Þjóðviljinn - 11.09.1956, Síða 1
Vesturveldin hafni tillögum Egypta
um alþjóðasamninga í Súezdeilunni
Ætla i jbess staS oð neyðo jbó til undanhalds með jbv/
oð svipta jbó tekjum af siglingum um skurSinn
Tvœr skókir
frá Meskua
Þjóðviljinn birtir í
dag fyrstu tvær skák-
irnar sem borizí hafa
frá Moskva með skýr-
ingum Guðmundar
Arnlaugssonar, skák-
ritstjóra blaðsins. Það
eru skákii Friðriks við
J Wantz og Baldurs við
| Mhaiskar Skákirnar
! eru á 6. síðu.
Stjórn Egyptalands boðaði í gær til alþjóðlegrar
ráðstefnu til að undirbúa nýja samningsgerð um
Iramtíð Súezskurðarins í því skyni að tryggja öllum
löndum frjálsar siglingar um hann. Þessu boði hef-
ur verið illa tekið af vesturveldunum.
Ráðamenn Frakklands og Bretlands komu saman
á fund í London í gær til að ræða hvaða aðgerðum
skuli beitt til að kúga Egypta til hlýðni, og mun
m.a. ætlun þeirra að láta skip sín hætta að nota
skurðinn fyrst um sinn. Þeir munu einnig ræða
hugsanlegar hernaðaraðgerðir gegn Egyptum, ef allt
annað bregzt.
Síðasti fundur Nassers for-
seta og fimmveldanefndar
Lundúnaráðstefnunnar um Sú-
ezskurðinn var haldinn í Kaíró
í fyrradag og að honum lokn-
um var ljóst, að viðræður
nefndarinnar og egypzku
stjórninnar gátu engan árang-
ur borið.
Nefndin hafði ekkert umboð
haft til að semja um neitt við
egypzku stjómina, heldur var
henni aðeins ætlað að leggja
tillögur meirihlutans á Lund-
unaráðstefnunni fyrir hana, en
í þeim er gert ráð fyrir alþjóð-
legri stjórn skurðarins. Nasser
tilkynnti nefndinni að egypzka
stjórnin myndi aldrei fallast á
neinar þær tillögur um fram-
Danír einu Norðurlandabúar í
1. flokki á olympíuskákmótinu
íslendingar urðu 4. í c-riðli með 20,5
vinninga, jafntefli við Argentínumenn
Danir komust einir Norðurlandabúa upp í fyrsta flokk
á olympíuskákmótinu í Moskva, þar sem keppt verðm’
til úrslita. Þrátt fyrir mjög góðan árangur íslenzku skák-
mannanna urðu þeir að láta sér nægja fjóröa sætiö í c-
riðli á eftir Argentínumönnum, Vestur-Þjóðverjum og
Bretum.
Baráttan um þriðja sætið í
c-riðli var mjög hörð og það var
ekki fyrr en í næstsíðustu um-
ferð, að okkar menn misstu von-
ina um að komast upp í fyrsta
fiokk. í þeirri umferð tefldu
Bretar við Argentínumenn,
sterkustu sveit í riðlinum, og
sigruðu þá óvænt.
Á laugardag voru tefldar þær
biðskákir sem íslendingar áttu
úr fyrri umferðum. Friðrik vann
Qjanen og sigruðu fslendingar
því Finna með 2,5:1,5. Baldur
gerði jafntefli við Wade og Frey-
steinn vann Milner-Barry og
skildu íslendingar og Bretar því
jafnir 2:2.
íslendingar áttu að tefla við
Argentínumenn í síðustu umferð
á sunnudaginn og gerðu sér
litlar vonir í þeirri viðureign. Þó
fór svo, að Friðrik sigraði Naj-
dorf fallega á fyrsta borði og
Freysteinn náði jafintefli við
Panno, hinn unga stórmeistara.
Skákir þeirra Inga og Bolboch-
ans og Sigurgeirs og Sangui-
nette fóru í bið og voru tefld-
ar í gær. Ingi gerði jafntefli, en
Sigurgeir tapaði og urðu því úr-
slitin í skákunum við Argentínu-
menn 2:2.
Úrslitin í riðlunum fjórum
urðu þessi:
A. -riðill: Sovétríkin 23,5 vinn-
ing, Búlgaría 19,5, Sviss 18,
Pólland 15, Svíþjóð 14,5, Puerto
Rico, Noregur og Saar.
B. -riðill: Júgóslavía 23,5 vinn-
ing, ísrael 18, Danmörk 16,5,
Holland 16, Austurríki 13, Frakk-
land 12,5, Mongólía 7,5 og Skot-
land 5.
C. -riðill: Argentína 24 vinn-
inga, Vestur-Þýzkaland 23, Bret-
land 22, ísland 20,5, Chile 17,5,
Finnland 14,5, Indland 13, Lux-
emborg 5 og írland 4.
D. -riðill: Ungverjaland 23 vinn-
inga, Tékkóslóvakía 21,5, Rúm-
enía 21,5, Austur-Þýzkaland 18,5,
Kólumbía 18, Belgía 14,5, Filips-
eyjar 10, Grikkland 8,5 og íran
8,5.
Þrjú efstu löndi'n í hverjum
riðli komast í fyrsta flokk.
Næstu 12 lönd tefla í miðflokki
og þar er ísland, sem teflir við
þessi lönd í þessari röð:
Framhald á 12. síðu.
Myndin er tékin fyrir framan gagnfrœöaskólann í bæn-
um Clinton í Tennessee, þar sem blóðugar kynþáttaóeirð-
ir urðu í síðustu viku, og sést á henni einn þeirra skrið-
dreka sem þangað var sendur til að skakka leikinn.
Kynþálfaóeirðir enn
í Bandaríkj ímum
Mest átök urðu í gær í bæiunum Tex-
arkana í Texas og Sturgis í Tennessee
Ekkert lát er á kynþáttaóeirðunum i suðurfylkjum
Bandaríkjanna og bárust í gær frúttir af upphlaupum
og götuæsing í Tennessee og Texas.
tíðarstjórn skurðarins sem ekki
viðurkenndu skilyrðislaust ó-
skoraðan rétt Egypta til ráða
yfir skurðinum.
Tilboð Egypta
Nefndarmenn héldu frá Kairó
í gærmorgun. Þrír þeirra, Menz-
ies, forsætisráðherra Ástralíu,
formaður nefndarinnar, Loy
Henderson, aðstoðarutanríkis-
ráðherra Bandarikjanna og
Östen Undén, utanríkisráðherra
Svíþjóðar, fóru með flugvél til
London, en fulltrúar Abessiníu
og írans í nefndinni fóru heim
til sín.
'Skömmu cftir að nefndar-
menn voru farnir, sendi eg-
ypzka stjói ' i sendimönnum
allra þeirr? 38 ríkja sem hafa
stjórnmá1 - .amband við hana
erindi 1 • sem lagt er til að
öll ríki heims, nema Israel sem
Eg ptaland viðurkennir ekki,
S" idi fulltrúa á ráðstefnu, þar
s jm sett verði á laggirnar al-
þljóðleg stofnun til að fjalla um
Súezvandamálið. Orðsending
þessi var einnig send fram-
kvæmdastjóra SÞ, Dag Hamm-
arskjöld. Ríkjum sem ekki eiga
sendimenn í Kaíró mun einnig
verða boðið á þessa ráðstefnu.
1 orðsendingunni segir eg-
ypzka stjórnin að hún telji að
hægt sé að finna friðsamlega
lausn á deilunni, án þess að
skerða fullveldi Egypta. Það
ættí að vera liægt að tryggja
siglingafrelsi um skurðinn,
stækkun hans og viðhald og
sanngjörn gjöld fyrir siglingar
um hann.
| Hún leggur því til að sett
I verði á laggirnar alþjóðleg
stofnun, þar sem hin ólíku
sjónarmið og hin ýmsu lönd
sem skurðinn nota eigi sína
fulltrúa og sú stofnun taki
Framhald á 5. síðu.
Le Monde, sem er eitt helzta
blað Frakklands, segir, að
leiðtogum Breta og Frakka,
sem hittust i Lundúnum í gær-
kvöld sé gert mjög erfitt fyr-
ir vegna hinnar reikulu stefnu
iBandaríkjanna í Súezmálinu.
Orðrétt segir blaðið: „Það er
erfitt að gera of mikið úr því
hve mjög Bandaríkin eru á-
byrg fyrir Súez-deilunni.
Bandaríkin hafa yfirboðið
Breta frá 1951, í viðleitni sinni
að vinna vináttu Arabanna og
Óeirðirnar hafa hingað til ver-
ið mestar í Tennessee, en þar
hafa gefið þjóðernisstefnu Ar-
aba undir fótinn í þeirri fárán-
legu von, að hemja mætti hana
til einhverra nota. Það voru
Bandaríkin, sem töldu Breta á
að hverfa á brott úr Egypta-
landi. Það voru sendiherrar
Bandaríkjanna, sem ýttu Nass-
er fram til landforráða. Það
voru hin skyndilegu sinnaskipti
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna varðandi Aswan-stífluna,
sem urðu tilefni deilunnar, þar
Framhald á 12. síðu.
hófust þær í bænum Clinton í
fyrri viku, þegar 12 börn af
svertingjaættum neyttu stjórn-
lagabundins réttar sins til að
ganga í skóla, sem rekinn er fvr-
ir fé frá hinu opinbera.
í gær bárust fréttir um götu-
óeirðir í bænum Texarkana í
Texas. Orsök þeirra var einnig sú
að þar hafa blökkumannabörn
neytt þessa réttar síns,
I bænum Sturgis í Tennessee
voru einnig óeirðir í gær, en
til alvarlegra uppþota kom þar í
síðustu viku og var herlið, vopr.-
að skriðdrekum, þá kallað á
vettvang til að halda uppi röð og
reglu.
í mörgum stærri bæjum suð-
urfylkjanna hefur þessi fyrsta
skólaganga þeldökkra barna við
hlið hvítra tekizt betur. Þannig
mættu þau í fyrsta sinn í gær til
kennslu í skólum í Louisville í
Kentucky, stærstu borg suður-
fylkjanna, og gekk það með öllu
árekstralaust.
Bandaríkin eiga alla sök á
hvernig komið er —
— segir LE MONDE, en LE FIGARO ialar um sam-
steypu Sovétríkjanna og Bandaríkjanna