Þjóðviljinn - 22.12.1955, Page 16
Lokið við að skipta nær 12 milíjónum
króna milli bænda á óþurrkasyæðinu
4M þús. kr. hafa verið greiddar til heyflutninga
Nú hefur að' mestu verið lokið við að skipta því fé, sem
verja á til aðstoðar þeim bændum, er harðast urðu úti
vegna óþurrkanna sl. sumar. Er alls búið að greiða um
400 þús. krónur til heyflutninga og úthlutað hefur veriö
til fóðurbætiskaupa lánum að upphæð nær 12 millj. kr.
Páll Zóphóníasson, búnaðar-
málastjóri, og Árni G. Eylands,
stjórnarráðsfulltrúi, skýrðu
fréttamönnum frá þessu í gær, en
ríkisstjórnin fól þeim á s.l. hausti
að gera tillögur um þessa aðstoð
og hafa yfirumsjón með henni.
Reynt að tryggja nægan
fóðurbæti
Fyrsta verk þeirra eftir að þeir
voru skipaðir til þessa starfs var
að athuga hvernig ástatt væri um
fóðurbæti í landinu og hverjar
horfur um innflutning á kjarn-
fóðri. Samkvæmt ábendingum
þeirra gerði ríkisstjórnin ráðstaf-
anir til þess, að innlendur fóður-
bætir væri ekki fluttur úr landi
örar og meir en svo að tryggt væri
að bændur ættu kost á nægu síld-
ar. fiski-oghvalmjöli, enáundan-
förnum árum hefur innanlands-
notkun þeirrar vöru verið nálægt
5 þús. smál. á ári. Einnig voru
gerðar ráðstafanir til að tryggja
stóraukinn innflutning ú útlend-
um fóðurbæti.
Málverk til sýnis
og sölu upp í
400 þús. kr. til heyflutninga
Þá ákvað ríkisstjórnin að létta
undir með þeim bændum á ó-
þurrkasvæðinu, sem kaupa hey
og flytja að sér langar leiðir. Er
nú alls búið að greiða um 400 þús.
krónur til þessara heyflutninga,
er nema um 7000 lestum, en þær
tölur eru ekki endanlegar. Fram-
lagið er allt að % kostnaðar við
flutninginn og er þá miðað við að
heyið hafi verið flutt á hagkvæm-
an hátt án óeðlilegs tilkostnaðar.
Heyflutningar hafa mest verið
úr Eyja- og Skagafjarðarsýslum,
en einnig talsverðir úr Þingeyjar-
sýslum.
komnar en væntanlegar beiðnir
úr nokkrum hreppum.
Mest lánað í Árnessýslu
Þeir Páll og Árni hafa nú lokið
við að ákveða lánin í hreppina
og hefur ráðherra fallizt á tillög-
ur þeirra. Alls hefur verið út-
hlutað 11.880.500 krónum,
mest til bænda í Árnessýslu um
4 millj. 275 þús. kr., Rangárvalla-
sýslu 2,9 millj. Gullbringu- og
Kjósarsýslu 1,1 millj., Mýrar-
Framhald á 3. síðu.
Fimmtudagur 22. desember 1955 — 20. árgangur — 291. tölublað
n eru
Nýi foffsætisráðherrazm lofar að ganga
ekki í Bagdadhandalagið
Það er ekki um að villast að atburðir síðustu daga hér
eru ósigur fyrii- Vesturveldin, sagði fréttaritari brezka út-
varpsms í Jórdan í gær.
Ríkisstjórn sem var þess al-
búin að láta Jórdan ganga í Bag-
dadbandalag Vesturveldanna og
fylgiríkja þeirra varð að segja
skatta
Bæjarbúum gefst í kvöld tæki-
færi til að sjá í gluggum Mál-
arans og kaupa nokkur mál-
verk, sem þar eru til sýnis,
eftir ungan málara Gunnar S.
Magnússon.
í glugganum (Ingólfsstrætis-
megin) verða nokkur olíumál-
verk, vaxmyndir og teikningar.
Myndirnar eru allar til sölu,
því listamaðurinn þarf að selja
þær til greiðslu á sköttum og
útsvari, sem hann hefur samið
um lögtaksfrest á.
Gunnar S. Magnússon hafði
málverkasýningu hér 1939, þá
aðeins 18 ára gamall, en þá hélt
hann til listnáms í Osló.
Nokkur verk hans verða til
sölu og sýnis í Málaranum, eft-
ir kl. 6 í kvöld.
Lánbeiðnir nema 19 millj. kr.
Eins og kunnugt er var ákveðið
að verja um 12 millj. króna til
lána til bænda á óþurrkasvæðinu
til þess að gera þeim kleift að sem
kaupa nægilegan fóðurbæti, en
þeir Páll og Árni gerðu ráð fyrir
að lokinni athugun að bændur
þyrftu að kaupa í vetur fóður-
bæti fyrir 25 millj. kr. umfram
kaup í venjulegu árferði.
Oddvitum var síðan falið að
safna lánabeiðnum og hrepps-
nefndum að gefa sem beztar upp-
lýsingar um ástæður bænda. Hafa
lánabeiðnir verið að berast allt til
þessa og nema nú alls um 19
milljónum króna. Enn eru ó-
Indland, Burma og Afganistan
eru bandamenn Sovétríkjanna
í baráttunni fyrir friði, segir Krústjoff við
heimkomuna til Moskva
Búlganín forsætisráöherra og Krústjoff, framkvæmda-
stjóri Kommúnistaflokks Sovétríkjanna, ,komu í gær heim
til Moskva eftir mánaðar ferðalag um Asíu.
Ferðalangamir ávörpuðu þá,
komnir voru á flugvöllinn
Til útsölumanna
úti á landi
Það verður dregið á Þor-
láhsmessu hinn 23. des.
Allir útsölumenn happ-
drættisins eru vinsam-
lega beðnir að póst-
leggja óselda miða í síð-
asta lagi hinn 23. des-
ember.
Tiikvnnið okfeur sím-
leiðis hinn 23. des.
hvernig salan stendur.
Hjálpumst öll að því að
breyta happdrættismið-
unum í peninga og láta
sem minnst eftir óselt.
Happdræftisnefndin
Verkalýðsforusta
íhaldsins í
Borgarnesi
Borgarnesi í gær.
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Þrátt fyrir svokallað vinstra
samstarf við hreppsnefnd Borg-
arneshrepps, mynduðu Framsókn
og íhaldið forustu í verkalýðsfé-
laginu um síðustu áramót. Nú
! hefur Framsókn endurtekið
’ stuðning við sömu stjórnaxfor-
ustu fyrir næsta ár. Enginn fund-
ur né liíandi starf hefur verið í
verkalýðsfélaginu á árinu.
Vilja óbreyttir Framsóknar-
menn slíkt samstarf við íhaidið?
Hvenær er vinstri mönnum nóg
taoðið?
Skellir skuldínn
á fsraelsmenn
Kanadiski liðsforinginn
Burns, yfirmaður eftirlitssveita
SÞ á landamærum Israels og
arabaríkjanna, hefur gefið Ör-
yggisráðinu skýrslu um viður-
eign fsraelsmanna og Sýrlend-
inga við Genesaretvatn fyrir
skömmu. Segir Burns, að eng-
um blöðum sé um það að fletta
að ísraelsmenn hafi þar rofið
vopnahléssamninginn vitandi
vits og af ráðnum hug.
Búlganín
Krústjoff
til að bjóða þá velkomna heim.
Krústjoff komst svo að orði
að Indland, Bui-ma og Afganist-
an, sem þeir félagar heimsóttu,
væru nú bandamenn Sovétríkj-
anna 1 baráttunni fyrir traust-
um friði í heiminum. Bróðurieg
vinátta Sovétríkjanna og Ind-
lands myndi hér eftir verða söm
í meðlæti og mótlæti,
Búlganín komst svo að orði
að stjórnendum sumra vest-
rænna ríkja virtist lítið gefið
um að vináttuböndin milli Sov-
étríkjanna og Indlands, Burma
og Afganistan styrktust. Við
látum það ekki á okkur fá,
sagði Búlganín, við fögnum vin-
áttu þessara ríkja.
m aiivifpr
Dulles
Ekki blæs byrlega fyrir beiðni
Bandaríkjastjórnar um að þing-
ið samþykkti nær tvöfalda fjár-
veitingu til aðstoðar við er-
lend ríki. Dulles utanríkisráð-
herra skýrðj frá því í gær að
stjórnin myndi biðja um 4.900
millj dollara fjárveitingu til
þeirra þarfa á næsta fjárhags-
ári, en á gildandi fjárlögum
voru veittar 2.700 milljónir.
Byrd öldungardeildarmaður,
hinn valdamikli formaður fjár-
hagsnefndar öldungadeildarinn-
ar, hefur Jýst yfir að hann sé
algerlega mótfallinn hækkun á
fjárveitingunni til aðstoðar við
önnur ríki. George öldunga-
deildarmaður, formaður utanrík-
ismálanefndar, sagði í gær að
engar likur væru til að þing-
ið samþykkti beiðni ríkisstjórn-
arinnar.
Týndur höfundur
Ný bók, eftir Einar
Kristjánsson Frey
í gær kom út fyrsta bók Einars
Kristjánssonar Freys, en hann
hefur undanfarin ár birt nokkrar
smásögur í tímaritum og á eina
sögu i nýkomnum Smásögum
ungra skálda.
Bók Einars heitir Týndur höf-
undur, og er meginefni hennar
samnefnt leiki'it í fimm þáttum,
101 blaðsíða. Að því búnu koma
fimm ritgerðir, er svo heita:
Hvernig verða sýningarhæf leik-
rit til?, Nokkur orð um ljóðskáld
og ljóð, Að bera sannleikanum
vitni, Það vantar hljómleikahöll,
íslenzþi drengurinn sem fann upp
sundið. Samtals er bókín 122
blaðsíður í fremur smáu broti.
Hún er prentuð í Prentsmiðju
Þjóðviljans, en útgeíandi er höf-
undur sjálfur. Kápumynd gerði
Kiistján Davíðsson.
af sér eftir fimm daga setu þegar
allsherjarverkfall skall á í land-
inu og allt logaði í uppþotum
vegna andstöðu almennings gegn
inngöngu í bandalagið.
Fréttaritari brezka útvarpsins
ségir að stjórnarskiptin í Jórdan
séu mikill sigur fyrir stjórnir
Saudi Arabíu, Egyptalands og
Sýrlands, sem gert hafa bandalag
sín á milli til að vega upp á móti
Bagdadbandalagi Vesturveld-
anna. Einnig telur hann atburð-
ina í Jórdan bera vott um vax-
andi ítök kommúnista í löndunum
við Miðjarðarhafsbotn.
Mannfjöldi safnaðist í gær sam-
an úti fyrir húsi nýja forsætis-
ráðherrans í Amman, höfuðbo»g
Jórdan. Krafðist fólkið þess að
hann héti því að ganga ekki í
Bagdadbandalagið. Forsætisráð-
herrann, Ibrahim Hashem, kvað
stjórn sína einungis eiga að sjá
um framkvæmd þingkosninga.
Hún myndi ekki láta landið ganga
í neitt bandalag né ráða öðrum
stórmálum til lykta. Var góður
rómur gerður að máli hans.
Fréttaritari brezka útvarpsins
lét í ljós von um að innganga
Jórdans í Bagdadbandalagið yrði
tekin til athugunar á ný að kosn-
ingunum afstöðnum.
Blásýra
í brauðkollu
Það varð kunnugt í gær að
yfirforingja vopnaða lögreglu-
liðsins í Norður-Irlaiídi, Sir
Richard Pim, voru fyrir nokkr-
um dögum sendar brauðkollur
sem krj'ddaðar höfðu verið með
blásýru. Það bjargaði lífi hans
að ihann sendi réttinn til rann-
sóknar. Pim stjórnar baráttu
yfirvaldanna í Norður-írlandi
gegn þeim sem berjast fyrir
sameiningu Irlands.
r
1
Hlsár
Mý skálmöld
spilllr %rlr Faure
í bardögum síðasia sólar-
89 haía lallið
hring
Kosningabaráttan í Frakklandi
vaxandi skálmöld í Alsír.
Skæruliðar í Alsír herða nú
mjög baráttuna gegn franska
hernum þar. Fréttamenn segja,
að siðasta sólarhring hafi 89 menn
fallið í bardögum í landinu. Harð-
ast er barizt í austustu héruð-
unum.
Ríkisstjórn Edgars Faure í
Frakklandi hefur sent liðsauka til
Alsír. Gera stjórnarandstæðingar
nú harða hríð að stjórninni og
kenna stefnuleysi hennar um,
snýst nú mest um
hvernig komið er í Alsír. Verður
lítið um varnir hjá Faure og
öðrum foringjum hægrifylkingar-
innar sem að stjórninni stendur.
Fréttamenn í Frakklandi segja,
að franskur almenningur óttist
mjög að Alsír verði annað Indó
Kína ef ekki er að gert. Geti því
þessir síðustu atburðir þar orðið
til þess að spilla mjög fyrir
hægriflokkunum í kosningunum
til franska þingsins 2. janúar.