Þjóðviljinn - 06.11.1956, Page 3

Þjóðviljinn - 06.11.1956, Page 3
Þriðjudagur 6. nóvember 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (3 Gunnar Kristinn Guðmunds- son heitir hann, þessi ungi maður, sem örlögin hafa leikið svona grátt. Hann varð fyrir því slysi, sem barn, að handleika stríðs tæki hér á landi, — litla sprengju — og missti við það hægri hönd og það sem flestu er dýrmætara, sjónina líka. Erfiðleikum sínum hefur þó þessi ungi maður mætt með ó- trúlegri karlmennsku og kjarki. Hann er gættur ríkum tónlist- argáfum og hefur samið nokk- ur lög, er mönnum hafa fallið vel í geð. Honum hefur verið gefin á- gæt harmonika, sem hann leikur á af ótrúlegri getu, þó einhentur sé. Hann langar til að geta unn- ið fyrir sér, að einhverju leyti, með leik sínum á harmonikuna og vill lofa fólki að heyra, hvað hann getur á þessu sviði. I kvöld gefst fólki því kostur á að sjá og heyra þenna táp- mikla pilt, á skemmtun S.K.T. I Austurbæjarbíói kl. 11.15. Iþróttir Framhald af 9. síðu. geti komizt í nokkurn vanda að úrskurða þetta met. Erlend blöð, sem ræða met þetta, gera ráð fyrir að það verði ekki staðfest og þar með er sennilega „sápustíllinn“ úr sögunni sem hæf keppnisgrein, en eftir verður minningin um hernaðarleyndarmál spánskra spjótkastara sem ekki tókst. að halda leyndu. PÍANÓ óskast til leigu um óákveðinn tíma. Upplýsingar í síma 81639. Þingsályktunartillaga Alíreðs Gíslasonar: Hjííkrunarkvennalö gin endurskoðuð þeim tilgangi að bæta úr tilfinnanlegum skorti á starfandi hjúkrunarkonum Alfreð Gíslason flytur í sam- einuðu Alþingi svofellda þings- ályktunartillögu: „Alþingi ályktar að fela rík- isstjórninni að láta fara fram endurskoðun laga nr. 27 19. júní 1933 (hjúkrunarkvenna- laga) og laga nr. 76 20. des. 1944, um Hjúkrunarkvenna- skóla íslands, með sérstöku til- liti til þess, hvort og þá hvern- ig breytinga á þessum lögum sé þörf til þess að fá bætt úr tilfinnanlegum skorti á starf- andi hjúkrunarkonum í land- inu. Niðurstöður umræddrar endurskoðunar og tillögur til úrbóta verði lagðar fyrir næsta reglulegt Alþingi“. í greinargerð segir svo: „Hér á landi hefur lengi gætt erfiðleika á að fá fullnuma hjúkrunarkonur til starfa, og fara þeir erfiðleikar stöðugt vaxandi. Eiga sjúkrahús og hæli svo að segja í þrotlausU stríði í þessu efni. Hjúkrunar- kvennaskorturinn kemur eink- um hart niður á stofnunum utan Reykjavíkur, og hafa sum- ar þeirra orðið nærri óstarf- hæfar af þeim sökum, en einn- ig í Reykjavík gerir þessi vönt- un mjög vart við sig. Reynt hef- ur verið að hæta úr þessu með því að fá hingað erlendar hjúkrunarkonur, en því fylgir sá galli, að þær skilja ekki ís- lenzku, og veldur það sjúkling- um óþægindum. Einnig hefur orðið að fara út á þá braut að nota í vaxandi mæli ófaglært starfslið til hjúkrunar og þótt gott, þegar fengizt hafa konur með ljósmæðramenntun. Þessi skortur á fullgildum hjúkrunarkonum mun þó enn aukast og verða tilfinnanlegri á næstu árum. Ný sjúkrahús eru í smíðum og bygging annarra áformuð, auk þess sem heilsu- verndarstarfsemi færir stöðugt út kvíarnar. Fjölgun í hjúkr- 4 nýjar barna- og unglinga- bœkur frá Æskunni Barnablaðið Æskan hefur nýlega sent á markaðinn 4 barna- og unglingabækur, þrjár eftir íslenzka höfunda, eina þýdda. Bækurnar eru þessar: Vala og: Dóra, eftir Ragnheiði Jónsdóttur. Sagan er framhald af Völu eftir sama höfund og segir frá þeim vinstúlkunum, bæði í Álfheimum og fyrsta vet- urinn þeirra í menntaskólanum. Sagan er 165 blaðsíður, prentuð Hólum. Vala og Dóra er 17. bók höfundar. Vormenn íslands, saga eftir Óskar Aðalstein. Það er þriðja bók höfundar, þeirra sem helg- aðar eru börnum og unglingum, en auk þess hefur hann gefið út 5 skáldsögur og eina minn- ingabók. Vormenn Islands er einkum saga þriggja 12—13 ára drengja í kauptúni við sjó, og gerist hún á tveimur vetrum og sumrinu milli þeirra. Hún er 228 blaðsíður, prentuð í Hólum. Góðir gestir nefnist ein bókin, eftir Margréti Jónsdóttur, og eru í henni smásögur og Ijóð fyrir börn og unglinga. Það er 12. bók höfundar. Nokkrar myndir og teikningar prýða bókina, sem er 95 blaðsíður, prentuð þýðuprentsmiðjunni. Þá er loks sagan Karen eftir Hellen Hempel, í þýðingu Mar- grétar Jónsdóttir. Aðalpersónan er munaðarlaus telpa í stórborg; foreldrar hennar eru dánir og stjúpan er henni vond. En — „allt er gott, þá endirinn er góð- ur“, segir á kápusíðu. Sagan er 131 blaðsíða, prentuð í Álþýðu- prentsmiðjunni. unarkvennastétt er brýn nauð- syn. Hjúkrunarkvennaskóli Islands | hefur nýlega flutzt í ný húsa- kynni og stærri en hann áður hafði. Getur skólinn nú haft um 30 nemendum fleira í heima- vist en áður. Þó er þriðjungur hans enn órisinn af grunni, en fullbyggður á hann að geta rúmað um 120 nemendur í heimavist, og er það helmingi meira en rúmaðist í gamla húsnæðinu. Víst er, að mikil bót verður að þeirri stækkun skólans, og jafnvíst er hitt, að hún mun ekki leysa vandann til fulls og fleiri ráða verður að leita. Um það eru þeir sam- mála, sem þessum málum eru kunnugastir. Þetta sama vandamál, hjúkr- unarkvennaskortinn, hafa ná- grannaþjóðir okkar átt við að glíma. Hafa þær reynt að leysa það með ýmsu móti, m.a. með því að kenna konum frumat- riði hjúkrunar á stuttum nám- skeiðum og veita þeim síðan rétt til aðstoðarstarfa í sjúkra- húsum og hælum. Misjafnlega munu slíkar ráðstafanir hafa mælzt fyrir, einkum í hópi full- numa hjúkrunarkvenna. Þótt nauðsyn beri til að ráða sem skjótast bót á hjúkrunar- kvennaskortinum hér á landi, er ekki vert að rasa um ráð fram í því efni. Þykir rétt, að þeir aðilar, sem þessum málum eru kunnugastir, fái tækifæri til að bera ráð sín saman, að athugað verði, hvaða leiðir aðr- ar þjóðir hafa farið, og að lok- um, að gerðar verði tillögur á grundvelli þess, sem bezt mundi henta hér. Því er þetta mál borið fram hér í formi þings- ályktunartillögu um endurskoð- un“. Einar Ögmundsson kosinn forseti Landssambands vörubifreiðastjóra 34 félög með á 11. hundrað félagsmanna Þing Landssambands vörubifreiðastjóra hófst s.l. laugardag og lauk því á sunnudagskvöldið. í samband- inu eru 34 bílstjórafélög sem hafa samtals á 11. hundrað félagsmanna. Ungor piltur ferst af slysaskoti Á sunnudagiim varð ungur maður, Illugi Þorleifsson frá Styktóshólmi fyrir slysaskoti og beið bana. Forseti Alþýðusambandsins, Hannibal Valdimarsson, ávarp- aði þingið og tók þátt í um- ræðum. Fyrir þinginu láu mörg mál. Höfuðmál þess voru at- vinnumálin og innflutningur á 'nauðsynjum til reksturs bif- reiðanna. Einnig var rætt um mögulega aðild sambandsins að bifreiðainnflutningi. Gerðar Þrii' ungir menn úr Stykkis- hólmi fóru saman á rjúpnaveið- ar á sunnudaginn. Voru þeir að ganga upp Drápuhlíðarfjall nokkru eftir hádegið þegar skot bljóp úr haglabyssu er einn þremenninganna hélt á. Lenti það í Illuga Þorleifs- sýni og beið hann þegar bana. — Illugi mun hafa verið 16 ára gamall. Hann var sonur Guðrúnar Torfadóttur og ínanns hennar Þorleifr<4Í nars- sonar verkamanns í Stykkis- kólmi. Góð síldveiði var í gær Síldveiði var allgóð í gær, Akranesbátar fengu samtals 2300 tunnur. Aflahæsti bátur- inn fékk 219 tunnur. 16 Hafn- arfjarðarbátar fengu 1600 tunnur. Tveir bátar fengu 200 tunnur, annars var aflinn allt frá 50 tunnum á bát. voru allmargar ályktanir, og verður þeirra getið síðar. Forseti sambandsins var kos- inn Einar Ögmundsson, Þrótti Reykjavík og aðrir í stjórn Pétur Guðfinnsson, Þrótti Rvík, Sigurður Ingvarsson frá Eyrar- bakka, Sigurður Bjarnason frá Hafnarfirði og Ársæll Valdi- marsson frá Akranesi. Aðalfundur r Ljósmyndara- félags íslands Aðalfundur Ljósmyndarafélagg íslands var haldinn 31. okt s.l. Formaður félagsins, Sigurður Guðmundsson, ræddi gang fé- lagsmála og gat þess m.a. að fé- lagið minntist 30 ára afmæl- is síns á s.l. vetri, en norður- landasamband Ijósmyndara sendi hingað fulltrúa sinn, Orbo Piet- inen í tilefni þess. Hingað komu á árinu myndir amerískra at- vinnuljósmyndara, sem félagið sá um sýningu á. Ennfremur gat formaður þess að haldið hafi verið námskeið í ,,retús“- fyrir atvinnuljósmyndara. Ann- aðist sænskur ljósmyndari, frú Luga Olsen, kennsluna. Tveir stjórnarmeðlimir, þeir Guðmund- ur Hannesson og Óskar Gíslason. gjaldkeri báðust eindregið und- an endurkjöri. Fundarmenn. þökkuðu þeim fyrir vel unnin störf. Þeir hafa báðir setið í stjórn félagsins um 10—12 ára skeið og unnið að margvísleg- um störfum fyrir félagið með mikilli prýði. Núverandi stjórn skipa: Sigurður Guðmundsson formaður, Þórarinn Sigurðsson ritari, Hannes Pálsson gjaldkeri, Þorleifur Þorleifsson bréfritari og Sigurhans Vignir meðstjórn- andi. — Mikill áhugi ríkti meðal fundarmanna um samstöðu um hagsmunamál atvinnuljósmynd- ara. Kona mjaðma- brotnar f gærmorgun varð kona fyrir bíl hér í bænum og mjaðma- grindarbrotnaði. Slys þetta gerðist á mótum Tryggvagötu og Kalkofnsvegar. Varð konan, sem heitir Andrea Andrésdóttir, til heimilis að Ægissíðu 86, fyrir fólksbílnum G 1333 þegar hann beygði inn á Tryggvagötuna. Við áreksturinn féll konan í götuna. Var hún flutt í slysavarðstofuna og var fyrst haldið að meiðsli hennar væru lítil, en nánari rannsókn leiddi í ljós að hún hafði mjaðma grindarbrotnað. — Rigning var og götulýsing slæm þegar slysið gerðist. Dauðaslys Framhald af 12. síðu. vörubíl á veginum beint fram- undan sér. Þeir munu hafa ekið á allmikilli ferð, en bíl- stjórinn reyndi að forðast á- reksturinn með því að aka út af veginum til vinstri, en þarna eru melar og vegurinn lágur. Hægri hlið fólksvagnsins rakst undir pall vörubílsins. Séra Pétur sat hægra megin, og er ’talið að hann hafi látizt sam- stundis við áreksturinn. Þakið af bílnum rifnaði einnig af, en sá er bílnum ók slapp með skrámur og smásnert af heila- hristingi. Piltur sem sat aft- ur í bílnum slapp ómeiddur, hann beygði sig niður á gólfið þegar hann sá hvað verða vildi. Vörubíllinn er stóð á veginum var mjólkurbíll úr Melasveit- inni, er hafði bilað og var bil- stjórinn að vinna við hann og var nýgenginn fram með bíln- um þegar áreksturinn varð, en hafði verið að bogra aftan við hann. Blóðrannsókn á því hvort sá er ók D-23 hafi verið ölvaður var ekki lokið þegar Þjóðvilj- innátt tal við bæjarfógetann á Akranesi í gær. Ný kjörbúð opnuð í Hafnarfirði Sjötta kjörbúðin sem kaupfél. opna á ein ári f gærmorgun opnaði Kaupfé- lag Hafnfirðinga nýja kjörbúð að Kirkjuvegi 16. Er það önnur kjörbúð félagsins Búðinni var breytt í kjörbúð yfir helgina, hið gamla innbú rifið og tilbúið kjörbúðarinnbú sett í staðimi. Þessa dagana er eitt ár liðið frá því Kaupfélag Hafnfirðinga og Kaupfélag Árnesinga opnuðu samdægurs 2 fyrstu kjörbúðir hér _ á landi. Nýja kjörbúðin í Hafnarfirði er sjötta kjörSúðin sem kaupfélögin og SÍS hafa opnað á þessu eina ári, og eft- ir nokkra daga verður sú sjö-- unda opnuð í Þorlákshöfn.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.