Þjóðviljinn - 06.11.1956, Page 12
Fundur íhaldsins í fyrra~
dag óafsakanlegt hneyksli
Fundur sá sem boöaður var í nafni stúdenta og rit-
höfunda í fyrradag varð ömurlegt og óafsakanlegt
Imeyksli. Einn ræðumanna var svo undir áhrifum víns
að mjög áberandi var, og ekki lét neinn ræðumanna. sér
til hugar koma að minnast einu orði á örlög Egyptalands.
Þó fundurinn væri boðaður í
®afni stúdenta og rithöfunda
stóðu aðeins að honum þrjú í-
haldsfyrirtæki, meirihluti stúd-
entaráðs, stjórn Stúdentafélags
Rekjavíkur og félag Hagalíns-
manna. Aðalræðuna flutti Tóm-
as Guðmundsson og var hún með
fullkomnum endemum. Sagði
hann fyrst gamansögur frá út-
iöndum en hellti sér síðan yfir
nafngreinda íslendinga, aðallega
Hermann Jónasson — og skoraði
m. a. á hann í kappræður í út-
varpinu um utanrikismál fyrir
11. nóv. n.k. ef núverandi ríkis-
stjórn yrði ekki fallin áður!
Einnig fór Tómas hinum hörð-
ustu orðum um Halldór Kiljan
Laxness.
Á fundinum var samþykkt á-
lyktun þar sem einvörðungu var
fárið hörðustu orðum um hina
hörmuiegu atburði í Ungverja-
landi og gengu fundarmenn síð-
an með hana að sovézka sendi-
ráðinu.
Hið fullkomna alvöruleysi sem
þannig einkenndi fundinn er
spegilmynd af viðhorfum þeirra
manna sem að honum stóðu.
Hversvegna samþykktu þessir
fundarmenn íhaldsins ekki einnig
mótmæli gegn hinni níðingslegu
Framhald á 10. síðu.
tUÖÐVlLIINM
Þriðjudagur 6. nóvember 1956 — 21. árgangur — 253. tölublað
Afstaða Alþýðubandalagsins
Dauðaslys í ielasveit í Borgar-
íirði á sunnudaginn var
Péiur Oddsson prófastur að Hvammi í
Dölum beið bana í bifreiðaáreksiri
Á suimudaginn varð það slys á Melaveginum í Borgarfirði
að fólksbíll ók aftan á vörubíl og einn jreirra sem í bílnum var,
sr. Pétur Oddsson, prófastur að Hvammi í Dölum, beið bana.
Séra Pétur hafði verið á
Akranesi tvo daga þeirra er-
Fundér Alþingis felldir niður í gær
að óskum ríkisstjórnarinnar
íhaldsþmgmenn tryllasi yfir því að þeim
var ekki frestað samkv. þeirra tiliögum
Funclir beggja deilda Alþingis voru settir á venju-
legum tíma í gær en var slitið þegar í stað að tilmælum
ríkisstjórnarinnar, sem tilkynnti að hún sæti á mikil-
vægum fundi.
Er forseti Neðri deildar hafði
slitið fundi reis Ólafur Thors
á fætur, myndaði sig til að ráð-
ast á forseta og tróð sér síðan
upp í forsetastól og fór að tala.
Kvaðst hann margsinnis hafa
kvatt sér hljóðs og mótmælti
með mörgum orðum og lítt hóf-
sömum því sem hann kallaði
ofbeldi forseta, er hefði meinað
sér máls. Sagðist Ólafur hafa
ætlað að leggja til, fyrir hönd
S.iálfstæðisflokksins, að þing-
fundir yrðu felldir niður dag-
langt til merkis um samúð Al-
þingis með ungversku þjóðinni.
Skildist mönnum iítt æsingur
mannsins, þar sem ríkisstjómin
hafði þegar ákveðið að felia nið-
ur fundina, en tillaga hans átti
einmitt að vera um það.
Er Ólafur stóð í þessum sínum
stórræðum fylgdi Jóhann Haf-
stein honum fast á hælum, hafði
uppi handapat mikið og sletti
stráklegum orðum á alla vegu.
M. a. auglýsti hann ást sína á
lýðræðislegum aðferðum með
því að stinga upp á því við fé-
laga sína ,,að henda þessum
forseta út!“ Sú tillaga hlaut
þó engar undirtektir og hjaðn-
aði þá nokkuð blóðþrýstingur
mannsins.
I efri deild kvaddi Jóhann Þ.
Jósefsson sér hljóðs utan dag-
skrár og lagði til að fundi yrði
frestað til 'samúðar Ungverjum,
en forseti deildarinnar hafði áð-
ur tilkynnt að fundur yrði felld-
ur niður að tilmælum ríkis-
stjórnarinnar.
Fundir beggja deilda hefjast í
dag kl. 1,30 e. h.
inda að fá rafvirkja til starfa
vestur í Hvammi. Fékk hann
rafvirkjann og lögðu þeir af
stað vestur síðdegis á sunnu-
dag, gerðist slysið á tímabilinu
frá kl. 4.30-5. !
Þeir voru í 4ra manna
Volkswagen-bíl D-23 og ók raf-
virkinn bílnum, en hann hafði
fyrir eigi alllöngu verið svipt-
ur ökuleyfi fyrir ölvun við
akstur. Á veginum upp af
Narfastöðum í Melasveit kom
bíll á móti þeim. Var þetta í
ljósaskiptunum og sást því illaj
framundan, en þegar bíllinn^
var farinn framhjá sáu þeir
4 Framh. á 3. síðu.
Framhald af 1. síðu.
barátta háð gegn eriendri á-
sselni úr hvaða átt og í hvaða
mynd sem hún birtist.
Það vinnuafl, sem nú er (
bundið við hernaðarvinnu í
þjónustu erlends ríkis, verði
leyst frá þeim störfum og aftur
beint að framleiðslu þjóðarinn-
ar, frekari hernaðarfram-
kvæmdum hætt og hinn erlendi i
htr iátinn vikja úr landinu með
uppsögn samningsins frá 1951.
Stefnt sé að því að gera ís-
land aftur hlutlaust land, án
herstöðva, og utan hemaðar-
bandalaga, er ástundi vináttu
við allar þjóðir nær og fjær og
leggi fram sinn skerf til þess að
varðveita frið og boða sættir,
hvar sem fulltrúar þess koma
fram á alþjóðavettvangi.“
Dauðaslys á Nýbýlavegi - Níimda
lauðaslvsið bér á árinu
Á sunnudaginn beið Kristján Guðmundsson, til heimilis að
Defensor við Borgartún, bana í bifreiðaárekstri á Nýbýlavegi.
Þetta er 9. dauðaslysið af völdum umferðar hér í Reykja-
vík á þessu ári.
Slys þetta gerðist ki. 1.45 á
sunnudaginn. Bifreiðinni G 1045
var ekið austur Nýbýlaveginn. Á
móts við húsið Nýbýlaveg 16 A
stóð vörubifreiðin R 6855 kyrr
og mannlaus á suðurbrún göt-
unnar og sneri í austur. Bifreiðin
G 1045 lenti undir palli vöru-
bifreiðarinnar sem stóð á vegar-
brúninni, með þeim afleiðingum
að bílstjórinn, Rristján Guð-
mundsson, beið bana, en þrír
menn sem í bifreiðinni voru
slösuðust. Tveir þeirra liggja í
sjúkrahúsi. Eru það Björgvin
Kristinn Friðsteinsson, Hraun-
teigi 15, en hann mun hafa
fótbrotnað og hlotið fleiri
meiðsli, og Sigurður Guðmunds-
son Nökkvavogi 28. Þriðji inað-
urinn, Erling ísfjeld Magnús-
son, Nökkvavogi 50, fékk «ð fara
heim ti! sín eftir að gert hafði
verið að meiðslum hans.
Alþýðusambandið gefur ungverskri
alþýðu 15 þúsund ísl. króna
Miðstjórn Alþýðusambands
Islands samþykkti sl. föstudag
að gefa 15 þús. kr. til ung-
verskrar alþýðu.
fela Rauða krossi íslands að
koma upphæðinni áleiðis. Al-
þýðusambandið hvetur verka-
lýðsfélög til þátttöku í söfnun' 30903, 32973, 37712, 42269, 44501,
Voru í kappakstri
Þegar slysið vildi til voru þeir
í nokkurskonar kappakstri: ætl-
uðu að komast fram fyrir R 6671
sem þeir töldu að ekið hefði
utan í G 1045, án þess að sinna
því. Ætluðu þeir að komast
fram fyrir R 6671, og munu
ekkj hafa tekið eftir vörubif-
reiðinni sem stóð kyrr. Báðir
bílarnir hafa verið á mikilli
ferð. Bifreiðin G 1045 er tal-
in ónýt eftir áreksturinn og
grind vörubílsins sem hún ók á
skekktist og er hann ógang-
fær eftir áreksturinn.
Bílstjórarnir á G 1045 og R
6671 voru báðir ungir menn,
annar 19 ára en hinn 25 ára.
Drætti er lokið í 11. flokki
vöruliappdrættis S. í. B. S. Vinn-
ingar voru 600 að upphæð 600
þús. kr.
Hæstu vinningarnir komu á
eftirtalin númer: 100 þús kr. á
nr. 21904, 50. þús. kr. nr. 7947,
20 þús. kr. nr. 15235, 10 þús. kr.
14376, Í6688, 17420, 18943 19079
20196, 21031, 22152, 28688, 40672.
5 þús. kr. nr. 2603, 5652, 6532,
7848, 12330, 13883, 14468, 17936,
22419, 23776, 24483, 25075, 30269,
Samkvæmt þessu tekur Al-
þýðubandalagið sem flokkur,
— og þarafleiðandi þingfiokkur
þess — ekki afstöðu til alþjóð-
legra deilumála, nema að þvi
leyti, sem þau snerta ísland,
sjálfstæði þess, eða afstöðu op-
inberra fulltrúa þess á alþjóða-
vettvangi. Að öðru ieyti hafa
þingmenn Alþýðubandalagins
algerlega óbundnar hendur um
afstöðu til alþjóðlegra mála og
átaka á alþjóðlegum vettvangi.
En eftir hina hörmulegu at-
burði síðustu viku í Egypta-
landi og Ungverjalandi liggur
það fyrir að ríkisstjórnin taki
ákvörðun um hvaða afstöðu
fulltrúi eða fulltrúar íslands
hjá Sameinuðu þjóðunum skuli
taka í nafni þjóðarinnar til á-
kvarðana sem Sameinuðu þjóð-
irnar kunna að taka um þessi
mál, en vitað er, að þær ákvarð-
anir geta orðið hinar örlagarík-
ustu, ekki aðeins fyrir framtíð
Sameinuðu þjóðanna, heldur
einnig fyrir framtíð alls mann-
kyns.
Með tilliti til þessa vili mið-
stjórn og þingflokkur Alþýðu-
bandalagsns lýsa yfir ,að Al-
þýðubandalagið telur það eitt
í samræmi við frelsis- og friðar-
hugsjónir íslenzku þjóðarinnar,
að fulltrúa hennar hjá Samein-
uðu þjóðunum verði falið að
fordæma harðlega jafnt ofbeld-
isárás Breta og Frakka á
Egyptaland, sem hina vopnuðu
íhlutun Sovétríkjanna í Ung-
verjalandi frá byrjun uppreisn-
arinnar þar í landi til þessa
dags.
Alþýðubandalagið teiur fram
komu þeirra stóryelda, sem hér
eiga hlut að máli óverjandi og
ósæmilega og háskalega heims-
friðnum, og því sjálfsagt að
fulltrúa Islands hjá Sameinuðu
þjóðunum verði, í nánu samráði
við ríkisstjórnina, falið að
fylgja hverjum þeim ráðstöf-
unum, sem tiltækilegar virðast
án þess að stofna heimsfriðn-
um í voða, til þess að knýja
þessi stórveldi til að láta þegaer
af beitingu frekara vopnavalds
gegn þeim þjóðum, sem hafa
orðið fyrir árásum þeirra og
kalla heri sína þegar í stað
heim frá viðkomandi löndum.
Alþýðubandaiagið vill benda
á, að Bretar og Frakkar hafa,
með árásarstyrjöld sinni gegn
Egyptum eigi aðeins gerzt sekir
um hið freklegasta brot gegn
stofnskrá S.Þ. og heimsfriðnum,
heldur einnig rofið Atlanzhafs-
samninginn frá 1949 og að
hann er því í raun réttri úr
;ildi fallinn.
Alþýðubandaiagið álítur enn-
fremur að þessir atburðir sýni
ljóslega hvílík nauðsyn það er,
vegna heimsfriðarins, að hern-
aðarbandalög stórveldanna, At-
lanzhafsbandaiagið og Varsjár-
bandalagið verði formlega leyst
upp og allt herlið stórveldanna
sem nú dvélur í herstöðvum ut-
an heimalanda þeirra, víki það-
an og hverfi heim.“
Rithöfiiiiflar
Jafnframt var ákveðið að til styrktar ungverskri alþýðu. 44829, 46499. (Birt án ábyrgðar).
mófinæla
Þjóðviljanum hefur horizt
eftirfarandi:
„Stjórn Rithöfundafélags ís-
lands vill að gefnu tilefni lýsa
því yfir, að hún telur ofbeldi
Rússa í Ungverjalandi og árás-
arstyrjöld Breta og Frakka í
Egyptalandi glæpsamlegt brot
gegn frelsi og sjálfstæði þess-
ara ríkja, gegn hugsjóninni
um frið, jafnrétti og bræðralag,
gegn mannkyninu öllu.
Stjóm Rithöfundafélags ís-
lands skorar á íslenzku þjóðina
að halda vöku sinni á þessum
viðsjálu tímum og standa éin-
huga á verði um sjálfstæði sitt
og frelsi.
Reykjavík, 5. nóvember 1956
Stjórn Rithöfunda-
félags Islands.
(Yfirlýsing þessi var send
sendiráðum viðkomandi ríkja í
Reykjavík.)"
Ríkisstjórn íslands samþykkti
á ráðherrafundi í gær eftirfar-
andi yfirlýsingu einróma, og var
hún flutt af forsætisráðherra í
ríkisútvarpinu í gær:
„Ríkisstjórn Islands fordæmir
harðlega hemaðarárás Rússa á
ungversku þjóðina og lýsir
djúpri samúð með hetjulegri bar-
áttu hennar fyrir frelsi og rétti
til að taka upp iýðræðislega
stjórnarhætti. Ríkisstjómin for-
órnariimar
dæmir jafnframt harðlega árás
Breta og Frakka á Egypta og mun
stuðla að því innan Sameinuðu
þjóðanna að komið verði á rétt-
látum friði og báðar þessar þjóð-
ir fái óskoruð yfirráð yfir landi
sínu án íhlutunar erlendra stór-
velda. í samræmi við þessa yfir-
lýsingu hefur verið og verður af-
staða fulltrúa íslands á alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna.“