Þjóðviljinn - 15.09.1956, Side 1
Kvenfélag
sósíalista
heldur fund næstkomandi i!
mánudagskvöld. Mörg áríð-
andi mál á dagskrá. Nánar í
biaðinu á morgun.
Stjórnin |
VEEULEG VERÐLJEKKUN A
SLÁTRI OG SLÁTURVÖRUM
Qdýrara oð kaupa sér vetrarforSa en
veriB hefur um langt skeiS
Það er ódýrara að taka innan úr í haust en verið hef-
ur um langt skeið, og valda því stöðvunarráðstafanir rík-
isstjórnarinnar og eins hitt að framboð veröur svo mikið
að Framleiðsluráð landbúnaðarins hefur talið rétt að
lækka veröið til þess að örva söluna. Slátur kostar í ár
32 kr. en kostaði í fyrra kr. 37,50. Mör kostar í ár kr.
9,45 kílóið en kostaði í fyrra kr. 18,90. Sviönir hausar
kosta í ár 15,90 kílóið en kostuðu í fyrra kr. 21,50. Og
sama er að segja um aðrar sláturafuröir.
Þíng Æskulýðsfyikingarinnar
hefst á Akureyri I dag
Hitgið sækja fulilmar víðsvegfts ri ?i i
landinu
Þing Æskulýðsfyikingarinnar verður sett upp úr há-
deginu í dag á Akureyri. Þingiö verður sótt aí fulltrúumj
víösvegar að af landinu.
stað. Mörg mikilsvarðancl'. mál
Framleiðsluráð landbúnaðarins
auglýsti í fyrradag haustverð á
kjöti og sláturafurðum. Verð á
kjöti og kjötafurðum helzt ó-
breytt frá því sem verið hefur,
en þar hefði orðið um verulega
hækkun að ræða ef ríkisstjórnin
hefði ekki gert stöðvunarráðstaf-
anir sínar. Þannig kostar súpu-
kjöt áfram kr. 24,65 kílóið en
hefði farið upp í kr. 26,20 ef ekki
hefði verið að gert. Munurinn er
kr. 1,55 og á dýrari kjöttegund-
um, lærum, kótelettum o. s. frv.,
er um meiri mun að ræða. Salt-
kjöt kostar áfram kr. 25,25 en
hefði farið upp í kr. 26,70 kíló-
ið, ef allt hefði verið látið reka
á reiðanum. Þar við bætist að
undanfarin ár hefur kjötverð
ævinlega hækkað um 10 aura
kílóið mánaðarlega vegna
geymslukostnaðar, en sú hækk-
un kemur ekki heldur til fram-
kvæmda í verzlunum fram til
áramóta a. m. k.
Sama máli gegnir um mjólkur-
afurðir; þær áttu að hækka
verulega, eða sem hér segir:
Mjólk um 40 aura lítrinn, rjóm-
inn um kr. 2,75 lítrinn, skyr um
6*5 aura kílóið, smjör um kr.
7,80 kílóið, 40% mjólkurostur um
kr. 4,15 kílóið. Þá hefðu kartöfl-
ur einnig hækkað um 45 aura
kílóið. Engin þessara hækkana
kemur nú til framkvæmda
vegna lagasetningarinnar um
bann við öllum verðhækkunum.
Það mun flestum (nema
Morgunblaðinu) finnast ný-
stárleg tíðindi og góð hér á
landi að öllum verðhækkun-
um skuli haldið í skefjum og
að verulegar verðlækkanir
skuli eiga sér stað, eins og á
slátri og sláturafurðum. Það
er auðvelt fyrir fólk að reikna
út hvað það sparar á ráð-
stöfunum ríkisstjórnarinnar
— ekki sízt þeir sem hafa
þann sið að kaupa sér vetrar-
forða í sláturtíðinni.
Ungverjinn Barcza sigraði
Smisloff í fyrradag, en Szabo
hafði þá sigurvon í skák sinni
við Botvinnik. Enda þótt í gær-
kvöld hefðu ekki borizt fréttir
um hvernig skák þeirra hefði
farið, gætu úrslitin bent til þess
að Botvinnik hafi tapað^_
Litlu munar nú á efstu sveit-
unuin í fyrsta riðli. Sovétríkin
eru efst með 11 vinninga, Júgó-
slavía með 10,5, Ungverjaland
10 og eina biðskák.
íslendingar unnu Hollendinga
Enn ein árós
ísraelsmanna
Öflugur flokkur ísraelskra her-
manna, sem búinn var brynvögn-
um og fallbyssum, réðst í gær
á varðstöð Jórdansmanna við
landamæri ríkjanna. Féllu 7
Jórdansmenn og sagt að mann-
tjón árásarliðsins hafi verið mik-
ið. Þetta er í annað skiptið á
fáum dögum að ísraelsmenn ráð-
ast á jórdanska varðstöð að til-
efnislausu og hafa árásirnar
verið kærðar fyrir eftirlitsnefnd
SÞ í Palestínu. Dag Hammar-
skjöld, framkvæmdhstjóri SÞ,
kallaði sendiherra ísraels í
Washington í gær á sinn fund
vegna þessara árása.
i
Dagsbrúnar-
fundur
Verkamannafélagið Dags-
brún lieldur fund í Iðnó n.k.
mánudagskvöld. Verður þar
m.a. rætt um ráðstaíanir
ríkisstjórnarinnar í verðlags-
og kaupgjaldsmálum.
Þingið stendur yfir í dag og
á morgun. 1 gærkvöld lögðu
fulltrúarnir úr Reykjavík og
Hafnarfirði af stað norður með
svefnvagni frá Norðurleiðum.
Voru þeir um 30 auk nokkurra
gesta sem sitja þingið sem á-
heyrnarfulltrúar.
Vitað er um þátttöku í þing-
inu frá þessum stöðum: Rvík,
Hafnarfirði, Bildudal, Sauðár-
króki, Siglufirði, Ólafsfirði, Ak-
ureyri, Húsavík og Neskaup-
í fynadag, fengu þá 2,5 vinn-
inga. Friðrik vann Prinz, Arin-
björn vann Miehring og Ingi
gerði jafntefli. Skák Freysteins
og Bouwmeisters fór í bið, en
Freysteinn tapaði henni í gær.
Ekki hafði frétzt um skákir
íslendinga og Svía þegar blaðið
fór í prentun í gærkvöld, en
nokkrar líkur eru á að keppnin
um efsta sætið í öðrum riðli
muni standa milli þeirra.
sem varða æskuna, hagsmuní
hennar og framtíð liggja fyrir!
þessu þingi Æskulýðsfylk''nga.r-<
innar.
Núverandi forseti Æsk'.' ýðs-
fylkingarinnar er Böðvar Pét-
ursson, verzlunarmaður.
--------------------------------1
Þjóðviljinn hefur fengið eftir-
farandi upplýsingar frá land-
lækni. Vilmundi Jónssyni.
Fengizt hefur útflutningsleyfi
frá Bandaríkjunum fyrir nokkrn
magni af mænusóttarbóluefhi.
Fyrsta sendingin er þegar komin
til landsins. Næstu daga verður
væntanlega byrjuð bólusetning
með bó’.uefninu víðsvegar umi
land. Fyrst í stað verða bólu-
sett börn á barnaskólaaldri.
Svohljóðandi skeyti barst í
gær frá nefndinni er hélt tilj
Kína 5. september:
„Komum til Peking 11. sept.
Öllum líður vel. Kærar kveðj-
ur“.
Fyrrverandi forsætisráðherra brezku nýlendunnar Singapore og
leiðtogi öflugasta stjórmnálaflokksins þar, David Marshall, hef-
ur verið í Kína í boði ldnversku stjórnarinnar og sést hér ræða
við Sjú Enlæ forsætis- og utanríkisráðlierra (til hægri). Mars-
hall sagði nýlega af sér embætti forsætisráðherra í mótmæla-
skyni við neitun brezku stjórnarinnar um að veita Singapore-
búiun sjálfsstjórn.
r------------------------------------------------
Tryggingarféiög síórhækka
síríðslryggingari ðgjöld
Brezk tryggingarfélög tilkynntu í gær, að þau hefðu
hækkað stríðstryggingariðgjöld vegna hins hættulega á-
stands í alþjóðamálum. Eru iðgjöldin hækkuð úr 2
shillingum í 5 shillinga fyrir hver 100 sterlingspund,
eða úr '/»% í %%. Þessi hækkun nær til allra skipa
sem sigla um Súezskurðinn, ennfremur þeirra skipa sem
sigla með vörur til egypzkra hafna, eða taka vörur í
egypzkum höfnum.
------------------------------------------------J
Olíufélögin Iiefnast á
viðskiptavinuin sínum
Reyna að fara í kringum verðhækkanahann
stjórnarinnar
Olíufélögin hafa auglýst að frá og meö mánu-
deginum skerð’i þau þjónustuna við viöskiptavini
sína og jafngilda sumar skerðingarnar umtals- S
verðum verðhækkunum. í fyrsta lagi tilkynna
olíufélögin að þau taki nú 15 til 20 kr. gjald fyrir
að þvo bíla og 10 kr. gjald fyrir að setja á keöjur, 1
en að undanförnu hafa þau Iátið slíka þjónustu í
té ókeypis viö viðskiptavini. í öðru lagi tilkynna
félögin aö þau afgreiöi ekki oliupantanir samdæg-
urs eftirleiöis og aðeins 1 afgreiðslutíma. í þriöja
lagi lýsa félögin yfir því að þau hætti að greiða
kostnað við niðursetningu olíugeyma fyrir hús-
kyndingar viðskiptavina sinna og muni ekki held- |
ur greiöa flutningskostnað á geymum út um land.
Eins og kunnugt er hefur ríkisstjórnin banm i
olíufélögunum aö hækka verð á benzíni og olíu,
en þau höfðu krafizt verðhækkana sem námu um
12 milljónum króna á ári. Augljóst er að þau eru \
nú að hefnast á viðskiptavinum sínum í staðinn 1
og ráðstafanir þeirra eru tvímælalaus tilraun til ;
þess að fara í kringum verðhækkanabann ríkis-
stjórnarinnar.
Ungverjar sigruðu sovézku
skáknennina í Moskva
Liílu munar á efstu sveitum fyrsta riðils,
— íslendingar unnu Hollendinga
Unf-erjar unnu óvæntan sigur á skáksveit Sovétríkj-
anna á olympíumótinu í Moskva í gær, sigruðu þá með
2.5; 1,5. Þetta var fyrsti ósigur sovézku skákmannanna á
mótinu.