Þjóðviljinn - 17.12.1955, Blaðsíða 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 17. desember 1955
Útgefandi:
Sameiningarflckkur alþýðu
— Sósíalistaflokkurinn —
I»ú skalt ekki
stela
Það boðorð kristinna manna
sem mælir svo fyrir að menn
skuli ekki stela er ekki í mikl-
um hávegum haft um þessar
mundjr. Að vísu má segja að
kapítalistískt þjóðfélag . hafi
stuldinn að undirstöðu, en þó
hafa alltaf gilt um það ákveðn-
ar reglur hvernig þeim verkn-
aði skyldi háttað og siðgæðis-
boðorð hafa verið innrætt í
samræmi við það. En einnig
þessar reglur eru nú að engu
hafðar, menn brjóta lögin hik-
laust og án nokkurs sálarstríðs
— og það er ekki annað að sjá
en þeir haldi „virðingu“ sinni
óskertri, og jafnvel magnast
hún. Heildsalar og fjármála-
menn þykja aðeins hafa sýnt
framtak í bissniss ef þeir hirða
hundruð þÚ3unda á ólöglegan
hátt, og ef menn ræna meira
en milljón fá þeir stórriddara-
kross með stjörnu og eru gerð-
ir bankastjórar.
Það hefur sannarlega gerzt
margt á Islandi síðan sauða-
þjófnaður var það afbrot sem
menn fengu ekki undir risið,
hvorki lífs né liðnir.
Nýlega héldu hin nýju siða-
lögmál einnig innreið sína í
heim bókmenntanna á eftir-
minnilegan hátt. Kristmann
Guðmundsson sendi frá sér
„heimsbókmenntasögu" og það
var sannað upp á hann hér í
blaðinu að stórir hlutar verks-
ins væru teknir ófrjálsri hendi
frá víðkunnum norskum prófess-
or og bókmenntafræðingi. Enn
átakanlegri var þessi verknað-
ur þar sem ritið var gefið út
af bókaforlagi íslenzka ríkis-
ins, og nú héldu þeir sem ekki
kunna hina nýju háttvísi að
refsing myndi fylgja glæpnum.
Það gat þó varla minna verið
en bókaforlag ríkisins hætti
tafarlaust sölu á ritinu, bæði
hinn erlenda prófessor afsök-
unar og byði honum skaðabæt-
ur ef hann vildi þiggja.
En þetta var bamaskapur
manna sem ekki fylgjast með
tímanum. Forlagið auglýsir enn
bókina sem ákaflegast og virð-
ist stefna að því að gera sem
flesta íslendinga að þjófsnaut-
úm. Og síðan óhæfuverkið
sannaðist hafa birzt umsagnir
um afrek Kristmanns í Morg-
unblaðinu, Tímanum og Al-
þýðublaðinu. Þar er ekki á
heinn hátt reynt að véfengja
að bókin sé eins til komin og
sannað var hér í blaðinu; sú
hlið málsins er aðeins afgreidd
með því að segja að skrif Þjóð-
viljans séu „kommúnistísk á-
rás“ og hvað þarf þá frekar
vitnanna við? Síðan er Krist-
manni sungið lof og dýrð, farið
mörgum fögrum orðum um
framtak hans og sagt að þann-
ig eigi' menn að skrifa fyrir
íslenzka alþýðu.
Þett'a er hið fullgilda her-
liámssiðgæði, og er ekki að efa
að ttæst fær Knstmann stór-
hækkuð skáldalaun og trúlega
stórriddarakross með stjömu.
Eri hið kristna boðorð sem vitn-
áð var til í upphafi er orðið
komxnúnistískur óhróður, runn-
Jpn undan rússneskum rifjum.
•g*
réftar!
arviija T"
Áhrlf kosningahandalaga á úrslitln
verSa minni en í siSusfu kosningum
Verðbréf í frönskum stórfyrirtækjum lækkuöu í verði á
kauphöllinni í París dagimi eftir að framboösfresti lauk
til þingkosningaxma 2. janúar.
Fréttaiitari Reuters í París
segir að verðfallið stafi af því
að stóreignamenn dragi þá á-
lyktun af framboðunum að liðs-
afli hægri flokkanna á þingi
muni skerðast verulega í kosn-
ingunum.
Elur fengur . . .
Meirihluti hægri flokkanna á
þinginu sem rofið var stafaði af
kosningalögum, sem veita lista
eða listabandalagi sem fær
helming greiddra atkvæða í
kjördæmi eða meira öll þingsæt-
in sem þar er kosið um. í
Frakklandi er kosið um 554
þingsæti í 103 kjördæmum.
Kosningalögin komu í stað
hreinna hlutfallskosninga og
voru sett til þess að hindra að
kommúnistar fengju þingstyrk
í samræmi við kjörfylgi flokks-
ins.
Þessum tilgangi var að veru-
legu leyti náð í kosningunum
1951, vegna þess að borgara-
flokkarnir og sósíaldemókratar
gerðu með sér kosningabandalög
í flestum kjördæmum og hirtu í
krafti hinna nýju kosningalaga
öll þingsætin í nær helmingi
kjördæmanna.
í kosningunum annan í nýári
horfir öðru vísi við. Nú hafa
hægriflokkamir, miðflokkamir
n«»*M**«t> ca«t«t«k *
og sósíaldemókratar gert kosn-
ingabandalög í aðeins 10 kjör-
dæmum. í 59 kjördæmum hafa
hægriflokkarnir kosningabanda-
lög og í 45 kjördæmum hafa
komizt á kosningabandalög milli
sósíaldemókrata og þess hluta
borgaralegu miðflokkanna sem
fylgir Mendés-France að málum.
Andkommúnistiska fylkingin frá
1951 gengur því klofin til kosn-
inga að þessu sinni.
Kommúnistum spáð
þriðjungi fleiri þingsætum
Stjórnmálamenn í París telja,
á kosningalögunum. Fréttaritaii
Rcuters telur að þeir muni
vinna um 30 þingsæti, fá um
það bil 125 þingmenn kjörna.
Óánægja er mikil meðal sósí-
aldcmókrata yfir afstöðu flokks-
stjórnaiinnar, sem hafnaði kosn-
ingabandalagi við kommúnista
en gerði bandalög við borgara-
flokka, þar á meðal eitt af
flokksbrotum gaullista. Telja
ýmsir að óánægðir sósíaldemó-
kratar muni kjósa kommúnista.
Framboð hreyfingar þeirrar
sem kennd er við Poujade, og
hvetur kaupmenn og smáat-
vinnurekendur til að neita að
að borga skatta, kann að valda
töluverðu raski innan hægri
flokkanna. Fylgismenn Poujade
bjóða sig fram í 46 kjördæ'mum,
og gizkað er á að þeir kunni að
fá milljón atkvæða af 22 milljón-
um sem búizt er við að verðí
greidd.
...... ■ \
5831 frambjóðandi
Alls keppir 5381 frambjóðandi
um þingsætin 554 í Frakklandi
að þessi röskun á bandalögum sjálfu og á Korsíku. Listamiv
l
nýkomin
Noi'thern Trading CempiTj
Kirkjuhvoli — Sími 7155
•■MaHMMiiMaaaKMaMHHHuuuaHauuHamHMHHHiiianiinMiiaaHi
verði til þess að þingsæti skipt-
ist eítir hiutfallsreglum í að
minnsta kosti tveím þriðju kjör-
dæmanna. Kommúnistar eru sá
flokkur sem fyrst og fremst mun
græða á þeirri breytingu. Þeir
fengu 94 þingsæti í síðustu
kosningum útá 5.100.000 atkvæði.
(Til samanburðar má geta þess
að sósíaldemókratar fengu 103
þingsæti útá 2.700.000 atkvæði).
Borgarablaðið Le Monde spáir
því að kommúnistar muni nú
vinna aftur verulegan hluta
þeirra þingsæta sem þeir voru
sviptir 1951 með breytingunni
sem bornir hafa verið fram eru
095. Árið 1951 voru framb.jóð—
endurnir 3946.
Af þingmönnum á franska
þinginu eru 30 kosnir í Alsír og:
53 í öðrum nýléndum Frakk-
lands. Upphaflega var gert ráð
fyrir því að kosið yrði í Alsír
sama dag og í Frakklandi sjólfu,
en kosningum þar hefur nú verið
aflýst. Sjálfstæðishreyfing lands-
búa tiótaði að gera kosningar ó-
framkvæmanlegar. Ríkisstjórnin;
í París ráðgerir að láta þing-
mennina sem kosnir vofu í Alsír
1951 sitja áfram fyrst um sinn.
Flugbjörgtisiassveiiin kynnir
■■■■■■■■■■■■■ i i
sem auglýst var í 74., 75. og 76. tbl. Lögbirtingar-
blaðsins 1955 á v.s. Von Í.S. 100, nú R.E. 326, talin
eign Þorkels Guðmundssonar, fer fram eftir kröfu
Fiskveiðasjóðs. íslands, Jóns Bjarnasonar hdl. og
Björgvins Sigurðssonar hdl., um borð í skipinu
í Reykjavíkurhöfn, fimmtudaginn 22. desember
1955, kl. 2,30 síðdegis.
Borgarfógetinn í Keykjavík
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■U(UUH«H»MMU»n>UUUMMMUMMI
■■•■■■••■■■■■■■■■■■■■•■■■■•■■i(ll>aaa>aal,IIIIH((aaaa(MII(lalll
vogsbuar
Gerið jólainnkaupin í tíma — Höfum allt, sem þér
þarfnist í jólabaksturinn og á jólaborðið:
JÓLAÁVEXTIR
nýir,
niðursoðnir, '
þurrkaðir.
GRÆNMETI
nýtt
og niðursoðið.
SÆLGÆTI
SÍGARETTUR
VINDLAR
DILKAKJÖT
Súpukjöt
Læri
Hrygg
Kótelettur.
SALTKJÖT
HANGIKJÖT
SVIÐ
SVtNAKJÖT
RJÚPUR
:
Einnig' leikföng -í miklu úrvali og alls konar
smávörur.
Kaupféiag Kópavogs
Álfshólsvegi 32 — Sími 82645.
CHET BAKER
fremsta jazzleikara Bandaríkjanna á hljómleikum
í Austurbæjarbíói sunnudaginn 18. þ. m.
UPPSELT
Aðrir hljómleikar mánudaginn 19. þ. m.
Aðgöngumiðasala í Austurbæjarbíói og Músikbúð-
inni, Hafnarstræti 8.
Aðeins þessir tveir hljómleikar
Flugbjörgunarsveitin.