Þjóðviljinn - 20.12.1955, Side 3

Þjóðviljinn - 20.12.1955, Side 3
Þriðjudagur 20. desember 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (3 Síðusiu varnaSarosrð 09 eggjan Jónas Þsrbesgssonar: Ríkisútvarpið' er aldarfjórð- ungs gamalt. Þrátt fyrir allar deilur og dóma um Ríkísútvarp- ið munu allir sammála um að það hafi innt af höndum ómetan- lega menningarþjónusíu fyrir þjóðina alla. Lengi býr að fyrstu gerð. Og flestir munu nú viðurkenna að Jónas Þorbergsson, sá maður er bar hita og þunga dagsins við stofnun útvarpsins, mótaði það og stjórnaði því frá fyrsta deg þess þar til fyrir tæpum tveim árum, hafi unnið giftudrjúgí verk. Það gerðist margt í lok þriðja áratugs þessarar aldar. Þá var komið á fót ýmsum nýjum stofnunum. Ríkisútvarpið er eitt þeirra ævintýra sem gerðust hér, eftir að við fengum sjálfstæðið, mynduðum landsmálasamtök og hófumst handa um framfarir, sagði Jónas Þorbergsson, fyrrver- andi útvarpsstjóri, er ég leit inn til hans í tilefni afmælisins. VIÐHORFIÐ FYRIR 25 ÁRUM Þegar útvarpið tók til starfa fóru kreppuár í hönd í fátæku og strjálbyggðu landi. Þá voru all- hörð pólitísk átök, sem löngum hér á landi, og Jónas Þorþergs- son fór beint úr eldi stjórnmála baráttunnar, ritstjórn Tímans, að því verki að stofna og starfrækja útvarp er þjóna skyldi allri þjóð- inni jafnt, en engum stjórnmála- flokki. Slíkt verkefni var ekki heiglum hent. Vöxtur útvarpsins talar kannski skýrustu máli um hvernig Jónasi Þorbergssyni hafi tekizt þetta verk. Þegar útvarpið tók til starfa voru 450 útvarps- tæki til í landinu. Eftir 10 ára starf útvarpsins voru útvarpsnot- endur orðnir 10 þús. Og þrátt fyrir að við íslendingar byrjuðum útvarpsstarfsemi 10 árum á eftir öðrum þjóðum voru íslendingar að 20 árum liðnum komnir í fremstu röð þjóða um útvarps- not. GILDIÐ ENN LÍTT BREYTT Upphaflega var hugmyndin að útvarpið yrði einskonar undir- stofnun Landsímans, en Jónas Þorbergsson kveðst hafa neitað að taka að sér stofnun þess og stjórn, nema því aðeins að út- varpið yrði sjálfstæð rílcisstofnun og um rekstur hennar yrðu sett sérstök lagaákvæði. Spumingum mínum um stofnun Ríkisútvarps- ins og rekstur þess segir Jónas bezt svarað í kveðjuræðu þeirri er hann flutti í útvarpinu fyrir tæpum tveim árum. Jónasi var fialinn undirbúningur lagasetn- ingarinnar. Um það segir hann á þessa leið: — Við samningu lagafrum- varpsins fékk ég mér til aðstoðar mann er ég taldi í senn vitran og góðgjaman, Ólaf Kvaran rit- símastjóra. Frumsmíð okkar hláut að einum þræði að miðast við þær fyrirmyndir, er fyrir voru um ríkisstofnanir, öðrum þræði við sérstakar þjóðfélags- legar aðstæður og að nokkru við þær fyrirmyndir er við gátum aflað okkur um útvarpsrekstur í öðrum löndum. Þrátt fyrir tak- Landspítalinn 25 ára Jónas Þorbergsson markaða þekkingu okkar tókst þó svo að þessi frumsmíð stendur í öllum meginatriðum óbreytt enn í dag. Breytingar sem gerðar hafa verið og einkum hafa varðað skipun útvarpsráðs, haf a að mínu áliti ekki orðið til bóta. MERKXD SETT HÁTT — Um þjónuslusky'du utvarps- ins settum við Ólafur Kvaran markið hátt. Fimmta grein út- varpslaganna kvéður svo á að við útvarpið skuli ríkja skoðanafrelsi og fyllsta óhlutdrægni gagnvart öllum flokkum og stefnum í al- mennum málum, atvinnusiofnun- um, félögum og einstökum mönn- um. Þetta hefur ve;ið meginboð- orð útvarpsins. Vegna þessa boð- orðs hefur útvarp ð ekki orðið handbendi neins sérstaks stjórn- málaflokks eða fokka. Þannig segist Jónasi Þorbergs- syni frá, og ættu menn að vera minnugir þessara orða hans og þola engum pólitíska misbeitingu útvarpsins. ÚTVARPSNOTENDUR SKYLDU NJÓTA Spurningunni um viðtækjasöl- una svarar Jónas á þessa leið: — Við upphaf Rikisútvarpsins, árið 1930, töldust vera í landinu um 450 útvarpsviðtæki.... Enda þótt viðtæki í landinu væru ekki fleiri en þetta kom í ljós við at- hugun, að um 100 mismunandi gerðir útvarpsviðtækja höfðu þegar verið fluttar inn I landið. Það var því í upphafi ljóst, að yrði innflul ningur og sala á við- tækjum látin vera frjáls og á opnum markrði myndi þegar skapast öngþveiti i útvarpsnot- Um landsmanna. Bæði kaupsýslu- menn og allan almenning skorti alla þekkingu á gæðum og eigin- leikum útvarpsviðtækja, óhæfi- lega margar tegundir myndu því fluttar inn í landið, og viðgerðar- þjónustan yrði því sama og eng- in. Þess vegna hurfu forráðamenn útvarpsins að því ráði að hafa einkasölu á viðtækjum og vara- h1utum. Skyldi Ríkisútvarpið fá ágóðann, enda voru það útvarps- notendur sjálfir sem greiddu ágóðann af honum og bar því átvíræður réttur til að njóta hans á óbeinan hátt með betri þjón- ustu. FRÉTTAÞJ ÓNUSTAN — Og hvað um Fréttastofuna? — Það hefur vakið eftirtekt erlendra manna, sem eitthvað hafa kynnzt útvarpsrekstri á ís- landi, að Ríkisútvarpið hefur eig- in fréttastofu, ákveðnar frétta- reglur og hefur byggt upp eigið fréttakerfi utanlands og innan. Hvarvetna erlendis er fréttaþjón- usta útvarpsins í nánu sambandi við hinar stóru fréttastofur blað- anna. Frá þessum fréttasofum streyma fréttirnar cftir fjarriiun- arvélum til útvarpsins. Hlutverk útvarpsins hér á landi varð m. a. það, að veita landsmönnum sanna og óhlutdræga fræðslu um sam- tíðarviðburði. Fyrir því var þegar í upphafi stofnuð fréttastofa og fréttaritarar ráðnir í sýslum og kaupstöðum landsins. Um fréttir af heimsviðburðum hefur útvarp- ið einkum stuðst við útvarps- fréttir Breta og Norðurlandaþjóð- anna. FURÐULEGAR RÁÐ- STAFANIR Það þarf ekki að spyrja Jónas Þorbergsson að því hvort f járhag- ur útvarpsins hafi ekki verið örð- ugur í jafn fámennu landi, fyrstu starfsárin, slíkt getur hver maður sagt sér sjálfur. Starfsskilyrði við útvarpið hlutu að byggjast á góðum fjárhag. Engum mun hafa verið þetta ljósara en Jónasi Þor- bergssyni. Hann notaði því tæki- færið sem bauðst á stríðsárunum og kom upp framkvæmdasjóði Ríkisútvarpsins. Og í ársbyrjun 1950 hafði hann komið sjóði þess- um í röskai- 6 millj. kr. Árið 1950 var skellt á gengislækkun og fengu allar ríkisstofnanir — nema útvarpið að hækka þjónustugjöld sín um 50—80%. Árið 1950 ákvað Alþingi einnig að svipta Ríkisút- varpið hagnaði viðtækjaverzlun- arinnar og láta hann ganga til greiðslu á skuldum alls óskylds fyrirtækis. Flestir munu hafa ver- ið á einu máli um að báðar þess ar ráðstafanir hafi orsakazt af pólitískri fjandsemi gegn Jónasi Þorbergssyni, en við ergjum hann ekki með spurningum um þetta atriði. HINN MIKLI DRAUMUR Hinsvegar spyrjum við hann um ráðagerðirnar um að koma upp útvarpshúsi. Hann svarar á þessa leið: — Ég átti hér á árunum stór Framhald af 16. síðu. um. Meðaltalssjúklingafjöldinn hélt þó áfram að hækka nokk- uð og komst í 146.7 sjúklinga árið 1944, enda var þá búið að gera að sjúkrastofum öll auka- herbergi, svo sem dagstofur o. fl. Árið 1949 bættist nýja fæð- ingadeildin við, og fjölgaði þá rúmum upp í um 180, en vegna aukarúma, sem einnig eru stöð- ugt í notkun í fæðingadeild- inni, hefur meðaltalsfjöldi sjúklinga komizt upp í 191.5. Tæplega 50 þús. sjúklingar Eins og áður segir hafa tæp- Iega 50 þús. sjúklingar komið í spítalann síðan hann tók til starfa, flestir í fæðingadeild eða 21220, þá í handlækninga- deild 16190, lyflækningadeild 9349 og húð- og kynsjúkdóma deild 2892. Auk þessa er svo mikill fjöldi utanspítalasjúk- linga í röntgendeild. Sjúklingafjöldinn hefur ault- izt ár frá ári þó að sjúkrarúm- um hafi ekki fjölgað að sama skapi. Stafar það af því að sjúklingar eru nú útskrifaðir eftir skemmri spítalavist en áður og auk þess hefur Land- spítalinn notið góðrar sam- vinnu við elliheimilin Sólvang í Hafnarfirði og Grund í Reykja- vík, sem tekið hafa við lang- Sjénftenul Kjósið strax í stjórnarkjöri því sem fram fer í Sjómannafélagi Reykjavíkur þessa dagana. — Kosið er daglega milli kl. 3 og 6 í skrifstofu félagsins Hverf- isgötu 8-10. Kosið er á milli lista núver- andi stjómar og lista starf- andi sjómanna, sem skipaður er eftirtöldum mönnum: Formaður: Hólmar Magnússon. Varaformaður: Sverrir Guð- mundsson. Ritari: Jónas Árnason. Féhirðir: Hilmar Jónsson. Varaféhirðir: Hreggviður Daní- elsson. Mcðstjórnendur: Bjarni Thor- arensen, Steingrímur Einarsson. Varam.: Þorsteinn Þorsteins- son, Jón Halldórsson og Jón Tímótheusson. Kjósið X B-listann. legusjúklingum, er ella hefðu: orðið að liggja í spítalanum, Nokkrar tölur sýna aukningu; sjúklingafjöldans: 1935 vora þeir 1126, 1940 1486, 1945 1942, 1950 2918, 1954 3667 og á þessu ári 3819. Starfsmenn eru nú rúml. 200 I lok fyrsta ársins vorú starfsmenn alls 61, 1940 voru þeir 92, 1950 180 og 1954 207. Forstjóri spítalans er Snorii Hallgrímsson prófessor, sem jafnframt er yfirlæknir hand- lækningadeildar. Yfirlæknir lyf- lækningadeildar er Sigurður Samúelsson prófessor, fæðinga- deildar Pétur H. Jakobsson og röntgendeildar Gísli Petersen, Hannes Guðmundsson hefur umsjón með húð- og kynsjúk- dómadeild. Forstöðukona spítal- ans er Sigríður Bachmann og ráðskona í eldhúsi Kristbjörg Þorbergsdóttir. I 180 sjúkrarúm i viðbyggingu Það voru samtök kvenna sem á sínum tíma höfðu forgöngu um smíði Landspítalans, söfn- uðu fé til byrjunarfram- kvæmdanna og unnu að öðru leyfi ötullega að framgangi þessa nauðsynjamáls. Nú : er unnið að mikilli stækkun spít- alahússins og má segja að enn hafi konurnar átt drýgstan þátt í að því verki varjirundið af stað, þar sem Kvenfélagið Hringurinn lagði fram barna- spítalasjóð sinn til bygginga- framkvæmdanna. Þessi nýja viðbygging verður 3 hæðir og kjallari og um 30 þús. rúm- metrar að stærð. Gert er ráð fyrir að þar verði hægt að koma fyrir um 180 sjúkrarúm- um. Smíði byggingarinnar er mjög stutt komið, ekki búið að steypa upp kjallarann enn og búizt við að hægt verði að taka húsið til notkunar í fyrsta lagi eftir, 3 ár, ef nægilegt fé fæst til framkvæmdanna. Loks er að geta þess, að hin nýja heimavist Hjúkrunar- kvennaskólans á Landspítala- lóðinni verður væntanlega tek- in í notkun á næsta vori. Losn- ar þá efsta hæð spítalahússins og mun barnaspítalanum vera ætlaður vesturendi hennar. an vökudraum og hugsýn. Mig dreymdi það er 25 ár væru liðin frá stofnun Ríkisútvarpsins ætti það ekki einungis gott og traust kerfi útvarpsstöðva, heldur hefði einnig auðnazt að koma upp eigin húsnæði fyrir allar starfsgreinar sínar. Þess vegna lagði ég eftir mætti kapp á að afla útvarpinu tekna og efla framkvæmdasjóð. Þessi draumur rættist því miður ekki nema að hálfu. Byggingu stöðvanna var lokið, en bygging útvarpshúss á langt í land. VARNAÐARORÐ OG EGGJAN Þegar Jónas Þorbergsson lét af störfum við stjórn útvarpsins, fyrir tæpum tveim árum sagði hann m. a.: — Og svo að lokum nokkur varnaðarorð til þjóðarinnar. Við brottförina er ég mér þess með- vitandi að hafi ég unnið nokkurt happaverk í þjónustu Ríkisút- varpsins, þá er það sú tilhlutan mín að f á tekin inn í 5. gr. útvarps- laganna ákvæði um það, að við útvarpið skuli ríkja skoðanafrelsi og fyllsta óhlutdrægni gagnvart öllum flokkum og stefnum í al- mennum málum, atvinnustofnun- um, félögum og einstökum mönn- um. Vegna þessara ákvæða hefur útvarpið getað þjónað lýðræði. Því er almennt treyst að útvarpið vilji segja satt og rétt frá stað- reyndum. Þess er almennt krafizt að það virði og verndi í starfi sínu jafnan rétt allra manna, Fyrir því verða þetta mín sið- ustu varnaðarorð og eggjan: Standið fast á verði, íslendingar, um þessa helgu skyldu, um þenn- an helga rétt. Svo brýnt erindi seni þcssi orð* Jónasar Þorbergssonar áttu tik þjóðarinnar fyrir tveim árum, þá eiga þau enn brýnna erindi til hennar i dag. .1. B.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.