Þjóðviljinn - 06.11.1956, Side 6
6) —' ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 6. nóvember 1956
ÐVIUINN
Útgefandi:
Sameiningarfloklcur alpýðu — Sósíalistaflokkurinn
Hörmulegir atburðir
Enn á ný hafa mjög alvarlegir
og hörmulegir atburðir
gerzt í Ungverjalandi. Á sunnu-
dagsmorgun tóku sovézkar her-
sveitir öll ráð í Ungverjalandi
í sínar hendur, og síðan var
tilkynnt að ný ungversk stjórn
væri tekin við í skjóli hinna
sovézku vopna, Fréttir herma
að mjög víðtækir og blóðugir
bardagar hafi geisað í Ung-
verjalandi meðan þessir at-
burðir voru að gerast.
l^etta eru aðfarir sem hver
* sósialisti hlýtur að líta
mjög alvarlegum augum, með
þeirn eru þverbrotnar sósíal-
istískar meginreglur um rétt-
indi þjóða. Hver þjóð heims á
að hafa rétt til að búa í landi
sínu ein og frjáis án erlendrar
íhlutunar. Hver þjóð heims á
að hafa rétt til að ráða -sjálf
örlögum sínum og móta þau.
Alþýðan í hverju landi heims
verður sjálf að berjast fyrir fé-
lagslegum umbótum og koma á
sósíalisma í samræmi við þarf-
ir sínar og aðstæður. Við vitum
að réttindi þjóða hafa verið og
eru þverbrotin um allan heim,
að það er einkenni auðvalds-
ríkja og nýienduvelda að níð-
ast á öðrum þjóðum eins og
ferskustu dæmi sanna, en fram-
ferði Sovétríkjanna í Ungverja-
iandi verður aldrei réttlætt með
slíkum dæmum. Það er verk-
efni sósíalismans að afnema
þjóðakúgun, og til Sovétríkj-
anna ber að gera allt aðrar og
mik'.u hærri kröfur en til auð-
vah'sríkj.a og nýlenduvelda.
/
i því er enginn vafi að at-
burðirnir í Ungverjalandi
hófuct sem uppreisn alþýðu
manna gegn ríkisvaldi sem
haíði misst tök á verkefnum
sinum. Ríkisstjóm landsins
hafði gert sig seka um mjög
' álvar'.eg mistök í efnahagsmál-
um og hafði einnig orðið að
játa á sig stórfellda pólitíska
giæpi. Engu að síður kórónaði
ríkisstjórnin feril sinn með því
að biðja sovézka herinn að
kóma sér til hjálpar og skakka
leikinn. Fréttum ber saman
um að þetta hafi orðið til þess
að allt komst í bál og brand,
að andstæðustu sjónarmið sam-
einuðust í hinni réttmætu kröfu
um brottflutning hersins; þar
með var oltin af stað sú skriða
sem nú hefur verið stöðvuð
með hörmulegustu örþrifaráð-
um.
¥»að er einnig augljóst mál að
*■ afturhaldssinnar og erlend-
ir agentar hafa hagnýtt þetta
ástand til hins ýtrasta og
leikið lausum hala í Ungverja-
iandi siðustu daga. Það er opin-
ber staðreynd að Bandaríkin
hafa á undanförnum árúm var-
ið hundruðum milljóna dollara
tii undirróðursstarfa í alþýðu-
ríkjunum og landflótta góss-
eigendur og auðkýfingar hafa
ekki setið auðum höndum. Það
er vitað að undanfarna daga
hafa verið framin hermdarverk
á kommúnistum og vinstrisinn-
uðum mönnum í Ungverjalandi.
Svo var komið að Mindsenty
kardínáli bar fram í útvarpi
opinskáar kröfur um valdatöku
gósseigenda og auðmanna í
landinu. Það gat þannig orðið
mjög erfið þróun framundan í
Ungverjalandi, sívaxandi yfir-
gangur fasista og alvarleg fé-
lagsleg átök. En því verður
ekki trúað að svo stöddu að
ungversk alþýða hafi verið
reiðubúin til þess að afsala sér
þeim félagslegu grundvallar-
réttindum sem hún hafði öðl-
azt. Hún hefði átt að hafa
þeim mun betri aðstöðu til að
tryggja þau sem hún hafði að
nágrönnum sósíalistísk ríki og
Austurríki, sem lýst hefur yfir
ævarandi. hlutleysi í alþjóða-
átökum. Og þetta voru verkefni
ungversku þjóðarinnar sjálfr-
ar; það var hennar að leysa
þau og finna leiðir til framtíð-
arinnar.
l^að hefur verið háttur þessa
'*■ blaðs að láta Sovétríkin
njóta sannmælis og eiga ekki
hlut að óhróðri þeim sem yfir
þau hefur verið dembt látlaust
í nærfellt fjóra áratugi. En
það er þá einnig skylda þessa
blaðs að andmæla skýrt og
skorinort ef ráðamenn Sovét-
ríkjanna vinna verk sem ekki
eru í samræmi við hugsjónir
sósíalismans. Sovézkir forsvars-
menn hafa á þessu ári gert
mikið að því að játa víðtæk
og mjög alvarleg mistök sem
gerð hafa verið um skeið; von-
andi verður það sem nú hefur
gerzt í Ungverjalandi brátt
mjög ofarlega á þeim lista.
A tburðimir í Ungverjalandi
■‘* eru harmsaga, sem stafa
af hinum alvarlegustu mistök-
um í stjórnarfari. En þeir eru
einnig í nánu samhengi við
stjórnmálaástandið í heiminum,
kalda stríðið, valdstefnu þá
sem hvílt hefur eins og mara á
þjóðum heimsins undanfarin
ár. Landvinningamenn og
stríðssinnar auðvaldsríkjanna
bera sína þungu ábyrgð á ör-
lögum Ungverjalands, og ekk-
ert er viðurstyggilegra en að
sjá talsmenn þeirra fella krókó-
dílatár yfir Ungverjum á sama
tíma og þeir fagna ofbeldis-
verkum Breta og Frakka og
berjast fyrir því að bandarískt
hervald hafi fótfestu og yfirráð
sem víðast um heim. Okkur
íslendingum eru atburðir þeir
sem nú eru að gerast í heimin-
um heit hvatning til þess að
leiða frelsisbaráttu okkar til
sigurs sem fyrst, reka banda-
ríska herinn af landi brott. Með
því erum við í verki að rétta
hverri hernuminni þjóð hjálp-
arhönd, með því erum við að
bera fram kröfuna um að öll
hemaðarbandalög verði lögð
niður, að nýlenduþjóðimar fái
frelsi sitt. Ef við íslendingar
bregðumst í þessari baráttu
svíkjum við ekki aðeins sjálfa
okkur, heldur bregðumst við
hverri þeirri þjóð sern Férst
fyrir frélsi sínu óg fullvéldi.
„Árásin á Egyptabnd var
glæpsamleg fásinna”
Gaitskell skorar á Shaldsþingmenn sem
vilja friá að fella Anthony Eden
í fyrradag flutti Hugh Gaitskell, foringi brezka Verka-
mannaflokksins, útvarpsræðu um árás brezks og fransks
herafla á Egyptaland. Hér fara á eftir kaflar íir ræðunni.
Bretar standa einir ásamt
Frökkum, í andstöðu við um-
heiminn, í uppreisn gegn um-
heiminum. Þetta er engin lög-
regluaðgerð. Það standa eng-
in lög á bak við hana, Við
höfum tekið lögin í okkar eigin
hendur. Þetta er það hörm-
ungarástand sem blasir við
brezku þjóðinni í kvöld. Við
hefðum allir talið þetta ó-
hugsandi fyrir viku. Hvers
vegna var þetta gert?
Forsætisráðherrann réttlæt-
ir það með þessum forsend-
um: fyrst og fremst, segir
hann, til þess að vernda líf og
eignir brezkra borgara. En
ekkert hefur verið gert til
verndar. Hins vegar hefur,
sannast sagna, hin alvarleg-
asta hætta verið leidd yfir
þúsundir brezkra óbreyttra
borgara, sem búa í Egypta-
landi, með þessum aðgerðum
okkar. Forsætisráðherrann
segir að þetta hafi verið gert
til þess að vernda skurðinn
og frjálsar siglingar um hann.
En hvað hefur komið fyrir
skurðinn? Hann er lokaður,
sökum þess sem við höfum
gert. Var skurðurinn nokkurn
tíma í nokkurri raunverulegri
hættu, fyrr en við tókum að
varpa á hann sprengjum?
Ekki að mínu viti. Engin
gögn hafa verið lögð fram,
til að sanna, að svo hafi ver-
ið. Eg er hræddur um, að
raunverulega ástæðan til að
farið var í stríð við Egypta-
land hafi verið Önnur.
Eg hef kynnt mér fyrsta
útvarpsávarp brezk-frönsku
herstjórnarinnar til Egypta.
Þar segir: „Ó, Egyptar, hví
hefur yður borið þetta að
höndum? f fyrsta lagi, sökum
þess að Abdul Nasser gekk af
vitinu og lagði hald á Súes-
skurðinn." í þessu útvarps-
ávarpi er sannleikurinn sagð-
ur. Þetta var það, sem kom
forsætisráðherranum til að á-
kveða að hefja innrás.
Forsætisráðherrann hefur
látið svo um mælt, að við
höfum tekið til okkar ráða
til að skilja stríðsaðila. En
tveir herir eru ekki skildir
með loftárásum á flugvelli og
landgöngu hersveita hundruð
mílna að baki öðrum aðilan-
um einvörðungu. Nei, þetta er
önnur atlaga gegn landi, sem
þegar hefur orðið fyrir árás.
Nú er farið að bera fram
aðra kenningu, þá að við höf-
um gripið til okkar ráða til
að brjóta liðsafla á vegum SÞ
braut. Hafi þetta verið fyrir-
ætlun ríkisstjórnarinnar, því
í ósköpunum bar hún hana þá
ekki fram fyrr, því bar hún
hana þá ekki fram strax í
upphafi og féllst á hinn hlut-
ann af ályktun Öryggisráðs-
ins, eins og ég hef áður lagt
til?
Eg skal segja ykkur, hvens
vegna ríkisstjörnin gerði
þetta ekki. Hefði forsætisráð-
herrann samþykkt það, myndi
brezkur her ekki hafa getað
tekið skurðinn á sitt vald.
Hugmyndin um löggæzlulið á
vegum SÞ, sem Kanada bar
HUGH GAITSKELL
fram í gær, er nefnilega allt
annars eðlis. Hún myndi ekki
trvggja okkur yfirráð yfir
skurðinum. Hún miðar að
öðru, að því að halda herjum
Israels og Arabaríkjanna inn-
an landamæra hvorra um sig,
hafa eftirlit með landamærum
Israels og Arabaríkjanna, og
þau eru 100 mílur frá Súes-
skurðinum.
Hverjar eru svo afleiðing-
arnar af öllu þessu? Skelfing
og kvíði hafa gripið milljónir
manna hér heima fyrir og úti
um allan heim. Samþykktir
þings SÞ, ályktanir sem
streyma að úr öllum áttum
staðfesta það almenningsálit,
að Bretland og Frakkland
höfðu árás Israels á Egypta-
land að helberu skálkaskjóli'
til að hrifsa skurðinn, að þau
eru nú að gera það sem þaú
langaði til í ágúst og septem-
ber en þorðu ekki þá fyrir al-
menningsálitinu.
Hverjar eru ; afleiðingam-
ar? Við höfum rofið sátt-
mála SÞ. Með því höfum við
svikið allt, sem Bretland hef-
ur barizt fyrir á alþjóðavett-
vangi. Að minnsta kosti sið-
an heimsstyrjöldinni lauk
höfum við stutt sérhverja við-
leitni til að hrinda árásum.
En 1 dag erum það við, sem
höfum gerzt árásarseggir.
Hverjar eru afleiðingamar?
Hyldjúpur klofningur í saim.-
veldinu. Einungis Ástralía og
Nýja Sjáland standa með
okkur, Kanada og Suður-
Afríka hafa setið hjá, Ind-
land, Pakistan og Ceylon hafa
öll snúizt gegn okkur. Þetta
eru mjög alvarlegar afleið-
ingar.
Hverjar eru afleiðingan:-
ar? Við að heyra þœr sár-
grætilegu fréttir sem bárust í
dag frá Ungverjalandi fékk
ég ekki varizt þeirri hugs-
un, hversu hryggilegt það er,
að einmitt á þeirri stundu,
þegar allur heimurinn ætti
að sameinast í fordæmingu á
þessari ósvífnu árás, höfum
við sökum glæpsamlegrar
fíflsku forustumanna okkar
fyrirgert því siðferðilega for-
ustuhlutverki, sem við voi’-
um áður svo hreyknir af.
Hér heimafyrir hefur stríðs-
stefna ríkisstjórnarinnar
gagnvart Egyptalandi gerfc
mörgum þungt í skapi. Erki-
biskupinn af Kantaraborg
hefur farið fyrir sendinefnd
allra kristinna kirkjudeilda á
fund ríkisstjórnarinnar. Fé-
lag SÞ, sem skipað er mönn-
um úr öllum flokkum, hefur
farið hörðum orðum um
stefnu rikisstjórnárinnar,
karlar og konur af öllum
stéttum, úr öllum flokkum og
öllum trúfélögum hafa látið
í ljós þungar áhyggjur. Mr.
Nutting, aðstoðarutanríkisráð-
herra, sem einkum hefuí*
f jallað um mál sem varða SÞ,
Framhald á 10. síðu.
Kröfur brezkrar alþýðu um frið megnuðu ekki að
stöðva styrjaJtdarbrölt stjóma Breta og Fralcka,