Þjóðviljinn - 02.10.1956, Blaðsíða 9
RITSTJÓRI: FRÍMANN HELGASON
RK Revkjavíkuniieistarl 1956
SigraBi Val 3:2 i úrslitaleiknum
Á síðustu átta dögum hafa
Valur og KR leikið þrjá leiki í
meistaraflokki. í þessum þrem
leikjum hafa þau skilið jöfn;
unnið sinn hvorn leikinn og
gert eitt jafntefli, og marka-
talan er 4:4 eftir þessa hrotu.
Þau hafa skipt á milli sín
meistaratitlum í tveim aðalmót-
um ársins, og eftir styrkleik
liðanna í þessum leikjum má
segja að bæði geti vel við un
að.
Þessi síðasti leikur þeirra
var sá harðasti og fjörugasti
og laus við þá taugaspennu,
sem einkenridi leikinn fyrra
Sunnudag. Valur var með alveg
Sama liðið og í fyrri skiptin,
en KR hafði breytt svolítið til.
Helgi Jónsson var nú með sem
framvörður, Þorbjörn var út-
herji, Sigurður Bergsson var
miðherji og Sveinn Jónsson
innherji, Gunnar Guðmannsson
var vinstri útherji.
Valsmenn léku meir saman
en í fyrri Ieikjunum og sköp-
uðu sér nokkur tækifæri sem
voru illa notuð.
Á 11. mín. á Björgvin gott
tækifæri en hittir ekki knött-
inn, og á 40. mín. er hann fyrir
opnu marki en stangar knött-
inn yfir þverslá. Sigurður Sig-
urðsson er á 4. mín. seinni hálf-
leiks fyrir opnu marki en skot-
ið er afar lint og auðvarið af
markmanni.
Auk þess „brennir" Páll af
vítaspyrnu með því að skjóta
nærri beint á markmann, en,
mark á þeirri stundu hefði ver-
ið þýðingarmikið fyrir liðið, þá
stóðu leikar 2:2. KR-ingar áttu
ekki eins opin tækifæri en þó
skall húrð nærri hælum á 27.
mín. er Einari tekst að krækja
í knöttinn, sem á eiginlega ekk-
ert annað eftir en að lenda í
netinu, og bjargar. Eftir leik
og tækifærum átti Valur að
þessu sinni að sigra en knatt-
spyrna er nú einu sinni knatt-
spyrna og það eru mörkin sem
ráða.
Fyrsta markið setti Valur,
Páll skaut á mark KR, skotið
lenti í KR-ing og knötturinn
Finnar velja 33
keppendiir á 0L
í MelStourne
Finnar hafa nú valið lið það
sem að fara á til Melbourne og
er það 33 manna hópur: 10
frjálsíþróttamenn, þrjár skytt-
ur, þrír ræðarar, sex fimleika-
menn, þrír í nútíma fimmtar-
þraut, og þrír siglingamenn.
Ritari olympíunefndarinnar
lét þess getið að vel kynni svo
að fara að valdir yrðu kepp-
endur i hnefaleikum fang-
brögðum, lyftingum, og hjól-
reiðum, en endanlega verður
gengið frá því hverjir fara 3.
okt. n.k.
fór til hliðar. Björgvin var
kominn þangað og skoraði ó-
verjandi. KR-ingar jafna á 21.
mín. Gunnar Guðmannsson fær
knöttinn út til vinstri og send-
ir hann vel fyrir mark. Sig-
Enn setur
Svavar met
Svavar Markússon tók
þátt í 1000 m hlaupi á Har-
big-mótinu í Dresden sl.
laugardag og varð þriðji,
hljóp á 2,26,4 mín. sem er
nj'tt íslenzkt met. Fyrstur í
þessu hlaupi var Pólverjinn
Lewandowsky, em keppend-
ur voru fjölmargír.
Þetta er annað metið sem
Svavar setur á fáum dögum.
Hann hljóp 1500 m á 3,51,2
mín. í Kaupmanmahöfn sl.
fimmtudag, en fyrstur í því
hlaupi varð Daninn Gunnar
Nielsen á 3,50,0 og annar
Norðmaðurinn Hamarsland á
sama tíma.
urður Bergsson er þar fyrir og
skallar í bláhorn marksins,
mjög fallega gert og óverjandi
fyrir markmann.
Annað mark Vals kom á 55.
mín leiksins. Páll skaut fast á
mark KR; markmaður fékk
ekki haldið knettinum og missti
hann frá sér. Björgvin miðherji
var þar kominn og skoraði ó-
verjandi, enda markmaður einn
til varnar.
Aðeins mínútu síðar jafna
KR-ingar og var Sveinn Jóns-
son þar að verki. Einni mínútu
eftir þetta mark kom vítaspyrn-
an sem sagt hefur verið frá
Þetta gefur nokkuð til kynna
að fjör liafi verið í leiknum.
Sigurmarkið fyrir KR gerði
Sigurður Bergsson með skalla
af stuttu færi, en markið var
mannlaust.
Þegar frá eru taldir smá-
kaflar þar sem stuttur sam-
leikur fékk að njóta sín, sér-
staklega hjá Val, verður ekki
annað sagt en að of mikið hafi
verið um langar spyrnur og
ónákvæmar . sendingar, og til-
gangslítil spörk upp í loftið
Ðg eins og oft vill verða í
kappsfullum leikjum sem svona
eru leiknir, átti hörð barátta
sér stað þegar margir hópuð-
ust um knöttinn er hann kom
Framhald á 10. síðu.
Þriðjudagur 2. október 1956 — ÞJÖÐVILJINN — (9
Bæjakeppnin milli Reykjavík-
ur og Akraness sem var frestað
Það þótti nokkrum tíðindum
sæta að bæjakeppninni milli
Akraness og Reykjavíkur
skyldi frestað svona á síðustu
stundu. Hafa orðið nokkrar um-
ræður um þetta í blöðum og í
tilefni af því boðaði stjórn
Knattspyrnuráðs Reykjavíkur
blaðamenn á fund sinn til þess
að skýra frá gangi málsins.
Hafði formaður ráðsins orð
fyrir ráðsmönnum og er frá-
sögn hans á þessa leið:
Eins og kappleikjaskrá sú er
við gáfum út í vor ber með sér,
v.ar ákveðið að bæjakeppnin
milli Akraness og Reykjavíkur
yrði 30. september og var um
þann dag fullt samkomulag.
Undanfarið hefur verið unnið
að því að ganga frá ýmsum
atriðum í sambandi við leikinn.
Á fimmtudagskvöld kl. 8 hef
ég í símasamband við formann
Knattspyrnuráðs Akraness,
Jakob Sigurðsson, og er þar
gengið endanlega frá öllum at-
riðum og allt í stakasta lagi.
Það sama kvöld, 20 mínútum
síðar, hringir Jakob aftur til
mín og tilkynnir mér að þeir
Skagamenn geti ekki leikið á
sunnudaginn, sumir séu veikir
og aðrir ekki í bænum; lagði
hann til að leiknum yrði frest-
að þar til 20. október eða til
næsta vors. Ég taldi mikil tor-
merki á því að koma á slikum
leik svo seint og að það væri
tilviljun að fá svo gott veður
að aðsókn yrði nokkur, auk
þess eru svo margir leikir eftir
Norðmenn hafa
þegar valið 22
Norðmenn hafa þegar valið
22 menn sem fara eiga til Mel-
bourne. Gert er ráð fyrir að
6 aðrir fari. Eru fararstjórar
þar meðtaldir. í siglingum eru
sex keppendur, frjálsíþróttum
þrir, skyttur fimm og einn ræð-
ari.
Vaxandi áhugi fyrir knatt-
spyrnu í V-Húnavatnssýslu
Mikil knattspymualda hefur
farið yfir Vestur-Húnavatns-
sýslu í sumar. Hafa fjórar
knattspyrnusveitir æft þar
reglubundið í sumar eða undan-
farnar 6-8 vikur. Félög þessi og
lið eru úr Víðidal, Miðfirði, af
Vatnsnesi og Hvammstanga.
Aðalhvatam. þessarar hreyf-
ingar mun vera séra. Róbert
Jack sem er þjónandi prestur í
héraðinu. Hann er líka leið-
beinandi liðanna og fer á milli
þeirra og mun láta nærri að
hann fari 300 km á viku hverri
í sambandi við þessa kennslu.
Eldri Hvammstangamenn,
sem búsettir eru í Reykjavík og
i höfðu frétt um þennan áhuga,
; heimsóttu staðinn í sumar og
höfðu með sér fagran bikar
sem þeir gáfu til keppni milli
þessara aðila innan sveitarinn-
ar. Var ákveðið að keppa um
hér í meistaraflokki að tvísýnt
er að þeim verði lokið í haust.
Ég taldi ekki rétt að binda
næsta ráð með leik að vori,
það yrði að vera mál næsta
ráðs, og víð þetta sat.
Næsta morgun hringdi ég til
Jakobs og spyr hvort þeir séu
sama sinnis og kvöldið áður og
kvað hann það vera. Ég skýiði
ráðsmönnum frá því hvernig
málum væri komið, og urðum
við sammála um að nota drg-
inn til þess að láta úrsli .a-
leikinn í Reykjavíkurmót: iu
fara fram og var það tilkynnt
aðilum.
Um kl. hálfþrjú á föstur’ag
hringir Halldór Sigurðsson tili
mín og segir að þeir uppi á,
Akranesi séu reiðubúnir ti!
þess að taka þátt í bæ ja«
keppninni á sunnudag.
Ég tjáði honum að ég gætí
ekki tekið neina ákvörðun um
að breyta fyrri samþykkt ne ia
að leggja það fyrir fund rá '3s-
ins, en sá fundur yrði kl. 5
sama dag. Á þeim fundi var
ákveðið að breyta ekki fyrri
samþykkt, enda tími orð'nn
naumur með auglýsinyar
og fleira í sambandi við k k-
inn. Ennfremur töldum við að
svona hringlandaháttur v ;ri
óheppilegur og óeðlilegur.
Við höfum líka talið að f >r-
föll einstakra leikmanna v :rí
ekki næg afsökun fyrir fres urt
hvorki einstakra leikja né br ia-
keppna, sagði formaðurinn að
lokum.
gripinn þegar í haust og yrði
það útsláttarkeppni.
Hafa tveir leikir farið fram
en úrslitaleikurinn er eftir.
Vatnsnes vann Hvammstanga
2:0 og milli Víðdælinga og
Miðfirðinga varð jafntefli, þrátt
fyrir margar framlengingar,
svo leiknum var liætt. Var
varpað hlutkesti um það hvort
liðið ætti að leika til úrslita við
Vatnsnes, og upp kom lilutur
Víðdæla. Fer úrslitleikurinn
fram innan skamms. Albert
Guðmundssjuii var boðið að
koma norður og dæma leikina
en hann hafði ekki tíma til
þess. Gaf hann knött til keppn-
innar. Næsta ár er gert ráð
fyrir að allir keppi við einn
og einn við alla. Áhugi er mik-
ill fyrir knattspyrnunni meðal
fólks og koma margir til leikj-
anna sem áhorfendur, bæði
ungir og gamlir.
Viðtal K og D.
Framhald af 5. síðu.
Þegar Krústjoff segir, að
nær enginn greinarmunur verði
gerður á félagsmálastefnu
flokkanna tveggja, langar mig
til að nefna honum fáein dæmi:
íhaldsflokkurinn hefur af ráðn-
um hug hækkað verð á mat-
mælum og skapað verkamönn-
um harðrétti með því að af-
nema matvælastyrkina.
Þar sem Krústjoff hefur ver-
ið að fara með rússneska máls-
hætti fyrir mig, langar mig
til að hafa yfir einn enskan
fyrir hann. Einn málsháttur
okkar hljóðar svo: „Betri er
hálfur brauðhleifur en enginn“.
Krústjoff hlæjandi: „Þetta
er málsháttur handa umbóta-
mönnum. Þið viljið aðeins hálf-
an brauðhleif — við viljum
heilan.“
Alþjóðleg samstaða
verkamanna.
Dríberg: „Við viljum ekki að-
eins hálfan brauðhleif. Við
segjum að hálfur sé betri en
enginn. Við gerum það, sem
við getum, til að fá hann all-
an.“
Krústjoff: Gott og vel, það
er hvað sem öðru líður ykkar
(innanflokks) mál. Þar sem
við erum bæði kommúnistar og
byltingarmenn, er okkur al-
þjóðlega samstaða verkamanna
kappsmál, en við gerum ekki
annað en gefa þeim flokkum
ráð, sem þurfa á því að halda.
Sérhvert land fer sínar eigin
götur. Við höldum fast við þá
meginreglu að hlutast alls ekki
til um málefni annarra. St:
semi okkar byggist á kjörc
inu friður og vinátta. Þjóc
lagsbreytingin verður fr,
kvæmd á marga vegu. Ver
þolinmóðir.
Driberg: „Það er það, s
ég ætti að segja við yður.“
Krústjoff: Hvað eigið
við?
Driberk: „Allt samtal ok
hef ég verið að reyna að sk
fyrir yður, hvers vegna vi
Bretlandi förum ekki hraða:
við gerum, og Krústjoff hc
fundið leið okkar margt
foráttu og verið óþolinmó
Bið hann að vera þolinmc
og fylgjast með okkur e
næstu kosningar.“
rf-
ð-
'é-
n-
.'.m1
■m
’ ér
ar
ra.
3 í
en
ur
til
ir.
.an
’tir
’ttR isvt
ttmðiGeús
siGnimK&KraK6ori
Minningarkortia cík ÖI sö i
i starifstofu Sósíaiistaflokl •
Ins, Tjarnargötu 20; afgreið. u
Þjóðviljans; Bókabúð Kro ;
Bókabúð Máls og menningit',
Skólavörðustíg 21; og í Bók
verzlun Þorvaldar Bjarnasc .-
ar í HafnarfirðL
Útbreiðit)
Þióðviljann