Þjóðviljinn - 01.12.1955, Page 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Fiirnntudagnr 1. desember 1955
f
Útgefandi:
Samelningarflokkur alþýðu
— Sósialistaflokkurinn —
t--------------------------J
Þokum okkur
saman
Það er nú síðasta hálmstrá
hernámsmanna að halda því
fi'am að það sé Atlanzbanda-
laginu að þakka hversu frið-
samlega horfir í heiminum, ef
það hefði ekki komið til hefðu
Rússar fyrir löngu ráðizt yfir
Vesturevrópu. Það sé því mikið
friðarverk að efla þetta banda-
lag og vígbúast allt hvað af
tekur. En þessi röksemdafærsla
er fölsk, og til þess að sjá það
þarf ekki annað en bera upp
hina einföldu en sígildu spurn-
ingu: Hvers vegna réðust
Sovétríkin ekki yfir Vestur-
evrópu, áður en Atlanzhafs-
bandalagið var stofnað, hafi
það verið áform þeirra, hvers
vegna biðu þau meðan Vestur-
veldin vígbjuggust hvað ákaf-
legast og Bandarikin komu sér
upp heilum herstöðvahring
kringum Sovétríkin ? Þessari
spurningu geta hernámsmenn
ekki svarað, sökum þess að rök-
semdafærsla þeirra. er í and-
stöðu við staðreyndir.
Á sama hátt hafa allar rétt-
lætingar þeirra fyrir hernám-
inu fallið um sjálfar sig, þann-
ig að engin stendur eftir. Ef
stjórnmálamenn reyndu nú
að halda samskonar ræður
•og þeir fluttu 1951, myndi öll
þjóðin hlæja að þeim. Þróunin
hefur afsannað allar fullyrðing-
ar þeirra og staðfest að sósíal-
istar fóru með rétt mál. Enda
er nú svo komið að hernáms-
blöðin reyna ekki lengur að
verja þessar aðgerðir, Alþýðu-
flokkurinn hefur flutt á þingi
tillögu um uppsögn hemáms-
samningsins, svipaðar kröfur
sjást nú æ oftar á síðum Tím-
ans og Morgunblaðið þegir.
En þrátt fyrir allt þetta
heldur hernámsliðið áfram at-
höfnum sínum eins og ekkert
hafi gerzt. Það er að reisa sér
fullkomna ameríska borg við
Keflavíkurflugvöll og ætlar að
hreiðra þar um sig til lang-
frama. Það er þessa dagana að
semja um að innlima Njarðvík-
urhöfn í herstöðvarkerfið. Og
það hefur uppi áform um að
drita niður radarstöðvum
langtum víðar á landinu. Allar
em þessar athafnir í beinni
andstöðu við vilja þjóðarinnar
og hagsmuni. Allar rekast þær
á staðreyndir alþjóðamálanna
og það sem annarstaðar er að
-gerast. Enga þeirra treysta
sjálf hemámsblöðin sér til að
veria. Samt em þessir atburðir
að gerast.
Við svo búið má ekki lengur
standa. Það má ekki láta her-
námið þróast sjálfkrafa, líkt og
fárviðri eða. óviðráðanlega pest.
Það verður að finna leiðir til að
breyta afstöðu þjóðarinnar í at-
hafnir og hagnýta til fulis upp-
gjöf og undanhald hemáms-
inanna. Og ráðið er hið sama
og forðum: Við verðum að þoka
okkur saman, við verðum að
herjast hlið við hlið, allir her-
námsandstæðingar, þótt okkur
kunni að greina á um margt og
mikið annað. Látum það vera
heitstrengingu okkar þenna
fyrsta desemberdag.
Venjulega þykir það engum
stórtíðindum sæta þótt
þjóðhöfðingjar eða aðrir valda-
menn fari í opinberar heim-
sóknir til annarra landa. Slík-
ar heimsóknir era oftast á
þann veg að haldnar eru efnis-
litlar ræður, merkisstaðir skoð-
aðir og skipzt á góðum gjöfum.
Undanfarna daga hefur staðið
yfir opinber heimsókn, sem
orðið hefur eftirminnilegri en
flestar aðrar. Það er för þeirra
Búlganíns, forsætisráðherra
Sovétríkjanna, og Krústjoffs,
framkvæmdastjóra Kommún-
istafiokks Sovétríkjanna, til
Indlands. Hún hefur verið eitt
helzta efni heimsfréttanna frá
því hún hófst. Einkum er það
tvennt sem veldur því, hversu
mjög athygli heimsins hefur
1 beinzt að þessu ferðalagi.
| Ferðaiangarnir hafa brugðið út
| af þeim sið, sem tíðastur er í
opir.berum heimsóknum, að
j halda sig við margpvæld og
innantóm kurteisisorðtök. Þvert
á móti hefur varla liðið svo
dagur að þeir iétu sér ekki
eitthvað um munn fara sem
þótt befur svo fréttnæmt að
það hefur samstundis verið
básúnað út um alla heimsbyggð-
I ina. Tugir fréttamanna frá
fjölda landa elta þá félaga
i ,
! hvert fótmál. I öðru lagi hefur
indverskur almenningur gert
; móttökurnar eftirminnilegar.
| Hvarvetna þar sem gestirnir
koma, fagnar þeim slíkt fjöl-
menni að einsdæmi er, jafnvel
í hinu þéttbýla Indlandi. í
höfuðborginni Nýju Dehli 1>g
aftur í Kalkútta, stærstu borg
Indlands, safnaðist meira en
milljón manna saman og fagn-
aði þeim Búlganín og Krústjoff
svo ákaflega að við sjálft lá að
þeir kæmust ekki leiðar sinn-
ar.
r '1n.... \
Erleiidi
tíðindi
L_______________.
IV/galgögn stjórnenda Bret-
i"-*- lands og Bandaríkjanna
hafa haft allt á hornum sér
vegna heimsóknar ráðamanna
Sovétríkjanna til Indlands.
Skamma þau Búlganín og
Krústjoff fyrir að halda fram
stefnu sinni í heimsmálunum i
ræðunum sem þeir flytja, og
Nehru forsætisráðherra fyrir að
taka gestunum með slíkum
kostum og kynjum sem raun
ber vitni. Þetta ergelsi er ekki
nema eðlilegt. Tilraunir ríkis-
stjórna Vesturveldanna til að
umgirða Sovétrikin á alla vegu
múrvegg hernaðarbandalaga
undir brezkri og bandarískri
forustu hefur strandað á Ind-
landi. Undir forustu Nehrus
hafa nokkur Asiuríki bundizt
samtökum um að standa utan
hernaðarbandalaga. Þessi ráða-
breytni hefur gefizt svo vel
að hlutleysisstefnan breiðist
út. Til dæmis hafa flest araba-
ríkin aðhyllzt hana. Heimsókn
hinna sovézku gesta til Ind-
lands er sönnun þess að ekki
aðeins friðsamleg heldur einn-
ig vinsamleg sambúð getur tek-
izt með ríkjum sem búa við
mismunandi þjóðskipulag og ó-
líka stjórnarhætti. Því er hún
eitur í beinum manna, sem
hafa sett sér það mark að sann-
íæra þjóðirnar um að vígbún-
aðarkapphlaup og kalt stríð
sé bezta hlutskipti sem mann-
kynið eigi völ á.
Stjórnendur Vesturveldanna
eru blátt áfram afbrýðis-
samir. Indland er annað fjöl-
mennasta ríki heimsins og
miklu skiptir, nvar það leggst
á sveif í heimsmálunum. Ekki
er langt um liðið síðan Eden
og Dulles voru á ferð í Nýju
Dehli hvor í sínu lagi. Ind-
verskur almenningur virti þá
ekki viðlits. En þegar Búlganín
og Krústjoff koma ætlar allt
um koll að keyra, Indverjar
koma milljónum saman til að
fagna þeim, nærri liggur að
þeir séu kæfðir í blómaregni
og á landsmóti indverslcra
skáta í Bombay eru þeir um-
svifalaust kjömir heiðursskát-
ar. Vestrænir stjórnmálaleið-
togar klóra sér í kollinum og
spyrja, hvort allir Indverjar
séu á einni svipstundu orðnir
kommúnistar. Þeir hafa ekki gert
sér ljóst að Sovétríkin era að
hálfu leyti Asíuríki, og að sov-
étlýðveldin i Asíu eru sá hluti
álfunnar sem lengst er kominn
í tækniþróun, almennri mennt-
un, heilsugæzlu o. s. frv. Sov-
étríkin hafa iðnvæðzt af eigin
rammleik, án teljandi aðstoð-
ar frá hinum háþróuðu iðnað—
arlöndum í Vestur-Evrópu og
Ameríku. Þess vegna líta Asíu-
menn aðdáunaraugum til Sovét-
rikjanna, hvaða álit sem þeir
annars hafa á kommúnisma.
Það er fordæmi Sovétríkjanna
sem hefur sannfært fyrrver-
andi nýlenduþjóðir í Asíu um
að þær geti iðnvæðzt án þess
að selja frumburðarrétt sinn
fyrir tækniaðstoð.
egar byltingin var gerð í
Rússlandi fyrir tæpum
fjóram áratugum var það á
svipuðu stigi og Indland þeg-
ar nýlendustjórn Breta lauk.
Nú eru Sovétríkin annað af
tveim reginstórveldum heims-
ins. Októberbyltingin 1917
hafði djúptæk áhrif í nýlend-
unum. Frelsisbarátta nýlendu-
Framhald á 9. síðu.
• •■■■■■■ •■■ ■*aaaaaiisavi
■■■■■■■■■■■■>«
TILKYMMING
Samkvæmt samningi vorum viö Vinnnveitendasamband íslands, atvinnurek-
endur 1 Hafnarfiröi, Árnessýslu, Akranesi, Keflavík, HangárvaHasýslu, Mýra-
sýslu, og á Akureyri veröur leigugjald fyrir vörubifreiðar frá og með' deginum í
dag og þar til ööruvísi verður ákveðiö, sem hér segir:
TÍMAVINNA: Dagv. Eftírv. Nætur & ht
Fyrir 2Vz tonns bifreiðar 51.33 60.77 70.21
— 2Vz til 3 tonna hlassþunga 56.92 66.36 75.80
— 3 — 3Vz — — 62.48 71.92 81.36
— 3Vz — 4 — — 68.06 77.50 86.94
— 4 — 4 Vz — — 73.62 83.06 92.50
Aörir taxtai’ óbreyttir aö þessu sinni.
Reykjavík, 1. desember 1955
Vörubílastöðin Þróttnr
Reykjavík
Vörubílstjárafél. Mjölnir
Árnessýslu
Vörubílastöð Keflavíknr
Keflavík
Bílstjórafél. Mýrarsýsln
Mýrarsýslu
Vörubílastöð Hafnarfjarðar
Hafnarfirði
Bifreiðastöð Akraness
Akranesi
Vörubílstjérafél. Fylkir
Rangárvallasýslu
Vörubílstjórafél. Valur
Akureyri
■*■*■■*••••*■■■■■■■■*■■■■■■■■■■■■■•■■■■*■■■■■■■■■■■■•■■■■■■«■■■■•■■■■■■■■••■■•••■•■■•■■■■■■■■■•■•<
Bílaiest flytur sovézku gestina frá flugvellinum inní höfuðborgina Nýju Delhi. Búlg-
anín, Nehru og Krústjoff standa í opnum bíl sem fer fyrir. Gestirnir veifa til mann-
fjöldins.