Þjóðviljinn - 22.09.1956, Page 3

Þjóðviljinn - 22.09.1956, Page 3
 - Laugardagttr 22. september 1966 -77 ÞJÖEWILJ3NN —-j(3 í dölum og á strönd mikils virði hér á landi Þrír sovézkir vísinda- og menntamenn halda heim- leiðis á morgun eftir hálfsmánaðar dvöl hér Undanfarinn hálfan mánuð hafa þrír sovézkir vísinda- og menntamenn dvalizt hér á landi í boSi Menningar- tengsla íslands og Ráðstjórnarríkjanna. Þeir halda heim- leiðis á morgun. Þremenningarnir eru: Pró- fessor Nésteroff, forseti skóg- ræktardeildar háskólans í Moskvu, prófessor Ivanoff vararektor Moskvuháskóla og kennari í landafræði, og Sjú- miloff formaður þeirrar deildar VOKS sem annast samskipti við Norðurlandaþjóðirnar. Þeir félagar ræddu við blaðamenn í gæv. Ferðazt víða um land. Hingað komu þeir hinn 9. september og hafa síðan ferð- azt um landið og reynt að kynnast þjóðlífi hér, einkum iðnaði, sjávarútvegi og land- búnaði. Þeir félagar hafa skoð- að fiskvinnslustöð í Hafnar- firði, ullarverksmiðju og skó- gerð á Akureyri. Þá hafa þeir skoðað skógræktarstöðina á Hallormsstað, komið til Seyðis- fjarðar, í Mývatnssveit, enn- fremur fengu þeir tækifæri til að sjá framkvæmdir við Gríms- árvirkjun. Loks er þess að geta að nefndarmenn hafa heimsótt skógræktarstöðvar hér á Suð- urlandi og að sjálfsögðu komu þeir til Þingvalla og að Gull fossi. Hinir sovézku menntamenn láta allir mjög vel af kynnum sínum við almenning hér og dást að hinum almenna fram- kvæmdavilja. Frægjöf. Nésteroff, sem starfað hefur að skógræktarmálum í heima- landi sínu um 26 ára skeið, vék að því í gær að hann teldi mik ilsvert að hér á landi yrðu ræktuð skógarbelti, bæði í döl um og við ströndina. Myndi slikt tvímælalaust bæta lofts lag, draga úr stormstrekkingi og milda veðrið. Og í gamni kvaðst Nésteroff leggja til að hver íslendingur yrði skyldað- ur til, þegar hann giftist, að gróðursetja þrjár trjáplöntur og hirða síðan um þær meðan h-eilsa entist! Nésteroff hélt fyrirlestur á fundi Skógræktarfélagsins sl. miðvikudag. Hann skýrði frá því að þeir ferðafélagarnir hefðu haft hingað m'eð sér fjögur kíló af fræi. lEr fræ þetta af ýmiskonar trjátegund- um og víðsvegar að úr Sovét- ríkjunum. Hermann Jónasson forsætisráðherra tók við gjöf þessari til íslenzku þjóðarinn- ar, er þeir félagar áttu tal við hann sl. miðvikudag. Samskipti háskóla. Ivanoff er eins og fyrr seg- ir vararektor háskólans í Moskvu. Hann kvaðst hafa tekið boðinu um Islandsferð- ina með mikilli ánægju, ekki hvað sízt vegna þess að sér- grein hans er landafræði. Próf. Ivanoff hélt fyrirlestur um æðri menntun í Sovétríkjunum í Háskóla íslands nú í vikunni og þá gekk hann einnig á fund Þorkels Jóhannessonar rektors. Færði Ivanoff Háskólanum sér- stakan minjapening, sem gerð- ur var í tilefni 200 ára afmælis Moskvuháskóla; einnig sögu skóla síns í tveim bindum. Prófessorinn kvaðst hafa safnað nokkrum jarðvegssýnis- hornum hér á landi og myndi hafa heim með sér og koma fyrir í safni Moskvuháskóla. Hann kvaðst sannfærður um að þessi heimsókn þeirra þremenn- inga ætti eftir að verða upp- haf frekari samskipta Há- skóla Islands og háskólans í Moskvu. Gagnkvæm kynni. Sjúniiloff ræddi aðallega um menningarskipti Islands og Sovétríkjanna á undanförnum árum, en þau hófust fyrst að ráði með stofnun MlR 1950. íslendingar sem ferðast til Sovétríkjanna, sagði Sjúmiloff, kynnast ekki aðeins lífi sovét- þjóðanna, heldur kynna þeir ekki síður Island þar austur frá. Til dæmis hefði Guðmund- ur Kjartansson jarðfræðingur haldið fyrirlestur í rússnesku vísindaakademíunni um eld- fjöll á Islandi, er hann var á ferð þar eystra í fyrra, og á þessu sumri hefði Hákon Bjarnason skógræktarstjóri haldið fyrirlestur í Moskvu um skógræktarmál á Islandi og sýnt kvikmyndir frá skóg- ræktarstarfinu hér. Á sama hátt kynna þeir sovétborgarar sem sækja ísland heim land og þjóð í , Sovétríkjunum með blaða- og tímaritsgreinum, út- varpsfyrirlestrum o.s.frv. Hundaleikrit, línudans, hugsanalestur, 50 dúfur — atziði í „blaðamanna-kaharettinum" sem heíst í Austurbæjarhíói 6. október Hinn 6. október n.k. hefjast í Austurbæjarbíói kabar- ettsýningar á vegum Blaðamannafélags íslands; allur ágóði af sýningunum rennur til Menningarsjóðs blaða- manna, en hlutverk hans er m.a. að styrkja blaðamenn til utanferða o.s.frv. Þetta er ein myndin á málverkasýningu sovézkra barna, sem nú stendur yfir í Austurbœjarskólanum. Sýningin er opin daglega kl. 2—7 síðdegis; og lýkur henni annað kvöld. -------------------------- | Magniis leiSrétt- | ir misskilning! I , jj Magnús Ástmarsson skýrði jj frá því á bæjarstjórnarfundi E í fyrradag að ýmsir hefðu * látið þá skoðun í Ijósi við » sig að hann myndi andvígur » hækkun á þóknun til bæjar- ! ráðs af þeirri ástæðu að ! hann ætti þar ekki sæti leng- E ur. Kvaðst Magnús vilja jj leiðrétta þennan misskilning jj og virtist hneykslaður á að íi nokkrum skyldi detta þessi * skýring í hug. Allir við- 5 staddir brostu þegar Magnús i stundi þessu upp! Husgagnaverzlun í nýjum og stórum húsakynnum Húsgagnaverzlun Austur- bæjar opnar í dag í nýjum húsakynnum á Skólavörðustíg 16. Hefur verzlunin þar mikið húsrými: kjallara og tvær hæðir. Á götuhæð er sýning- arsalur húsgagna allskonar, á annari hæð eru seld ljósatælci og gólfteppi, en í kjallara raf- tækjadeild. Hin nýja verzlun er mjög rúmgóð, björt yfirlitum og hin vistlegasta, en Sveinn Kjarval réð innréttingu liennar. Verzl- unarstjóri er Hulda Gunnars- dóttir. Iveir nyir neraos- læknar Hannibal Valdimarsson heil- brigðismálaráðherra hefur skipað tvo nýja héraðslækna. Tekur Grímur Jónsson við Reykhólahéraði en Einar Ást- ráðsson verður héraðslæknir í Keflavík. Skemmtikraftarnir eru allir erlendir, og eru þeir af 8 þjóð- ernum: þýzkir, danskir, ensk- ir, írskir, sænskir, austurrísk- ir, belgískir og kínverskir; og munu kínverskir fjöllistamenn ekki áður hafa komið fram hér á landi. Skal hér getið nokk- urra þeirra: Þar eru Þjóðverjarnir Svinos, sem leika margskonar listir með fótunum: varpa hlutum upp í loftið með fótunum og grípa þá aftur á sama hátt. Kínverjarnir gera margvíslegar jafnvægisæfingar; auk þess er einn þeirra með 50 dúfur, sem leika ýmsar listir. Austurríkis- mennirnir eru þrír feðgar, hinn yngsti 7 ára. Þeir sýna jafn- vægisleikfimi, og stendur hver á annars höfði. Þá er 9 ára dönsk telpa, sem leikur ýmsar listir á reiðhjóli. 2 írskir línudansarar sýna ýmsar íþrcrttir á slappri línu; og þá kemur fram sænskur hugsanalesari (kona). Þá er leikritið Rómeó og Júlía, og er að því leyti sérstætt að leik- endurnir eru allir hundar! — og leika þeir allir án aðstoðar manna. Kabarettinn stendur í 12 daga, og verða margar sýning- ar suma dagana. Forsala verð- ur á aðgöngumiðum, til að forð ast þrengsli; og verður skýrt frá því nánar er nær dregur sýningum. Einar A. Jónsson, sem sá Rúmlega 1000 hafa um . sýningar Sjómannadags- kabarettsins, hefur tekið að sér að sjá um þessar sýningar að öllu leyti; en hann hefur manna mesta reynslu í þessum efnum. Verðlækkun á vinnufatnaði og kuldaúlpum Innflutningsskrifstofan aug- lýsir í blöðunum í dag að á- kveðið hafi verið að verð á vinnufatnaði og kuldaúlpum megi ekki eftirleiðis vera hærra en það var 1. júni s.l. Á tímabilinu frá 1. júní til 15. ágúst mun hafa orðið nokk- ur verðhækkun á vörum þess- um; er hún lýst óheimil með þessari tilskipun Innflutnings- skrifstofunnar og verðið fært aftur í sama horf. symngu a myndum sovézkr* barna Rúmlega 1000 gestir hafa nú séð sýningu á myndum og mál- verkum eftir börn í Ráðstjórn- arríkjunum, sem haldin er í Austurbæjarbarnaskólanum. Sýningin er opin daglega frá kl. 2 til 7 fram á sunnudag, en henni lýkur kl. 10 þá um kvöldið. Aðgangur er ókeypis. r l $ U V/Ð APNAfíUÓL ttm.0l6€US siauKmaKrGUðcm. MinningarkortlK ers til söln i Rkrifstofo Sósiaiistaflokks- lns, Tjarnargötn 20: afgreiðslo Þjóðviljans; Bókabúð Kron; Bókabúð tVfáls og mennlngar, Skólavörðustig 21; og i Bóka- verzlun Þorvaldar Bjarnason- »r t Hafnarfirði N0RSK BLÖÐ Blaðaturninn, Laugavegi 30 B. K O N U B — munið sérsundtíma ykkar í Suml- höllinni mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 9 síðdegis. Ókeypis kennsla.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.