Þjóðviljinn - 11.09.1956, Síða 3
- Þriðjudagur 10. september 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Starl frú Guðrúnar Brunborg
er algert elnsdæmi
segir Eristian Öttesen, lormaBii norskra stúdentaskipia
Hún hefur safnaB háft i milljón ish kr.
fyrir islenzka og norska stúdenta
Starf frú GuSrúnar Brunborg er algert .einsdæmi. Hún
hefur fórnað starfskröftum sínum og fé til að koma upp
sjóðum fyrir stúdenta og bústöðum fyrir islenzka stúd-
enta í Oslo, og safnað þannig V4 millj. norskra kr. sagöi
Kristian Ottesen, formaður norskra stúdentaskipta í við-
tali við blaðamenn í gær.
Ottesen sagði frá norsku stúd-
entasamtökunum, er annast
margháttaða starfsemi fyrir þá.
Við byrjuðum strax eftir stríðið,
sagði hann og þá af skornum
skammti. Þá urðu 700—800
stúdentar að búa í bröggum frá
stríðsárunum og öðru bráða-
birgðahúsnæði. En svo hófum
við b.vggingar fyrir 1200 stúd-
enta, sagði hann. Fyrsta heimil-
ið tók til starfa 1952 og rúm-
aði það 350. í öðrum áfanga
bættust við herbergi fyrir 250
og þriðja áfanga á að ljúka í
marz n. ár með byggingu 150
íbúðarherbergja, og höfum við
þá alls byggt 750 stúdentaíbúð-
ir, sagði Ottesen.
Með svipuðu sniði
og hér.
Það kostar 18 þús. norskar
kr. að byggja eitt herbergi fyrir
stúdent í norsku stúdentagörð-
unum, og er þar innifalinn einn-
ig byggingarkostnaður sameigin-
legrar setustofu, eldhúss o. s.
frv. sem hver ákveðinn stúdenta-
hópur hefur sameiginlega til af-
nota. Tíu þús. kr. fáum við sem
lán frá ríkinu, en það sem til
vantar fáum við með þeim hætti
að byggðarlög kaupa forgangs-
rétt til herbergja fyrir stúd-
enta frá sér, og einnig öflum
við fjár með hótelrekstri.
Stærsti hótelhaldari
Noregs.
Það er mikill ferðamanna-
straumur til Noregs, eins og þið
vitið. Hinn 15. júní flytja stúd-
entarnir úr herbergjum sínum.
Á næstu þrem dögum breytum
við íbúðum þeirra i bótelher-
bergi og starfrækjum hótel í 70
daga og 71. daginn flytja stúd-
entarnir inn í íbúðir sinar aftur.
Hagnaðurinn af hótelrekstrin-
um gengur til stúdentabygging-
anna. Við rekum þannig stærsta
hótel Noregs, því við höfum ráð
á 700 rúmum.
Islendingar
einir útlendinga
En þrátt fyrir hagnaðinn
fyrir sjóðinn er hún stofnaði til
minningar um Olav Brunborg
son sinn, en úr honum njóta
styrkja bæði islenzkir og norsk-
ir stúdentar.
Ottesen kvað starf frú Guð-
rúnar Brunborg fyrir stúdentana
vera aigert einsdæmi og fóm-
fýsi hennar sérstaka. í því sam-
bandi minntist hann á síðustu
myndina er hún sýnir hér nú,
til ágóða fyrir íslenzku stúdenta-
herbergin í Osló. Kvaðst hann
álíta að þar kæmi ekki fram
fyrst og fremst afstaða Norð-
manna til Þjóðverja, heldur væri
aðalatriði myndarinnar hvernig
fólkið stæði saman í erfiðleikun-
um, slík samstaða væri aðal-
Norskt stúcLentaheimili.
þessa ve'gar, — sem enn i dag
gengur undir nafninu „Blóðveg-
urinn“.
\
I
Flytja saman í
Nýjan „garð“
Norsku stúdentagarðarnir eru
í einu úthverfi Osló og kallast
bústaðirnar „i Sogni“. Þegar
næsti áfangi verður fullgerður
flytja íslenzku stúdentarnir á
efstu hæð í annan enda nýju
Kommunistaagent
í forustu Sjálf-
stæðisflokksins?
Vísir birtir ritstjómargrein í
gær og ber sig upp undan því
að íslenzk sendinefnd skuli vera
farin til Kína. Segir blaðið að
tilgangur fararinnar sé sá „að
koma íslendingum undir á-
hrifavald Rússa og hins alþjóð-
lega kommúnisma. Þegar svo
hinir þakkiátu og lirifnu boðs-
gestir koma aftur frá sælu-
rikinu, eru þeir látnir halda
langar lofrollur í útvarpinu um
sældina í kommúnistaríkjunum,
eða þeir skrifa langar blaða-
greinar til að þakka fyrir ferð-
ina.“
„En mesta furðu vekur
hversu margir fást til að fara
í nefndir þessar" heldur Vísir
áfram, „hversu margir eru
flatir fyrir þessari lævíslegu
aðferð kommúmsta til þess að
koma ár sinni fyrir borð og
brjóta niður mótstöðu Islend-
inga gegn einræðinu austræna".
— Meðal nefndarmanna í
Kínaförinni er sem kunnugt er
einn af kunnustu fomstumönn-
um Sjálfstæðisflokksins, Magn-
ús Jónsson, bankaráðsmaður,
Ötvarpsráðsmaður o.fl. o.fl.
aí
í Osló, 5 í Þrándheimi, 4 í ÁsJ
og 1 í Björgvin eða samtals 31,
Kvikmyndin
Og svo að síðustu: kvikmynda-
sýningar frú Guðrúnar Brun-
borg, til greiðslu á stúdenta-
görðum, eru í Stjörnubíói og
hefjast í kvöld. Myndin er
bönnuð börnum innan 16 ára
aldurs. Hún verður sýnd þrisv-
ar á dag, kl. 5, 7 og 9.
Segulmælingastöð
byggð í Leirvogs-
tungu
Frá norsku stúdentagörðunum í Osló.
hótelrekstrinum vantar 100 kr.
norskar til þess að það sem
stúdentarnir eru látnir greiða í
húsaleigu dugi. En hver sem
flytur inn í nýju stúdentabú-
staðina fær 400 kr. húsaleigu-
styrk frá ríkinu, og þá íslenzku
stúdentarnir einnig. Eru íslenzku
stúdentamir einir útlendinga um
að njóta slíkra kjara, og það
eiga þeir frú Guðrúnu Brunborg
að þakka, er hefur lagt þeim til
heimili i Noregi, sem er bezta
og ódýrasta húsnæði sem þeir
geta fengið.
Verndarvættur
íslenzkra stúdenta
Stúdentar frá ýmsum löndum
stunda nám í Noregi, en engir
þeirra eru eins vel settir og ís-
lenzku stúdentamir, því þeir
eiga sinn verndarvætt, þar sem
frú Guðrún Brunborg er.
Eg man þegar hún kom til
mín 1952 og vildi fá að kaupa
íbúðarrétt fyrir 10 islenzka
stúdenta. Hún kvaðst ekki hafa
fé handbært, en fullyrti að sér
myndi takast að borga íbúðim-
ar, og hún hefur staðið við all-
ar skuldbindingar sínar.
Að sjálfsögðu vissi ég hver
hún var, þegar hún kom til
mín, því hún er þekkt i Noregi
boðskapur og innhald myndar-
in'nar.
Sannsöguleg
Fyrir innrás Þjóðverja í N°r-
eg voru Norðmenn byrjaðir að
leggja veg nyrzt í Noregi. Og
Þjóðverjar vildu láta fullgera
veginn og til þess starfs sendu
þeir júgóslavneska fanga. Mynd-
in lýsir vel sannsögulegum at-
burðum er gejðust við lagningu
byggingarinnar. Þar fá þeir sín
10 herbergi, sameiginlega 43 fer-
metra setustofu, með 19 ferm.
svölum, eldhús^ bað o. s. frv.,
og mun ætlunin að búa þessa
deild sem islenzkast.
Ottesen kvað íslenzku stúdent-
ana hafa getið sér gott orð
Osló og „það er fátt sem við
vildum ekki gera fyrir þá“, sagði
hann.
í vetur voru 21 ísl. stúdent
Segulmælingastöð er nú i
byggingu Í Leirvogstungu, og
er liún þáttur í framlagi ís-
lendinga í þágu vísinda á jarð-
eðlisfræðiárinu.
Ætlunin er að stöðin taki til
starfa á næsta ári, verður hún
sjálfvirk.
Þeir Þorbjöm Sigurgeirsson,
formaður Rannsóknari’áðs og
dr. Trausti Einarsson hafa
unnið að segulmælingum í sum-
ar, á Austurlandi og í Hval-
firði.
I haust sækja þeir alþjóða-
ráðstefnu segulfræðinga, sem
haldin verður í London.
Nordalskvól.d
Framhald af 12. síðu.
Að leiksýningunni lokinnl
verður Leikhúskjallarinn opinni
til kl. 1 eftir miðnætti fyrir þá,
er þangað óska að koma.
Dr. Sigurður Nordal og friS
munu sitja samkomuna í boðj
Almenna bókafélagsins.
Aðgöngumiðar að hátíðasýrt-
ingunni verða seldir á skrifstoftl
Almenna bókafélagsins að Tjam-
argötu 16, sími 82707 frá kl. 3 í
dag, þriðjudag. Verð þeirra er
25—50 krónur.
Metflutningar hjá Flugfélagf Islands
Flugvélar Flugfélags íslands fluttu fleiri farþega í
ágústmánuði en 7 fyrstu árin, sem félagið starfaði. Flutt-
ir voru í mánuðinum samtals 12.649 manns, 10.299 á
innanlandsleiðum og 2.350 milli landa.
Til samanburðar má geta þess,
að á fyrstu 7 starfsárum félags-
ins voru fluttir alls 10.873 far-
þegar. Hafa heildarfiutningar F.í.
aldrei fyrr orðið jafn miklir í
einum mánuði. Nemur aukning-
in 35% sé gerður samanburður
á ágúst í fyrra.
Vöru- og póstflutningar hafa
sömuleiðis aukizt til muna. Voru
í s.l. mánuði flutt 134545 kg. af
vörum með flugvélum félagsins,
þar af 116926 kg. hér innan-
lands. Þá voru fluttar rösklega
11 smálestir af pósti í mánuðin-
um.
Farþegaflutningar eru enn
mjög miklir, bæði innanlands og
milli landa, og eru flugvélarn-
ar oftast þétt setnar. Leiguflutn-
ingar eru nú með meira móti hjá
Flugfélagi íslands. S.l. fimmtu-
dag flaug Sólfaxi norður til
Thule á Grænlandi og sótti
þangað 55 danska verkamenn,
sem þar hafa unnið að bygginga-
framkvæmdum í sumar. f gær
flutti svo Gullfaxj 55 sjómenni
frá Gautaborg til New York með
viðkomu í Reykjavík. Var ferð
þessi farin á vegum Sænsk-ame-
rísku Hnunnar. Þá átti Douglas-
flugvél að fara til Meistaravíkur
i dag og sækja þangað hóp Dana,
sem þar hafa dvalið í sumar við
námuvinnslu. Loks mun önnur
millilandavél F. í. flytja Ham-
borgaróperuna frá Edinborg yf-
ir til Hamborgar í tveimur ferð-
um nú um helgina, en sem kunn-
ugt er flutti félagið þennartl
sama óperuflokk til Edinborgar I
byrjun september.