Þjóðviljinn - 05.04.1956, Side 9
Fimmtudagur S. apríl 1956 — ÞJ*Ót>VILJINN — (9
fg
m i
■M
RlTSTJORl F
KLGASON
ÁLFUR UTANGARBSl
Gróðaveffurmn
Tæplega 8 hundrað félagsmenn innan
merkja íþróttabandal. Hafiiarfjarðar
Þrótímikið starí haíníirzkra íþróttamanna á síðastliðnu ári.
Ársþing Iþróttabandalags
Hafnarfjarðar, það 11. í röð-
inni, fór fram í lok febrúar og
byrjun marz. Lagði stjórn
bandalagsins fram skýrslu um
starfsemi þess. í bandalaginu
eru nú 6 félög með tæplega
S hundruð félagsmenn. Hauk-
ar eru fjölmennastir eða 259
og F.H. með svipaða tölu, 255.
Önnur félög í bandalaginu eru:
Skíða- og skautafélag Hafnar-
fjarðar, Sundfélag Hafnarfjarð-
ar, Fimleikafélagið Björk og
Fimleikafélagið Ernir.
Um íþróttahússbygginguna
segir í skýrslunni: I íþrótta-
hússmálinu hefur ekkert gerzt
sem stjóm I.B.H. er kunnugt
um. Þó má geta þess, að í-
þróttafulltrúi ríkisins hefur
sent menntamálaráðuneytinu
bréf, þar sem hann mælir með
því að íþróttahús verði byggt
I Hafnarf. — Búningsklefinn er
að verða tilbúinn — Bygg-
ingu skála við knattspyrnu-
völlinn er nú það langt komið,
að hann er orðinn fokheldur.
Má fyrst og fremst þakka það
Albert Guðmundssyni knatt-
spyrnukennara og öðrum starf-
andi knattspyrnumönnum í bæn
um, sem hafa ætíð verið reiðu-
búnir til sjálfboðaliðsvinnu,
þegar þess hefur verið þörf.
Verður skálinn væntanlega
fullgerður innan fárra vikna.
Skýrslan ber með sér að mik-
ið líf hefur veríð í sundíþrótt-
inni á árinu sem leið, því nær
20 sundmet voru staðfest og
mörg sundmót haldin.
Knattspyrnan hefur verið
iðkuð meira hér í Hafnarfirði á
þessu ári en mörg undanfarin
ár. Karl Guðmundsson knatt-
spyrnuþjálfari KSÍ var hér um
mánaðartíma á síðastliðnu
sumri. Um það bil er Karl
hætti var ráðinn hingað hinn
kunni knattspymumaður Al-
bert Guðmundsson. Hefur Al-
Enska deildakeppnin
J. deild. L U J T MörkSt.
Manch. U. 39 23 9 7 78-48 55
Blackpool 38 20 9 9 84-55 49
Manch. C. 37 16 10 11 69-57 42
Burnley 38 16 !8 14 57-48 40
Portsm. 38 16 8 14 75-78 40
Birmingh. 37 15 9 13 66-52 39
Wolves 35 16 7 12 73-56 39
Bolton 38 16 7 15 64-48 39
Sunderl. 37 15 8 14 72-86 38
W. B. A. 37 17 4 16 54-61 38
Newcastel 38 16 6 16 79-65 38
Luton T. 38 15 8 15 60-57 38
Charlton 39 16 5 18 73-76 37
Arsenal 36 13 10 13 51-56 36
Preston 38 14 8 16 70-65 36
Everton 39 13 10 16 51-62 36
Cardiff 37 14 7 16 51-65 35
Chelsea 37 12 10 16 54-72 34
Sheff. Utd. 36 11 8 17 52-61 30
Tottenham 36 12 6 18 50-60 30
Aston V. 37 8 12 17 42-62 28
Huddersf. 37 10 7 20 45-79 27
Framhald á bls. 11
bert nú starfað hér um hálfs
árs skeið af miklum áhuga og
dugnaði, enda náðst ótrúlegur
árangur af starfi hans, bæði
íþróttalegur og ekki sízt félags-
legur.
Þess má geta að þeir knatt-
spymumenn sem æfa undir
merki iBH, hafa að öllu leyti
staðið á eigin fótum fjárhags-
lega, nema hvað knattspymu-
félögin tvö, Haukar og FH,
liafa veitt 2 þúsund krónur
hvort til þessarar starfsemi.
Hafa þeir meðal annars efnt til
happdrættis til eflingar íþrótt
sinni. Þá hafa þeir efnt til
kaffikvölda einu sinni í viku s.
1. hálft ár og má það teljast
mjög til fyrirmyndar öðrum
íþróttamönnum í þessum bæ.
í stjórn IBH s.l. ár voru:
Vilhjálmur Skúlason form.,
Hermann Guðmundsson, Sig-
urður Gíslason, Hjörleifur
Bergsteinsson, Þorgerður M.
Gísladóttir, Guðjón Sigurjóns-
son, og Ólafur Pálsson.
Á ársþinginu fór fram til-
nefning fulltnía félaganna í
stjórn I.B.H. Fyrír Hauka:
Ilermann Guðmundsson, Þor-
gerður Gísladóttir fyrir Björk,
Guðjón Sigurjónss. fyrir Erni,
Valgeir Óli Gíslason fyrir<
Skíða- og skautafélag Hafnar- ‘
fjarðar, Hjörleifur Bergsteins- *
son fyrir Sundfél. Hafnarfjarð-<
ar og Finnbogi F. Arndal fyr-
ir Fimleikafélag Hafnarfjarðar.'
Formaður I.B.H. var einróma<
kosinn Þorgéir Ibsen skólastj.'
Ávarpaði hann þingfulltrúa<
nokkrum orðum, og vænti góðr- <
ar samvinnu við félögin í I.B.'
H. Það sem Þorgeir kvað mál'
málanna fyrir hafnfirzka í-
þróttamenn og konur værí án<
efa hin fyrirhugaða íþrótta-
bygging, því mjög brýn nauð-«
syn iværi á, að hafist yrði<
handa með hana.
l-X-2
Þróttur-Vikingur 1
ÍR-Ármann 1
Birmingham-Cardiff 1
Burnley-Arsenal 1
Charlton-Sunderland 1
Everton-Wolves 1 x ■
Luton-Portsmouth 1 x
Manch.Utd.-Blackpool 1
Newcastle-Manch.City 1
Preston-Bolton 1 x
Tottenham-Aston Villa x
W.B. A. -Huddersf ield 1
Kerfi 48 raðir.
Afvopnun eftlr 10 ára þóf?
Framhald af 6. síðu.
séu staðráðnar í að -láta aldrei
koma til framkvæmda. Víst er
það rétt að tortryggnin var
hyldjúp þegar afvopnunarvið-
ræðurnar hófust árið 1946, en
síðan hefur margt breytzt. All-
ar ríkisstjórnir gera sér nú
ljóst að styrjöld væri heims-
ógæfa sem engum gæti 'fært
sigur. Við það bætist að kostn-
aðurinn af nútíma herbúnaði
er svo gífurlegur að einungis
tvö ríki, Bandaríkin og Sovét-
ríkin, megna að standa undir
honum til lengdar án þess að
sligast. Fjárhagskröggurnar
sem eru að koma Bretlandi á
kaldan klaka stafa fyrst og
fremst af þvi að brezkar rík-
isstjómir eru að burðast við
að hervæðast bæði í gömlum
stíl og á kjarnorkualdarvísu.
Frakkland hefur ekki einu
sinni reynt að kjarnorkuher-
væðast. Það er að koma á dag-
inn að þessi riki tolla ekki ‘
lengur í stórveldaröð nema af-1
vöpnun komist á. Sovétrikin1
eru önnum kafin að hjálpa^
Kínverjum að iðnvæðast og
stefna að því að veita öðrum^
þjóðum Asíu og Afríku svip-
aða aðstoð. Hana yrði hægt
að auka að mun ef af afvopn-
un yrði. Það verður sagt með
fullri vissu að afvopnun myndi
styrkja aðstöðu allra þessara
þriggja ríkja. Nokkuð öðru
máli gegnir um Bandaríkin.
Þar er hergagnaiðnaðurinn
einn meginþáttur atvinnulífs-
ins og framleiðslugeta hans
verður ekki nýtt til friðarþarfa
nema veruleg breyting verði
á stefnu Bandaríkjastjórnar
heimafyrir og út á við. Nú
er það þvi undir Bandarikj-
unum einum komið, hvor tíu
ára viðræður um afvopnun
bera loks raunhæfan árangur.
M.T.Ó.
}53. dagur
’ .- ; )•<- , • ■o.ff >* ■
Ja, hver hefði trúað því að þetta ætti eftir að liggja
fyrir Vegleysusveit, sagði fólk sín á milli. Drottinn
hlaut að hafa sérstaklega velþóknun á þessu byggðar-
lagi fyrst hann útvaldi það til að stemma stigu fyrir
óvinum heimsmenníngarinnar. Voru heimamenn aö
vonum . stoltir af því að eiga aðild aö svo háleitu mál-
efni. Það jafngilti því nánast að eiga hugsjón, því eigi
maðurínn ekki hugsjón verður líf hans innantómt eins
og galtómur skyrsár á útmánuðum.
Stjana á Hóli hafði þegar leitt hugsjón sína farsællega
heila í höfn, en um skeiö leit þó fremur óefnilega út
með að söfnuðurinn feingi að heyra í þessum ágæta
kirkjugrip, því nágrannapresturinn fékkst ekki til að
koma, og haföi það sér til afsökunar að í Vegleysusveit
væri ekkert barn á löglegum fermíngaraldri þetta árið.
Þótti brautryöjendum hugsjónarinnar súrt í brotið að
sjá framá svo ríkan árángur af erfiði sínu sem von
var. Auk þess var það tilfinnanlegur álitshnekkir fyrh*
sveitina að eiga ekkert úngmenni á téðu aldursári, og
var ekki laust við að þeir hlytu dylgjur nokkrar og
aðdróttanir er á sínum tíma töldust hafa möguleika á
því aö fyrirbyggja slíkt.
Um síðir rifjaðist upp fyrir Stjönu á Hóli að á
næst innsta bæ sveitarinnar mundi mær ein ókristnuð
eftir því sem best varð vitað, en stúlkan var utansveitar
að ætt og hafði verið komið þar fyrir árinu áður sökum
vandkvæða á uppeldi hennar í heimahúsum. Kom á
daginn að stúlkan fullnægði löglegum aldursskilyrðum
og ríflega þaö, því hún hafði þvínær tvö áx
uppá að hlaupa framyfir það aö eiga rétt á því að vera
tekin í kristinna manna tölu. Var ekki ljóst hvort hér
hafði veriö um hreina gleymsku að ræða eða trúmála-
legt tómlæti, enda algjört aukaatriði. Heiðri Vegleysu-
sveitar var borgið. Stjana tók þaö uppá sig að stúlkan
lærði trúarj átnínguna og faðirvorið, og kannski eitt-
hvert hrafl af sálmum. Gegn þessum staðreyndum
hlaut nágrannapresturinn aö láta í minni pokann. Var
messa með fermíngu boðuð að Vegleysusveitarkirkju
á annan dag hvítasunnu. Sat einginn heima þann dag
sem hafði heilsu til að fara af bæ. Ýtti það undh’ að
fullkomin óvissa var um að menn ættu von í kirkju-
legri athöfn í nánustu framtíð. Var því svo mikið fjöl-
mepni við kirkju þann dag að elstu menn töidu sig
ekki muna annað eins.
En þegar hefja skyldi messu kom það uppúr dúrn-
um að orgel, jafnvel í kirkju, er tiltölulega gagnslítill
ÞeSr, sem
gert hafa pantanir um hús hjá okkur, en
ekki verið hægt að sinna til þessa, tali við
okkur sem fyrst.
Benedikt & Gissur h.f.
Skeiðavogi 11A — Sími 5778
Vegna sívaxandi aðsóknar verður
miðnœturskemmtun vor endur-
tékin enn einu sinni í KVÖLD
kl. 23.30 í Austurbœjar'bíói.
Aögöngumiðar hjá Eymundsson og í
Austurbæ j arbí ói.
Fólki er vinsamlegast ráðlagt að
tryggja sér miða tímanlega, þareð
þeir hafa jafnan selzt npp á fáeinum
kluldaitímum.
% Félag ísl. einsöngvara