Þjóðviljinn - 10.12.1955, Side 6

Þjóðviljinn - 10.12.1955, Side 6
6) ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 10. desexnber 1955 - s---------------;-------; •'v þiðeviuiNN ■Otgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn — s_________________________v Vextirnir—versti dýrtíða r va I d u r i n n Grein Halldórs Halldórssonar arkitekts í Þjóðviljanum í gær, og hinar merku upplýsingar hans um hinn mikla þátt vaxt- anna í verðlaginu mun vekja eftirtekt og umhugsun margra. Það hefur alltaf verið stefna íslenzkrar alþýðu, þegar henni hefur tekizt að hafa áhrif á að- gerðir stjórnmálaflokka þeirra. sem kennt hafa sig við hana, að halda vöxtunum lágum. , —'-T* Islenzk alþýða til sveita knúði fram lága vexti af Framsóknar- f’okknum t.il Byggingar- og la.ndnámssjóðs, — aðeins 2% — er hann var stofnaður forð- ura daga. Islenzkur verkalýður knúð; fram á Alþingi 2% vexti ti' verkamannabústaða og síðar ti’ útrýmingar heilsuspillandi íbúð- ura meðan íslenzk sjónarmið enn réðu í efnahagsmálum. — Nú fyrst, þegar alræði amerísks auðvalds er komið í algleyming í þjóðarbúskapnum fyrir aum- irgiahátt og undiriægjuskan valdhafanna, eru vextimir hækk a'ir unp í 5V2%, jafnvel upp f 7% af lánum til almennra í búðarhúsa. Þegar íslenzk alþýða hafði á- hrif á ríkisstjóm landsins á ný- sköpunarámnum, tókst að Iriýja það fram fyrir harð- fylgi Sósíalistaflokksins að vextir af stofnlánum til togara. bíta og fiskiðjuvera vom settir 2%,—- En það er að heita má það eina af róttækri vaxtalög- gjöf —, sem staðist hefur högg- omistönn amerísks auðvalds í Islenzkum þióðarbúskap, —- enda hefur afturhaldinu tekist að stöðva öll ný lán með þeim kiorum. Island þjáðist á ámnum 1930 til 40’ undir hrammi brezka bankaauðvaldsins. Þá var vaxtabvrðin af skuldunum til þess beint um 200 kr. á hverja fimm manna fjölskyldu í land- inu. (iDagsbrúnarkaup var þá 1,45 um tímann og árstekjur margra aðeins 1500 kr.). Brezka auðvaldið kunni að maka krókinn. Það skildi hvað báir vext.ir eru efnilegir til arð- ráns, enda segir máltækið um þolgæði Bretans að „Jón Boli etandist allt nenia 2%“. Ameríska auðvaldið skipu- leggur nú arðránið á landi vom í sama stíl, íslenzku og erlendu peningav-aldi til auðs, en allr; vórri duglegu, starfsömu þjóð til armæðu og þyngsla. Þeim ríkisstjórnum, sem set- Ið hafa að völdum hin undan- fömu amerísku niðurlægingar- ár, hefur ekkert verið heilagt, nema peningurinn og rentan af honum: gróðinn, auðurinn. — Velferð mannanna, heiður og frelsi föðurlandsins, allt það var þeim einskis virði. Það er hér, sem þarf að brjóta við blað. Það verður að hnekkja valdi peningaima og oki vaxt- anna. Það verður að setja manninn og vinnu hans í önd- .vegi ,í þjóðfélaginu. FJÖLDI vina minna og kunningja hefur farið þess á leit, að ég segði frá samveru okkar Halldórs Laxness í Kaliforníu, þvi nú vilja allir vita allt sem vitað verður um þetta fræga skáld okkar. Mér er bæði ljúft og skylt að verða við óskum þeirra, þó ég sé enn ekki nógu gamall til að fara að skrifa endur- minningar mínar yfirleitt. Það haía gengið slíkar trölla- sögur af félagsskap okkar á þessum árum, að hætt er við að þeir, sem búast við einhverj- um reyfarasögum, verði fyrir vonbrigðum. Skömmu eftir að stríði lauk kom Thompson, sá er þýddi Sjálfstætt fólk á ensku, í heim- sókn hingað. Haim spurði mig hvort saga, sem hann hafði heyrt af okkur Halldóri meðan við vorum í Kalifomíu, væri sönn. Við hefðum verið auralitl- ir, eins og satt var, og þá hefði Halldór farið með gítar um öxl á ýmsa skemmtistaði og sungið og spilað fyrir fólkið, en ég gengið í kring með hatt- inn á eftir. Ég hló, en svaraði ekki spurningunni. Þeir sem þekkja okkur báða þurfa ekki á neinu svari að halda. I París sagði Pétur Benedikts- son sendiherra mér aðra sögu, sem er sýnilega samin útaf skeggi mínu, sem mér tók þó ekki að vaxa fyrr en tuttugu árum eftir að sagan liafði átt að gerast. Við hefðum verið auralitlir eins og vant var, en þá hefði Halldór gerzt leikpré- dikari, farið út í garð og staðið upp á kassa til að prédika. En hann lét sér ekki nægja að flytja fólkinu guðsorð, heldur sagðist hann hafa Jesúm Krist hcrna með sér — og ýtti fram vini sínum Magnúsi Árnasyni, alskeggjuðum. Nú hélt ég að sagan væri öll, en nokkrum mánuðum síðar varð ég samskipa Kristjáni Ál- bertssyni á leið heim og þá sagði hann mér niðuilag sög- unnar: Þegar leikprédikarinn á næsta kassa sá hvað Halldór dró að sér mikinn mannfjölda, varð hann öfundsjúkur og heimtaði að Jesús geíði krafta- verk. En þá flýtti Magnús sér til rákarans. Það væri synd að segja, að Halldör Kiljan Láxness væri eina skáldið á Islandi. ★ • Skömmu fyrir jól 1927 hafði ég tækifæri til að skreppa suður til Los Angeles, þar sem kunn- ingi minn fór einn í bíl frá San Francisco og ætlaði að vera í burtu í viku. Ég hafði verið sex mánuði í Los Angeles nokkrum árum áður og átti þar nokkra góða kunningja. Á að- fangadagskvöld var mér boðið til miðdags hjá Jóni Þorbergs- syni söngvara* ásamt Bjarna Bjömssyni skopleikara. Þetta var á þeim árum, þegar vín- bann var í Bandaríkjunum, en í Kalifomíu er mikil vínviðar- rækt, og nú vora allir markaðir yfirfullir af rúsínum og því ekkert við vínberin að gera en að fleygja þeim. Þá var það ráð tekið að leyfa hverju heim- ili að framleiða 400 potta af rauðvíni á ári til eigin þarfa. Að öðra leyti giltu sömu lög um meðferð vínsins og mátti * Jón JÞorbergsson hafði fegrurstu söngrödd. sem ég hefi nokkru sinni heyrt úr ís’enzkum barka. Mér er alltaf minnisstætt er hann söng fyrir mig Fífilbrekku Árna Thorsteinssonar með allri fegurð ljóðs og Tags, en lagði auk þess í það tuttugu ára söknuð þrettán ára drengs af Vesturgötunni i Reykjavík. Því miður varð ekkert úr hans miklu hæfileikum sökum ei-fiðra heimilisástæðna og heiisu- brests Cbronkítis), ekki taka það út af heimilinu og fyndist það í bíl, var billinn gerður upptækur auk annarra sekta. Gestgjafinn hafði fram- leitt hið ágætasta vín og nutum við þess ríkulega með máltið- inni. Það hafði verið ákveðið að við færum allir þrír á fund skálds- ins unga frá Islandi eftir mat. Og nú vildi Jón Þorbergsson að við tækjum með okkur átta potta ílát með víni til að dreypa á um kvöldið, en kona hans og ég öftraðum þvi, sem betur fór eins og síðar kom á daginn. Ég hafði heyrt talsvert um skáldið talað, þó erfitt væri að fylgjast með því sem gerðist heima, enda fór það ekki dult eftir vestur-íslenzku blöðunum að dæma, hverskonar maður væri hér á ferð. Auk þess hafði Ársæll bróðir minn skrifað mér af óvenjulegum áhuga um skáldið, um það leyti sem hann var að gefa út Undir Helga- hnúk. Halldór þekkti mig einnig af orðspori og einkum fyrir þýðingar mínar á Tagore. Svo hafði hann einnig orðið svo frægur að sjá mig og heyra á kvöldskemmtun þar sem ég hafði lesið upp frumsamin æ in- týri, ég 17 og hann 10-11 ára, og þótt mjög til fyrirmyndar. Auk þ-ess áttum við sameigin- legan kunningja þar sem Jó- hann Jónsson var. Halldór bjó þá í litiili en snot- urri íbúð, stofa, svefnherbergi og eldhús. Um kvöldið var mikið ta’að og mikið hlegið. Jón hafði jafn dillandi hlátur og rödd hans var heillandi. Bjarni var snjall skopleikari, en skemmtilegastur í góðum félagsskap, því þá kom kímni hans og glettni berast í ljós. Og auðvitað höfðum við Halldór okkar sögur að segja. Svo var það klukkan eitt um nóttina. Ég stóð frammi á gólfi, sneri baki að hurð og var að að segja einhverja sögu, þeg- ar skyndilega var barið harka- lega að dyram. Ég sneri mér við og opnaði og óðara var rek- inn stór fótur milli stafs og hurðar, en lögregluhúía skagaði yfir höfði mínu og önnur á bak við. Þeir raddust þegar inn og spurðu hvað gengi hér á. Ekkert, sagði ég, við eram hér aðeins fjórir samlandar að skemmta okkur. Við sjáum nú til, sögðu þeir og leituðu dyr um og dyngjum að vínföng- um, en fundu ekki. Þá báð- ust þeir afsökunar, sögðu að kæra hefði borizt úr næsta húsi, því fólk gæti ekki sofið fyrir hávaðanum í okkur og báðu okkur að loka glugganum og hlæja ekki alveg eins hátt. Ef við hefðum haft vínið með- ferðis, hefðum við eílaust allir verið teknir á lögreglustöðina og sennilega orðið að dúsa í steininum alla jólanóttina. Þetta vora okkar fyi’stu kynni. Að ytra útliti kom Laxness mér þannig fyrir sjónir: Hann var allhár, rúmlega meðalmaður á hæð, mjög grannur og óvana- lega mjóbeinóttur; hárið ljóst en lítið, ennið hátt, augabrúnir ljósar, nefið fremur stórt og neðri vör framstæð r.okkuð Augun vora einstaklega falleg, ljósblá og tindrandi og lýstu vökulli ihygli, góðvild og kímni. Hendurnar voru sérlega falleg- ar og langar og fingur mjóir, og hefðu hæft píanista engu síður en rithöfundi. Hann var snyrtilega til fara, fjörlegur I íasi, ekki friður, en óvenjulegur að mörgu leyti og bauð af sér góðan þokka. Síðar heimsótti ég Halldór að degi til. Þá hringdi síminn og fór fram langt samtal. Það var við húseigandann, sem var ís- lenzkur harðjaxl og dugnaðar- forkur — og skáld. Hann var að láta Laxness heyra síðasta kveoskap sinn, en Plalldór end- urorti Ijóðið í símanum og stór- bætti. Mér skildist að þetta væri næstum dagleg iðja og að með því greiddi hann húsa- leiguna. Nú fór ég til San Francisco aftur og hafði Bjarna Björns- son með mér, sem varð upp- hafið að hans löngu pílagríms- göngu heim, en það er nú önn- ur saga. Eftir þetta skrifuðumst við Halldór á og nokkra síðar varð það úr, að hann kom til min og settist að í vinnustofu minni. Ætlunin var að reyna að þýða Vefarann á ensku, sem við og gerðum, þó af vanefnum væri. Það tókst þó ekki verr en það, að Upton Sinclair, sem las þýð- inguna rækilega yfir, taldi að hver góður próíarkalesari gæti lagfært hana í hendi sér. En út- gefanda fengum við engan, þó Sinclair hefði úti allar klær. Nú liggur handritið í Lands- bókasafninu. Við störfuðum að þýðingunni saman í fjóra til fimm mánuði, en alls tók það mig hálft annað ár að ljúka henni. Jafnhliða unnum við auðvitað að okkar eigin störfum. Laxness orti sum af sínum beztu ljóðum á þess- um mánuðum, en ég samdi lög við jafnóðum. Ljóð frá Syríu (Ég er sú sorg —) orti hann 12. febrúar ’28, en ég lagið daginn ertir. Þá orti hann Leir skálmandi um gólfið og hnoðaði leir um leið, en ég samdi lagið sama dag. íslenzk vögguljóð urðu þá einnig til og lagið litlu siðar. Ég á enn framdrög kvæð- isins, sem sýna vel starfsaðferð skáldsins við yrkingar sínar. Síðar sendi liann mér frá Los Angeles Hún var það alt — og Vor hinsti dagur er hniginn, sem ég einnig samdi lög við. En alls eru lögin orðin ellefu /■ Magnús Á. Ár við Ijóð Halldórs og kallast syrpan Laxnessía* Halldór skrifaði'þama nokkra kafla Alþýðubókarinnar. Ann- ars var eins og hann hefði „tæmt“ sig eftir Vefarann, eins og hann væri að þreifa fyrir sér og sækja í sig veðrið tii enn stærra átaks. Ég tel engan vafa að hann hafi þroskazt mikið þennan tíma, sem hann var í Ameríku, þó lítið liggi eftir hann af fögrum bókmennt- um frá þeim áram. Það er geysilegt stökk frá Vefaraniun til Sölku Völku. 1 Vefaranum er hann eins og brokkgengur foli eða liestsefni, en í síðara verkinu eins og vel taminn gæð- ingur. En síðan hefur hann heldur ekki linnt sprettinum og vaxið með hverju meiriháttar verki. Hann skrifaði þá ýms brot, sem síðar urðu að þáttum. Ég mun hafa gefið honum tilefni til tveggja þeirra. Það fyrra var frásaga frá Alaska tvinnuð saman við uppfinningu, sera ég þóttist hafa gert. En sagan var svo djörf, að Halldór kom sér ekki til að lesa hana fyrir kunningja. okkar, þó ég þrá- bæði hann um það. Nú mun það handrit týnt. Hitt var aí Sigga vini mínum og mér, er við hittumst í heimsókn hjá gamalli íslenzkri konu,** sem lá veik. Báðir vora nokkuð brjóst- góðir, en fremur trúlitlir. En Siggi hafði köllun til að aftrúa alla,*** þar sem ég bar fulla virðingu fyrir hvers manns trú. Það var ekki að sökum að * Ekkert þessara laga hefur enh verið sungið hér heimia að -undan- skildu Ég er sú sorg —, ©em Goið- mundur Jónsson söng i útvarpið S fyrra. **■ Oddný Sigurðsson, móðui-systir Valtýs Sitefánssonar ritstjóra. *** Irskur vinur minh óinn sagði um hann: There is no God hut XngerSoll and Siggi is Hís prophet. Þessi mynd af HaHdóri I.ax nrss er, eins og hin mynd- in, tekin í Los Angeles í Kallfomíu árið 1928, og birtist hún framan við 1. útgáfu Alþýðubóliarinnar árið eftir.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.