Þjóðviljinn - 21.07.1956, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 21.07.1956, Blaðsíða 2
2) — ÞJÖÐVILJINN — Laugardagur 21. julí 1956 Sjálfsmorð og slys algengustu dánarorsakir danskra karla er látast innan fimmtugsaldurs Dauði karlmanna sem látast innan fimmtugs í Dan- mörku orsakast oftar af slysum og sjálfsmor'ðum en sjúk- dómum, og í aldursflokknum 30—40 ára eru sjálfsmoröin algengasta dánarorsökin, valda 22% allra mannsláta. .Manndauði í þessum aldurs- flokki karla vegna slysfara kem- ur næst með 19% og krabba- meinið í þriðja sæti með 16%. Þessar tölur eru teknar úr skýrslu sem lögð var fram á norræirmi líftryggingaráðstefnu, sem nýlega var haldin í Helsinki og er þar byggt á dönskum manndauðaskýrslum frá árunum 1951—53. 38% drengja á aldrinum 1—10 ára sem biðu bana á þessum tíma dóu af slysum, á aldr- inum 10—20 stafa 43% mann- dauðans af siysum og 7% af sjálfsmorðum, og á aldrinum 20—30 ára 34% af slysum og 19% af sjálfsmorðum. Bæði slys og sjálfsmorð voru langtum algengari dánarorsakir á þessum árum en þau voru fyrir stríð, og stafar aukning slysadauðans af aukinni notkun vélknúinna farartækja. Sjálfsmorð eru miklu algeng- ari í borgum en sveitum og einn- ig miklu algengari meðal karla en kvenna. ttvalastofn- inn er í hœttu í gær hófst í London alþjóða- ráðstefna um hvalveiðar. Fyrir ráðstefnunni liggur tillaga um að erlendir eftirlitsmenn séu háfðir um borð í sérhverju móð- urskipi sem stundar veiðar í suðurhöfum til þess að líta eft- ir að alþjóðasamþvkktir um veiðarnar séu haldnar. 8UXUR í sumarleyfið Fyrir dömur: Rauðar, bláar, grænar : brúnar, — kr. 168,00. j Fyrir herra: kr. 178,00. T0LED0 | Sími 6891. Fischersundi i Álfsnesmöl h.f. sendir yður eínið, saisd og m©L á byggingarstað Útvegar yður steypuhrærivél, ef yður vantar. Afgreitt er úr námunni til kl. 8 á kvöldin og 12 á laugardögum. Simi 81744 eða 6337 HEF FEtfGID N Ý EFNI I P A N T I Ð STlál V________ J Ingélfur Kristpnsson klæðskeri, Laugaveg 27, IL hœð. Síwti: $240. Taímlæknmga» stofa rnin er lokuð til 13. ágúst. Raín Jénsson, tannlæknir, Blönduhlíð 17. Tannlækninga- stofa mín verður lokuð til 20. ágúst. Viðar Péíursson í sumarieyfið BEZT-úlpan Skiðabuxur Allskonar sport- fatnaður B ez t, Vesturveri. Bifreiðar með afborgunum Benzíntankurinn við Hall- veigarstíg visar yður Leiðina Bifreiðasalan, Ingólfsstr. 11 Sími 81085 Sími 81085 Þjóðviljann vantar unglinga til að bera blaðið til kaupenda við Blöndahlíð og á Orímssðaðaholti Talið við aígreiðsluna — Sími 7500 1* Topas gieður og hressir Topas ©r sæigæti Sumarleyíatíminn stendur sem hæst — Ódýrari ferðalög — Sumardvalarheimili alþýðufólks — Sumarbústaðir auðmanna — HALLUR skrifar: „Nú stend- ur sumarleyfatíminn sem hæst og allir, sean eiga þess nokk- urn kost, iyfta sér eitthvað upp, sumir fara í útilegu inn á Þórsmörk eða. Landmanna- laugar, aðrir fara í viku eða hálfs mánaðar ferðalag með einhverju ferðafélaginu, o.s. frv. En því miður eiga ekki nærri því aJIir þess kost að „hafa -það gott" í sumarleyf- inu sínu. Það er dýrt a.ð ferð- ast, og ma.rgir, sem áreiðan- lega hefðu þó mjög gaman af því, hafa. bókstaflega ekki efni á því. Og hvað lítinn dagamun, sem fók vill gem sér, kostar það ærna peninga, og fjöldi fólks verður a.m.k. að hugsa sig um tvisvar, áður en það getur ákveðið, hvort fjárhagur þess leyfi nokkurn munað fram yfir hið Iivers- dagslega líf. Mér hefur oft dottið í hug, hvort verklýðs- félögin gætu ekki skipulagt ó- dýrar sumarleyfisferðir fyrir meðlimi sína, bæði tveggja, daga. helgarferðir, og eins lengri ferðir. Það er ekki ncvg að giamra stöðugt., um að fólk eigi. að elska landið sitt og kappkosía að kynnasí því, það verður lika að vinna að því að gera láglaunafólM kleyft, fjárhagslega, að sjá með eigin augum margróm- aða. fegurð lands síns. Og í sambandi við þetta hefur mér oft dottið í hug, að ánægjulegt væri, ef vinnandi fólk ætti að- gang að hressingar- eða hvíld- anheimilum á fögrum stað, þar sem það gæíi dvalið í sumar- leyfinu, þó ekki væri nema nokkra daga. Stundum, þeg- ar ég hef farið kring um Þing- vallavata og séð hina glæsi- legu sumaxbústaði auðma.nn- anna, hef ég spurt sjáifan mig í huganum: Hvers vegna hef- ur ekki verði reist hér glæsi- legt hvildarheimili handa reykvískum húsmæðrum úr alþýðustétt? Hverf> vegna er ekki hér myndarlegt sumar- dvalarheimili handa Dags- brúnarverkamönnum ? Án efa svara flestir því hér til, að það skoríi fjármagn til slíkra framkvæmda, það skortir nefnilega. alltaf fjánmagn til allra framkvasmda, sem miða að því að bæta lífskjör alþýð- unnar. En ég segi: tír því að það er tU fjármagn íil þess að byggja t.ugi glsesilegra sum- arbústaði handa auðkýfingun- um, hversu miklu fremur ætti þá ekki að vera, til fjármagn til þess að reisa vegleg sum- ardvalarheimili handa þeirri alþýðu, sem skapar auðinn. —- Eg læt svo þessu rabbi lok- ið, Póstur góður, og vona að þú, sem virðist vera heldur velviljaður okkur alþýðu- fólkinu, birtir það í dálkimv þínum.“ — JÁ, Hvers vegna skyldu menn ekki vera. velviljaðir sínu fólki, bréfritari góður. Eg er á sama máli og þú um það, að æskilegt væri, að fólk ætti kost á ódýrari ferðalögum og annarri upplyftingu í sumar- leyfi sínu, að ég nú ekki tali um, hve ánæ.gjulegt væri, ef reykvísk alþýða ætti vegleg hvíldarheimili austur á Þing- völlum eða á einhverjum öðr- um fögrum- stað. Ekki ber þó að neita því, að mikið hefur áunnízt í þessum efnum, og er þar fyrst að nefna. orlofs- viðurkenning á rétti vinnandi fólks til sumarleyfis. Það kostaði alþýðuna langa og fórnfrelca barátta að knýja orlofslögin fram. og mér er nær að halda, að sú barátta eigi eftir að lyfta fleiri Grett- istökum í náinni framtíð. A£) LQKUM hafa svo Póst- inum borizt fyrirspumir um það, hvers vegna Sjómanna- stofan í Tryggvagötu sé lok- uð núna. Vísar Pósturinn þeim fyrirspumum tíl forráða- mamm ik-irrar stofnunar og væntir þess.. að . þeir upplýei málið.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.