Þjóðviljinn - 25.11.1955, Blaðsíða 12
Fiokkur Pokiuðóperunncxr rr@'Em
III Eefklowíknr í gærkvéld
Frumsýning í ÞjóSleikhúsinu annaS kvöld
Flokkur sá í'rá Pekingóperunni, sem sýnir í Þjóðleikhúsinu
næstu (laga, koin til Reykjavíkur í gærkvöld með tveim af ís-
lenzku millilandaflugvélunum. Lenti önnur vélin, Sólfaxi, á flug-
vellinum kl. rúmlega sjö og liin, Saga, réttri klukkustund síðar,
en með hvorri flugvél voru um 30 Kínverjar.
Guðlaugur Rósinkranz þjóð-
leikhússtjóri tók á móti kín-
verska listafólkinu á flugvell-
inum, einnig voru þar mættir
fuiltrúar Kínversk-íslenzka
menningarfélagsins og fl.
Meðal þeirra, sem komu með
flugvél Flugfélags íslands, var
Chu Tu-nan forstjóri Peking ó-
perunnar. Ekki vildi hann tala
við fréttamenn í gær, enda hef--
ur verið. boðað. til blaðamanna-
fundar með kínversku lista-
mönnunum árdegis í dag.
siSarilellttai*
Út eru komin tvö rit landbún-
aðardeildar Atvinnudeildar Há-
skólans nr. 10 og 11 í A-flokki.
Fyrra ritið nefnist Tilraunir með
síldarmjölsgjöf handa beitarám
um meðgöngutímann 1950—1954
eftir Grím Jónsson, um 30 þétt-
prentaðar síður í allvænu broti.
Hitt ritið er frá tilraunaráði jarð-
ræktar og nefnist Skýrslur til-
raunastöðvanna 1953—1954 eft-
ir Árna Jónsson. Það er 105 les-
málssíður.
Tvennf siasast
í Fossvsgi
Síðdegis í gær ók 18 ára pilt-
ur á skellinöðru á konu, Ástu
Árnadóttur, Kambsvegi 15 hér
í bænum, á gatnamótum Hafnar
fjarðarvegar og Fossvogsvegar.
Skárust þau bæði á höfði, og
fékk drengurinn heilahristing;
en bæði munu þau óbrotin.
Drengurinn kvaðst ekki hafa
séð konuna, sem mun hafa ætl-
að að ganga á ská yfir vega-
mótin er piltinn bar að.
gætur
Norðfjarðarbáta
Undanfarið hefur verið af-
bragðsafli hjá Norðfjarðarbátum.
Hafa þeir aflað 13—14 skippund
í róðri. Um það bil þriðjungur
aflans er ýsa.
Fréttamaður blaðsins átti
stutt tal við þjóðleikhússtjóra
Ailir fjallvegir
fjöriiiin
I gær hófst vinnsla olíu úr
fyrstu oliulindinni í ísrael. Olían
fannst fyrir nokkrum mánuðum
og gera Israelsmenn sér miklar
vonir um olíuframleiðslu í land-
inu í framtíðinni.
Nýr bátur til Heilisands -
Grettir grefur í Rifsés
Hellissandi í gær. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Hingað er nýkominn nýr bátur frá Danmörku. Heitir
hann Breiðfirðingur; eigendur eru Rögnvaldur Ólafsson,
Arnar Sigurösson sem er skipstjóri, o. fl.
Báturinn er um 30 tonn að
stærð og gengur röskar 9 mílur
á klukkustund. Hann fékk vont
veður á leiðinni heim, en stóð
sig af mestu prýði. Hann verður
gerður héðan út á vertíð í vet-
ur.
Tveir aðrir vélbátar, litlu
stærri, eru hér fyrir, er einnig
munu verða gerðir út á vertíð-
ina héðan. Ennfremur hafa ver-
ið fest kaup á öðrum báti í Dan-
mörku, þannig að hér verða 4
Egilstöðum í gær. Frá frétta-
ritara Þjóðviljans á Héraði.
Hér hefur verið óvenjuleg veð-
urbliða í hálfan mánuð, suðvest-
læg átt og bjart.viðri dag eftir
dag. Sauðfé gengur allsstaðar
úti, nema hvað byrjað er að taka
lömb á gjöf á stöku bæ.
Allir fjallvegir eru færir enn,
þeirra meðal Fjarðarheiði og
Oddsskarð, og einnig Fagridalur
til Reyðarfjarðar, en sú leið er
reyndar alltaf lengur opin en
hinar. — S.l. laugardag kom
bíll frá Akureyri og hélt áfram
til Hornafjarðar. Er það óf-
venjulegt á þessum tíma árs.
Verið er að vinna við Gríms-
árvirkjun og til skamms tíma
var einnig unnið við nýju Lag-
arfljótsbrúna.
samningur viS
Ungverjaland
Viðskipta- og greiðslusamn-
ingur íslands og Ungverja-
lands frá 6. marz 1953, sem
falla átti úr gildi við nasstu ára-
mót hefur verið framlengdur ó-
breyttur til ársloka 1956.
Framlengingin fór fram í
Budapest hinn 23. þ.m. með er-
indaskiptum milli Péturs Thor-
steinssonar, sendiherra íslands
í Ungverjalandi, og Jeno Bac-
zoni, aðstoðarráðherra utanrík-
isviðskipta Ungverjalands.
(Frá utanríkisráðuneytinu).
slíkir bátar í vetur.
Þá munu tveir bátar frá
Stykkishólmi og einn frá Súg-
andafirði verða gerðir út héð-
an í vetur, eða 7 bátar alis.
Áður hefur aðalútgerðin verið
í Ólafsvík.
Dýpkunarskipið Grettir hef-
ur verið að grafa hér í Riísósi
frá niánaðamótuin sept.-okt. og
mun verða hér til áramóta.
Verður hann þá búiun að grafa
rennu út úr ósnum.
á flugvellinum í gærkvöld.
Sagði hann að fimmmenningun-
um, sem komu hingað s. 1.
sunnudag, litist mjög vel á leik-
húsið og væru ánægðir með
sviðið. Eina vandamálið í sam-
bandi við komu kínversku lista-
mennina hefði verið gistihúsa-
skorturinn. Þó hefði tekizt að
leysa það farsællega að lokum.
Kínverjarnir myndu búa á
tveim stöðum meðan þeir dveld-
ust hér, Hótel Borg og Hótel
Skjaldbreið.
Föstudagur 25. nóvember 1955 — 20. árgangur — 268. tölublað
Egyptar vilja aðeins að Israel
standi við alþjóðasamþykktir
Egyptai' ætla sér alls ekki að ganga af Ísraelsríki öauöu,
en þeir munu ekki sætta sig við að ísi-ael rjúfi gerða
alþjóðasamninga og samþykktir.
Þetta sagði Nasser, forsætis-
ráðherra, í gær við fréttaritara
franska blaðsins France-Soir.
Nasser sagði að Egyptar myndu
NokJcri?' úr hópi kínverska listafólksins við komuna
gœrkvöld. — (Ljósm. Sig. Guðm.).
Félaglo helur styrkt ntemt til náms er-
lendis í uppeldi vangelinna hama
Barnaverndarfélögin 1 Reykjavík, Hafnai’firði og Kefla-
vík gangast fyrir fjársöfnun til styrktar starfsemi sinni
n.k. sunnudag, en félögin á þessum stöðum uröu aö fresta
söfnuninni vegna mænuveikifaraldursins fyi’sta vetrar-
dag, sem undanfarin ár hefur verið fastur fjársöfnunar-
dagur Landssambands ísl. barnaverndai’félaga.
ekki hvika frá því að enginn
friður væri hugsanlegur við
ísraelsmenn, fyrr en þeir hefðu
fallizt á að hlíta úrskurði SÞ
árið 1947 um landamæri ísra-
els. Árið 1948 hefðu Israels-
menn lagt undir sig lönd Araba
og hefðu ævinlega neitað öll-
um tilmælum um að láta þau
af hendi aftur.
Hægt yrði að semja frið við
Israelsmenn, sagði Nasser, ef
þeir féllust á landamærin frá
1947 og leyfðu flóttamönnum
frá ísrael að setjast aftur að
í fyrri heimkynnum eða greiddu
þeim skaðabætur að öðrum
kosti.
Nasser sagði að fráleitt væri
að vopnakaup Egypta i Tékkó-
slóvakiu myndu auka stríðs-
hættuna, þau vænrgerð í þeim
eina tilgangi að skapa meira
jafnvægi miili vígbúnaðar
Egyptalands og Israels.
Nýjar skærur
Stjórn ísraels tilkynnti í
gær að í fyrrinótt hefðu enn
orðið skærur milli hersveita
hennar og Egyptalands og Jór-
dans. Hermenn frá Jórdan
hefðu ráðizt yfir landamærin
fyrir suðvestan Jerúsalem og
egypzkir fallbyssubátar hefðu
skotið á strandlengjuna við
Gaza.
Fjársöfnunin á sunnudaginn er
fólgin í sölu merkja og 5. heftis
Sólhvarfa, barnabókarinnar sem
nýtur sívaxandi vinsælda. Heftið
er að þessu sinni 80 blaðsiður og
hefur Margrét Jónsdóttir tekið
efnið saman en Þórdís Tryggva-
dóttir teiknað myndirnar.
Styrkir til náms erlendis
Aðaláhugamál Bamaverndar-
félags Reykjavíkur er að bæta úr
þeim mikla skorti sem hér hefur
verið á sérmenntuðu fólki til að
hjúkra og annast kennslu af-
brigðiiegra barna, þ. e. þeirra
barna sem ekki eiga samleið með
þorra jafnaldra sinna í opin-
berum skólum. í þeim tilgangi
hefur félagið styrkt nokkra menn
til náms erlendis í uppeldi og
kennslu afbrigðilegra barna.
Meðal þeirra er Björn Gestsson
kennari, sem stundað hefur nám
erlendis s.l. þrjú ár, en hann
mun um næstu áramót verða ráð-
inn, ásamt konu sinni Ragnhildi
Ingibergsdóttur lækni, að fávita-
hælinu í Kópavogi, þar sem þau
hjónin munu hafa á hendi
kennslu og læknisstörf.
Guðrún Hermannsdóttir hefur
einnig notið fjárstyrks frá fé-
laginu og dvelst hún nú við
nám erlendis í uppeldi fávita.
Mun hún að loknu námi sínu
taka við störfum á fávitaheim-
ili því, sem templarar reka að
Skáiatúni í Mosfellssveit. Enn
má geta þess að Magnús Magn-
ússon kennari við Melaskól-
ann dvelst erlendis á vegum
félagsins og kynnir sér sérstakar
aðferðir við kennslu tornæmra
barna.
Afhending merkja félagsins á
sunnudaginn verður í skrifstofu
Rauða krossins Thorvaldsens-
stræti 6, anddyri Langholtsskóla,
Drafnarborg í Vesturbænum og
Barónsborg í Austurbænum.
Byrjað verður að afhenda merk-
in kl. 10 árdegis. Þeir foreldrar,
sem leyfa börnum sínum að selja
merkin, eru beðnir að búa þau
vel og hlýlega.
Fyllsta ástæða er til að gefa
starfsemi barnaverndarfélaganna
gaum og styrkja hana fjárhags-
lega. Verkefni félaganna eru næg,
sést það bezt á því, að hér á
landi eru andlega vangefnir
menn, taldir vera 1000—1200,
þar af eru um 100 á sérstökum
hælum þó 400 þyrftu að njóta
hælisvistar. Bæjarbúar ættu því
að styrkja barnaverndarfél. á
sunnudaginn með því að kaupa
merki þess og bækling.
Xý geríl af
skarÉgFfpimt
Verzlun Ingibjargar Þorsteins-
dóttur Skólavörðustíg 22 A hef-
ur nýlega aukið við sig húsnæði,
en um þessar mundir er eitt ár
liðið síðan verzlunin tók til
starfa. Er innrétting hins nýja
húsnæðis mjög smekkleg. Auk
fatnaðar og snyrtivöru hefur
verzlunin til sölu smelta skart/-
gripi eftir Sigrúnu Gunnlaugs-
dóttur, en Þjóðviliinn hefur áð-
ur skýrt frá listmunagerð henn-
ar. Samkvæmt upplýsingur Ingi-
bjargar Þorsteinsdóttur eiga hin-
ir nýju skartgripir sívaxandi vin-
sældum að fagna meðal kven-
þjóðarinnar.
Listsýning að
Skólavörðust. 43
í dag kl. 2 opnar Guðmundur
frá Miðdal að nýju sýningu sína,
og verður hún nú í vinnustofu
hans að Skólavörðustíg 43. Sýn-
ingin er nokkuð breytt frá því
sem hún var í Listamannaskál-
anum um daginn; eru á henni
29 höggmyndir og 40 málverk.
Sýningin verður opin kl. 2—10
daglega meðan hún stendur, og
er aðgangur ókeypis.
Sýningin er flutt um set vegna
þess að Listamannaskálanum var
um síðustu helgi ráðstafað handa
Félagi íslenzkra myndlistarmanna
sem nú hefur sýningu þar eins
og greint hefur verið.