Þjóðviljinn - 23.03.1956, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 23.03.1956, Qupperneq 3
Föstudagur 23. n^arz 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (3 Jafnvæglsfrumvarp Ihalds og Framsóknar leysirengan vanda SýndaraSgerSir i sfaS raunverulegra urbófa Ég þarí ekki að hafa mörg orð um þetta frumvarp. Hér er um að ræða eitthvert mesta vandamál þjóðar- innar. En frumvarpið sem á að leysa úr þessu mikla vandamáli er eitt hið mesta örverpi sem frá ríkis- stjórninni hefur komið og er þá mikið sagt. Þannig hóf Brynjólfur Bjarnason máls um stjórnar- frumvarpið „merkilega" sem heitir „Frumvarp til laga um ráöstafanir til að stuóla, að jafnvægi í byggö landsins“, er það kom til 2. umræöu í efri deild í gær. Það er ömurlegt að sjá þegar hættufé, og sú skoðun þá jafn- framt þróazt, að þetta fé sé ekki endurkræft". Þetta er eina nýia tekjuöflun- in sem frumvarpið gerir ráð fyrir til stuðnings aðþrengcium byggðarlögum. Skárri er það nú rausnin! Þá má ekki gleyma 14. grein- inni, þar sém gert er ráð fyrir fjárhagsaðstoð lianda fólki til að flýja byggðarlög sín. Ég mun ekki líkja þessu við sveitarflutning- ana, sællar minningar. En það ber vissuíega vott um litia bjart- sýni á að frumv. þetta verði til mikillar bjargar fyrir þau byggð- arlög sem nú eru verst stæð. Fyrir þessu þingi liggja mörg merk frumvörp, til þess að ráða bót á vanda þeirra byggðarlaga sem eiga við at- vinnuörðugleika að síríða. Vii ég þá fyrst telja frumvarp fjögurra þingmanna í neðri deild, um „kaup og útgerð togara og stuðning við sveit- arfélög til atvinnufram- kvæmda''. Enníremur þær til- lögur sem fyrir liggja um stækkun landhelginnar. Þetta eru að vísu aðeins þættir í lausn eins hins mesta vanda- máls þjóðarinnar, en mjög veigamiklir þættir. Hefði ver- ið nær að vinda bug að því að afgreiða þessi frumvörp en að Ieggja vinnu í þessa samsetningu. Verði þau frurn- vörp ekki afgreidd, en þetta frumvarp látið duga, þá er það sönnun þess að stjórnar- flokkamir vilja ekki nema sýndaraðgerðir í þessu máli. Það má kannskí segja að þetta sé meinlaust. En það leysir eng- an vanda. Þegar um er að ræða eitt stærsta úrlausnarefni þjóð- arinnar, þá þarf vissa tegund af dirfsku til að bera svo gagns- litlar tillögur fram. miklu vandamáli eru gerð svo léleg skil, hélt Brynjólfur áfram. Ég öfunda stjórnarflokkana ekki að leggja út í kosningar með svo aumt vegarnesti. f full þrjú ár hefur ríkisstjórnin og þeir sem Iiún hefur til þess skipað unnið að þessu máli. Á meðan hefur sífellt sigið á ógæfuhlið í mörg- um byggðarlögum landsins. Og svo er þetta öll eftirtekjan, þeg- ar tillögur ríkisstjórnarinnar sjá loks dagsins ljós. Aðalefni frumvarpsins er að stofna nefnd. Og aðalverkefni nefndarinnar skal verá skýrslu- söfnun. Það er að vísu gott og blessáð að safna skýrslum, en maður lifir þó ekki á einni sam- an' skýrslugerð. Enn fremur á að stoína sjóð, og úr honum á nefndin að veita lán. En sjóð- stofnunin er lítió meira en form eitt, því tekjur hans eru fé sem Alþingi hefur veitt og mun ó- hjákvæmilega verða að veita til þessa máls, hvort sem þetta frumvarp verður samþykkt eða ekki. Og til viðbótar á sjóðurinn að fá kröfur ríkissjóðs vegna vanskiiaskuida. um þann tekju- stofn segir svo í greinargerð frumvarpsins: „. . . . er hér um allverulega háar upphæðir að ræða, og eng- in vissa fyrir því, hvers virði þær megi kallast, því einhver hluti þéssa fjár mun hafa verið látinn af hendi sem hreint á- íslandsmótið í brids hefst á sinmudaginn Líklegt að héðan verði send sveit á Evrópumeist- aramótið í Stokkhélmi fslandsmótið í brids hefst hér í Reykjavík n k. sunnudag. í mótinu taka þátt 8 sveitir, 5 úr Reykjavík, ein frá Akranesi, ein frá Hafnarfirði og ein frá Siglufirði. Keppnin fer fram í , Skátaheimilinu. Fyrirliðar sveitanna fi'á Reykja- vík eru: Hörður Þórðarson, Ingv- ar Helgason, Brynjólfur Stefáns- son, Elín Jónsdóttir og Hjalti Elíasson. Fyrirliði Hafnarfjarð- arsveitarinnar er Reynir Eyjólfs- son, fyrirliði sveitarinnar frá Siglufirði Ármann Jakobsson, en ekki er ennþá vitað hver verður fyrirliði Akrane^gveitarinnar. Gert er ráð fyrir að héðan verði send sveit á Evrópumeist- söguræðu af hálfu nefndar, en stjómarþingniennirnir höfðu mælt með samþykkt frumvarps- ins. En strax á eftir Gísla kom upp í stól einn nefndarmann- anna, og fann ótalmargt frum- varpinu til foráttu, og sagðist hafa rekið í það augun er hann fékk tóm til að lesa frumvarpið! Þetta var Karl Kristjánsson. Bað hann forseta að fresta umræð- unni, svo sér ynnist tóm til að semja breytingartillögur, og var svo gert. Hvenær verður gisti- og félagsheimili Farfugla byggt i Reykjavík? Ferðum erlendra Farfugla hingað hefur stórffölgað síðustu árin Farfugladeild Reykjavíkur hefur nú fengið’ lóð undir gisti- og félagsheimili sitt, en fjárfestirigarleyfi hefur ekki fengizt. Á s.l. sumri gistu erlendir farfuglar hér 435 nætur. flestar á vegum farfugla hér, svo pörf þeirra fyrir félags- heimilið er brýn. Farfugladeild Reykjavíkur hélt nýlega aðalfund sinn. Starfið á liðna árinu var eðli- lega með minna móti vegna slæmrar veðráttu, en 11 sum- arleyfisferðir voru þó farnar og þátttakendur nær 200. Á hvítasunnunni var skóg- ræktarför í Þórsmörk, en þar hafa Farfuglar unnið þarft verk Umræðan hófst á því að annar höfunda frumvarpsins, Gísli Jónsson, flutti virðulega fram- Verzlimarnám- skeið starfsfólks samvinnnfélaga í maí n.k. efnir Samvinnu- skólinn til tveggja námskeiða 1 verzlunarrekstri og skrif- stofuhaldi fyrir starfsfólk sam- vinnufélaganna. Verða bæði námskeiðin haldin í Bifröst í Borgarfirði, það fyrra dagana 6.—12. maí fyrir búðarfólk og ^ hið síðara 13.—19. rnaí fyrir aramótið í brids, sem haldið l skrifstofufólk. Kennt verður með verður í Stokkhólmi dagana 26. júlí til 4. ágúst n.k. Verður sú sveit valin að fsiandsmótinu loknu. fyrirlestrum, myndræmum, kvik- myndum og notuð kennsluverzl- un, sem verið er að koma fyrir í skólanum. — Kostnaður við ....________________________________ Níundi bátur Drafnar í Hafnarfirði hljóp ai stokkunum fyrír skömmu Þann 17. marz s.l. var hleypt af stokkunum hjá Skipa- jmíðastöðinni Dröfn h.f. í Hafnarfirði, nýjum vélbát 59 rúmlesta að stærð, var honum gefið nafnið, Baldvin Þor- valdsson E.A. 24. Eigendur bátsins eru Aðalsteinn Lofts- son o.fl. í Dalvik. Báturinn er smíðaður úr eik, en með yfirbyggingu úr stáli, hann er með 270 hestafla dísel- vél Mannheim gerð. Hann er með vökva línu- og dekkvindu, dýpt- armæli með asdicútfærslu og yfirleitt búinn öllum beztu tækj- Ásgrímssýn- ing á Akureyri Eins og áður hefur verið frá skýrt í blöðum verður haldin sýning á úrvalsverkum Ásgríms Jónssonar á Akureyri, að til- hlutan menntamólaráðherra. Sýn- ingunni verður komið fyrir í húsi Kristjáns Kristjánssonar að Geislagötu 5. Sýningin verður opnuð almenningi sunnudaginn 25. marz kl. 4 síðdegis, og síð- an verður hún opin fram yfir páska. Aðgangur að sýningunni er ókeypis. Sýndar verða um 50 myndir á sýningunni, enda leyfir hús- rúm ekki meira. Jón Þorleifsson listmálari setur sýninguna upp, en hann hefur áður ásamt Gunn- laugi Scheving ráðið uppsetn- ingu Ásgrímssýningarinnar í Reykjavík. Þess má geta, að þetta er í fyrsta sinn, sem myndir eftir Ásgrím Jónsson eru sýndar á Akureyri. Framlengdur hefur verið til 10. apríl frestur til að skila samkeppnisritgerðum unglinga um málarann. Er þetta gert til þess, að unglingum nyrðra gef- ist kostur á að taka þátt í sam- keppninni. um, sem völ er á og að öllu leyti mjög vandaður. Smíði þessa vélbáts var haf- in á síðasta ári, hann var smíð- aður eftir teikningum Egils Þor- finnssonar skipasmíðameistara. Yfirumsjón með verkinu hafði Sigurjón Einarsson skipasmíða- meistari, en yfirsmiður var Hans Lindberg skipasmiður. Yf- irbyggingu, niðursetningu á vél og alla járnsmíði og liitalögn annaðist Vélsmiðjan Klettur h.f. Raflögn lögðu rafvirkjameistar- arnir Jón Guðmundsson og Þor- valdur Sigurðsson, málun fram- kvæmdu málarameistaramir Sig- urjón Vilhjálmsson og Aðalsteinn Egilsson. Reiðar og segl voru gerð af Sören Valentínussyni, dýptarmælir settur niður af Friðrik A. Jónssyni útvarps- virkjameistara, dekk- og línu- vinda var smíðuð af Vélaverk- stæði Sigurðar Sveinbjörnsson- ar. Þetta er 9. vélbáturinn, sem Skipasmíðastöðin Dröfn h.f. hef- ur byggt á 14 árum sem skipa- smíðastöðin hefur starfað, og undirbúningur er hafinn að smíði þess tíunda. Landsflokkaglíman Landsflokkaglíman 1956, verð ur haldin í Reyjavík, sunnudag inn 8. apríl næstkomandi Flokkaskipting vei-ður sam kvæmt glímureglum l.S.I. Þátttaka tilkynnist til Rún- ars Guðmundssonar, lögreglu stöðinni í Reykjavík, fyrir 3 apríl n.k. við að stöðva uppblástur og gróðursetja skóg á landsvæði er þeir hafa tekið að sér. Á næstu hvitasunnu verður einuig farin skógræktarferð í Þórsmörk. Njóta gestrisni erlendra farfugla I skála Farfugla, Heiðarból og Valaból, komu alls 606 gest- ir á árinu. Islenzkir Farfuglar eru aðilar að alþjóðasambandi Farfugla og njóta því þeirra sérréttinda að gista í heimilum erlendra Farfugla. En þessi réttindi eru að sjálfsögðu gagnkvæm. Er- lendir farfuglar eiga rétt til hins sama hérlendis. Árið 1954 gistu íslenzkir Farfuglar 435 nætur í erlend- um farfuglaheimilum. Gistiheimili óhjákvæmileg nauðsyn Erlendir Farfuglar leggja leiðir sínar hingað í vaxandi mæli. Árið 1953 gistu erlendir Farfuglar hér 54 nætur, árið 1954 161, s.l. ár gistu hér Far- fuglar frá 13 löndum í 435 næt- ur. Þar af voru 387 nætur i húsnæði er Farfugladeildin fékl til umráða í Austurbæjarskól- anum. I Reynihlíð og við Mý- vatn voru gistinætur 43. Þetta sýnir að óhjákvæmileg nauðsyn er að hið fvrir- hugaða gisti- og félagsheimili Farfugla hér rísi af grunni. Bæjarstjórnin hefur nú veitt þeim lóð nr. 48 við Rauðalæk — en fjárfestingarleyfi hefur enn ekki fengizt. Vænta menn þess að stjórnarvöldin skilji nauðsyn þess að veita leyfið. Næsta alþ.ióðamót Þing alþj óðabandalagsins (Int- ernational Youth Hostel Fed- eration) var haldið í Noregí á síðastliðnu sumri. Fulltrm Bandalags íslenzkra Farfugla á því þingi var Þorsteinn Magnús* son. Næsta þing alþjóðabanda- lagsins og alþjóðamót verðue haldið í Skotlandi í sumar. Ráð- gera íslenzkir Farfuglar að efna til tveggja hópferða á mót- ið. Verður farið með Gullfossi milli landa, og síðan verður ferðazt á reiðhjólum um Skot- land og gist á farfuglaheimii- um. Þátttöku í þessar ferðir þarf að tilkynna sem fyrst, því panta verður bæði gistingu er- lendis og farmiða með löngum fyrirvara. Stjórnarkjör Fráfarandi formaður Olafur Björn Guðmundsson baðst und- an endurkjöri. Formaður í hans stað var kosinn Ari Jóhannes- son, aðrir í stjórn voru kjörnir. Helga Kristinsdóttir, Helga. Þórarinsdóttir, Ragnar Guð- mundsson, Ólafur Björn Guð- mundsson, Þórður Jónsson og Guðmundur Erlendsson. Vara- menn voru kjörnir Svavar Björnsson og Gunnar Egilsson.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.