Þjóðviljinn - 05.04.1956, Síða 3
Fimmtudagur 5. apríl 1956 — ÞJÖÐVTLJINN — (3
Kjarnfræðsinefnd íslands stofnuð
ÆtlaS að stjórna þróun kjarnorkumála á
Islandi - Rannsóknarstofa fyrirhuguÓ
Hinn 25. janúar s.l. var boðað til stofnfundar Kjarn-
fræðanefndar íslands að frumkvæði landsnefndar ís-
lands í Alþjóða orkumálaráðstefnunni. Var nefndin stofn-
uð af 30 aðilum.
A fundinn var boðið fulltrú-
um stofnana, féiaga og fyrir-
tækja, sem ætla mátti að hefðu
áhuga á kjarnorkumálum, og
líklegt þótti, að bera myndu
uppi þróun þessara mála hér
á landi. Jakob Gíslason raforku-
málastjóri bauð fulltrúana vel-
komna fyrir hönd landsnefndar-
innar og skýrði frá aðdraganda
stofnfundarins. Síðan flutti Þor-
björn Sigurgeirsson fram-
kvæmdastjóri Rannsóknaráðs
ríkisins, erindi um hlutverk
kjarnfræðanefndarinnar, og fór-
ust honum orð m.a. á þessa leið:
„Við nálgumst nú hröðum
skrefum þann tíma, að kjarn-
orkuver taka við af kola- og
olíustöðvum til framleiðslu raf-
magns. H!n öra þróun, sem
framundan er, mun koma mörg-
um að óvörum eftir liægagang
síðustu 10 ára, en við stöndum
nú á tímainótum. Hingað til
hefur verið litið á hin kjarna-
kleyfu efni fyrst og fremst sem
sprengiefni, en í framtíðinni
verða þau skoðuð fyrst og
fremst sem eldsneyti.
í flestum löndum liefur ver-
ið komið á fót nefndum eða
stofnunum til að sinna þess-
um málum, og þess virðist einn-
ig þörf hér. Að vísu eigum við
því láni að fagna, að Iand okk-
ar er auðugt af orkulindum og
ekki liklegt að við þurfum að
reisa kjarnorkuver til fram-
leiðslu rafmagns í náinni fram-
tíð. Þó verður ekkert fullyrt
um þetta mál, og vel má vera,
að kjarnorkuknúin skip hafi
bætzt í íslenaka skipaflotajm
eftir nokkra áratugi. En hagnýt-
ing kjarnorkuimar hefur marg-
ar fleiri hliðar en orkuvinnsl-
una eina, og má telja víst, að
áhrifa kjarnorkualdarinnar gæti
hér á þessu landi sem annars
staðar“.
Ræddi Þorbjörn síðan nokk-
uð um notkun geislavirkra efna
til margvíslegra rannsókna, iðn-
aðar og lækninga, og minntist
á hin hag'kvæmu skilyrði, er
væru hér á landi til framleiðslu
LIGGUR LEIÐIN
Muiiið Kaffisöluna
í Hafnarstræti 16.
Laugaveg 80 — Síml 82209
Fjölbreytt árval af
steinhringum
■— Póstsendum —
á þungu vatni, en það hefur
mikla þýðingu fyrir vinnslu
kjarnorku.
Á stofnfundinum var gengið
frá starfssamþykkt fyrir Kjarn-
fræðanefnd íslands, og segir þar
m.a., að tilgangur og verkefni
hennar séu:
a) Að kynna sér fræðilega og
tæknilegar nýjungar varðandi
hagnýtingu kjarnorku og geisla-
virkra efna í þágu atvinnuvega,
læknavísinda og hverskonar
rannsókna.
b) Að stuðla að ' sem ýtarleg-
astri fræðsiu um kjarnfræða-
málefni hér á landi.
c) Að gera tillögur um kjarn-
Þorbjörn Sigurgeirsson
formaður Kjarnfræðanefndar
íslands
fræðileg rannsókna- og tilrauna-
störf hér á landi og vinna að
því að hrinda þeim í fram-
kvæmd eftir því sem gerlegt
þykir og við getur átt.
d) Að gera tillögur um notk-
un kjarnorku og' geislavirkra
efna í þágu atvinnuvega, heil-
brigðismála og hvers konar
rannsókna.
e) Að vera ríkisstjórn íslands
og öðrum til ráðuneytis í kjarn-
fræðamálum, ef þess er óskað.
f) að hafa samband og sam-
starf við tilsvarandi eða skyld-
ar nefndir og stofnanir erlendis.
Stofnaðilar nefndarinnar eru
§töður á sviði
fiskveiða
Eins og flestum mun kunnugt
vinna nokkrir menn íslenzkir
hjá ' FAO stofnuninni, þ.e. Mat-
væla- og landbúnaðarstofnun
Sameinuðu þjóðanna, að sér-
fræðilegum leiðbeiningum meðal
þjóða er njóta tæknilegrar að-
stoðar frá FAO.
Menn sem kunna að hafa í
huga að sækja um slík störf hjá
FAO geta fengið upplýsingar
og umsóknareyðublöð hjá for-
manni FAO-nefndarinnar í
landbúnaðarráðuneytinu.
Að þessu sinni er um að ræða
stöður á sviði fiskiveiða og nýt-
ingar afla í Panama og Mexico
og ef til vill víðar.
(Frá íslenzku FAO-nefndinni).
tæplega 30 stofnanir, félög og
fyrirtæki á sviði orkumála, iðn-
aðarmála, samgöngumála, heil-
brigðismála, búnaðarmála og
ýmis konar vísindalegra rann-
sókna. Hver aðili tilnefnir einn
fulltrúa í nefndina. Hefur nefnd-
in kosið sér stjórn og er hún
skipuð þessum mönnum:
Formaður, Þorbjörn Sigur-
geirsson framkvæmdastj. Rann-
sóknaráðs ríkisins, varaformaður
Jakob Gíslason raforkumálastj.,
ritari Jóhann Jakobsson deild-
arstjóri Iðnaðardeildar Atvinnu-
deildar Háskólans, gjaldkeri
Halldór Pálsso'n deildarstjóri
Búnaðardeildar Atvinnudeildar
Háskólans, og meðstjórnendur
þeir Gísli Fr. Petersen yfirlækn-
ir, Gunnar Böðvarsson yfirverk-
fræðingur jarðhitadeildar raf-
orkumálastjórnarinnar og Stein-
grímur Jónsson rafmagnsstjóri.
Starfsemi nefndarinnar verður
kostuð af aðilunum sameigin-
lega, og er ætlunin að ráða
framkvæmdastjóra, sem skal
vera eðiisfræðingur að menntun,
til að annast nauðsynleg störf
fyrir hana.
Stjórn Kjarnfræðanefndarinn-
ar hefur þegar haldið nokkra
fundi og m.a. skipað undirnefnd-
ir til að fjalla um sérstök svið
innan starfssviðs aðalnefndar-
innar og munu þær gefa aðal-
nefndinni skýrslur um störf sín.
Starfssvið undirnefndanna og
formenn þeirra eru:
1. Framleiðsla á þungu vatni;
formaður Jakob Gíslason raf-
orkumálastjóri.
2. Orkumál (rafveitur, hita-
veitur); formaður Steingrímur
Jónsson rafmagnsstjóri.
3. Heilbrigðismál; formaður
Gísli Fr. Petersen yfirlæknir.
4. Landbúnaðarmál; formaður
Halldór Pálsson deildarstjóri
Búnaðardeildar Atvinnudeildar
Háskólans.
5. Iðnaðarmál; formaður Jó-
hann Jakobsson deildarstjóri
Iðnaðardeildar Atvinnudeildar
Háskólans.
6. Almennar rannsóknir og
undirbúningur að stofnun rann-
sóknastofu; formaður Þorbjörn
Sigurgeirsson framkvæmdastj.
Rannsóknaráðs ríkisins.
Kjamfræðanefndin er stofnuð
með vitorði ríkisstjórnar íslands,
og mun nefndin reglubundið
gefa henni' skýrslu um störf
íslenzkir atvinnuflugmenn í i
alþjóðasambandi flugmanna
Nýlega var haldin í Rómaborg ráöstefna alþjóöaflug-
mannasambandsins, Iiiternational Federation of Air Line
Pilot’s Associations (I.F.A.L.P.A.).
Samtök þessi, sem stofnuð
voru í London 1948, telja inn-
an sinna vébanda 23 flug-
mannafélög með samtals fimmt-
án þúsund flugmönnum, og er
tilgangur þeirra að vemda
hagsmuni flugmanna, að stuðla
að almennri velferð þeirra,
þróa öruggt og skipulegt loft-
flutningakerfi, og að efla sam-
lyndi og skilning milli flug-
mannafélaga.
Á ráðstefnunni var samþykkt
innganga Félags ísl. atvinnu-
flugmanna í sambandið, og
voru fulltrúar þeir Gunnar V.
Frederiksen, flugstjóri, form.
F.I.A., og Jóhannes Markússon
flugstjóri, varaform. F.Í.A..
Mættir voru 43 fulltrúar frá
23 löndum, auk stjórnar sam-
bandsins, tæknilegs fram-
kvæmdastjóra og fulltrúa frá
I.C.A.O. (alþjóðaflugmálastofn-
unarinnar).
Fjailað var um öll helztu ör-
yggis- og vandamál flugsins,
svo sem réttindi flugliða, rad-
íóviðskipti, loftsiglingatækni,
blindflugstækni, lofthæfni flug-
véla, flugumferðareglur, flug-
vallaþjónustu, veðurþjónustu,
rannsóknir á flugslysum og
Aðalfundur
málarameistara
Aðalfundur Málarameistara-
félags Reykjavikur var haldinn-
í Tjarnarkaffi, sunnudaginn 25.
marz s.l. Flutt var starfsskýrsla
s.l. árs og einnig voru reikn-
ingar félagsins lesnir upp og
samþykktir. Starfsemi félagsins
var fjölþætt að vanda, m.a.
gekkst félagið fyrir því að fá
hingað danska kennara, til þess
að halda hér námskeið fyrir
málarameistara, svo sem verið
hefur undanfarin ár. Að þessu
sinni var kennd skrautmarmara-
málun, lazurtækni og ný aðferð
við málun steinveggja (Stene-
malje). Kosið var í stjórn fé-
lagsins, fastanefndir og önnur
trúnaðarstörf. Stjórnina skipa
nú þessir menn: Formaður Jón
E. Ágústsson, varaformaður Sæ-
mundur Sigurðsson, ritari Jök-
ull Pétursson, gjaldkeri Halldór
Magnússon og aðstoðargjaldkeri
Hreiðar Guðjónsson. Félagsmenn
eru nú 92 að tölu.
voru samþykktar margar álykt-
anir til I.C.A.O., flugfélaga og
flugvélaframleiðenda.
Sambandið hefur aðsetur í
London, og rekur sérstaka
skrifstofu tæknilegs fram*
kvæmdastjóra, sem veitir með-
limum upplýsingar og aðstoð.
Forseti sambandsins er og hef-
ur verið frá upphafi Clarence
N. Sayen, sem jafnframt er
formaður bandarísku flug*
mannasamtakanna. Ákveðið er
að næsta ráðstefna verði haldin
í Aþenu á næsta ári.
Húsnæðismála-
stjórn auglýsir
embætti
Samkvæmt lögum eru Hús-
næðismálastjórn falin víðtæk
verkefni á sviði húsbygginga-
mála, og er ráðgert að setja á
fót stofnun, er verði húsbyggj-
endum til leiðbeiningar um
byggingarmál, hafi byggingar-
efni til sýnis, sömuleiðis teikn-
ingar af hentugum íbúðum og
annist aðra þjónustu í bygging-
armálum.
Hefir nú staða forstöðumanns
tæknideildar Húsnæðismála-
stjórnar verið auglýst til um-
sóknar. Staðan veitist bygg-
ingafróðum manni, arkitekt eða
byggingaverkfræðingi. 'Er ætl-
azt til þess, að sá sérfræðingur,
sem nú verður ráðinn, verði
forstöðumaður þessarar stofn-
unar.
Umsóknarfrestur um starfið
er til 1. maí næstkomandi, og
skulu umsóknir ásamt launa-
kröíum sendar félagsmálaráðu-
neytinu.
Björgun brezkra sjómanna þökkuð
Sendiherra Breta á íslandi Mr. J. Thyne Henderson
hefur skrifað Henry Halfdanssyni skrifstofustjóra Slysa-
varnafélagsins eftirfarandi bréf:
Mér er það aftur ánægjuleg
skylda að biðja yður að flytja
björgunarsveit Slysavarnafé-
lagsins í Meðallandi þakkir og
viðurkenningu brezku stjórnar-
innar og þjóðarinnar fyrir hina
1 rösklegu björgun skipverja af
enn einum brezkum togara, St.
Crispin, er dreif á land á hinni
hættulegu suðurströnd Islands
15. þ. m.
Hin fljóta og fullkomna hjálp
er sjómenn vorir ávallt mæta
er þeim hlekkist á hér við land
er bæði þeim og fjölskyldum
þeirra heima fyrir mikið traust
að allt verði gert sem er á
mannlegu valdi til að bjarga
þeim, ef þeir lenda í lífsháska,
og það er ánægjuleg tilhugsun
fyrir Slysavarnafélag Islands
að vita að svo gott orð fari af
starfsemi félagsins að það
hræri hug og hjarta svo
margra manna í löndum, sem
eiga það sameiginlegt með Is-
landi að stunda fiskveiðar við
erfiðar og hættulegar aðstæður.
Eiliði landar
Siglufjarðartogarinn Elliði
landaði á Siglufii’ði 200 léstum
af flski til frystingar og herzlu.
Aðalfundur Félags
búsáhalda-
kaupmanna
Aðalfundur Félags búsáhalda-
og' jámvörukaupmaima vair
lialdinn 27. marz s.I.
Bjöm Guðmundsson var end-
urkjörnn formaður félagsins og
meðstjórnendur Páll Sæmunds-
son og Sigurður Kjartansson.
Varamenn voru kosnir Páll Jó-
hannsson og' Hannes Þorsteins-
son.
Fulltrúi í stjórn Sambands
smásöluverzlana var kosinn Egg-
ert Gíslason og Jón Guðmunds-
son til vara.
Fulltrúi í Verzlunarráð íslands
var kosinn Björn Guðmundsson
og til vara Hannes Þorsteinsson.
Á fundinum afhenti formaður
H. Biering skjal um að hann
hefði verið gerður að heiðurs-
félaga félagsins sem þakklætis-
vott fyrir að hafa haft forystu
í því frá stofnun og gert það
af umhyggju og af alkunnri ná—v.
kvæmni og samvizkusemi.