Þjóðviljinn - 19.10.1956, Page 2
2) _ ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 19. október 1956
í dag- er föstudagurinn 19.
október. Balthasar. — 293.
dagtir ársins. — Fullt
tungl kl. 16.24. — Árdeg-
isháflæði kl. 5.53. Síðdegis-
háflæði kl. 18.09.
Föstudagur 19. október.
Fastir liðir eins
og venjulega. KÍ.
13.15 Lesin dag-
skrá næstu viku.
19.30 Tónleikar:
Harmonikulög (plötur). 20.30
„Um víða veröld“. — Ævar
Kvaran leikari flytur þáttinn.
20.55 íslenzk tónlist: Lög eftir
Sigvalda Kaldalóns (plötur).
21.15 Aldarminning systkinanna
Elinar og Páls Briem. — Frú
Hulda Á. Stefánsdóttir forstöðu-
kona talar um Elínu og .dr. Þor-
kell Jóhannesson háskólarektor
um Pál. Bjarni Guðmundsson
blaðafulltrúi flytur inngangsorð.
22.10 Kvöldsagan: „Sumarauki“
eftir Hans Severínsen; XVI.
(Róbert Arnfinnsson leikari).
■22.30 Lét lög (plötur): a) Vínar-
iög, sungin og leikin. b) Louis
Armstrong og hljómsveit hans
leika gömul danslög. 23.00 Dag-
skrárlok.
Frá Garðyrkjufélagi fslands
Uppskeruhátíð félagsins verður
haldin í Þórskaffi í minni saln-
um) annað kvöld, laugardag 20.
október, og hefst. kl._ 9 stundvís-
lega. Áskriftarlistar liggja
frammi í Blómaverzluninni Flóru
og hjá Sölufélagi garðyrkju-
manna.
Þær konur
sem hafa lofað að gefa muni á
basar Þvottakvennafélagsins
Freyju, sem verður haldinn
næstkomandi þriðjudag, eru vin-
samiega beðnar að koma þeim til
Sigríðar Friðriksdóttur Ásvalla-
götu 16 eða Ólafíu Sigþórsdóttur
Laugavegi 24, helzt ekki síðar en
á morgun, laugardag. Með beztu
kveðju. — Basarnefndin.
Blindravinafélag íslands
Gjafir og áheit: Samskot nokk-
urra farþega hjá Loftleiðum h.f.
kr. 315.00, Áslaug kr. 100.00,
Faðir kr. 100.00, Ónefndur kr
500.00 E. Sv. kr. 200.00 V. E.
200.00.
/
Sjótnanna-
blaðið Vík-
ingur hefur
borizt, 10. tbl.
18. árgangs.
Heftið byrjar
á þýddri
grein: Stormur i Norðursjó, eft-
ir Chas Ekberg. Sagt er frá
heimsókn Nansens á Reykjanes
fyrir 70 árum. Matthías Þórðar-
son skrifar enn um Ásgeir Pét-
ursson. Andrés Guðjónsson skrif-
ar um ketilhreinsun. Þá er kvæð-
ið Vísur sjóarans, eftir Gísla H.
Erlendsson. Sagt er frá tilraun-
um með flotvörpu. Þá er þáttur-
inn Á frívaktinni. Sagt er frá
nýmælum í tækni, og birt er sag-
an Blóðþrýstingur, þýdd. Loks
eru fréttir í stuttu máli — og
mikið af skrítium og ýmsu
smælki.
Bolvíkingafélagið
heldur spila- og skemmtifund í
Tjarnarkaffi n.k. sunnudag, 21.
október, og hefst hann kl. 20.30
Al síðum Þjóðviljans í 20 ár
Trá höíninni*
Eimskip:
Brúarfoss fór frá Antverpen í
gær áleiðis til Hull og Reykja-
víkur. Dettifoss fór frá Vest-
mannaeyjum i gærkvöld til
Hafnarfjarðar, Akraness, Reykja-
víkur og fer þaðan til Keflavík-
ur. Fjallfoss kom til Hamborgar
í fyrradag; fer þaðan til Hull og
Reykjavíkur. Goðafoss fór frá
Reykjavík í fyrradag áleiðis til
Gautaborgar, Kaupmannahafnar,
Stokkhólms, Leningrad og Kotka.
Gullfoss fór frá Þórshöfn í gær
áleiðis til Leith og Kaupmanna-
hafnar. Lagarfoss fór frá ísafirði
á þriðjudaginn áleiðis til New
York. Reykjafoss fór frá Húsa-
vík í gærmorgun til Seyðisfjarð-
ar, Norðfjarðar og Eskifjarðar.
Tröllafoss átti að fara frá Ham-
borg í fyrradag áleiðis til
Reykjavíkur. Tungufoss fer frá
Kristiansand í dag áleiðis til
Siglufjarðar og Reykjavíkur.
Drangajökull fór frá Hamborg
14. þ. m. áleiðis til Reykjavík-
Skipadeild S.Í.S.
Hvassafell fer ❖æntanlega í dag
frá Riga áleiðis til Austfjarða-
hafna, Faxaflóa og Norðurlands-
hafna. Arnarfell fór í gær frá
Skagaströnd til Flateyrar. Jökul-
fell fór frá London í gær áleið-
is til Hornafjarðar. Dísarfell fer
væntanlega frá Patr.as í dag á-
leiðis til Genoa. Litlafell er í
olíuflutningum í Faxáflóa. Helga-
fell fór í gær frá Ðalvík til Aust-
fjarðahafna. Hamrafell fór 10.
þ.m. frá Caripito áleiðis til
Gautaborgar.
Morgunblaðið birt
ir í gær svolát-
andi frétt: „Wash-
ington 17. okt. —
V araforsetaefni
demókrata, Kef-
auver viðhafði
þau ummæli í dag, að nú þegar
væru til það miklar brigðir af
vetnissprengjum, að nægði til að
eyða öllu lífi á jörðunni. Blaða-
fulltrúi Eisenhowers lét þess get-
ið i dag, að tillögur Stevensons
um að tilraunum með vetnis-
sprengjur yrði hætt, værubyggð-
ar á röngum forsendum. ■— Reut-
er“. Með þessum röngu forsend-
um á blaðafulltrúinn sennilega
við að ekki séu fyrir hendi vetn-
issprengjubirgðir til ' að eyða
nema svo sem 90 prósentum af
jai-ðlífinu, en ekki 100 prósent-
um eins og Stevenson og Kefauv-
er vilja vera láta.
Frændi gamli var boðinn í
brúðkaupið, og eitt sinn vék
hann sér að brúðgumanum og
sagði: Nú stendur þú við end-
ann á öllum erfíðleikum þín-
um.
Svo leið rösklega ár, og þá
kom brúðguminn að máli við
gamla frænda og sagði: Þú
sagðir að ég stæði við end-
ann á erfiðleikum mínum.
Já, ég sagði það, en ég sagði
ekkert um hvor endinn það
væri, svaraði gamli frændi.
Það er eins og að ganga um Island
Þjóðviljinn hefur ævinlega átt
því láni að fagna að margir
ritsnjöllustu menn í landinu
hafa kosið hann málgagn sitt
og birt í honum fjölda greina
um flest milli himins og jarð-
ar: Halldór Kiijan Laxness,
Þórbergur Þórðarson, Jóhann-
es úr Kötlum, Gunnar Bene-
diktsson, Sverrir Kristjánsson,
Kristinn E. Andrésson — svo
aðeins fáir einir séu nefndir.
Hefur jafnan verið mikil gleði
á ritstjórninni er borizt hafa
greinar frá þessum mönnum;
og gæti Þjóðviljinn gert stór-
glæsilega bók af úrvali úr
greinum er hann hefur birt
eftir þá og ýmsa fleiri. Hér
skal nú aðeins, og til árétting-
ar þessum orðum, birtur kafli
úr grein er Halldór Kiljan
Laxness skrifaði í Þjóðvilj-
ann 6. desember 1939 um
Andvökur Sfephans G. Steph-
anssonar, í tilefni þess að Mál
og menning hafði þá nýlega
gefið út úrval úr þeim:
..... Stephan G. Stephans-
son er ekki formsins maður,
og þeir, sem hænast að hlut-
unum sakir ytra útlits þeirra,
munu ekki fá metið hann að
verðleikum við snögga sýn
eða skjóta viðkynningu, en
hinir, sem meta hlutina aðeins
eftir útliti, munu hafa aðeins
takmarkaða ánægju af Steph-
ani. Eg hygg ekki fjarri lagi
að líkja ytra borðinu á skáld-
skap hans við íslenzka nátt-
úru í litauðgi sinni og marg-
breytileik, með indælum
gróðri í dölum og unaðslegum
blómjurtum mitt í hraunum
og fjalllendi. Þessi fegurð er
af allt cðru tagi en fegurðin
á mannvirkjum stórstaðanna,
Stephan G. Stepbansson
sem oft er formuð af helzti
tauganæmri hönd og fjarri
öllum upprunaleik. 1 skáld-
skap Stephans er eins og nátt-
úran sjálf sé að verki, eðli
hans er mjög upprunalegt,
hann á allt sitt undir sól og
regni, en þó er sérhver hugs-
un hans böðuð í ljósi upplýs-
ingarinnar. Þegar maður les
ljóð Stephans er það ólíkt því
að koma í ræktáðan skraut-
garð, þar sem sérhvert blóm
virðist vera gróðursett þannig
að það teygi sig á móti veg-
farandanum; skáldskapur
Stephans er ekki líkur lista-
safni, þar sem myndirnar
hanga þannig við Ijósinu að
allt njóti sín sem bezt í aug-
um þess áhorfanda, sem hef-
ir skroppið hingað inn gegn
fárra aura gjaldi mitt í önn-
um dagsins. Vilji maður kynn-
ast Stephani G. og fá metið
ljóð hans verður maður að
leggja stund á þau, lesa þau
upp aftur og aftur, velta
fyrir sér orðunum, setn-
ingunum, byggingu kvæðisins
og inntaki, m. ö. o., leggja dá-
lítið á sig. Það er eins og að
ganga um ísland, byggðir og
óbyggðir, skoða holt þess,
hraun og grundir, ganga upp
með ám og lækjum, klífa fjöll
og jökla. Að lesa ljóð Steph-
ans, það er í rauninni dálítið
svipað og vera í Farfugla-
hreyfingunni. Maður er ekki
borinn, maður verður að
ganga sjálfur, taka sjálfur
hvorn fótinn fram yfir annan.
Það er stundum bratt, stund-
um er maður í einstigi; en
áreynslan borgar sig, maður
er aldrei svikinn. Það er ekki
DAGSKRÁ
Alþingis
föstudaginn 19. okt 1956, kl. 1.30.
Sameinað Alþingi
1. Kosning fastanefnda sam-
kvæmt 16. gr. þingskapa:
; a. fjárveitinganefnd,
b. utanríkismálanefnd,
c. allsherjarnefnd.
2.. Kosning þingfararkaupsnefnd-
Efri deild
Kosning i fastanefndir sam-
kvæmt 16. gr. þingskapa:
1. fjárhagsnefnd,
2. samgöngumálanefnd,
3. landbúnaðarnefnd,
4. sjávarútvegsnefnd,
5. iðnaðarnefnd,
6. heilbrigðis- og félagsmála-
nefnd,
7. menntamálanefnd,
8. allsherjarnefnd.
Neðri deild
Kosning í fastanefndir. sam-
kvæmt 16. gr. þingskapa.
1. fjárhagsnefnd,
2. samgöngumálanefnd,
3. landbúnaðarnefnd,
4. sjávarútvegsnefnd,
5. iðnaðarnefnd,
6. heilbrigðis- og félagsmála-
nefnd,
7. menntamálanefnd,
8. allsherjarnefnd.
Vidlcvæðið er:
þai er ódýrcrst i
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Millilandaflug:
Millilandaflugvélin
Gullfaxi fer frá
Glasgow kl. 9.30 í
dag. Væntanlegur
aftur til Reykja-
víkur kl. 20.15 i kvqld. Flugvél-
in fer til Kaupmannahafnar og
Hamborgar kl. 9.30 i fyrramálið.
Innanlandsflug:
í dag er áætlað að fljúga til Ak-
ureyrar, Fagurhólsmýrar, Hólma-
vikur, Hornafjarðar, ísafjarðar,
Kirkjubæjarklausturs og Vest-
mannaeyja.
Á morgun er áætlað að fljúga
til Akureyrar (2 ferðir), Blöndu-
óss, Egilsstaða, ísafj-arðar, Sauð-
árkróks, Vestmannaeyja og Þórs-
hafnar.
3BE 11— ~
L
~JSt IteE
Geturðu flutt þrjár eldspýtur
þannig til að fcrliyrningar
verði aðeins þrír, en ckki fjór-
ir?
Lausn. þrautarinnar í gaer.
XX X
NRNKIN
'k.'k'k.
KHRKI
Halldór Kiljan Laxness
til það kvæði eftir Stephan,
sem ekki borgar sig. að hafa
lesið niður í kjölinn. Hann er
sú tegund skálda, að maður
verður sjálfur sterkari á því
að lesa hann, glaðari, bjart-
sýnni, trúaðri á lífið, heiðar-
legri, hraustari, — hann veit-
ir sama þrosha cg fjaJlgöng-
ur, því nátt.úra íslands ásamt
himni sínurn lifir í honum
hrein og öð’uð.
Ekki þarf maður aö óttast að
Stephan G. fari með stað-
lausa stafi eða rugl, og hann
leynir aldrei innra tómleik
undir hvellum málmhljómi eða
einum saman ,,stíl“, aldrei
narrar hann lesanda sinn;
honum eru þau verðmæti hug-
stæðust, sem heilbrigðum
náttúrlegum manni eru hjart-
fólgnust. Og hann hlýtur að
vinna á eftir því sem hann er
oftar lesinn og betur, og þeg-
ar maður er löngu þreyttur á
allri þeirri ljóðagerð, sem er
aðeins innantóm formlist, þá
hverfur máður aftur til Steph-
ans-ljóða, og þykir þau nú
fegurri en nokkru sinni, . ...
EISTASAFN EINARS
JÓNSSONAR
er opið sunnudaga og miðviku-
daga kl. 13.30 til 15.30.
Munið Kaffisöluna
I Hafnarstrætl 16