Þjóðviljinn - 15.09.1956, Page 9
Laugardagur 15. september 1956 — 2. árgangur — 33. tölublað
Hver er höfundur að kvæði, sem hefst
á þessai' vísu og hvað heitir kvæðið:
Það er svo margt, ef að er gáð,
seni um er þörf að ræða.
Kg held það væri heillaráð
að hætta nú að snæða.
I hvaða leikriti er ljóðið, sem hefst á
þessari visu:
Látum af hárri heiðarbrún
líósliraða svífa sjón
sviptigið yfir frón.
__________________________________________ ■ j
Pósthólfið
Mig langar að komast
í bréfasamband við drengi
á aldrinum 7—10 ára
Guðmundur Kr. Sæ-
mundsson. Fósthólf 1321
Beykjavík
Settu í vísuorð
í síðasta blaði voru
setningar, sem setja átti
i vísuorð. Vísan er þann-
ig:
Það er hægt að hafa yfir
heilar bögur,
án þess að rímið þekkist,
þegar
þær eru nógu alþýðlegar.
Skóíavörðuna á sinn stað
Óskastundinni berast
sífellt skemmtileg bréf og
í rauninni mörg merkis-
bréf. Við birtum hér eitt
fcréf, sem sýnir að blað-
ið okkar nýtur nokkurs
trausts til þess að hafa
áhrif á meiriháttar að-
gerðir í þjóðfélaginu.
Bréfið er á þessa lund:
„Mér hefur verið sagt
frá Skólavörðunni og ég
hef séð mynd af henni.
Heyrt hef ég, að margir
innan borgar sem utan
sakni hennar. Nú vil ég
fá hana aftur á hennar
stað. Getur þú ekki hlut-
•azt til um það.
Vinur þinn, Alli“.
Já, þá er fyrst frá ]>ví
að segja, að í Reykjavík
■er gata, sem heitir Skóla-
■vörðustígur. Hún liggur
neðan frá efsta hlutar
hinnar svokölluðu Bak-
•arabrekku, gegnum Þing-
holtin og upp og austur
á Skólavörðuhæð. En þar
er nú engin skólavarða.
Og reyndar eru nú nöfn-
in breytt á bæjarhverf-
unum. Það tala fáir nú
á dögum um að fara upp
í Þingholtin eða niður í
Skuggahverfi o.s.frv. En
satt er það: leiðinlegt er
að Skólavörðustígurinn
skuli ekki liggja að
reinni skólavörðu. Við
höfum úr fleiri áttum
heyrt því hreyft, að rétt
væri að reisa Skólavörð-
una aftur á Skólavörðu-
holti. Og væri hér senni-
lega verkefni fyrir skóla-
æsku höfuðstaðarins til
umræðu og framkvæmda.
Það væri t.d. gaman að
fulltrúar frá öllum skól-
um, sem starfa í Reykja-
vík í vetur, héldu um:
ræðufund um málið.
Ættu þá fulltrúar að vera
frá öllum skólum milli
barnaskóla og háskóla,
að þeim vitanlega með-
töldum.
En nú skulum við
víkja örlítið að sögu
Skólavörðunnar gömlu.
Upphaflega munu skóla-
piltar í Hólavallaskóla
hafa hlaðið þarna grjót-
vörðu kringum aldamót-
in 1800. En Hólavalla-
skóli var menntaskóli
þeirrar tíðar, eftir að
Skálholtsskóli og Hóla-
skóli höfðu verið lagðir
niður. Eftir Hólavalla-
skóla kom Bessastaða-
skóli, eftir Bessastaða-
skóla Latínu- eða Lærði
skólinn í Reykjavík, serrt
nú heitir Menntaskóli. En
í sinni síðustu mynd mun
Skólavarðan hafa veriðj
byggð 1868. Það var turn-
laga hús, hlaðið og stein-
límt og gnæfði yfir bæ-i
inn, sem þá var ekki fár-
inn að teygja sig neitt aðj
ráði upp eftir holtinu;
Skólavarðan sást alllangt:
utan af flóa og þótti í
mörgu til skemmtunar og
til þess að viðhalda forn-
um minningum. Árið
1031 var Skólavarðan rif-
in og á hennar stað sett
likneski af Leifi heppna.
Þetta líkneski gáfu
Bandaríkjamenn til ís-
Framhald á 2. síðu
; ___ji
Fuglarnsr j
Fyrir 50 árum töldu;
menn að til væru allá:
um 11000 tegundir fugla
á jörðunni, þar af um
1100 tegundir í Norður-
álfunni, og 110 tegundirl
á íslandi, en 69 tegundir
verptu hér á landi. Við
höfum ekki spurt fugla-
eða dýrafræðinga um
hvernig þetta samræm-
íst athugunum á fugla-
fjölda nú á tímum, en
munum ef til viil grennsl-
ast eftir þessu til fróð-
leiks.
RITSTJÓRI: FRÍMANN HELGASON
í siötta sinn tókst þoS
Það virðist halda áfram
Bama ástandið í dómaramálun-
Um. Dómararnir koma ekki til
leilcja. Nú er farið að gera
ráðstafanir framhjá dómarafé-
laginu og ýmist er hringt heim
til áhugasamra manna eða þá
næsti maður er tekinn ef hann
er fáanlegur og þá ekkert um
það fengizt þótt hann sé í sama
félagi og annað liðið sem kepp-
ir. Einhvernveginn verður þetta
að halda áfram.
Pyrir fáum dögum voru hoð-
úð í sjötta sinn lið Víkings og
Þróttar í fjórða flokki til
ibeppni, en alltaf orðið að fresta
Vegna þess að dómari kom
aldrei. Leikur þessi átti raunar
að fara fram 24. júní í vor.
Bæði liðin voru komin til leiks
Sn enginn dómari sjáanlegur.
Þá er hringt í Guðbjörn Jóns-
son og hann kemur og hjarg-
ar því að leikurinn félli niður,
en eðlilega hálftíma of seint.
Á fimmtudaginn var voru lið
K.R og Þróttar komin til leiks
en enginn dómari. Liðnar voru
35 mín. framyfir auglýstan
tíma. Þá var gripinn sem dóm-
ari maður úr Þrótti sem var á
æfingu. Tíminn hafði dregizt
Bvo að í leikslok var orðið svo
flimmt að tæpast var hægt að
leika.
Hverju svarar svo dómarafé-
lagið og KRR til ef í svona
tilfellum væru sett mörk sem
beinlínis mætti kenna myrkr-
inu, þannig að ekki sést til
knattarins ?
Var búið að leika leikinn
Það eru fleiri en leikmenn
sem verða fyrir leiðindum í
sambaridi við áhugaleysi dóm-
aranna, ef eftirfarandi saga er
sönn sem gengur um bæinn.
Stjórn KR.R hafði á fundi sín-
um tekið ákvörðun um, hvenær
leikir skyldu fará fram sem
frestað hafði verið vegna dóm-
araskrópunar. Tiltekinn leikur
er ákvarðaður á ákveðnum velli
og hann auglýstur. Á réttum
tíma mætir annað liðið til leiks
og viti menn, dómari. Hitt lið-
ið mætir ekki á tilsettum tíma.
Samkvæmt laganna hljóðan
blístrar dómarinn til leikbyrj-
unar og fer hann og liðið sem
kom útá völlinn. Bíður þar í
10 mín. og liðið sem kom vissi
e.kki annað en það hefði unnið
þennan leik án þess að athuga
það nokkuð nánar. Og að sjálf-
sögðu gefur dómarinn skýrslu
um þetta. Maður úr félagi því
sem eklci kom til leiks fór síðar
Laugardagur 15. september 1956 — ÞJÖÐVILJINN
(9
að grennslast eftir því hverju
það sætti að flokkurinn kom
ekki. Sú eftirgrennslan leiddi
í ljós að leikur þessi hafði verið
leikinn fyrir nokkuð löngu
síðan og þeir sem ekki
komu unnu þá 4:0.
Góður árangiir
á meistaramóti Rúmeníu
Meistaramóti Rúmeníu er
fyrir nokkru lokið og sýndi
árangurinn að frjálsíþrótta-
menn landsins eru í góðri þjálf-
un og náðist góður árangur í
ýmsum greinum. Bezti árangur
varð í þessum greinum: 100 m
Wissenmayer 10.8; 5000 m
Grecescu 14.6; 400 m grind
Savel 51.9; langstökk Ioan
7.16; kúluvarp Ivánov 15.86 m;
200 m Wiessenmayer 22.1;
3 -’ ■ y .., •■*«£ irí&fií ■ ■-'■
21 ár í ólympíutiði
Því er oft haldið fram að
íþróttaaldur kvenna sé yfir-
íeitt miklu styttri en karla, þær
hætti af ýmsum ástæðum alltof
snemma. Við og við koma þó
fram konur sem afsanna þetta,
og munu víst sumir telja að
þær staðfesti regluna.
í Bretlandi er kona ein sem
margir munu kannast við sem
hafa fylgzt með frjálsum í-
þróttum kvenna undanfarin ár
sem á ótrúlega glæsilegan og
langan íþróttaferil að baki sér.
Er það Dorothy Taylor sem í
ár varð brezkur meistari í há-
stökki og er það í '14. sinn sem
hún vinnur þann titil. Að þessu
sinni stökk hún 1.60 en það
er 5 sm lægra en það sem hún
hefur gert bezt.
Dorothy hefur verið valin
til þess að keppa fyrir Bret-
land í Melbourne. Hún var 16
ára þegar hún keppti á OL í
Berlín, svo eftir því hefur hún
21 árs OL-reynslu bak við sig.
Er það met hvað konu snertir
og að hún er í heimsflokki
kvenna í hástökki 37 ára gömul
sýnir hve snjöll íþróttakona
hún er. í Berlín varð hún önn-
ur í keppninni, og 12 árum
seinna í OL-keppninni í Lond-
on varð hún líka önnur og
stökk í bæði skiptin jafnhátt
og sigurvegarinn, og hún á OL-
metið í hástökki með Allce
Coachman en það er 1.68. 1
Helsingfors varð hún sjöunda.
Þegar hún kemur til Melbourne
hefur hún eins og fyrr segir
slegið nýtt OL-met með því að
láta líða 21 ár milli fyrstu og
síðastu (?) olympíuleika sem
hún tekur þátt í.
Dorothy er gift kona og á
tvo sonu og l»ma þeir oft út
á völlinn til þess að sjá
mömmu æfa sig.
800 m Mihaly 1.51.4; 3000 m
hindrunarhl. Badici 9.05.2; há-
stökk Söter 1.98; spjótkast
I Zamfir 65.56; sleggjukast
Rascanescu 58.25 m; 400 m
Savel 48.4; 1500 m Birdau
3.49.8; 10.000 m Christea
31.51.6; 110 m grind Stanel
15.0; 4x100 m Stinta 43.2;
stangarstökk Zimbresteanu 4.00
m; þrístökk Ioan 14.88 m;
kringlukast Raice 44.75. 4x400
m 3.20.8.
KnattspyrMldkir
uií helgina
Um þessa helgi fara fram
margir leikir í flestum flokk-
um enda eru margir leikir ó-
ieiknir í haust, og má gott kall-
ast ef hægt verður að Ijúka
þeim öllum. Stafar það að
sumu leyti af frestunarstefnu
þeirri er núverandi knatt-
spyrnuráð hefur tekið upp eða
e.t.v. verið neytt útí, og svo
eiga sjálfsagt dómaravanhöldin
sinn þátt í þessu. Á laugar-
dag keppa KR og Víkingur í
meistarafloklci og er það í
Haustmótinu, en í þeim flokki
eru ekki komin úrslit í neinu
af þrem mótum sumarsins og
þó er komið útí miðjan sept-
ember. Á eftir þeim leik keppa
svo Valur og Fram í 1. flokki.
Þann sama dag keppa líka í
2. flokki; Fram—Víkingur og
KR—Valur.
Á sunnudaginn kl. 2 verður
leikinn næstsíðasti leikur Is-
landsmótsins í meistarafíoklá,
Fratnhalð á 11. síðu i