Þjóðviljinn - 18.05.1956, Síða 1

Þjóðviljinn - 18.05.1956, Síða 1
 Föstuilagur 18. maí 1956 21. árgangur — 111. tölublað Sjálfbo^aliðar 1 eru beðnir að hai'a sambanil við kosiiingaskrifstofuna i Tjarnargötu 20 til þess að vinna ýms störf til undir- búnings kosningunum. — % kvöld verður opið til kl. 1®» Ríkisstjórnin hefur svikizt um að b™8kEíií' íramkvæina fyrirmæli Alþingis Hefur hvorki sent Bandarik]ast]6rn né A-bandalaginu tilkynningu um endurskoSun hernámssamningsins Tíminn skýrir frá því í gær aó enn hafi ekki verið send- j ar neinar formlegar tilkynningar til Bandaríkjastjórnar og ráðs Noröur-Atlanzhafsbandalagsins um þá ákvöröun, Alþingis aö hafin skuli endurskoðun hemámssamningsins og aö hernámsliöið hverfi af landi brott. Hefur ríkisstjórn- i in þannig svikizt um aö framkvæma skýlaus fyrirmæli j Aiþingis íslendinga, í næstum því tvo mánuöi, af einhverj- um undarlegum og annarlegum ástæðum. I ályktun Alþingis um þetta efni, sem samþykkt var 28. marz sl., var komizt svo að orði um þetta mál: * „Með hliðsjón af breyttum viðhorfum síðan varnar- samningurinn frá 1951 var gerður og ineð tilliti tíl yfir- lýsinga um, að eigi skuli vera erlendur her á Islandi á friðartímum, verði ÞBGAR hafiu endurskoðun á þeirri sldpan, sem þá var tekin upp, með það fyrir augum, að Islendingar annist sjálfir gæzlu og viðhald varnar- mannvirkja — þó ekki hern- aðarstörf — og að herinn hverfi úr landi. Fáist ekki samkomulag um þessa breyt- ingu, verði málinu fylgt eftír með uppsögn samkvæmt 7. grein samningsins." Fyrirmæli Alþingis voru þannig alveg skýlaus; endur- skoðunin skyldi þegar hafin. 'jAr Ákvæði hernáms- samningsins. I 7.. grein hernámssamnings- ins sjáifs eru svo þessi á- kvæði um það hvernig unnið skuli að endurskoðun og upp- sögn samningsins: „Hvor ríkisstjórnin getur, hvenær sem er, að undanfar- inni tilkynningu til hinnar ríklsstjórnarinnar, farið þessj á leit við ráð Norður-At- 1 anzhafsbandalagsins, að það endurskoði, livort lengur Washington staðfestir Landvarnaráðuneyti Banda- ríkjanna staðfesti í gær þá fregn, að Baudaríkin myndu ekki leggja í byggingu frelí,- ari hernaðarmannvirkja á Islandi, meðan enn væri ó- víst um framliald á banda- rískri hersetu hér. Samning- ar um frainkvæmdir sem þegar hefðu verið gerðir myndu uppfylltír, en engir nýir samningar yrðu gerðir. Framkvæmdirnar myndu því smám saman leggjast niður. -__________________J þurt'i á að lialda framan- greindri aðstöðu, og geri tíl- lögur til beggja ríkisstjórna um það, hvort samningur | þessi skuli gilda áfram. Ef slík málaleitan um endur- skoðun leiðir ekki til þess, að ríkisstjórnirnar verði á- sáttar innan sex mánaða, frá því að málaleitunin var bor- in fram, getur hvor ríkis- stjórnin, hvenær sem er eft- Ljóstrað upp um leynisamkomu- lag þeirra Ólafur Thors ir það, sagt sainningnum upp, og skal liann þá falla úr gildi tóif mánuðum síð- Einnig þarna eru ákvæðin greinileg. Islenzku ríkisstjórn- inni bar að senda Bandaríkja- stjórn formlega tilkynningu um ákvörðun Alþingis og fara þess síðan á leit við ráð Norður- Atlanzhafsbandalagsins að það framkvæmdi endurskoðun. Sam- kvæmt ákvörðun Alþingis bar ríkisstjórninni þegar að gera þetta, en endurskoðunarfrestur og uppsagnarfrestur reiknast frá því að formleg tilkynning er send. En ríkisstjórnin hefur nú svikizt um að framkvæma þessa ákvörðun Alþingis í næstum því tvo mánuði. ^ Vísvitandi loddara- leikur. I Ijósi þessara upplýsinga Tímans er greinilegt að deilur íhalds og Framsóknar undan- farnar vikur hafa verið einber og vísvitandi loddaraskapur. Morgunblaðið hefur áfellzt Kristin Guðmundsson utanrík- isráðherra mjög fyrir það að hann hafi ekki rætt ákvörðun Alþingis á ráðsfundi Norður- Atlanzhafsbandalagsins. Krist- inn hefur borið því við að hann hafi verið beðinn um. það að ræða málið ekki, bæði af fram- kvæmdastjóra bandalagsins og fulltrúum annarra aðildarríkja. En nú er komið í ljós að málið var ekki rætt af þeirri ein- földu ástæðu að það var ekki á dagskrá og gat ekki verið á dagskrá, þar sem engin form- leg tilkynning hafði verið send frá ríkisstjórn Islands. Þetta vita bæði Morgunblaðið og Tíminn; samt halda þau áfram að búa til ásakanir og afsak- anir sem eru algerlega út í hött. Þetta er svívirðilegur og óafsakanlegur loddaraleikur með alvarlegt mál og dæmalaus ósvífni við islenzka kjósendur. ^ Átti hermálaráðu- neytið ekki að taka ákvörðunina alvarlega? Uppljóstrunin um það að rík- isstjórnin hafi svikizt um að framkvæma fyrirmæli Alþingis gloppast upp úr Tímanum í gær, er hann lætur í ljós reiði sína yfir því að Bandaríkja- stjórn sé að hætta við hernað- arframkvæmdir sínar á íslandi. Skýrir blaðið frá því að „her- málaráðuneytí Bandaríkjanna hafi ákveðið að fresta um óákveðinn tíma öliuin fram- kvæmduni á íslandi, sem eliki liafa þegar verið gerðir samn- ingar um“ og „að eyðsla aí' al- mannafé (Bandaríkjanna) verði hér eftir í lágmarki.“ Skýrir blaðið frá því að þau verk sem aflýst hafi verið séu hafnar- gerðin í Njarðvik, ýmsar bygg- ingarframkvæmdir á Keflavík- urflugvelli og vinna við flug- völlinn sjálfan. Lætur blaðið i ljós bæði undrun og gremju yf- ir þessum ákvörðunum banda- ríska hermálaráðuneytisins og lætur að því liggja að þær séu runnar undan rifjum Sjálf- stæðisflokksins. En af hverju er blaðið svona undrandi og gramt? Er það ekki bein og sjálfsögð og ánægjuleg afleið- ing af ákvörðun Alþingis að Bandarikin hætti hernaðarfram- kvæmdum sínum hér á landi? Eða átti hermálaráðuneytið ekki frekar að taka ákvörðun Alþingis alvarlega en ríkis- stjórn íslands hefur gert til þessa ? Framhald á 12. síðu. Maður sem staddur var á Ægisgarði í gær skýrði Þjóð- viljanum frá því að drengur hefði hjólað upp Ægisgarðinn, rekið hjólið utan í bryggjubrún- ina, misst jafnvægið og steypzt í sjóinn, ásamt hjólinu. Hefði þá, ungur rnaðuc sem staddur var nokkuð frá hlaupið þangað rem drengurinn féll í sjóbm og stungið sér eftir honum og náð í hann. Aðrir sem nærstaddir voru hefðu síðan hjálpað þeim upp á bryggjuna. Sagði hr "m að þessi ungi maður myndi heita Þórður Þórðarson. Maðurinn benti jafnfrrmt á. að ástæða væri til að Uölga björgunarhringjum á Ægis- garði, því um 70 mfetrar mvndu. hafa verið að næsta björgunar- hring þaðan sem drengurinn féll í sjóinn. Sprengjuárásir á Iíýpur 9 Sprengjuárásir voru gerðar víða á Kýpur í gær. 1 Fama- gusta var sprengju varpað að brezkri bifreið og be.ið einn. hermaður bana. Önnur slík árás var gerð í þorpi 75 km fyrir vestan Nicosia og særðist einn hermaður. Hannibal, Karli og Sólveigu vel tekið á Bolungavík Frambjóðandi Hræðslubandalagsins mætti Alþýöubandalagiö hélt almennan fund í Bolungavík á miövikudagskvöld. Höfðu þar framsögu Hannibal Valdi- marsson, Karl Guöjónsson og Sólveig Ólafsdóttir, fram- bjóöandi AlþýÖubandalagsins í Noröur-ísafjaröarsýslu. Var ræöum þeirra frábærlega vel tekiö. Frambjóðandi Hræðslubanda- lagsins, Friðfinnur Ölafsson, talaði á fundinum, og var fram- koma hans með þeim hætti, að hann er talinn hafa hrint frá sér þó nokkrum kjósendum, sem annars hefðu verið liklegir til að ljá honum atkvæði. Af heimamönnum talaði Ágúst Vigfússon kennari með Alþýðubandalaginu, en Þórður Hjaltason fyrir Hræðslubanda- lagið. Nú er ljóst ccð Sovét- ríkin vilja frið Þingmenn brezka Verkamannaílokksins vilja aínema herskyldu þar í landi Nú er ekki um þaö aö villast lengiir, aö Sovétríkin vilja frið, þar sem þau hafa dregiö’ svo stórleg’a úr herstyrk sínum, segir í yfirlýsingu sem 55 þingmenn brezka Verka- mannaflokksins birtu í gær. Þessir þingmenn, en meðal þeirra eru Shinwell, fyrrv. land- varnaráðherra, og Aneurin Bevan, gera það að tíjlögu sinni, að herskylda verði afnumin með öllu í Bretlandi. Hennar sé ekki lengur þörf, nú þegar íiið- arhorfur eni orðnar svo góðar í heiminum. Þeir segja að hætt- an, sem öðrum ríkjum stafi frá löndum kommúnista, sé ekki Framhald á 5. síðu. Altir ssffl vilja vinna að sigri Alþýðubandalagsins þurfa að iaka söfnunargögn j

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.