Þjóðviljinn - 11.09.1956, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 11.09.1956, Blaðsíða 6
leikinn að Indverjarnir tefldu taflbyrjanir ekki vel, og þessi skák virðist styðja það: hvítur hefur ekki valið þær leiðir sem beztar eru taldar og þar að :auki glatað tíma ,tvívegis (a2— a3 og Bcl-f4-g5), svo að Baldur hefur náð ágætri stöðu fyrir- hafnarlítið. En hinir Indverj- arnir fóru ágætlega í byrjan- irnar, ekki sízt fyrsta og fjórða borðs mennirnir. 12. Rgl—e2 De8—h5 13. Bg5xf6 Hf8xf6 14. Re2—f4 Dh5—f7 21. Bd2xcl ...... Ekkert liggur á! Nú væri skárst að leika Rc6, en taflið er tapað hvernig sem svartur fer að. 21. ... . Kf8—g8 22. Hflxf7 Dd7xf7 Hann sér þann kost vænstan> að láta drottninguna. 23. Rd6xf7 . Kg8xf7 24. Ddl—h5f . g7—g'6 Eða 24. — Ke7 25. Ba3t. 25. Dh5—f3t Kf7—e8 26. Df3—f6 Hh8—f8 27. Df6—e6t Ke8—d8 28. Bclxh6 og svartur gafst upp. Húsnæði Tékkneska sendiráðið óskar eftir aö fá leigöa íbúö meö húsgögnum, sem fyrst. íbúöin óskast aöeins leigö í 1—2 mánuöi. Upplýsingar gefnai’ í síma 82823 miili kl. 10 og 12 og 2 og 4 næstu daga. í annarri umferð tefldi Frið- rik þessa snotru skák gegn Luxemburg. ENSKUR LEIKUR Friðrik Ólafsson F. Wantz 1. c2—c4 2. Rbl—c3 3. g2—g3 4. Bfl—g2 5. Rgl—f3 6. d2—d4 e7—e5 Rg8—f6 d7—d6 Bf8—e7 Bc8—e6 c7—c6 Falleg ieikflétta! Svartur má ekki drepa riddarann vegna Hc8t, svo hann á ekki völ á betra en taka hrókinn. 19....... Ba3xcl 20. Rb5—d6f Ke8—f8 jj)) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 10. september 1956 ÐVILJIMH Útgefandi: »»meímngarflokkur alpýOu — SósíaMstaflokkurinn Næa verkefni Tjiyrir skömmu birtu íhalds- blcðm "'yktun sem sögð var gerð ? fundi í svonefndu Verz1og skrifstofu- mannsfA"''~i Suðurnesja þar sem '!::"'i''ðuninni um brott- flutni"fT hernámsliðsins var mótm'e'1 þess krafizt að rikisstjór'm sæi þeim félags- mönnum c’°m yrðu að hverfa frá stcrf ’m á vegum amer- íkanan"n fyrir „hliðstæðri vinnu“. Varð ekki annað af ályktun’T.ni skilið en að þeir sem pð henni stóðu gætu ekki til þoss hugsað að gefa sig að cðrum störfum en þeim er væru sem skyldust þjón- ustustöríum hjá hernum og þá he’zt að ástandið héldist ó- breytt,. Hefur Morgunblaðið verið sérstaklega iðið við að smjatta á ályktun þessari og ýta ’.’.ndir þann furðulega hugsvnarhátt sem stendur að baki hennar. Ekki verður því trúað að ó- reyndu að margir íslend- ingar séu þannig gerðir að þeir. taki niðurlægjandi þjón- ustustörf hjá erlendu her- námsliði fram yfir vinnu í þágu eigin þjóðar. Krafan um ,,hliðstæð störf“ gæti þó vissulega bent til þess að nokkur hópur manna sem snúizt hefur í kring um her- námtið og fengið greiðslu fyrir sé kominn á þetta þroskastig. Ber að harma að slíks hugs- unarháttar skuli gæta meðal íslenzkra starfsmanna á Suð- urnesjum. En þess ber að gæta rð sökin í þessu efni er hjá þeim forustumönnum Sjálístæðisflokksins sem hafa haldið beirri kenningu að þicðmni að engin vinna væri nauðsyn’.egri og þjóðhollari en sú sen unnin hefur verið í þágu b;is ameríska hernáms. Og sannarlega sýnir sam- þykkt Verzlunar- og skrif- st.ofumannafélags Suðurnesja að það var kominn tími til að stinga við fótum og beina ís1e"Z1:u vinnuafli að nýju af fullum krafti að framleiðslu landsmanna sjálfra og ann- arri uppbyggingu í þágu þjóð- arir.nar. Þegar þessi breyting á sér ctað verða menn að gera sér 'I.icst að í þjóðarbúskap Islendinga er ekki vöntun á mönnum t.il starfa sem talizt geta „hliðstæð“ við sópunina og skrifstofuföndrið á Kefla- víkurflugvelli. Hins vegar er tilfinnanlegr.r skortur á vinnuafli til fiskveiða, sér- staklega á togurunum sem orðið hefur að manna útlend- ingum til þess að geta haldið þeim á floti. Talið er að um 1000 manns vanti í frystihús- in við Faxaflóa miðað við full afköst. MikilJ hörgull er á ntönnum til byggingarstarfa, ekW sízt fagmönnum og hefur jþað: tafið stórlega fyrir að byr-gi’Tgar gætu gengið með eðli'egum hætti, og aukið kostnaðinn. Svona mætti lengi ihalda áfram upptalningu. Á flestum sviðum er skortur á vinnuafli vegna þess að þús- undir manna hafa verið bundnar við störf sem eru þjóðinni og atvinnuvegum hennar framandi. Hervirkja- gerðin á Keflavíkurflugvelli hefur dregið til sín vinnuafl sem að réttu lagi átti heima við framkvæmdir Islendinga sjálfra og full þörf er fyrir. Þegar hernáminu lýkur hljóta þeir starfskraftar sem þarna hafa verið bundnir að snúa sér að þeim margháttuðu verkefnum sem unnið er að á vegum þjóðarinnar og eru við það miðuð að treysta at- vinnuvegi hennar. F»að er ótrúlegt ef allir góðir * Islendingar fagna ekki þessari breytingu. Það get- ur ekki verið neinum nein- um heilbrigðum manni keppi kefli að eyða ævi sinni og starfskröftum í þjónustu er- lends hernámsliðs og stríðs- undirbúnings. Sú mun líka verða raunin á að allur þorri þess fólks sem á tímabili valdi hernámsstörfin scm illa nauðsyn meðan atvinna var rýr eða óviss er því allshugar fegið að geta nú snúið sér að öðrum og þjóðhollari störf- um. Sá hugsunarháttur sem fram kemur i ályktuninni af Suðurnesjum er vitnað var til í upphafi er algjör undan- tekning enda ekki í samræmi við hagsmuni þjóðarinnar og heil'brigðan metnað. Islend- inga hefur aidrei dreymt um að gera snúningsstörf í kring- um erlent herlíð að ævistarfi. Fram að þessu hefur þjóðin lifað á að stunda fiskimiðin, rækta landið og reisa mann virki í þágu nútiðar og fram- tíðar. I þesssum efnum bíða enn ótal verkefni eftir því að verða leyst af stórhuga þjóð sem standa vill á eigin fótum. TT'yrirætlanir núverandi rík- isstjórnar um alhliða upp- byggingu og eflingu atvinnu- lífsins eiga að útiloka alla möguleika á atvinnuleysi þótt herinn hverfi úr landi. Það sem fyrir þjóðinni liggur er að efla fiskiskipastólinn og fiskiðnaðinn, byggja verk- smiðjur, auka ræktun lands- ins og reisa mannsæmandi í- búðarhús yfir þann hluta landsmanna sem býr við ó- fullnægjandi húsakost. Nýt- ing orkunnar í fallvötnum landsins er og verkefni sem kallar á stórhug þjóðarinnar og möguleika til að búa í hag- inn fyrir framtíðina. Takist þjóðinni og stjórnarvöldum hennar að vinna að lausn þessara verkefna eins og efni standa til þarf vissulega engu að kvíða. Þau útheimta allt vinnuafl þjóðarinnar óskipt og enginn þarf að sakna þess að hverfa frá þeim ógeðfelldu störfum sem Morgunblaðið vill gera að framtíðaratvinnu- vegi íslendinga. Ur 1. og 2. umferð Moskvumótsms Ritstjóri: GUÐMUNDUR ARNLAUGSSON SfiÁKIN Baldur Möller í fyrstu umferð tefldi ísland við Indland og úr þeirri við- ureign er skák Baldurs við Mhaiskar einna skemmtilegust. Baldri tekst þar að fram- kvæma það, sem flesta dreym- ir um, þegar þeir tefla hol- lenzka leikinn: kóngssókn sem rennur áfram snurðulaust að kalla unz sigur er unninn. HOLLENZKUR LEIKUR .Mhaiskar, Baldur Möller, indland. ísland. 1. d2—d4 e7—e6 2. c2—c4 f7—f5 3. Rbl—c3 Rg8—f6 4. Bcl—f4 Bf8—b4 5. a2—a3 Bb4xc3t 6. b2xc3 d7—d6 7. e2—e3 0—0 8. Hal—bl b7—b6 9. Bfl—d3 Bc8—b7 10. f2—f3 Rb8—d7 11. Bf4—g5 Dd8—e8 Okkur hafði verið sagt fyrir 7. b2—b3 8. Bcl—d2 9. 0—0 10. Hal—cl Dd8—a5 Da5—c7 h7—Ii6 e5—e4 Friðrik Ólafsson 15. Ddl—e2 Kg8—h8 16. 0—0 Hf6—h6 17. De2—f2 g7—g5 18. Rf4—e2 Df7—h5 19. h2—h3 Ha8—f8 Sóknin er í fullum gangi. Baldur leikur hróknum til f8 til þess að geta leikið e6—e5. 20. Df2—g3 e6—e5 21. e3—e4 f5—f4 22. Dg3—f2 Bb7—c8 23. Hfl—el Rd7—£6 24. Kgl—fl .... Indverjinn sér hvert stefnir og undirbýr búferlaflutning yf- ir á drottningararm. 24..... g5—g4! 25. f3xg4 Bc8xg4 26. Re2—gl .... ABCDEFGH 11. Rf3—el Be6—f5 12. f2—f3! e4xf3 13. Relxf3 Dc7—d7 Hér kemur í ljós sem fyrr, hve mikið nákvæm tefling byrjana hefur að segja. Friðrik hefur náð ágætri stöðu og hóÞ ar þá og þegar e2—e4, and- stæðingurinn hefur glatað tíma og má mjög gæta sín. 14. Rf3—h4 Bf5—li7 15. e2—e4 d6—d5 16. e4xd5 Be7—a3 Og svo ætlar hann að flækja tafiið! Svartur reiknar sýni- lega með að hrókurinn verði að hypja sig á al. 17. e4—e5! Rf6xd5 18. Bg2xd5! c6xd5 19. Rc3—b5! .... ABCDEFGH Það væri sjálfsmorð að taka biskupinn eins og auðvelt er að sannfæra sig um, en nú undirbýr hvítur byggingu nýs varnarveggs með Rgl—f3. 26...... f4—f3! Bezti leikurinn í skákinni! Peðsfórnin molar nýju víglín- una áður en hún er komin upp. 27. g2xf3 Bg4xli3t 28. Kfl—e2 Dh5—g5 Hótar Rf6-g4f 29. Rglxh3 Hh6xli3 30. Hel—gl Dg5—f4 31. Hgl—g2 Rf6—h5 Ilvítur er varnarlaus, því að hann getur ekki valdað f3. 32. Hbl—fl Rh5—g3t og hvítur gefst upp.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.