Þjóðviljinn - 18.03.1956, Side 6

Þjóðviljinn - 18.03.1956, Side 6
6) — jÞJÓÐVTLJINN — Sunnudagur 18. marz 1956 Þjóðviliinn Útgefandi: Sameiningarflokkur alpýðu — Sósíalistaflokkurinn v_ Fylgishrun og einangmn ihaidsms ■> JARNI Benediktsson kvart- n aði sáran undan því í út-’ varpsumræðunum frá Alþingi' á fimmtudagskvöldið að verið væri að einangra Sjálfstæðis- flokkinn í íslenzkum stjóm- málum. Mátt glöggt á máli hans heyra að hér væri mikil og uggvænleg hætta á ferðum isem snúast yrði hart við af ihálfu forkólfanna. Helzta haldreipi ráðherrans reyndist að hrópa út ytfir landsbyggð- ina að svipta ætti Sjálfstæðis- menn aðstöðu og eignum og bæri þeim að mæta slíkum að- gerðum af fullkominni hörku. Hefur óttinn við einangrun og áhrifaleysi sialdan eða aldrei verið yfirlýstur svo átakan- lega sem í þessari útvarps- ræðu varaformanns Sjálf- stæðisflokksins. ÞA© er rétt athugað hjá Bjama Benediktssyni að sú hætta steðjar nú að Sjálf- stæðisflokknum að hann ein- angrist í íslenzkri stjórnmála- baráttu og missi þau áhrif og völd sem hann hefur haft um langan tíma og hagnýtt til hins ýtrasta fyrir auðmanna- stétt landsins. Athyglisvert er að núverandi samstarfsflokkur Sjálfstæðisflokksins, Fram- sóknarfiokkurinn, telur það eina möguleika sinn til að nindra alg.iört fylgishrun að 3líta samstarfinu við Sjálf- 3tæðisflokkinn a.m.k. á yfir- borðinu. Jafnframt lýsir Framsókn þvi vfir að vanda- mál efnahagsiífsins verði ekki levst með Siá.lfstæðisflokkn- um vegna þiónustusemi hans við milliliði og braskaravald. TIVAÐ sem líður heilindum « * forkólfa Framsóknar- flokksins er þessi stáðreynd hin eftirtektarverðasta og sýnir ljóslega hve Sjálfstæðis- flokkurinn er heillum horfinn og einangrun hans nálæg. Engin stjómmálasamtök í iandinu treysta sér lengur til að boða kjósendum þann möguieika að unnt sé að hafa samstarf við flokk auð- mannastéttarinnar um lausn vandamála þjóðfélagsins. pnnníg er revns’an af starfi Sjálfstæðisflokksins á undan- förnum ámm. Þessi er á- vöxturinn af linnulausri bar- áttu hans fyrir einkahags- munum auðmanna og brask- ara, óhvikulli varðstöðu hans um gróðamöguleika auðhring- anna sem ræna atvinnufvrir- “ækin arðinum af framleiðsl- jnni og allan almenning á- vöxtum iðju sinnar og starfs. Með þessum starfsháttum hefur Sjá'fstæðisflokkurinn kallað .yfir sig svo almenna og óumdeilanlega fordæmingu allra heilbrigt hugsandi manna að jafnvel þeir sem eru honum samsekir um ó- hæfuverkin keppast við að af-, neita þátttöku sinni í sam- ei£inlegum afrekum og sverja og sárt við leggja að slíkt skuli ekki endurtaka sig. Svo gjörsamlega heillum horfinn er Sjálfstæðisflokkurinn og undan þessu kvartaði Bjarni Benediktsson sáran í útvarps- ræðu sinni á fimmtudagskvöld- ið. ÞAÐ er að bresta flótti í lið Sjálfstæðisflokksins. Það eru fleiri en andstæðingamir sem sjá orðið í gegnum lýð- skrumið og blekkingarnar sem átt hefur að skýla þjónust- unni við fámennt auðstéttar- vald og gróðahagsmuni þess. Almennir kjósendur Sjálf- stæðisflokksins eru í stómm stíl að snúa baki við flokkn- um sem hefur brugðizt þeim af hlífisemi við hina raunvem- legpi húsbændur sína. Þessi flótti þarf að verða alger. Sjálfstæðisflokkurinn á að standa uppi með það fámenna lið sem hann þjónar af fullum heilindum. Alþýðufólk og fólk úr millistétt sem blekkt hefur verið til fylgis við þessi stjóm- málasamtök stéttarandstæð- inga sinna mun nú í sívax- andi mæli fylkja sér um þann kosningaflokk alþýðusamtak- anna sem verið er að skapa til þess að tryggja alþýðu- hagsmuni á sviði löggjaf- arvaldsins. Með slíku skrefi verður sú einangmn Sjálfstæð- isflokksins að vemleika sem forkólfarnir óttast nú mest og aðstaða og áhrif alþýðunnar trvggð á vettvangi íslenzkrar stj ómmálabaráttu. i ágreinmgur um málefni „ A LÞÝÐUSAMBANDIÐ hef- ur gengið frá stefnuslcrá sem gmndvelli að samnings- viðræðum um nýja ríkisstjórn. ... Meginatriðin í stefnuskrá Alþýðusambandsins geta ekki orðið ágreiningsatriði vinstri flokkanna“. Þannig er komizt að orði í fomstugrein Alþýðu- blaðsins í gær, og þetta eru setningar sem allt Alþýðu- flokksfólk ætti að festa sér vel í minni. Þær eru sönnun þess að hægri foringjar Al- þýðuflokksins hafna ekki vinstra samstarfi af málefnaá- stæðum, heldur af ofstæki og sjúklegum fordómum. Þess háttar sálarástand ætti að vera einkamál þessara mis- vitm leiðtoga og getur ekki verið eftirbreytnisvert fyrir nokkum mann sem vill að stjórnmál séu átök um mál- efni. Alþýðan hefur stofnað flokka sína sem baráttutæki en ekki sem leikföng einstakra manna. Þeir leiðtogar sem misst hafa sjónar á málefnun- um munu einnig verða að horfa á eftir kjósendunum. Bidstrup teiknaði <s> — ; —! — « a ■ ■ i *■■■ SKÁKIN W ■ ■ ■ ■v.v Ritstjóri: ^ j/ GUÐMUNDUR ARNLAUGSSON 4,------------------------------------------------------------------------------------------------------------------—r-------® Öilngt shákmút Varla leikur vafi á því, að skákmótið sem nú fer fram í Sjómannaskólanum til minn- ingar um Guðjón heitinn Sig- urðsson, er öflugasta skák- mót sem fram hefur farið á Islandi. Tajmanoff kannast allir við, en ekki er víst að allir hafi gert sér Ijóst, hve snjall I'ívitskí er. Síðastliðið sumar lagði Taflfélag Reykja- víkur drög að því að fá tékk- neska taflmeistarann Pach- man hingað í heimsókn, en þeirri viðleitni lauk með því að argentínski taflmeistarinn Pilnik kom hingað eins og mönnum er í fersku minni. Nú kemur í Ijós að Ilivitskí er nýbúinn að heyja einvígi við Pachman og hefur farið með sigur af hólmi. ANNÁLL fyrstu UMFERÐAR Ég hef ekki átt þess kost að fylgjast með fyrstu um- ferðunum nema í frásögnum blaðanna, en af þeim er ljóst að ýmislegt hefur gerzt frétt- næmt. Áreiðanlega eiga marg- ir eftir að leggja leið sína í Sjómannaskólann til að horfa á þær umferðir sem eftir eru, enda er aðbúnaður áhorfenda góður, menn geta séð allar skákirnar á sýningarboroum, og í efri sal eru skákskýring- ar fyrir þá sem heldur kjósa það en að horfa á teflendurna sjálfa. Það mætti segja mér að í framtíðinni yrðu þessi tvö mót: einvígi Friðriks við Bent Larsen og minningar- mótið um Guðjón M. Sigurðs- son, talin marka tímamót að því er áhrærir aðbúnað áhorf- enda, enda var tími til kom- inn. Nokkur atriði úr fyrstu umferðunum, éins og þau hafa komið mér fyrir sjónir úr fjarska: Bezta frammistaða íslendings gegn útlendingi: Jafntef'i Benónýs við Tajmanoff úr fyrstu umferð. Benóný „vill- ist“ inn í byrjun, sem Taj- mano'f hefur skrifað heila bók um, en teflir svo vel að stórmeistarinn kemst hvergi áleiðis, svo að jafnteflið er réttlát úrslit. Hrapalegasta slys fyrstu um- ferðanna: Tólf leikja tap Jóns Þorsteinssonar gegn Tajma- noff. Einfaldast og rökréttast: Vinningur Tajmanoffs gégn Baldri Möller. Tajmanoff náði rýmri stöðu út úr byrjuninni og ávaxtaði sitt pund i svo vel að Baldur fékk hvergi rönd við reist. Þetta var ein þeirra skáka, sem virðast svo ein- faldar og rökréttar, að það er engu líkara en þœr tefli sig sjálfar, en þær eru tefldar af mikilli nákvæmni, og ekki er víst að þær séu jafn auðtefld- Framhqlrl á 8 síðu. • Hér kemur eitt skákdæmi. Frank Melville Teed. ABCDEFGH abcdefqh Mát í þriðja leik, Lausn á 2. Síðu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.