Þjóðviljinn - 15.11.1955, Síða 1
Þriðjudagur 15. nóveuiber 1955 — 20. árgangur — 259. tölublað
Inniíblaðinu: 1
Borg hinna sjö fjalla —
7. siða.
Efni í blóðinu varna sýkinga
5. síða.
„Heimsbókmenntasaga"
komin út — 3. síða.
Ný tilraun gerð til að fara í
kringum löndunarbannið
íslenzkir aðilar rœðo Wð hrezkt fyrirtœki
um sölu 2000 kassa á viku
íslenzkir aSilar eru nú að gera tilraun til aö fara í
kringum löndunarbann brezkra togaraeigenda. Samning-
ar standa yfir við fyrirtækið Alexander & Woods um inn-
flutning íslenzks ísfiskjar um höfnina North Shields.
FVá þessu er skýrt í brezka mundi torvelda viðræður þær
blaðinu Fishing News sem út um löndunarbannið sem fulltrú-
kom fyrir helgina. j ar ríkisstjóma íslands og Bret-
Eigendur brezka fyrirtækis- lands eiga nú í. Viðræðumar
ins hafa staðfest frásögn blaðs-j fara fram á vegum Efnahags-
ins. Segja þeir að til sín hafi samvinnustofnunar Evrópu í
verið leitað og annarra brezkra
fiskinnflytjenda.
Lítil fyrirstaða
„Við höfum leitað fyrir okk-
ur í North Shields og komizt
að raun um það hjá ýmsum
aðilum í fisksölumálum að lítil
fyrirstaða verður fyrir því að
við flytjum þennan fisk inn“,
segir einn af stjórnendum Alex-
ander & Woods.
Fishing News segir að bú-
izt sé við að innflutningurinn
muni nema 2000 kössum af ís-
lenzkum fiski á viku ef allt
kemst í kring.
Togaraeigendur hóta
Croft Baker, formaður félags
brezkra togaraeigenda, segir í
viðtali að togaraeigendur muni
„líta mjög alvarlegum augum
á það ef íslenzkur fiskur slepp-
ur í gegn á þennan hátt“. —
Dyigjar hann um, að slíkt
Brezkir kjarn-
orkufræðingar
tii Sovátríkjanna
Hópur fremstu kjamorku-
fræðinga Bretlands leggur í dag
af stað til Sovétrikjanna til
sex daga dvalar. Sovézkir vís-
indamenn buðu Bretunum heim
þegar þeir hittust á ráðstefn-
unni í Genf í sumar um frið-
samiega hagnýtingu kjamork-
unnar. Eftir ráðstefnuna skoð-
uðu 15 sovézkir vísindamenn
aðaistöðvar brezku kjamorku-
máiastjómarinnar í Harwell.
París.
Beaumont, ritari félags yfir-
manna á togumm í Grimsby,
segir að þeir „kunni að grípa
til aðgerða" ef af innflutningi
islenzks fiskjar verði.
Fiskkaupmenn hlynntir
Hinsvegar telur Fishing News
sig hafa komizt að raun um að
fiskkaupmenn, þar á meðal í
Hull og Grimsby, vilji gjam-
an fá íslenzkan fisk til að
verzla með. Fulltrúar Alexand-
er & Woods hafa þegar leitað
hófanna í Grimsby.
Cann, ritari félags fiskkaup-
manna í Grimsby, segir: „Verði
íslenzkum fiski landað i North
Shields liggur í augum uppi að
endurskoða verður löndunar-
bannið frá rótum“.
Dynamo vann
SumlerAand
Knattspyrnuliðið Dynamo
frá Moskva keppti í gær við
enska liðið Sunderland, sem nú
er efst í fyrstu deild brezku
deildakeppninnar. Keppt var á
heimavelli Sunderland. Sovézka
liðið vann með einu marki gegn
engu. Markið var sett þrem mín-
útum fyrir leikslok. Lelkurinn
var lélegur, enda var hellirign-
ing næstum allan fyrri hálf-
leik.
Hráolía osf benzínhækkar um
3 aura lítrinn
Frá og með deginum í dag hækkar verð á benzíni
og hráolíu um 3 aui'a lítrinn. Hækkar benzínið úr
kr. 1.75 í kr 1.78 og hráolían úr kr. 0.76 í kr. 0.79.
Hráolíuverðiö miöast viö kaup af lager en sé olían
keyrð heim leggst enn 1 Vz eyrir á lítra og er þá
verðið 80^2 eyrir. Verður allur almenningur
sem olíuna notar til upphitunar húsa sinna að
sæta því veröi því fæstir hafa aöstöðu til heim-
flutninga sjáifir.
Þessa nýju verðhækkun á benzíni og olíu af-
saka olíufélögin meö hækkuöum fiutningskostn-
aði. Má nærri geta að fátæk og aöþrengd fyrirtæki
eins og olíufélögin hafa ekki getaö tekið þá hækk-
un á eigin herðar enda stóö ekki á stjórnarvöldun-
um aö samþykkja að henni skyldi velt yfir á al-
menning.
Drap móður sína og
43 aðra af fégræðgi
Flugvél grandað með vítisvél tii að
komast yfir líftryggingarfé
Tuttugu og þriggja ára gamall Bandaríkjamaðm’ hefur
játað að hafa komið fyrir vítisvél í flugvél sem fórst fyrir
hálfum mánuði með öilum innanborðs, 44 mönnum.
Ráðherrer Vesturvelda
ésammála um nýjan fund
í gær kom í ljós að utanríkisráðherrar Vesturveld-
anna geta ekki komið sér saman um, hvort boðaö skuli
til nýs fjórveldafundar þegar þeim sem nú stendur lýkur.
Maður þessi heitir John Gil-1
bert Graham. Hefur hann játað
að hafa komið nokkrum dyna-
mitstöngum, tengdum við raf-
geymi og tímastilli, fyrir í far-
þegaflugvél á leið frá New York
til Portland. Gerðist þetta í
Denver, þar sem móðir hans tók
sér far með vélinni.
630.000 kr líftrygging
Graham var handtekinn í gær.
Bandaríska alríkislögreglan, sem
falin var rannsókn málsins eft-
ir að ljóst þótti að vítisvél hefði
grandað flugvélinni, segir að
hann hafi framið illvirkið til
að ráða móður sina af dögum.
Hafði hann líftryggt hana fyr-
'ir 630.000 krónur skömmu áður
en hún lagði af stað í flugferð-
ina.
Hálftíma eftir að flugvélin,
DC-6B frá United Airtines, lagði
af stað frá Denver, tættist hún
sundur i loftinu. Allir sem í
henni voru, 39 farþegar og fimm
manna áhöfn, biðu samstundis
bana.
Vesturveldaráðherramir komu
saman á fund í gænmorgun og
segja fréttamenn, að þeir hafi
ekki orðið á eitt sáttir. Pinay,
utanríkisráðherra Frakklands,
lagði til að boðaður yrði nýr
fundur utanríkisráðherra fjór-
veldanna með vorinu. Macmillan
hinn brezki vildi einnig að á-
kveðið yrði að halda nýjan
fund en taldi ekki hægt að
ákveða fundartíma að svo
stöddu. Bandaríski utanríkis-
ráðherrann Dulles andmælti til-
lögu Pina.ys og kvaðst álíta að
rikisstjórnir fjórveldanna yrðu
að fjalla nánar um skipti
þeirra áður en unnt væri að
ákveða frekari fundahöld.
Síðdegis í gær ræddn utan-
ríkisráðherrarnir fjórir um
samskipti ríkja í austri og
vestri og sýndist sitt hverjum.
Búizt er við að ráðstefnunni í
Genf ljúki á morgun.
Harður bar-
dagi í Alsír
1 fjaillendi í Alsír sló i gær í
bardaga milli fransks herliðs
og 200 manna sveitar úr skæru-
hernum sem berst fyrir sjálf-
stæði Alsír. Franska liðið naut
aðstoðar herflugvéla.
Það þykir tíðindum sæta að
Frakkar urðu þess varir að
nokkrir Evrópumenn börðust
með Alsírbúum. Talið er að
þeir séu liðhlaupar úr útlend-
ingahersveitinni frönsku.
Ofjarlar Perons komnir í hár
saman, skipt um forseta
Hreyfing sú sem steypti Peron eim-æðisherra frá völd-
um í Argentínu er klofnuö.
í fyrradag var Lonardi hers-
höfðingja, Sém tók sér forseta-
vald þegar Peron hröklaðist úr
landi, steypt af stóli.
Lonardi í stofufangelsi
Við forsetaembættinu
tók
annar liershöfðingi, Pedro Ar-
anburo. Fregnir frá Buenos Air-
es í gærkvöldi hermdu að Lon-
ardi sæti í stofufangelsi.
Aranburo lét það verða sitt
fyrsta verk að reka 21 ihers-
Framhald á 12. síðu.
Pálvii Kristjáusson, sem hreppti fyrsta bílinn í happdrœtti Þjóðviljans, stendur fy
rir framan eign sína. — Sjá viðtal við Pálma á priðju síðu. (Ljósm. Sig. Guðm.).