Þjóðviljinn - 18.03.1956, Síða 10

Þjóðviljinn - 18.03.1956, Síða 10
10) — ÞJÖÐVILJINN — Sunnudagur 18. marz 1956 - Yikuþættir 11.-17. marz Framham af 7. síðu. iEn þau þurfa að verða nögu sterk til að geta knúð aðra flokka til samstarfs gegn aft- urhaklinu, knúð fram breytta stjórnarstefnu. Það er lær- dómsríkt, að aðeins einu sinni ihefur alþýðunni tekizt að ihindra myndun afturhalds- stjórnar að loknum kosning- um á seinni árum: eftir stór- sigra Sósíalistaflokksins 1942, er hann fékk tíu þinginenn kosna. Eftir þær kosningar þorði afturhaldið á Alþingi ékki að skríða saman í ríkis- stjórn, og tveimur árum síðar var knúin fram myndun ný- sköpunarstjórnarinnar, í ná- inni samvinnu við Alþýðusam- foand ísland. Árangursrík hagsmuna- baráffa Það er f jarri öllu viti þegar Framsókn og hægrimenn Al- þýðuflokksins reyna að ráðast gegn frumkvæði Alþýðusam- ibandsstjórnar með þvi að minna á baráttuna um sjálf- stæði Alþýðusambandsins, er tauk 1942. Sú barátta var um það háð, hvort Alþýðusam- foandið skyidi vera undirgefið einum stjórnmálaflokki, Al- þýðuflokknum, en enga aðra, mátti kjósa á þing þess en flokksmenn úr þeim flokki. Nú er stjóm Aiþýðusambandsins kjörin að lýðræðislegum liætti og ber hún fulla ábyrgð gerða sinna fyrir Alþýðusambands- þingi, þar sem sæti eiga menn úr öllum stjómmálaflokkum. Enginn félagi í verkalýðsfé- lagi er sviptur neinum rétti með samþykkt Alþýðusam- bandsstjórnar. Hvorki Aiþýðu- sambandið né einstök verka- lýðsfélög verða skipulagslega aðili hinna nýju kosningasam- taka.. Hinsvegar eru nu al- þýðumenn úr öllum stjórn- málaflokkum að skilja það fieirí og fleiri, að árang'urs- ríka hagsmunabaráttu er ekki -síðtir hægt að heyja á stj'órn- málasviðinú en með margend- urteknúm Verkföllum, 6g það er sá skilningur sem liggur að baki ákvörðunum sam- bandsstjómar ASÍ um frum- • kvæði á stjórnmálasviðinu. Alþýðumenn sem fylgt liafa Sjáifstæðisfíokknum eða ; Framsókn finna engu síður en i; aðrir til þungans af álögum | . og árásum þessara flokka á |í ' iífskjör fólksins, og vilja ó- í gjarna gefa þeim valdið til að halda þeim áfram. Mætti Sjálfstæðisflokknum yerða nokkur bending sam- þykkt BílstjórafélagsinsHreyf- ils nú í vikunni, en það félag . er eitt hinna fáu verkalýðs- félaga undir íhaldsstjórn. “fennig það félag fagnar frum- kvæði Alþýðusambandsstjóm- ar og krefst breyttrar stjórn- arstefnu. Alþýðusambandið Ákvörðun Alþýðusambands- "stjórnar var tekin degi eftir að heildarsamtök íslenzkrar alþýðu áttu fjörutíu ára af- mæli, en það var á mánudag- inn 12. marz. Var afmælisins minnzt með ýmsum hætti, en sambandsstjóra mun hafa í huga að gera það rækilegar í tengslum við sambandsþing í haust. Er það að sjálfsögðu tilviljun að hin gagnmerka samþykkt, er markað getur tímamót í baráttu íslenzkrar alþýðu, skyldi tekin næstum bókstaflega á fertugsafmæl- inu, en telja má það skemmti- lega tilviljun. Barátta Alþýðu- sambands íslands er þegar orðin merk og mikillar sögu, enda þótt sú saga sé því mið- ur órituð enn. Alþýðublaðið og sagnaritun Alþýðuflokkurinn átti þá einnig fertugsafmæli 12, marz, og var þess einnig minnzt með ýmsum hætti. Alþýðublaðið hefur undanfarið haft þungar áhyggjur af sagnfræðiritun Rússa, og má þar sjáLfsagt um bæta eins og flest mannaverk. En sé litið til þeirrar „sagn- fræði“ sem blaðið birti um A1 þýðuflokkinn í tilefni afmælis ins, gæti svo virzt sem fles' hefði verið tekið til fyrirmynd ar sem það hefur sakað Rússa um. Til dæmis tókst blaðinu at láta fyrsta formann Alþýðu flokksins „hverfa", hann virt ist ekki eiga að vera til í sög- unni af því hann er ekki „i náð hjá sagnriturunum! Og afrek flokksins em skráð á þann veg, að það er vægast sagt mjög rómantísk sagnarit- tm. Nálægð vorsins og kosninga Það er að verða vorlegt í lofti og hlýindin og nálægð kosninga virðist hafa heilsu- samleg áhrif á alþingismenn. Nú er svo að sjá að þingmenn Framsóknar og Sjálfstæðis- flokksins hafi loks gefizt upp við andspymuna gegn lÖgfest- ingu nýjú völculáganna, og ér þá® vel.'Á íhaldsþingmanninn Gunnar Thóroddsen virðist kosningablærinn hafa s.terk á- -ihrif, meira að segja hefur heyrn hans skerozt svo að hann heyrir nú í fyrsta sin.n óhljóð bandarískra þrýstilofts- flugvéla yfir höfuðborginni og er tilleiðanlegur að stofna til nokkurra ára athugunar á því hvort hugsanlegt væri (í samræmi við alþjóðareglur) að biðja ,,varnarliðið“ að gera svo vel að hætta þessu. Sama þingmanni hefur snögglega skilizt að ekki sé allt með felldu um úthlutun lista- mannalauna, og mun ætla sér að skrifa greinar og halda margar ræður um hinn göfuga þatt Sjálfstæðisflokksins í því máli, einkum frá 1939, en einn eftirminnilegasti' þáttur þeirr- ar sögu 'er inéðférðin á lista- mannalaunmn Halldórs Kilj- ans Laxness. Hann hefur líka eignazt það áhugamál að sið- bæta og mennta íslenzka blaða menn, og mun hugsa sér að láta ekki af þeirri göfugu bar- áttu fyrr en tekizt hefur að lyfta allri stéttinni upp á það stig siðfágunar, mann- dóms og heiðarleika sem flokksbræður hans við Morg- unblaðið standa nú á. Má lofs- vert telja að menn á miðium aldri eignast jafn auðveldlega hugs.iónir og hér var sýnt, og raunar sígilt dæmi um hin örfandi og vekjandi áhrif ná- lægra kosninga og vorsins. Iþr«t11 r Framhald af 9. siðu. e.t.v. má sétja í samband við það Sem skeði í húsinu. Þegai- maður sá, er ætlaði að lialda uppi reglu og varð að fjarlægja þá óhlýðnustu, kom að bifreið sinni um kvöldið höfðu ein- hverjir snúið húnana af hurðum bifreiðarinnar og stórskemmt hana. Ekki er fjarri lagi að láta sér detta í hug að milli at- burðanna inni í húsinu og ut- an þess sé eitthvert samband. Ef svo væri er málið farið að verða nokkuð alvarlegt. Þá væri e. t. v. kominn tími til að halda uppi sjálfsögðum aga í sam- bandi við handknattleiksmót. Eða hvað finnst áhorfendum, forráðamönnum hússins og handknattleiksins? Ég undirritaður gerist áskrifandi að bókinni Gróðavegurinn eftir Álf Utangarðs Nafn Heimili Bókin verður væntanlega kr. 45.00 ób. Othlutun listamannastyrks ■ ■ Þeir, sem æskja þess að njóta styrks af fé því, sem veitt er í fjárlögum fyrir árið 1956 til skálda, rithöfunda og listamanna, sendi um- sóknir til skrifstofu Alþingis fyrir 28. marz. ■ ÍJthlutunarnefnd )■■■•■■ ■*!■«■■■■• ■■ <■■■ ■!■!■■■■ ■■(■■■■ ■■■■■■•«■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■« ■■■•■■■■■ ■■■■■■■■■■ k u ■ ■ ■ Kynning íslenzkra dægurlaga í Austurbæjarbíói j ■ ■ ■ : ■ ■ Þessi glæsilega skemmtun verður vegna fjölda áskorana, endurtekin í dag sumiudag kl. 4.45 síðdegis. ■ ■ Nvtt Brúðuleikhúsið sýnir gamanþáttinu: atriði: Dægurlagasöngvarinn. :;\í i ■ Sérstök bamasæti á kr. 20.00 verða seld s i» börnum imian 14 ára aldurs. ■ ■ ■ Allra síðasta tækiiærið í Reykjavik Aðgöngumiðar í Austurbæjarbíói eftir kl. 1. ■ - . . . ■ ■ ■ - - ■ • Jón Guðmundsson með brúðuna iiiiuuhiiiuihiiiihihíi

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.