Þjóðviljinn - 12.05.1956, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 12.05.1956, Blaðsíða 12
 iiar á- Kýpyr hengja fa í hefndarskytii Gatan sem brezka sendlráðiS i Aþenu er viS skírS eftir Karaolis og Demetriou Samtök skœrulida á Kýpur, EOKA, tilkynntu í gœr, aö pau heföu hengt tvo hrezka liðpjálfa í hefndarskyni fyrir aö Bretar tóku tvo Kýpurbúa, Karaolis og Demetriou, af lífi í dögun á uppstigningardag. hefði verið fullnægt og hóta því að taka af lífi brezkan hermann fyrir hvern þann Kýpurbúa sem Bretar lífláta. Brezka herstjómin á Kýpur hefur viðurkennt, að liðþjálf- anna tveggja hafi verið saknað, annars síðan i desember, en hins síðan í apríl, en segist eng- ar sannanir hafa fyrir því, að skæruliðar hafi ihaft þá á valdi sínu, og vel geti verið að hér sé aðeins um áróðursbragð að ræða. Skrifaði Elísabetu drottningu. Móðir annars þeirra, Hills, hefur þó ekki verið í. neinum vafa um að sonur hennar væri á valdi skæruliða og skrifaði hún m.a. Ellísabetu drottningu bréf, þar sem hún bað hana að sjá til þess, að Kýpurbúarnir tveir yrðu ekki líflátnir, þar sem hún óttaðist að líf sonar henn- ar mvndi verða í hættu. Gata skírð upp. Bæjarstjórnin í Aþenu, höf- borg Grikklands, samþykkti í gær að skíra upp götu þá í borg- inni sem hús brezka sendiráðsins stendur við og kalla hana eft- ir þeim Karaolis og Demetriou. Öflugur lögregluvörður var settur við sendiráðið í fyrradag og einnig við aðrar byggingar, þar sem brezkar stofnanir eru til húsa. Brezkur hermaður skaut ung- lingspilt til bana á Kýpur í gær. Piiturinn hafði verið að dreifa flugritum skæruiiða um heng- ingu brezku liðþjálfanna. Hiðmnumia Laugardagur 12. maí 1956 — 21. árgangur — 106. tölublað Fnndir Alþýðubandalagsins í Aust- Forsetinn f jarver- andi Forseti íslands verður fjar- verandi í nokkra daga og tekur ekki á móti gestum á Bessa- stöðum á afmæli sínu 13. maí. Almennur stjórnmálafundur á vegum Alþýðubandalagsins verður haldinn á Skagaströnd á morgun klukkan 2. Á fundinuín mæta Einar Olgeirsson alþingismaður og Kristján Gíslason, fram- kvæmdastjóri Alþýðubandalagsins. Flytja þeir framsöguræður tun stjormnála\iðhorfið en siðan verða frjálsar umræður. Á sunnudagskvöldið, klukkan 9 heldur Alþýðubandalagið al- mennan stjórnmálafund á Blönduósi. Framsögumenn verða Ein- ar Olgeirsson og Kristján Gíslason. Sjö íuiidir a Vestfjörðum Alþýðubandalagið heldur sjö almenna stjórnmálafundi á Vestfjörðum. Fyrsti fundurinn var á Patreksfirði í fyrrakvöld, annar á Bíldudal í gærkvöld. t kvöld verður fundur á Þing- eyri, annað kvöld á Flateyri, mánudaginn 14. maí á Suður- eyri í Súgandafirði, þriðjudag- inn 15. maí á ísafirði og mið- Tívólígarðurinn opnaður í dag Þar eru nú apar 09 birnir 0. fl. dýr til sýnis Skemmtigarðurinn 1 Tívolí verður opnaður í dag kl 3 Meðal þess sem þar verður að sjá er vísir aö dýragarði. Dýrin sem fengin hafa verið til sýnis í garðinum eru apar, Leikféiag Reykjavíkur hafði 6 leik- sýningar á Akureyri um helgina Leikfélag Reykjavíkur kom úr leikför að norðan á fimmtudagsmorgun. Hafði félagið efnt til sýningar á sjón- leiknum Systur Maríu á Akureyri um síðustu helgi og voiu i áögerðar 3 sýningar en urðu 6 vegna geysimikillar aðsóknar. Frá þessu var skýrt í flug- riti sem dreiít var um alla eyna í gær. Skæruliöar segjast hafa tekið liðþjáifana, sem kallaðir voru Hill og Shelton, af lífi strax eftir að 'Bretar tilkynntu í fyrradag, að líflátsdómumim •yfir Karaolis og Demetriou • * « j Alfreð Gíslason Giiðtnundur J. Guðnuindsson Sigríður Mannesdóttir Hófust sýningar á laugar- dagskvöld og var flokknum á- kaft fagnað að frumsýningar- lokum. Formaður Leikfélags Akureyrar, Guðmundur Gunn- arsson, ávarpaði gestina og þakkaði komuna og færði leik- endum fagran blómvönd frá Leikfélagi Akureyrar. Á sunnu- iaginn voru hafðar 2 sýningar og seldust aðgöngumiðar á skammri stund, svo að auka- lýning var ákveðin mánudags- lcvöld, en aðsóknin var enn svo mikil, að hafa varð tvær sýn- ingar að auki á þriðjudag og þá leikið kl. 6.30 og kl. 10 að kvöldi. Fleiri sýningum varð ekki við komið, þar sem flokk- urinn gat ekki haft lengri við- dvöl. — Norðanblöðin öll ljúka hinu mesta lofsorði á leikrit og meðferð leikenda og telja að leikförin hafi heppnazt mjög vel. Eitt blaðanna lýkur um- sögn sinni á þessa leið: „Má fullyrða, að meðferð Leikfélags Reykjavíkur á þessum sjónleik sé hin merkasta og muni verða mörgum leikhúsgestum minnis- stæð. Sviðsetningin er sérlega góð og frammistaða keikaranna hin glæsilegasta, sem hér hefur sézt um lengri tíma.“ Leikararnir, sem þátt tóku í förinni, róma mjög móttökurn- ar á Akureyri, undirtektir á- horfenda og margvíslega fyrir- greiðslu. armenn mjög ræðum þeirra. j Gísli Jónsson alþingismaður var; mættur á fundinum og' fór þess á leit að fá að taka til máls. Urðu fundarboðendur að sjálf- sögðu við þeim tilmælum Gísla og veittu honum ótakmarkaðan bjarndýr, skrautfuglar og fisk- ár. Verður þessi nýbreytni á- reiðanlega vinsæl hjá yngstu kynslóðinni, sem ekki hefur átt þess kost að sjá slík dýr fyrr. Skemmtitæki í garðinum eru hin sömu og verið hefur, nema draugahúsinu hefur nú verið breytt í „undrahús" þar sem menn sjá hinar furðulegustu sjónhverfingar. Þá hefur garð- urinn verið fegraður eftir föng- um. Á opnunardaginn verður ým- islegt til skemmtunar, m. a. töfrar og eftirhermur, búktal o. fl. og loks flýgur svo flug- vél yfir og varpar niður gjafa- pökkum. Ferðir verða frá Búnaðarfé- lagshúsinu og sjá Strætisvagn- ar Reykjavíkur um ferðir þess- ar í sumar. anns. í gærkvöld hélt Alþýðubanda- lagið almennan fund á Bíldudal. Mættu þpir Hannibal og Karl einnig þar. Ekki hafði blaðið fregnir af fundinum áður en það fór i prentun. vikudaginn. 16. maí í Bolunga- vík. Á öllum Vestfjarðafundun- um mæta alþingismennimir Hannibal Valdimarsson og Karl Guðjónsson og flytja framsögu- ræður um stjómmálaviðhorfin og kosningarnar. Alþýðubandalagið hefur þeg- ar haldið fjölmarga fundi viða um land. Hafa allir fundirnir verið afbragðsvel sóttir og sum- ir þeirra af óvenju miklu fjöl- menni miðað við þá fundi sem allir flokkar hafa haldið fyrir kosningar á undanförnum ár- um. Á flestum fundum Alþýðu- bandalagsins hafa orðið hinar fjörugustu umræður af hálfu innanhéraðsmanna, fjölmargir menn úr öllum flokkum bafa lýst fylgi og eindregnum stuðn- ingi við hin nýju kosningasam- tök alþýðunnar. Andstæðing- ar hafa einnig látið til sín heyra og þátttaka þeirra í umræðun- um leitt til hinna hollustu rök- ræðna um stofnun og markmið Alþýðubandalagsins. Sendimenn íhalds og hræðslubandalagsins hafa allstaðar farið hinar verstu hrakfarir fyrir fram- sögumönnum Alþýðubandalags- in-s og talsmönnum þess. Alþýðubandalagið er bið nýja og framsækna afl í íslenzkum stjórnmálum, einingarsamtök hins vinnandi fólks á sviði stjórnmálanna. Við það eru von- ir alþýðunnar um nýja og betri tíma bundnar, sigur þess í ai- þingiskosningunum er eina trygging fyrir því að gjörbrejý'tt verði um stefnu i þjóðmálunum og raunveruleg vinstri stjóm mynduð að loknum kosningum. Alþýðufólk um allt land og á- hugamenn um stjórnmálin eru hvattir til að fjölsækja allá stjórnmálafundi Alþýðubanda- lagsins og kynna sér sem bezt stefnu þess og markmið. Rithöíundafélag- inu algerlega övið- komandi Út af auglýsingu stjórnar Bandalags íslenzka listamanna um frestun veizluhalda Pen- klúbbsins, meðal annars vegna hugsanlegrar sameiningar rit- höfundafélaganna, vill stjórn Rithöfundafélags ístands taka fram eftirfarandi: Stjórn Rithöfundaféiags ís- lands er þessi klúbbstofnun al- gerlega óviðkomandi í núverandi mynd, og mótmælir því, að sam- eining félaganna, þótt til kæmi, sé ó nokkurn hátt tengd né bundin tilveru hans og veizlu. Stjóru Ritliöfuudafél. íslands <«>-- ASmennafr síjcrnmálafundur í Sfykkishólmi á morgun Alþýðubandalagið boðar til almeniis landsmálafundar í StykU- isiiðlmi n.k..suiiniidag, 13. þ.in. klukkan 3.3« e.h. Á fundinum mæta Alireð Gíslason lækuir,.Guðmundiir J. Guðinundsson verka- maður og Sigríður Hannesdóttir húsfrú. Fljlja þau framsögu- ræður um stofnun Alþýðubandalagsius, stjórnmálaviðhorfið og kosningarnar, en eftir þær verða frjálsar nmræður. Takið söfnunaire'öc'n Fjölmeimur fundur Alþýðu- bandalagsins á Patreksfirði Gísli Jónsson fékk ótakmarkaðan ræðutíma en hélt aðeins út í hálftíma! Alþýöubandalagiö hélt almennan stjórnmálaíund á Pat- reksfirði í fyrrakvöld. Var fundurinn fjölsóttur og ræöu- mönnum Alþýöubandalagsins ágætleg'a tekið. Á annað hundrað manns sótti I ræðutíma. Hélt Gísli hálftíma fundinn sem haldinn var í sam-! ræðu og var með skikkanlegasta komuhúsinu Skjaldborg. Fram- móti. Svaraði Karl Guðjónsson söguræður fluftu alþingismenn- ræðu Gísla e.n Hannibal Valdi- irnir Hannibal Valdimarsson og j marsson flutti lokaræðu fund- Karl Guðjónsson. Fögnuðu fund-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.