Þjóðviljinn - 06.11.1956, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 06.11.1956, Blaðsíða 4
 5) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 6. nóvember 1956 : lóriðiudagsmarkaður þjóðviljans Barnariím Húsgagnabúðin kJL s Þórsgötn 1 ■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■>■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ 1 VIÐCERÐIR ■ á heimilistækjum og rafmagnsáhöldum. • | Skinfaxi, Klapparstíg 3ð, Bími 6484. a ■ 2 ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ðtvarps- | viðgerðir og viðtækjasala. BADtð. Veltusundi 1, simi 80300. ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Ctvarpsvirkinn, Hverfisgötu 50, 'flSW 'I,- ;•» J* 3« sími 82674. FUðT AFGREIÐSLA ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Ragnar Ólafsson hæstaréttarlögmaður og löggiltur endurskoðandi. Lögfræðistörf, endurskoð- un og fasteignasala Vonarstrætl 12, síml 5999 og 80065 ■■■■■■»■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ REK0RD- bnðingnum getur húsmóðirin treyst ■■■■■■■■■■■! ■■■■■■■■■■■■■■■aalaaBaaaaBHB| Ljósmyndastofa Laugav. 12, sími 1980 BÍLAR Leiðir allra, sem ætla að kaupa eða selja bfl, liggja til okkar. BlLASALAN. Klappastíg 37, sími 82032 ■■■■■■■*■■■■■■■■■■■■■■■■■•»■«■■■•■■•■■■■■■ Dvalarheimili aldraðra sjómanna Minningarspjöldin fást hjá: . Happdrætti D.A.S. Austur- stræti 1, sími 7757 — Veiðar- færaverzlunin Verðandi, sími 3786 — Sjómannafél. Reykja víkur, sími 1915 — Jónas Bergmann, Háteigsv. 52, sími 4734 — Tóbaksbúðin Boston, Laugaveg 8, sími 3383 — Verzl. Laugateigur, Laugateig 24, sími 81666 — Ólafur Jó- hannsson, Sogabletti 15, sími 3096 — Nesbúðin, Nesveg 39 MIÐURSUÐU VÖRUR ■■■■■«■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■* Saumavéla- viðgerðir Fljót afgreiðsla. SYLGJA Laufásvegi 19. Sími 2656. Heimasími: 82035 •■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■i Fatasalan Grettisgötu 44 Mikið af ódýrum fatnaði á börn og fullorðna. Einnig mjög ódýr notaður fatnaðuz allskonar. Komið og gerið góð kaup { FATASðLUNNI, Grettisgötu 44 ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ N0RSK BLÖÐ Blaðaturninn, Laugavegi 30 B, Hús, íbúðir, bifreiðar og báiar jafnan til sölu hjá okkur. Fasteignasala Inga R. Helgasonar Skólavörðust. 45, simi 82207. ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Nýkomln Góbelinteppi 2Y2x3Y2 m. — Kr. 1530.00. T0LED0 Fischersundi. ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■«■■■■«■■■■■■■• Innrömmun á málverkum, ljósmyndum og saumuðum myndum. Setjum upp veggteppi. Innrömmunarstofan Njálsgötu 44 — Sími 81762. •■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■««■■■■«■« Sundtímar kvenna eru í Sundhöll Reykja- víkur á mánudögum og miðvikudögum kl. 9 e.h. Ókeypis kennsla. ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Urval af kápu- efnum Einnig falleg og góð efni i dragtir og peysufatafrakka Saumum eftir máli. Hagstætt verð. Saumastofa Benediktu Bjarnadóttur j Laugavegi 45 (inngangur frá Frakkastíg). Heimasími 4642 I úll rafverh Vigfús Einarsson Sími 6809 «■■■«■■■■■*■■■■■■■■■■■■■*■■■■■■■■■■■■■■■■■■ R e i ð h j ó I ailar stærðir. Búsáhaldadeild KRON Skólavörðustíg 23 sími 1248. Útbreiðið Þjóðviliann ........ ............——---^ --,gagy r#3 Utvarpstíðindi l- ■ .-■■-= r. ' vri Þegar ég réðist í ritmennsku um útvarpið, hafði ég í hyggju að þrauka að mirmsta kosti mánuð. Lg þóttist hafa gert mér nokkra grein fyrir agnú- um verksins: að æra mætti ó- stöðugan að hlusta til lengd- ar á efni sem telja varð sér- staklega ámælisvert, leiðigjarnt yrði að lumbra sýknt og heilagt á sama tornæma unglingnum án verulegrar vonar um að geta barið hann til biskups og í þessum litla bæ yrðu tölu- verðar ýfingar með mönnum, ef farið yrði að hlusta krítísku eyra á mál þeirra sem njesta löngun hafa til þess að láta Ijós sitt skína í útvarpinu og yantar aðeins ljósið til að það mætti takast. En nú verð ég að játa van- getu mína: eftir rúmlega hálfs mánaðar raun er mér orðin ó- bærileg kvöl að hlusta á út- varpsefni sem sérstaklega þyrfti að hafa hemil á, og á hinn bóginn er hið góða af allt of skornum skammti til að vega þar upp á möti: full- nægja þörf manns fyrir holla andlega fæðu og löngun til að veita því sem lofsvert er verð- skuldaða viðurkenningu. Ríkisútvarpið skortir öðru fremur stórmannlegri, rishærri afstöðu til þess menningarhlut- verks sem því er ætlað að inna: það mælir sig aldrei við hið bezta sem til er í útvarps- málum heimsins. Útvarpsstjór- anum er tamt að miklast í ára- mótaannálum af magni út- varpsefnis sem flutt hefur ver- ið á árinu. En það eru gæðin sem máli skipta, magnið ekki. Eigi þau að verða viðhlítandi mega forráðamenn útvarpsins aldrei fá að sofna á verðinum. Þess vegna vona ég að einhver góður maður taki nú við og hrópi fullum hálsi í eyru þeiiTa næsta hálf.an mánuð, síðan enn annar, því þetta er verk fyrir stóra stétt. E.B. „Eitt lítið lettersbréí" Verðlaun íyrir úrlausnir í getraunaþætti „týnast" — Billeg ílottheit — Orðsending til „þeirra íreku,, — EINHVERN tíma í haust var hér í Póstinum verið að gagn- rýna spurningaþátt í útvarp- inu og verðlaumaveitingar í sambandi við hann. Hér kem- ur annað bréf, sem fjallar um verðlaunaveitingar fyrir spurn- ingaþætti útvarpsins: ★ „EIN FREK“ skrifar: „Sæll veri pósturinn! Sendi þér hér með „eitt lítið letters bréf“, klögumál, eins og að líkum lætur. Svo er mál með vexti, að í fyrra vetur varð ég þeirr- ar heppni aðnjótandi að hljóta verðlaun fyrir úrlausn í bók- mennta- og músíkgetraun í út- varpinu. Ég man nú ekki leng- ur hvað þátturinn hét, enda skiptir það kannski minnstu máli. Nú, verðlaunin voru bæk- ur eða grammófónsplötur eftir frjálsu vali. Tveimur eða þrem- ur vikum eftir að valið var . samþykkt og um garð gengið, var mig farið að lengja eftir að sjá það á borði sem heitið var í orði, og var hlutaðeigandi maður hringdur upp og minnt- ur á málið. Þrisvar sinnum með nokkurra vikna millibili hringdum við í manninn, ávallt við góðar undirtektir; og sein- ast ku hluturinn liggja á skrif- borðinu hjá honum. Sennileg- ast er, að hér sé hinum alvar- legu húsnæðisvandræðum um ,að kenna, en þau hafa, sem kunnugt er, ekki sízt bitnað á Ríkisútvarpinu og háttvirtum hlustendum þá um leið. Sem sé: það hafa svo margir hlutir hafnað á skrifborði umrædds manns í önnum dagsins í vor og sumar, að miim hlutur er þar týndur og grafinn, — og kannski tröllum gefinn. Skiptir það ekki út af fyrir sig miklu máþ. En því skrifa ég pistil þennan, að mér þykir líklegt, að þetta sé ekki eina tilfellið af þessu tagi. Ég hygg, að margir mundu ekki nenna að ganga oft eftir slíkum hlut sem þessum, og þvl auðveldara að gleyma, að öðru jöfnu. En á- stæðulaust finnst mér að koma útvarpinu upp á svo billeg flottheit að skruma með verð- launaþætti, þar sem verðlaunin eru ekkert nema orðagjálfur“. ★ — PÓSTINUM finnst það eng- .anveginn skipta litlu rnáli, hvort opinber stofnun eins og útvarpið, stendur við gefin heit eða ekki, hvort sem. um er að ræða að koma fáeinum grammófónsplötum eða bókum til þeirra, sem til þess hafa unnið, eða eitthvað annað, En það er skrifað um útvarpið á öðrum stað hér í blaðinu, og skal því ekkí fjölyrt frekar um það hér. ★ EN ÞAR SEM bréfið var und- irskrifað „ein frek“, vill Póst- urinn vinsamlegast spyrja, hvort öllum hinum freku; sem eru áreiðanlega þó nokkuð margar, liggi ekki eitthvað á hjarta, sem rétt væri að láta koma fyrir almenningssjónir. Að vísu er maður alltaf dálítið smeykur við þær, þessar freku; en það ætti þó ekki að koma að sök, a.m.k. ekki í bréflegum viðskiptum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.