Þjóðviljinn - 01.05.1956, Síða 1
Mætum öll í kröfugönguna!
Fylkjum liði fyrir bættum kjörum og auknum réttindum og
áhrifum hins vinnandi fólks á stjórn þjóðmálanna
í dag íylkir reykvísk alþýða liði á götunum, skip-
ar sér undir merki verkalýðssamtakanna og kröíur
þeirra íyrir bættum kjörum, íyrir verndun sjálístæð-
islands og þjóðar, fyrir auknum rétti og áhrifum hins
vinnandi fólks á stjórn landsins.
Fyrir réttu ári fylkti reyk-
vískur verkalýður liði á götun-
um að afloknu verkfallinu
mikla, hinum hörðustu átökum
sem verkalýðssamtökin á ís-
landi hafa. háð við auðstéttina
og ríkisstjórn hennar.
Fyrir réttu ári fögmiðu reyk-
visk verkalýðssamtök glæsileg-
um sigri, höfðu hirundið ráns-
herferð auðstéttarinnar og
hætt kjör sin. En a.uðstéttin
hugði á hefndir, og enn sem
fyrr á undanförnum árum
feeitti atvinnurekendastéttin
ríkisvaldinu fyrir sig i árásum-
um á lífskjör fólksins. Er
skemmst að minnast 250 millj,
kr. álaganna sem ríkisvaldið
iagði á almenning i vetur.
Barátta verkalýðsins fyrir
mannsæmandi lífskjörum hef-
ur á undanförnum árum fvrst
og fremst verið barátta við rik-
isvald auðstéttarinnar, er haft
hefur forustuna um að skerða
kjörin. Þetta kemur líka glöggrt
fram í ávarpi verkalýðsfélag-
anna í dag, en þar segir:
„Islenzkri alþýðu er ljós sú
staðreynd að með stjórnmála-
legum aðgerðum er luegt að
rýra og jafnvel gera að engu
árangra k,jarabaráttunnar og
finnur það áþreifanlegar nú en
oftast áður að svo hefur verið
gert. Hún lítur svo á að ríkis-
stjórn og löggjafarvald hafi nú,
með lióflausum álögum og al-
gjöru atliafnaleysi gegn vaxandi
dýrtíð, stórlega rýrt ávinning
síðustu kauphækkana og einn-
íg stefnt atvinnuvegum lands-
manna í algert öngþveiti, og
þarmeð afkomuöryggi alls
verkalýðs í beina hættu.
Þessi staðreynd liefur sýnt
íslenzkri alþýðu framá nauðsyn
þess að láta sig meiru skipta
hvernig löggjafarsamkoma
þjóðarinnar er skipuð. Verka-
lýðssamtökin treysta því á
stétarþroska meðlima sinna og
allrar alþýðu að veita þeim ein-
um brautargengi í liönd íarandi
kosningum til Alþingis, sem
Björn Jónsson verður í kjöri fyrir
Alþýðubandalagið á Akureyri
Björn Jónsson
Björn Jónsson er fæddur 3.
sept. 1916 að Úlfsstöðum í
Blönduhlíð, sonur hjónanna
Rannveigar Sveinsdóttur og Jóns
Björn Jónsson hefur um langt
skeið tekið mikinn og góðan
þátt i baráttu verkamanna á
Akureyri og starfsemi verkalýðs-
hreyfingarinnar. Hann var einn
aðalhvatamaður að stofnun
j Verkamannafélags Akureyrar-
j kauþstaðar 1943 þegar verka-
! mannahreyfingin á Akureyri var
sameinuð. Hann var kjörinn
varaformaður félagsins 1945 og
formaður þess 1947 og hefur
verið það síðan að undanskildu
einu ári er hann var varafor-
maður. Hefur átt sæti á öliuin
þingum Alþýðusambands íslands
Framhald á 9. slðu.
Héraðsnefnd Alþýðubandalagsins á Akureyri hefur ein-
róma samþykkt að Björn Jónsson, ritstjóri og formaður
Verkamannaféiags Akureyrarkaupstaðar verði í framboði
fyrir Alþýðubandalagið á Akureyri við Alþingiskosning-
arnar 24. júní n.k.
I Kristjánssonar kennara. Fluttist
til Akureyrar 5 ára -gamall með
foreldrum sínum og hefur átt.
þar heima síðan. Stundaði nám
í Menntaskólanum á Akureyri
| og tók stúdentspróf úr stærð-
i fræðideild 1936.
t rejsta má til þess að vinna trú-
lega að hagsinunamálurn al-
ínennings til sjávar og sveita“.
Merki dagsins verða seld á
götumim og heitir 1. maínefnd-
in á félagsmenn. verkalýðsfélag-
anna að taka merki til sölu og
alla reykvíska alþýðiunenn aS
íhera merki dagsins.
Fru Sólveig Ólafsdóttir í
kjöri fyrir A1 þyöuB»anilalag^*
iö í Nordur-ísafjardarsýsln
Héraðsnefndir Alþýðubandalagsins í Noröur-ísafjarðar-'
sýslu hafa ákveðið að frú Sólveig Ólafsdóttir verði 1 kjöri
í Norður-ísafjarðarsýslu fyrir Alþýðubandalagið við Al-
þingisjjpsningarnar 24. júní í sumar.
Kröfugangan hefst kl. 2.10
Hátíðahöldin í dag hefjast
með því að safnazt verður sam-
an við Iðnó í Vonarstræti undir
merki verkalýðssamtakanna kl.
1.30. Lagt verður af stað í
kröfugönguna kl. rúmlega 2 og
leika Lúðrasveit verkalýðsins
og lúðrasveitin Svanur fyrir
kröfugöngunni.
Kröfugangan fer um Suður-
götu, Aðalstræti, Hafnarstræti,
Hverfisgötu, Frakkastíg, Skóla-
vörðustíg, Bankastræti og stað-
næmzt á Lækjartorgi.
Útifundur hefst á 'Lækjar-
torgi þegar kröfugangan liefur
staðnæmzt þar. Fundarstjóri er
Björn Bjarnason formaður
Fulltrúaráðs verkalýðsfélag-
anna i Reykjavík en ræðumenn
Eðvarð Sigurðsson varaforseti
Alþýðusambandsins og ritari
Dagsbrúnar og Óskar Hall-
grímsson formaður Félags ís-
lenzkra rafvirkja.
Dansleikir verða i fjórum
samkomuhúsum um kvöldið.
1. maí-ganga
bönnuð í París
Frönsk stjórnarvöld tilkynntu
í gær, að ákveðið liefði verið
að banna kröfugöngur í París í
dag. Þetta er þriðja árið í röð
sem ríkisstjórnir Frakklands
banna hátíðahöld 1. maí.
Sölubörn!
Komið í Hafnarstræti 8
fyrir hádegi í dag og takið
tíTS'fN til söln á götunnm.
Sólveig Ólafsdóttir
Frú Sólveig Ólafsdóttir er
Norður-ísfirðingur að ætt og
uppruna, fædd í Strandseljum
við ísafjarðardjúp 24. febrúar
1904. Foreldrar: hjónin Guðríð-
ur Hafliðadóttir og Ólafur Þórð-
arson bóndi að Strandseljum.
Frú Sóiveig stundaði nám í
Kvennaskólanum á Blönduósi og
héraðsskólanum að Núpi í Dýra-
firði. Hún giftist Hannibal Valdi-‘
marssyni, kennara á ísafirði, nú-
verandi alþingismanni, árið 1934.
Eftir að frú Sólveig fluttist
til ísafjarðar tók hún virkan
þátt í ýmsum félagsmálum
kvenna þar. Atti sæti í stjóm
Kvenfélags Alþýðuflokksins frá
stofnun þess og þar til þau
hjónin fluttust til Reykjavíkur
1952. Þá sat hún og í stjóm
fulltrúaráðs Alþýðuílokksins á
Isaíirði um nokkurra ára skeið.
Ennfremur átti hún sæti í
stjórn Kvenfélagsins Óskar á
ísafirði og mætti oft sem full-
trúi Kvenféiagasambands Vest—
fjarða á landsfundum Kvenfé—
iagasambands ísjands. Hún á nft,
sæti í varastjórn Kvenréttinda—
fél.ags íslands,
Frú Sólveig er gáfuð kona og
dugmikil, sem auk margþættra
starfa í félagssamtökum kvenna
hefur stjórnað fjölmennti heim-
ili af miklum myndarskap og
staðið örugg og traust við hlið
manns sins í stormasömu lífi
hans og starfi í þágu íslenzkra
alþýðustétta.
Ríkir óblandin og almenEii
ánægja meðal vinstri sinnað?
alþýðufólks í Norður-ísafjarðar-
sýslu yfir því að frú Sólveig
skuli nú hafa gefið kost á sér
sem frambjóðandi hinna nýj»
kosningasamtaka alþýðunvar og
vinstri aflanna við Alþinei.kosn-
ingarnar í sumar.
Bandarísku hernámsverktakarnir
halda áfram - en skipta um nafn
Á Keflavíkurflugvelli eru nú aö fara fram buxnaskipti
þau sem ríkisstjórnin nefnir svo fagurlega „brottför Ham-
iltons“. Skipt veröúr um bréfhausa og á þá prentaö eftir-
leiöis Hedrick-Grove í staö Metcalfe-Hamilton, o.s.frv. —
og hinn alræmdi bandaríski verktaki situr áfram sem
fastast.
Ef einhverjum skyldi nú
detta í hug að þetta væri ómak-
lega mælt ætti hann að lesa
eftirfarandi bréf, sem starfs-
mönnum á Keflavíkurflugvelli
var sent fyrir nokkrum dögum:
„Til: Allra íslenzkra starfs-
manna — Frá: H. A. Adams,
framkvæmdastjóra. Efni:
Endurráðning íslenzkra starfs-
manna hjá AEM verktakanum.
1. Þér eruð beðin(n) um að
gefa skriflega til kynna á við-
festu blaði hvort þér æskið, eða
æskið ekki, eftir að starfa í
þjónustu Hedrick-Grove, hins
nýja verkfræði- og umsjónar-
verktaka.
2. Þeir starfsmenn, sem
stjórn hins nýja verktaka sam-
þykkir að ráða, munu að því
leyti sem það verður kleyft,
verða ráðnir í sömu stöðu og
á sama kaupi og verið hefur.
3. Allir þeir, sem ráðnir verða
af hinum nýja verktaka, verða
taldir nýjir starfsmenn, en þó
Framhald á 9. síðu.