Þjóðviljinn - 05.04.1956, Page 12
Minni snjór i Siglufjarðarskarði
en síðla vors venjnlega
Siglfirðingar óþolinmóðir eftir að skarðið
verði mokað
Siglufirði. Frá fréttaritara. Þjóðviijans.
Mikil veöurblíöa hefur veriö hér undanfariö og er nú
alveg snjólaust aö kalla á öllu láglendi og litill snjór í fjöll-
um.
Talið er að nú sé minni snjór
á veginum yfir Siglufjarðar-
skarð en venjulegast er á vorin
þegar farið er að moka hann.
Finnst bæjarbúum tími til kom-
inn að hafinn sé nú mokstur
á veginum, svo Siglufjörður
komist í samband við akvegi
landsins. Þykir Siglfirðingum ó-
þarft að verið sé að bíða ein-
hvers ákveðins mánaðardags til
að byrja mokstur og vilja að
hafizt sé handa strax.
Kynferðisbrot
framið gegn 12 ára
dreng
Um næstsiðustu helgi framdi
fullorðinn maður kynferðisaf-
brot gagnvart 12 ára dreng.
Lokkaði hann drenginn, sem
mun hafa verið að selja blöð,
heim í herbergi sitt og hafði
þar mök við hann. Maðurinn
var ölvaður og er þetta þriðja
brot hans. Þetta síðasta mál
hans mun nú vera í rannsókn.
— Kynvilla virðist hafa færzt
iskyggilega i vöxt hér síðustu
árin.
Leifar tveggja sjó-
manna er fórust
með Verði
Á mánudaginn var fundust á
f jörunni í Selvogi hlutar af lík-
um tveggja sjómanna er fór-
ust með v.b. Verði 9. marz s.l.,
skammt austan við Selvogsvita.
Annað líkið þekktist sem lík
Hermanns Dagbjartssonar,
Fálkagötu 24 hér í bæ. Hluti
hins liksins var gersamlega ó-
þekkjanlegur. Var það aðeins
boiurinn, án beina, skinnið með
nokkru af holdi undir.
j•* ucáim v «, * _
Danska stjórnin
Framhald af 2. síðu.
og þing kæmi saman í dag. Er
álitið að það verði á þá leið að
skylda starfsmenn olíufélag-
anna til að hefja vinnu á ný.
Skortur á benzini og olíu hef-
ur orðið til þess að ýmsar verk-
smiðjur í Danmörku hafa stöðv-
azt og bændur geta ekki hafið
voryrkjuna.
Hús brenniir á Siglufirði
Siglufirði. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Laust fyrir miönætti aöfaranótt föstudagsins langa varö
elds vart í húsinu nr. 41 viö Túngötu hér í bæ. Brann efri
hæöin og rishæöin að mestu.
Hús þetta var tveggja hæða
með risi. Sást eJdurinn koma
út um þakglugga á austurhlið
og þegar slökkviJiðið kom á
vettvang var eldurinn orðinn
töluvert magnaður á efri hæð
og risi. Á efri hæðinni voru
Soldán i Madrid
Framhald af 1. síðu.
Soldáninn kvaðst eiga það er-
indi að semja um sjálfstæði og
sameiningu Marokkó, sem
Frakkland og Spánn skiptu á
milli sin árið 1912. Ben Jússef
ætlar að heimsækja spánskar
borgir, sem enn bera mikil
merki þess tíma þegar Márar
forfeður hans réðu þar ríkjum.
Jemen krefst
Aden
Rikisstjórn Jemen á suðvest-
urhorni Arabíuskaga hefur
krafizt þess að Bretar láti af
höndum við Jemen hafnarborg-
ina Aden, sem er brezk nýlenda,
og nærliggjandi héruð sem telj-
ast brezk verndarsvæði. Er rík-
iserfinginn í Jemen kominn á
fund Sauds Arabíukonungs til
að fá stuðning hans og annarra
arabaríkja við þessa kröfu á
heudur Bretum.
Bretar lögðu Aden undir sig
árið 1838. Hún er viðkomustað-
ur skipa á leið um Indlandshaf.
geymd ýmiskonar veiðarfæri og
útbúnaður tilheyrandi v.b. Millý.
Á neðstu hæð bjuggu tvær
fjölskyldur og tókst að bjarga
mestum hluta af búslóð þeirra
óskemmdum.
Ekki er vitað með vissu um
upptök eJdsins, en taJið er Jik-
Jegt að kvilmað hafi í út frá
rafmagni.
Gagnkvæmar
heimsóknir í her-
skóia
Hermálafuiltrúinn við brezka
sendiráðið i Moskva og aðstoð-
armaður hans heimsóttu í gær
Frunse herskólann, æðsta Jiðs-
foringjaskóia Sovétríkjanna,
segir fréttaritari Reuters í
Moskva. Voru Bretunum sýnd-
ar skólabyggingar og þeir
hlýddu á kennslustundir i hern-
aðarsögu og bardagaaðferðum.
Segir fréttaritarinn, að þeir séu
fyrstu liðsforingjarnir frá vest-
rænu landi sem heimsækja
Frunse.
Einnig siiýrir Reuter frá því,
að bermálafulltrúi Sovétríkj-
anna í London muni bráðlega
heimsækja Sandhurst, æðsta
herskóla Bretlands. Bretar áttu
frumkvæðið að þessum gagn-
kværmi heimsóknum í herskóla,
segir fréttaritarinn.
möÐVlLIINN
Fimmtudagur 5. apríl 1956 — 21. árgangur — 77. tölublað
Hús úr steyptum þilplötum
virðist ódýr og hagkvæm byggingaaðíerð
lliisseiii fer
tfl Sýrlaiiils
Skýrt var frá því í Ðamaskus
í gær, að Hussein, konungur
Jórdans, hefði þegið boð Kuw-
atli, forseta Sýrlands, um að
koma í opinbera heimsókn í
næstu viku.
Fréttamenn í Damaskus segja,
að konungur og forseti muni
ræða tilboð stjórnar Egypta-
lands, Sýrlands og Saudi Arabíu
um að leggja Jórdan til sömu
fjárhæð og Bretland hefur gert
undanfarin ár ef riftað sé hern-
aðarbandalaginu miJJi Jórdan og
Bretlands.
Suöur í Hafnarfjaröarhrauni hafa veriö reist tvö hús,
bæöi gerö úr steyptum plötum. Þau eru 122 fermetrar aö
stærö og verö þeirra fokheldra 110 þús. kr.
Þóroddur Guðnuuidsson
Áðalfundur Sós-
íalistafélags
Siglufjarðar
Aðaifundur SósíalistaféJags
Siglufjarðar var haldinn 3. þ.m.
Formaður var kosinn Þóroddur
Guðmundsson, varaformaður
HeJgi thlhjáJmsson, ritari Óskar
Garibaldason. gjaldkeri Eirikur
J. Eiríksson. Meðstjórnendur
Gunnar Jóhannsson, Kristján
Steingrímsson og Hlöðver Sig-
urðsson.
Það er Sigurlinni Pétursson
byggingameistari sem byggt
hefur þessi hús en steinplöt-
urnar framleiðir hann sjálfur.
Hefur hann um 20—25 ára
skeið fengizt við byggingu
slíkra húsa, eða hugmyndin að
þeim er a. m. k. svo gömul, því
1933 sendi hann Búnaðarfélag-
inu sýnishom af slíku bygging-
arlagi. Svarið sem hann fékk
var að halda slíkum bygginga-
tilraunum áfram. Það var hins-
vegar ekki fyrr en 1946 að
hann fékk Guðjón Samúelsson
húsameistara ríkisins í lið með
sér, er fól honum að gera slíka
skúrbyggingu á Vífilstöðum.
SigurJinni framleiðir tvær
gerðir af steyptum þilplötum,
minni gerðin er 61X 245 cm en
stærri gerðin 122X245 cm.
Gluggaumgjörð er einnig stevpt.
Fljótlegt er að byggja hús úr
slikum plötum, þvi þær eru
boltaðar saman, en samskeytin
eru þéttuð með vatnsþéttu efni.
Þá hafa þilplöturnar þann kost
að þær spara múrhúðun að'ut-
an. Einangrunarefni getur hver
maður valið sjálfur. en fyrr-
nefnd hús (er standa á hraun-
brúninni sunnan Hraunsholts)
eru, einangruð meðmuldu korki.
Sigurlinni telur þetta heppi-
legt byggingarefni fyrir bænd-
ur, úr því geti þeir auðveldlega
sjálfir byggt öll hús sín, og þá
virðist það ekki síður hag-
kvæmt fyrir þá mörgu er þurfa
af litlum efnum að byggja sér
hús í kaupstöðum. Vafalitið
mætti gera veggplötur þessar
ódýrari ef framleiddar væru í
stórum stíl, en til þess vantar
höfund þeirra, Sigurlinna Pét>
ursson, enn aðstöðu.
„Við höfzini bœði vilja og bolmagn til að koma aftur d
lögum og reglu á Kýpur“, sagði Lennox-Boyd, nýlendu-
ráðheira Bretlands, á pingi fyrir skömmu. Hér má sjá
framkvæmd pess loforðs. Tveir breskir hermenn draga á
milli sin skóladreng, sem ekki hefur viljað sýna kúgurum
ættlands síns tilhlýðilega virðingu.
Segjast hafu
drepið 100
Franska herstjórmn í Alsír til-
kynnti i gær að síðasta sólar-
hring liefði lið hennar
drepið 100 menn ur skæruhern-
ryndiíigar fanga hornar á
um sem berst fyrir sjálfstæði
Alsír. Sagði lierstjórnin, að sér-
stakar víkingasveitir hefðu fellt
70 af þeim.
Iirezka foringja á Kýpur
Tveir brezkir liðsforingjar á Kýpur hafa. veriö dregnir
fyrir herrétt sakaöir um að pynda fanga til sagna.
í gær var yfirheyrður óbreýtt-
ur, brezkur hermaður, eitt af
vitnum saksóknarans. Kvaðst
hann hafa horft á annan sak-
borninginn berja fanga, grísku-
rnælandi Kýpurbúa, á bert bak-
ið með keðjubút. Með 'þessum
misþyrmingum hefði liðsforing-
inn verið að leitast við að
þvinga fram upplýsingar u:m
starf samtakanna EOKA, sem
standa fýrir árásum á Breta á
Kýpur.
Vitnið játaði að hafa sjálft
barið fanga í andlitið þegar ver-
ið var að yfirhevra þá.
Margir fangar á Kýpur hafa
kvartað yfir að þeir væru látn-
ir sæta misþyrmingum í fanga-
búðum Breta.
Brezka lierstjórnin á Kýpur
lilkynnU í gær, að menn henn-
ar hefðu fundið 56 dynamit-
stengur í peningaskáp sem tek-
inn var úr klaustri nálægt
Nicosia á laugardaginn.
í gær kom lierflutningaskip
frá Frakklandi með Jiðsauka ti)
AJsír og í dag er von á öðru
með 2000 franska hermenn.
Franski herinn sem fyrir er í
landinu telur 200.000 menn.
Mollet. forsætisráðherra Frakk-
lands, liélt ræðu í gær við liá-
tiðaliöld við aðalstöðvar A-
bandalag'sins i Paris. Var verið
að mhiiiast sjö ára afmælis
bandalag'sins. Lét Mollet í ljós
þakklæti við lievstjórn banda-
lagsins fyrir aðstoðina sem luín
hefði veitt í ba-ráttunni gegn
Alsírbúum með því að leýfa
Frökkum að ílytja uiestallt iið-
ið sem þeii' höfðu fengið lienni
til unu'áða til Afríku,