í öðrum verka- lýðsfélögum tóku sig þá sam- an og skipulögðu hópgöngu um borgina til þess að láta í ljós stuðning við stéttarbræður sína og mótmæla fi'amkomu atvinnurekandans. Tóku 5000 manns þátt í göngunni. Þegar hún stóð sem hæst var lögreglulið borgarinnar lát- ið ráðast á verkamennina. Beittu lögregluþjónarnir bæði bareflum og skotvopnum, með þeim afleiðingum sem áður er sagt. 14. sambaudsþiiigi ÆF STJÓRNMÁLAÞRÓUNIN í dag verður arfur peirrar œsku sem tekur við landi sínu á morgun. Við lifum í her- numdu landi; dýrasta eign íslendinga, sjálf œttjcrð- in, hefur verið ofurseld erlendu innrásarliöi sem eykur í sífeUu völd sín, og ekki verður annað séð en stjórnar- völdin œtli að færa æskunni hernámið í arf um langa framtíð. Allt efnahagskerfi pjóðarinnar er látið lúta hernáminu, vinnuafli er sópað í pjónustu útlendinga pannig að víða liggur við landauðn, en íslenzkir at- vinnuvegir eiga í vök að verjast. Það er reynt að koma peirri skoðun inn hjá pjóðinni, jafnt í orði sem verki, að hún geti ekki lifað af auölindum lands síns, fram- taki sínu og hugviti, heldur verði að tóra sem nylenda í skugga erlendra auðœfa. Þeir íslendingar sem að framleiðslustörfum vinna verða í sífellu að heyja haroa baráttu fyrir mannréttindum sínum og lífskjörum. Á sama tíma og íslenzkir atvinnuvegir er níddir niður og framleiðslustörfin höfð að hornrekum, lítt eftir- sóknarverðum œsku landsins, er reynt að hefja brask og sýndarmennsku til vegs og virðingar; peningar eru taldir œðri manngildinu, erlend afsiðun er boðin í stað pjóðlegra menningarerfða, hugsjónir eru taldar úreltar dyggðir. Á pennan hátt er reynt að skapa pað hernám hugans sem sœtti íslenzka œsku við erlenda hersetu og yfirdrottnun útlendinga um langa framtíð. ENGUM ER ÞAÐ skyldara en œskunni að rísa gegn pess- ari próun; með pátttöku sinni í stjórnmálabaráttunni er hún sjálf að skæpa sinn eigin arf. Hvarvetna kalla verkefnin á hana til virkrar sóknar. Það verður að tryggfa °ó íslenzkir atvinnuvegir veiti œskufólki við- unandi kjör og möguleika til að próa hæfileika sína og atorku. Æskufólk verður að tryggja sér raunverulegan rétt til að stofna heimili í góöu húsnœði. Hver æsku- maður verður að hafa tök á alhliða menntun, bóklegri og verklegri, í samrœmi við hœfileika sína. Æskan verður aö eiga kost á fjölpœttum skemmtunum meo menningarsniði. íslensku æskufólki ber að takast á við Framhald á 4. síðu Laxness sagður standa næst Nóbeisverðlaunum af hópi 38 „Þetta er eintómt grín" ,segir skáldið Fréttaritari vesturþýzku fréttastofunnar dpa í Stokk- hólmi segir að þar sé altalað að af 38 mönnum, sem stungið hafi verið uppá til bókmenntaverðlauna Nóbels í ár, muni Halldór Kiljan Laxness eiga mest fylgi í sænskia akademíunni sem veitir verðlaunin. Fréttaritari dpa segir að í akademíunni hafi sú röksemd mikil áhrif, að verðlaunaveiting til Laxness væri um leið virð- ingarmerki við fornbókmenntir íslendinga. Meðal annarra höfunda sem þar til bærir aðilar hafa stung- ið uppá við akademíuna í ár eru bandarisku ljóðskáldin Ezra Pound, Robert Frost og Carl Sandburg, gríski skáldsagnahöf- undurinn Niko Kazantzakis, ítalski skáldsagnahöfundurinn Alberto Moravia, sovézki skáld- sagnahöfundurinn Mikail Sjóló- koff og þýzka ljóðskáldið Gott- fried Benn. Verðlaunin verða veitt í nóvember. „Gárimgar í Stokkhólmi“ Laxness sjálfur slær tali um Nóbelsverðlaunin sér til handa upp í gaman, segir Karl Christ- iansen, fréttaritari Hamborgar- blaðsins Die Welt, útbreiddasta. blaðs Vestur-Þýzkalands, 5 Stokkhólmi. Hann skýrir fr&. þvi í langri grein að Laxness sé væntanlegur til Þýzkalands. Fréttaritarinn hefur eftir hon- um þessi ummæli um sjálfarj sig og Nóbelsverðlaunin. „Það eru nokkrir gárungar í Stokkhólmi sem stinga árlega uppá mér. ,,Nú skal þó Laxness sannarlega fá verðlaunin", segja þeir. Svo, þegar búið er aS veita Nóbelsverðlaunin á venju- legan hátt, geta þeir sagtí „Aumingja Laxness, ekki fékk hann þau heldur í ár“. Þetta. er alltsaman eintómt grín“. „En það er bara alls ekkert: grín“, bætir fréttaritrinn við frá eigin brjósti. „Segja má að blöð á Norðurlöndum styðji einróma veitingu Nóbelsverðlaunanna til handa Laxness".

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.