Þjóðviljinn - 13.01.1956, Page 12
fhaldið ¥Íll gefa verka-
mönnum hlutdeild í tapinu
Bezta ráðið til að alþýðan fái réttlátan Mut þjóðar-
teknanna er að Suin fái Mutdeild í stjórn þjóðarbusiní
flÓOVÍLil
Föstudagur 13. janúar 1956 — 21. árgangur — 10. tölublað
í fyrradag kom til umræðu í sameinuðu þingi tillaga
þriggja íhaldsmanna „um hlutdeildar- og arðskiptifyrir-
komulag í atvinnurekstri íslendinga".
Sigurður Bjarnason hafði
framsögu og fór um það mörg-
um orðum hvert böl vinnudeilur
og árekstrar milli stétta væru.
Taldi hann eitt vænlegasta ráð-
ið til að bæta úr því væri að
veita verkamönnum hlutdeild í
arði fyrirtækjanna og þeim arð
hluta gætu þeir svo haldið
saman og á þann hátt eignazt
hiuta í fyrirtækjunum. Var
helzt að skilja svo, að á þenn-
an hátt gætu verkamenn smátt
og smátt yfirtekið fyrirtækin.
Skúli Guðmundsson rakti það,
að 1937, þegar talið var að ár-
legt tap hvers togara væri 110
þúsund, hefðu Sjálfstæðismenn
borið fram tillögu um þetta og
fengið samþykkta. Kosin var
nefnd og var annar flutnings-
manna kosinn formaður hennar
á fyrsta og eina fundinum sem
hún liélt í ársbyrjun 1938. Síðan
hefði nefndin ekki verið kölluð
samán og áhugi Sjálfstæðis-
flokksins dvínað, enda hefði
rekstur atvinnufyrirtækjanna
þá farið að verða arðvænlegri
en verið hafði um skeið. Síðan
hefði ekkert verið á þetta úr-
ræði minnzt, þar til nú. Kvaðst
Skúli ekki sjá annað en ef þetta
væri gott fyrirkomulag, þá ætti
það ekki einungis rétt á sér
þegar illa gengi heldur einnig
þegar betur áraði.
Kiuar Olgeirsson sagði, að
það væri viðeigandi, að ræða og
athuga hvað það væri, sem
Sjálfstæðismönnum dytti í hug
að bera fram þegar öll fram-
leiðsla væri að stöðvast að
meira og minna leyti. Það væri
vert að atliuga, hvernig þróun-
in hefði verið í þeim hlutafé-
lögum, þar sem vinnandi menn
hefðu átt hluti. Það væri nú
orðið mjög sjaldgæft, að arði
væri úthlutað, heldur gróðinn
látinn hverfa með ýmsu móti.
Og auðmannastéttin væri alls
ekki fús á það, að skipta með
verkamöimum arðinum af fyr-
irtækjunum eða láta þá fá
meirihluta í stjórn þeirra. Að-
ferðin hefði þvert á móti verið
sú, að svæla út alla, sem ekki
væru auðklíkunum handgengn-
ir, breyta® fyrirtækjum, sem
stofnuð hefðu verið að nokkru
leyti af vinnandi mönnum og
með tilstyrk þeirra, 1 klíku- eða
fjölskyldufyrirtæki. Áhugi
Sjálfstæðisflokksins í því að
tryggja almenningi hlutdeild í
rekstri fyrirtækja þjóðfélagsins
hefði undanfarið tekið á sig þá
kynlegu mynd, að aldrei hefði
verið gengið lengra en nú í að
gera bankana t.d., sem eru þó
eign þjóðarinnar, að hreinum
klíku- og fjölskyldufyrirtækjum.
Þá minnti Einar á það, hvern
ig ástatt er nú með framleiðslu
atvinnuvegi þjóðarinnar. Frarr.
leiðslan væri rúin og reytt svo
að hún gæti ekki greitt sómri
samlegt kaup né tryggt rekstur
fyrirtækjanna. Og nú væri svc
komið, að atvinnurekendur
væru í rauninni í verkfalli gegr
ríkinu. Nú er ekkert verkfall af
hálfu sjómanna né verkamanna
Nú eru það sameiginlegir Irags-
munir sjómanna og útgerðar-
manna að ríkisstjórnin geri ráð-
stafanir til að skapa framleiðsl-
unni rekstursgrundvöll.
Er meiningin að framkvæma
þetta hlutdeildarfyrinkomulag
þannig, að fyrst eigi að láta
bankana, olíuhringana og alla
'P’ramhald á 11. siðu.
Hreincsr árstek;ur Styrktar-
félagsisis tœp 1 millién
í lok september nam hrein eign íélagsins
rúmlega 1 millj. 750 bús. kr.
Hreinar tekjur Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra síðasta
reikningsár, 1/10 1954 til 30/10 1955, námu samtals kr.
931.189.27. Hrein eign félagsins í Iok september var rúmlega
1 millj. 750 þús. kr.
Aðaltekjuliðirnir voru auka-'
gjald af eldspýtum kr. 385.443.29,
og nettóágóði af bílahappdrætti
félagsins kr. 447.733.46.
Kristján Jónsson
Kristján Eyfjörð
OpinbeK fnitdur í Hafuarfirði í hvöld
Umrœðuefni: Stöðvun fiski-
fiotans k;ör sfémanna
Sósíalistafélögin í Hafnarfirði halda í kvöld opinberan
! fund í Góötemplarahúsinu. Hefst fundurinn kl. 9.
Ymsir aðilar hafa styrkt fé-
lagið á árinu með veglegum gjöf-
um. T. d. hafa byggingarvöru-
verzlanir í bænum gefið nær allt
efni, sem notað hefur verið við
lagfæringu og breytingu húss-
ins Sjafnargötu 14, en þar hefur
félagið nú hafið starfrækslu æf-
ingastöðvar fyrir lömunarsjúkl-
inga eins og skýrt er nánar frá
á 3. síðu blaðsins í dag. Enn
má geta þess, að nýlega gáfu
tveir ónafngreindir menn hér í
bænum félaginu 5 þús. krónur
hvor, og Samband íslenzkra
samvinnufélaga hefur gefið
helming kaupverðs Chevrolet-
bifreiðar, sem notuð verður við
flutninga á sjúklingum að og
frá æfingarstöðinni á Sjafnar-
götu.
Stjórn Styrktarfélags lamaðra
og fatlaðra skipa nú Svavaf
Pálsson endurskoðandi, Björn
Knútsson endurskoðandi og
Andrés Þormar aðalgjaldkeri
Landsímans. í framkvæmdaráði
félagsins eru Björn Sigurðsson
læknir á Keldum, Haukur Þor-
leifsson starfsmaður Búnaðar-
bankans, Sigríður Bachmann
Á fundinum verður rætt um
stöðvun fiskiflotans og kjör
sjómanna. Ræður flytja: Karl
Guðjónsson, alþm., Kristján
Jónsson, stýrimaður og Krist
ján Ej'fjörð Guðmundsson
varaformaður Sjómannafélagr
Hafnarfjarðar.
KvikiMiM í út
frá gaslsofiipa
Klukkan rúmlega hálf átta í
gærkvöld var slökkviliðið kvatt
að húsinu nr. 24 í Herskála
kamp, litlu timburhúsi eign Ás
geirs Guðmundssonar. Hafði
kviknað þar í þili í eldhúsi, er
verið var að þíða vatnspípur
með gasiampa. Var talsverður
Aliir eru þessir ræðumenn
gjörkunnugir sjávarútvegsmál-
unum og kjarabaráttu sjó-
Karl Guðjónsson
„Til sjós eða lands"
Krlstján Ebenezarson beykir
kaus nýlega við stjórnarkjörið í Sjómannafélagi Reykja-
víkur. Auk hans hafa kosið ýmsir opinberir embættis-
meim, forstjórar atvinnufyrirtækja, veitingahúsaeigend-
ur, verkstjórar, kaupmenn og skífulagningameistarar.
Er öllum þessum mönnum haldið á kjörskrá af stjórnar-
klíkunni í þeim tilgangi að bera starfandi sjómenn ofur-
liði í þeirra eigin stéttarfélagi. Fæstir þessara „fyrir-
manna“ hafa komið á sjó í 2—3 áratugi eða lengur en
helzta verkefni hægri manna er að halda þeim áfram í
fullum réttindum í sjómannafélaginu.
Fiskimenn og farmenn! Sameinizt um að taka félag
ykkar í eigin hendur og gerið það að öflngu vígi í hags-
inuiiabaráttuimi. Fjölmennið á kjörstað og sjáið um að
cnginn félagi ykkar láti undir höfuð leggjast að neyta
atkvæðisréttar síns. Kosið er í skrifstofu félagsins í
Alþýðuhúsinu frá kl. 3—6 e.h. í dag. Sameinizt um lista
starfandi sjómanna, B-listann, og tryggið honum sigur.
Sjómannafélagið I hendnr sjómanna sjálfra!
X B-Iisti
| eldur í þilinu, er slökkviliðið
hjúkrunarkona, Sveinbjörn j kom á vettvang, en varð þó |
Finnsson hagfræðingur og Hauk-! fljótlega slökktur. Skemmdir
ur Kristjánsson læknir. j urðu nokkrar.
Vb. ísfirðingur RE-319
ónýttist af eldi í gær
Þiiggja maitna áhöin bjatgaðist í land
V.b. ísfiröingur RE-319 ónýttist af eldi í gær, er hann
var á leiö frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur. Þrír menn,
sem á bátnum voru, björguðust heilir á húfi í land.
Bátsverjar urðu fyrst varir
eldsins í vélarrúmi um kl. þrjú
síðdegis og magnaðist hann svo
skjótt að þeir fengu ekki við
neitt ráðið. Ekki gátu þeir gert
vart við sig eða beðið um aðstoð,
þar sem þeir komust ekki að
talstöðinni fyrir eldinum. Tóku
þeir því það ráð að sigla bátn-
um sem skjótast í land við
Keflavík skammt frá Þorláks-
höfn. Þegar þeir áttu um 30
faðma eftir í land, settu þeir út
björgunarfleka og höfðu taug í
honum. Fór þá einn þeirra fé-
laganna í Jand og gekk sú ferð
greiðlega. Siðan dró hann hina
tvo í land á flekanum.
Skipbrotsmenn gengu síðan
til Þorlákshafnar. Þeir telja að
báturinn sem var 34 lestir að
stærð, sé gjörónýtur.
Radíéfón
stolið
I fyrrakvöld var stórum
radíógrammófón stolið úr í-
búðarherbergi í kjallara húss-
ins Bárugötu 17 hér í bænum.
Tveir piltar hafa herbergi þetta
á leigu og höfðu þeir brugðið
sér að heiman milli kl. 9 og 11.
Er þeir komu heim aftur var
fónninn horfinn. Hann er þýzk-
ur að gerð, tegundarmerki Im-
perial og í ca 80—90 sm háum
dökkbrúnum kassa. — Þeir sem
geta gefið einhverjar upplýsing-
ar í þessu máli eru beðnir að
hafa tal af rannsóknarlögregl-
unni.
mannastéttarinnar. Ættu hafn-
firzkir sjómenn og aðrir sem
áhuga hafa á þessum málum að
fjölmenna á fundinn í Góð-
templarahúsinu í kvöld.
Bókbindarar gefa
í FriðrikssjóS
I gær barst Friðrikssjóði lof-
orð um 500 kr. árlegt framlag
næstu árin frá Bókbindarafé-
lagi Islands. Er það fyrsta
verklýðs"élagið, sem tilkynni.r
framlag í sjóðinn.
Þess má og geta að Flugfélag
íslands flutti þá Friðrík og
Inga endurgjaldslaust heim frá
London um daginn.
Hætta á flóði í
Hvítá, ef hlánar
Selfossi.
Frá fréttaritam Þjóðviljans.
Fyrir nokkrum dögum mynd-
aðist krapastífla í Hvítá og
flæddi áin yfir bakka sína.
Rann vatnselgurinn niður á
milli bæja á láglendinu svo jið
samgöngur stöðvuðust sumstað-
ar. í gær féll áin öll í far-
vegi sínum, en hún er þó talin
mjög hættuleg ef hlánar.
'