Þjóðviljinn - 02.10.1956, Side 5

Þjóðviljinn - 02.10.1956, Side 5
Þriðjudagur 2. október 1956 — ÞJÓÐVILJINN -r- (5 Ensknr blaðamaðnr ræðir við Nikita Krnsti Fyrir nokkru birti blað brezkra samvinnumanna, Reynolds News, viðtal, sem þeir áttu Nikita S. Krústjoff, aðalritari Kommúnistaflokks Ráðstjórnarríkjanna og hinn kunni brezki blaöamaður og stjómmálamaður, Tom Driberg, sem alllengi átti sæti á brezka þinginu og hefur átt sæti í miðstjórn Verkamannaflokksins. Hér á eftir kemur þýöing á viðtalinu, eins og Driberg birtir þaö. í inngangsorðum sínum að viðtalinu segist Tom Driberg hafa komið í hús miðstjórnar Kommúnistaflokks Ráðstjórnar- rikjanna kl. 10.25, en þar átti viðtalið að hef jast klukkan hálf ellefu. Þessar fáu mínútur beið hann í herbergi einkaritara Krustjoffs, sem hefur 7 síma á borðinu hjá sér. Eftir að hafa beðið tvær þrjár mínútur, var honum vísað inn í herbergi Krústjoffs, sem var einfald- lega, en haganlega útbúið. Á borði hans stendur stytta af Lenin. Krústjoff stóð upp frá borðinu og gengur á móti okk- ur. Við tökumst í hendur og heilsumst. Krústjoff vísar okk- ur til sætis við langt fundar- borð með grænu áklæði. Við Krústjoff setjumst sitt hvoru megin við annan endann á borðinu, en túlkurinn sezt fyr- ir endann. Ég sit andspænis glugganum og mynd af Karli Marx. Þar sem að undanförnu hafa verið miklar umræður um afstöðu Kommúnistaflokks Ráð- stjórnarríkjanna til sósíaldemó- krataflokka Vestur-Evrópu, hef ég samtalið með því að spyrja Krústjoff, hvað honum finnist um árangur nýafstaðinnar heimsóknar sendinefndar frá franska sósialdemókrataflokkn- um til Moskva. Um Frakkland. Krústjoff svaraði á þá leið, að heimsóknin hafi borið nokk- urn árangur, en ekki mikinn. Aðstaða flokks franskra sósíal- ■ demókrata um þessar mundir væri erfið: Hann hefði myndað ríkisstjórn, sem væri að heyja nýlendustríð í Alsír, og leið- togar hans yrðu að taka tillit til skoðanna hægri manna til þess að geta haldið völdunum. Síðán sendinefndin kom aft- ur til Frakklands, hafa frá- sagnir sumra þeirra, sem í sendinefndinni voru, verið frá- brugðnar ummælum þeirra, meðan þeir voru í Ráðstjórn- arríkjunum. Ftefnur og stefnumið. Ég beindi talinu að Bret- landi með því að draga upp andstæðurnar, sem væru milli ástandsins í Bretlandi og Frakklandi að einu leyti: 1 Frakklandi er kommúnista- flokkurinn fjöldaflokkur verka- lýðsins, en flokkur sósíaldemó- krata tiltölulega lítill. I Bret- landi aftur á móti er komm- únistaflokkurinn lítill, en Verkamannáflokkurinn — eink- um vegna skipulagstengsla sinna við verkalýðsfélögin — að meðlimatölu fjöldaflokkur verkalýðsins Krúst joff: „Um franska sós íaldemókrataflokkinn er ég þessu sammála. Og það er rétt, að kommúnistaflokkurinn er fjöldaflokkur í Frakklandi. Þau vandkvæði eru á því að koma á nánari tengslum milli okkar og flokks franskra sósíaldemó- krata, að leiðtogar sósíaldemó krata óttast að með því að segja sannleikann um Ráð stjórnaiTÍkin sanni þeir þeir hlutlægt réttmæti afstöðu Kommúnistaflokksins til Ráð- stjórnarríkjanna“. Það, sem guð einn veit. Krústjoff vék máli sínu sið- an að brezka Verkamanna- fiokknum. Hann féllst á, að hann væri fjölda- og forystu- flokkur brezka verkalýðsins. „En hvað stefnu hans áhrær- ir“, bætti hann snögglega við, „þá veit guð einn, hvað í henni felst: stefnumið hans eru ekki sósíalistísk”. Ég gerði grein fyrir því, að enn væri ekki hægt að ræða stefnuskrá okkar í næstu kosn- ingum, því að hún hefði ekki verið samin; að við værum um þessar mundir að birta stefnu- yfirlýsingar um marga þætti flokksstefnunnar, sem yrðu ræddar á árlegum þingum flokksins; og að grundvallar- stefnumið Verkamannaflokks- ins væri það að framleiðslu- tækin ættu að vera almennings- eign. „Ekki verður erni klakið út úr hænueggi"- Krústjoff: „Rússneskur máls- háttur segir: „Ekki verður erni klakið út úr hænueggi". Lítum á núverandi forystu- menn flokks ykkar ■— þeir eru Tom Driberg jafnvel enn hræddari við sósíal- ismann en íhaldsniennimir eru. Þeir eru með sósíalismann á vörunum vegna þess að orðið er núna vinsælt bæði meðal menntamanna og alþýðunnar. Það er alls staðar sama sagan: jafnvel Nehru, sem er hvorki kommúnisti né sósíaldemókrati, talar um sósíalistiska áætlun fyrir Indland. Sama máli gegn- ir um Burma og Indónesíu. ...“ Driberg: „Eitt er það, sem torveldar umræður um stjórn- mál milli manna, sem aðhyllast ólíkar skoðanir, að þeir leggja ekki sömu merkingu í orð sem „frelsi“ og „lýðræði“ og „sósí- alisma". Ég vildi gjaman í fullri virðingu minna Krústjoff á með tilliti til þtessá, að ráð- stjómarleiðtogarnir hafa hvað eftir annað lýst yfir, að þeir viðurkenni, að um fleiri en eina leið geti verið að ræða til sós- íalismans". ‘ „Innan Verkamannaflokksins leggja menn misjafnlega mikla áherzlu á ýmis atriði, eins og ég þykist vita, að Krústjoff geri sér ljóst. Sumir vilja fara hraðar en aðrir. En lokatak-i markið er eitt og hið sama og til að ná því með sigri í kosn- ingum er nauðsynlegt, að sam- heldni flokksins haldist“. „. . ekki eríitt að vera til vinstri við Gaitskell" .. Krústjoff: „Það skil ég, en vinstri'menn eru í minnihluta og hægri menn em í meiri- hluta og þykjast fullvissir, að þeir haldi honum. Og hvað um það, þá em vinstri mennimir ekki svo mjög langt til vinstri. Það er ekki erfitt að vera til vinstri við Gaitskell. Ég held, að sumir íhaldsmannanna séu til vinstri við Gaitslcell.... “ Driberg: „Þótt Krústjoff hafi hitt að máli fáeina íhaldsmenn. sem hafi látið í það skína, að þeir aðhylltust framfarasinnað- ar skoðanir, vona ég að honum hafi ekki sézt yfir hið sanna eðli íhaldsflokksins. Tilgangur flokksins er að vinna að hags- munamálum kapitalista stór- rekstrarins. Það er Ihalds- flokkurinn, og enginn annar, sem er óvinur verkalýðsstétt- arinnar". Gamansemi Krústjoífs. Krústjoff féllst á þessa lýs- ingu á íhaldsflokknum. Þótt hann tæki sterkt til orða, tal- aði hann ekki reiðilega; rómur hans var vingjarnlegur, jafn- vel hæversklegur, og hann stillti orðum sínum miklu meir í hóf en hann gerði stundum við opinber tækifæri. Ég áræddi þess vegna að hafa orð á þvi, að mér hafi fallið miður, að hann hefði einu sinni eða tvisvar eftir heim- komu sína frá Bretlandi kaliað sig íhaldsmann, tóría. „Það var aðeins smávegis gamansemi af minni hálfu“, svaraði hann. Hann hélt áfram og sagði, að Verkamannaflokkurinn væri aðeins umbótaflokkur, og brygðist því meginhlutverki sínu að ala verkalýðinn upp í byltingaanda. Ég sagði, að Bretlandi hefði að vísu ekki verið breytt í sósíalistiskt land, en stjórn Verkamannaflokksins hefði tek- ið veruleg skref í átt til sósíal- isma, — hún hefði þjóðnýtt grundvallariðngreinar landsins, komið á víðfeðmum trygging- um og þar fram eftir götunum. Hvers vegna tapaði V erkamannaí lokkurinn völdum? Krústjoff: „Verkamanna- flokkurinn tapaði samt sem áð- ur næstu kosningum. Hvers vegna? Vegna þess að hann notaði ekki völd sín í þágu verkalýðsins og verkamenn tóku að láta sér standa á sama um Verkamannaflokkinn. Að- staða verkamann í þeim iðn- greinum, sem þér sögðuð, að hefðu verið þjóðnýttar, breytt- ist ekki verulega. Þess vegna áttu verkamenn erfitt með að gera upp á milli Verkamanna- flokksins og Ihaldsflokksins. (Ég reyndi árangurslaust að skjóta hér inn athugasemd.) Stjórn Verkamannaflokksins haggaði ekki við þeim máttar- viðum ríkisins, sem fyrri ríkis- stjórnir höfðu reist, né skapaði aðstæður til breytinga þjóðfé- lagsskipuninnar. Verkalýðs- stéttin var þess vegna áhuga- lítil“. Nikita Krústjoff Driberg: „Ég fellst á það, að áhugaleysis gætti við síðustu kosningar, en ég held, að skil- greining Krústjoffs á orsök hennar sé of afdráttarlaus og einföld. Mér er nær að halda, að tvær meginorsakir sinnu- leysisins hafi verið þessar: I. Næg atvinna, sem stjórn Verkamannaflokksins stuðlaði að, að héldist eftir stríðið, hafði í för með sér allgóð kjör og laun fyrir verkamenn, og þess vegna voru verkamenn ekki í skapi til stórræða. II. Uppgjöf stjórnar Verka- mannaflokksins gagnvart kröf- um Bandaríkjanna um endur- vígbúnað olli mörgum ötulustu liðsmönnum flokksins vonbrigð- um. Um þau ummæli Krústjoffs, að verkamenn í þjóðnýttu iðn- greinunum hafi ekki búið við betri kjör eftir þjóðnýtinguna en fyrir hana, er þetta að segja: Þau gilda til dæmis ekki um kolanámugröft, svo að ár- inni sé ekki tekið of djúpt í. Nýlega hafa tvær sendinefnd- bótum til leiðar og líkar ríkis- stjórnir í cðrum löndum. „Stjórn Verkamannaflokksins rak ekki stéttarlega stefnu: Ef hún hefði notað völd sín í þágu verkamanna, hefðu verkamenn sagt: „Þetta er mín stjórn" og lagt henni til nægilegt kjör- fylgi, til að hún héldi völdum“. Leiðtogum Verkamanna- ílokksins rétt lýst. Driberg: „Nokkurrar deyfðar gætti, eins og ég hef áður sagt, en hún skyldi ekki orðum auk- j in. Kosningaþátttakan var mik- il. Staðreyndin er sú, að-Ihalds- flokkurinn þjóðnýtti elcki kola- námurnai’, heldur Verkamanna- flokurinn og Ilialdsflokkur- inn nam úr gildi lögin um þjóðnýtingu járn- og stíl- iðnaðarins og flutninga á þjóð- vegum til þess að hjálpa stór- atvinnurekendum, vinum sin- um“. Krústjoff: „Ég er ekki að halda uppi hlutlægri vörn fyr- ir íhaldsflokkinn; en við þ er áþreifanlegu aðstæður, sem til staðar eru, get ég nær engan greinarmun gert á félagsmá a- stefnu flokkanna tvegg ia. Verkamannaflokkurinn er el ki kyltingarsinnaður flokliur — ég á ekki endilega við byltingu í skjóli valdbeitingar. Hann er einungis umbótasinnaður. Hr m minnir mig á Söng hauks'ns eftir Maxim Gorki: „Þeir, e m eru fæddir til að skríða, g' ta ekki flogið hátt“. Þannig er leiðtogum Verkamannaflok s« ins ré'tt lýst“. Framtíð sósíalismans í Bretlandi. Ég var í þann veginn að spyrja hann, hvort hann ör- vænti um framtíð sósíalism: ns í Bretlandi, þegar hann svai iði spurningu minni, án þess að ég bæri hana fram. Krustjoff: , ,Kommúnistaflo k- urinn er ekki fjöldaflokkur í Bi-etlandi, eins og sakir star la, af völdum sögulegra aðstæc ía. En breyting er að verða á þvír byltingarástand mun myndr ;t: og Kommúnistaflokkurinn i un færa sér þær aðstæður í nyi til að uppfræða þorra verkama ia ir brezkra kolanámamanna ver-j og leiða þá fram til sigurs c ós» ið í Ráðstjórnarríkjunum. Ef íalismans“. Krústjoff hefði haldið þessu fram við þá, geri ég ekki ráð fyrir, að þeir hefðu orðið hon- um sammála". Um stéttarlega stefnu Þegar hér var komið tóku framlög Krústjoffs til við- talsins að lengjast og hann tal- að ákafar en áður, og orðum sínum til áherzlu barði hann lítið eitt i borðið með stækk- unargleri, sem hann hand- fjatlaði mest allan tímann, sem við ræddumst við. Hann sagði, að ég hefði kom- izt í mótsögn, og hélt því ein- dregið fram, að verkamönnum hefði farið að standa á sama um stjórn Verkamannaflokks- ins, vegna þess að hún hefði ekki gætt hagsmuna þeirra nægilega vel. Hann viður- | kenndi, að „nokkrar umbætur' hefðu átt sér stað, en hann hélt því fram, að íhaldsstjórn' ] ir hefðu komið syipuoum um- Driberg: „Mér leikur forv'tnf. á að sjá, hvort svo fer. Um. þessar mundir sjást þess er.giii merki, að fjöldaaðstreymi té í Kommúnistaflokkinn.“ Þegar Krústjoff lætur c,vo> ummælt, að Verkamannaflc. :k- urinn sé ekki byltingarflokl ur, vil ég segja við hann, að en-.kut skaplyndi og enslcum háttumt sé svo farið, að breytingar, c eixx eru í reynd bylingarkenn ' ar, geta sýnzt þar „umbótaker. íd- ai'“. Þannig hafði stofnun hiina almennu sjúkratrygginga bylt- ingarkennda breytingu í för með sér: hún nam úrgildibein- ar greiðslur milli sjúklinga og lækna; hún lét öllum í té ókeypis læknishjálp á alger im. jafnréttisgrundvelli; lúnt tryggði Bretlandi betri skiuanx læknisþjónustu en í noklrxs landi nema ■ Ráðstjórnarríkjun- um; ; Framh. á 9. síðxa

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.