Þjóðviljinn - 20.12.1955, Síða 7
Þriðjudagur 20. desember 1055 — ÞJÓÐVILJINN — (7
Hlllfkesfi í SÞ Ritskoðari látinn
Jólalefkrit Þjóðleikheissins
Fullyrt var í gær í bækistöðv-
um SÞ að fulltrúar stórveld-
anna hefðu orðið sammála um
þá lausn á deilunni um ellefta
sætið í Öryggisráðinu, að Júgó-
slavía og Filippseyjar sitji
hvort hálft kjörtímabilið. Kos-
ið hefur verið milli ríkja þess-
ara í 35 skipti en aldrei náðst
tilskildur meirihluti. Hlutkesti
hefur þegar verið varpað um
hvort ríkið skuli sitja í ráðinu
fyrra ár kjörtímabilsins, og
kom upp hlutur Júgóslavíu.
Clarendon jarl, æðsti her-
bergisþjónn Bretakonunga (og
drottninga) dó í síðustu viku
78 ára gamall. Núorðið fylgja
nafnbótinni engar skyldur í
svefnherbergi þjóðhöfðingjans.
Hins vegar hafði jarlinn vald
til að banna hverja þá leiksýn-
ingu í Englandi sem ekki féll
honum í geð. Fyrir háifum
öðrum áratug beitti hann þessu
valdi óspart til að hindra það
að kvenfólk sýndi sig léttklætt
á sviði söngleikahúsa.
Sprenging í her-
mannaklúbb
Fimmtán menn, tíu þeirra
brezkir hermenn, særðust þegar
sprengju var hent inn í brezkan
hermannaklúbb í Nicosia, höf-
uðborg Kýpur, í gær. Þrír
Bandaríkjamenn særðust einn-
ig. Tveir hinna særðu eru í
lifshættu.
I Aþenu, höfuðborg Grikk-
lands, lenti lögreglu og stúd-
entum saman í gær. Var lög-
reglan send til að hleypa upp
fundi sem stúdentar héldu til
að mótmæla framferði Breta á
Kýpur.
Járnbraut
yiir Gobi
Á jóladag fer fyrsta járn-
brautarlestin um nýju braut-
ina sem lögð hefur verið yfir
Gobieyðimörkina í MiðA^íu.
Þessi jámbraut tengir saman
Peking, höfuðborg Kína, og Ul-
an Bator, höfuðborg Ytri Mon-
gólíu.
Frarnhald af I. síðu
London eftir fyrirsögn leikstjór-
ans, en Lárus Ingólfsson hefur
málað þau. Búningar eru saumað-
ir í saumastofu leikhússins, undir
stjórn frú Nönnu Magnússon.
Enn ber að geta þess að Jón
E. Guðmundsson hefur gert
nokkra höfuðbúninga sem notaðir
eru í leiknum.
Nú er ekki fleira að segja i
bili, en það er trúa fréttamanns
að hér muni vel til takast. Jóns-:
messunæturdraumur er eitt af
yndislegustu leikritum Shakespe-
ares, og munu fá verka hans hafa
víðar ratað né verið sýnt öllu oft-
ar. Létti hann svo vetrardrung-
anum á þessari norðlægu strönd.
iBllftVBUIBBI
Jéleiskémlr
komnir
Lakkskór fyrir drengi og telpur, margar gerðir.
HECTOR, Laugaveg 1 1.
Skóbúðin, Spítalastíg 10.
j Sósíalistafélag Reykjavíkur
Jólatrésskemmtun
heldur félagið fimmtudaginn 29. des. 1955 kl. 8,30
| e. h. í Iðnó.
Fjölbreytt dagskrá. Jólasveinninn heimsækir börn-
] in. Sýnd verður bráðskemmtileg kvikmynd. Nánar
j auglýst í blaðinu á morgun.
Aðgöngumiðar sækist í skrifstofu Sósíalistafélags
] Reykjavíkur Tjarnag. fO. Sími 7511. Opið kl.
| 10—12 f. h., 1—7 e. h og 8.30—10 e. h.
Tryggið ykkur aðgöngumiða í tíma.
SKEMMTINEFNDIN.
»KIENZLE« - KLEKKER
KIENZLE klukkan er smíðuð af fylstu nákvæmni.
Öll hráefni, sem KIENZLE klukkan er gjörð af eru þaulprófuð áðm’ en
smíði hefst og liver hlutur er athugaður og reyndur áður en hann er settur
í klukkuna. Þegar klukkan er fullsmíððuð er gangurinn stilltur og reyndur.
Heimsfrægð „KIENZLE" tímamælanna byggist á þrotlausu endurbóta-
starfi KIENZLE-fjölskyldunnar, sem hófst fyrir 130 árum.
KIENZLE merkið á skífunni er því trygging fyrir beztu vörugæðum og
fylista öryggi.
Hér á landi eru KIENZLE klukkufnar á þúsundum heimila vegna sér-
staklega smekklegs útlits og góðrar reynslu kaupenda.
KIENZLE klukkurnar hafa ýmislegt fram yfir aðrar klukkur. Við fag-
menn mælum eindregið með þessum ágætu klukkum og veitum fúslega allar
nánari u 'plýsingar um þær.
Sú gerð, sem bezt fellur í yðar smekk, fæst hjá einhverjum okkar. Árs-
ábyrgð fylgir hverri einustu KIENZLE klukku. Gætið þess er þér kaupið klukku
að KIENZLE standi á skífunni.
ELDHÚSKLUKKA
8 daga gangverk úr hvítum
teinleir með gleri
2 steinar
VEGGKLUKKA
eik eða hnota 14 daga
slagverk bim bam
■N
HILLUKLUKKA
eik eða hnota 14 daga slag
„Fantasie“-vekjarar, stílklukkur, borð- og skápklukkur, ferðavekjarar
smávekjarar, skrifborðsklukkur, „músíkvekjarar", stórir vekjarar. DUO-vekj-
arar, skrifborðsklukkur, skrifstofuklukkur, eldhúsklukkur, eggjaklukkur, dag-
stofuklukkur, veggklukkur, húsklukkur, og bifreiðaklukkur.
Allar þessar gerðir eru til í stóru úrvali. Kaupið því klukkuna hjá okk-
ur og þér verið ánægð.
Fást hjá eftirtöldiun fagmönnum:
verk
bam.
Fantasivekjari
Sigurður Tómasson úrsmiður
Skólavörðustíg 21 — Sími 3445
Jóhann Á. Jónasson úrsmiður
Skólavörðustíg 2 — Sími 3939
Magnús E. Baldvinsson úrsmiður
Laugavegi '12
í Reykjavík’
Guðlaugur Gíslason úrsmiður
Laugavegi 65
Magnús Ásmundsson úrsmiður
Ingólfsstræti 3
Magnús Sigurjónsson úrsmiður
Laugavegi 45 — Sími 4568
Kornelíus Jónsson úrsmiður
Skólavörðustíg 8
DUO vekjari
Úr og listmunir
Austurstræti 17
Björn og Ingvar úrsmiðir
Vesturgötu 16
Árni B. Björnsson
Lækjartorgi
Á ísafirði:
Þórður Jóhannsson úrsmiður
Hafnarstræti 4
Arne Sörensen úrsmiður
Aðalstræti 22
>•■■1
í Hafnarfirði:
Magnús Guðlaugsson úrsmiður
Strandgötu 31
i