Þjóðviljinn - 09.11.1956, Page 10

Þjóðviljinn - 09.11.1956, Page 10
3-0) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 9. nóvember 1956 Egyptaland Framhald af 1. síðu. hléssamningur Egypta og ísraels- manna væri dauður bókstafur og vopnahléslandamærin þar með úr sögunni. A Ráðherra kvaddur heim Golda Meier, utanríkisráðherra ísraels, var í gær á leið til New York þar sem hún ætlaði að sitja allsherjarþing SÞ. Hún kom við í París og ræddi þar við sendi- herra ísraels í París og London. Þar bárust henni boð um að koma umsvifalaust aftur til Isra- els. Má telja líklegt að heim- kvaðning hennar standi í sam- bandi við hina skyndilegu stefnu- breytingu israelsku stjórnarinn- ar. Vonir um frið aukast Þessi stefnubreyting ísraelsku stjórnarinnar hefur stóraukið horfur á því að takast muni að koma á friði í Egyptalandi. Dag Hammarskjöld, framkvæmda- stjóri SÞ, sagði í gær í orðsend- ingu til stjóma Bretlands og Frakklands, að neitun ísraels um að verða á brott með her sinn úr Egyptalandi hefði stofn- að í hættu árangrinum af við- leitni SÞ við að leysa vandamál- in í löndunum fyrir botni Mið- jarðarhafs. Brezka stjómin hafði tilkynnt í fyrradag, að hún inýndi sjá um að ísraelsku hersveitirnar færu úr Egyptalandi þegar i- stað, en í gær sagði talsmaður hennar, að þetta mætti ekki skilja á þá leið, að Bretar ætluðu að beita valdi í þessu skyni, heldur væri hér aðeins um ósk að ræða. Nú stendur aðeins á Bretum og Frökkum Efni ísraelska stjórnin það lof- orð sem felst í tilkynningu Ebans sendiherra og flytji burt her sinn úr Egyptalandi, eru Bretar og Frakkar einir eftir að verða við kröfu allsherjarþings SÞ um að vopnaviðskiptum sé hætt og allir erlendir herir fluttir burt úr Egyptalgndi. Þessi ákvörðun ísraels þýðir einnig, að úr sögunni er það á- stand, sem Bretar og Frakkar notuðu til að afsaka ofbeldisá- rás sína á Egypta. Stjórnir þeirra liöfðu sagt þegar árásarstriðið hófst, að tilgangur þeirra væri sá einn að skilja Egypta og fsra- elsmenn og stilla til friðar með þeim. Fáir munu að vísu hafa trúað þessari staðhæfingu, og ef Bretar og Frakkar verða nú ekki tafarlaust við kröfu allsherjar- þingsins um að þeir flytji strax burt her sinn úr Egyptalandi hafa ráðamenn þeirra um leið komið upp um tvöfeldni sína. Það er enn erfiðara að skilja hina skyndilegu stefnubreytingu ísraelsstjórnar vegna þess, að ísrael grelddi eitt allra ríkj'a at- kvæði gegn tillögu'' Asíu- og Af- ríkuríkjanna á allsherjárþiriginu í fyrrakvöld" um tafarlausan brottflutning allra erlendra herja frá Egyptalandi. Tillagan var samþykkt með 65 atkvæðum gegn 1, en 8 ríki sátu hjá. Vera má að orðsending sem Ben-Gurion barst í fyrrakvöld frá Eisenhower Bandaríkjafor- seta hafi ráðið nokkru um hina breyttu afstöðu. Förum ekki fyrr en og nema að. . . . Eden forsætisráðherra skýrði brezka þinginu frá því í gær, að ekki kæmi til mála að brezkir hermenn yrðu fluttir úr Egypta- landi nema að lögreglusveitir SÞ tækju við af þeim og ekki fyrr en þær kæmu. Engir bardagar munu hafa átt sér stað í Egyptalandi í gær. Þó skiptust egypzkir hermenn og brezkir á skotum á einum stað, og féllu þar 2 Egyptar. Vantraust á brezku stjórnina Verkamannaflokkurinn bar í gær fram á brezka þinginu til- lögu um vantraust á stjórnina vegna 'árásarinnar á Egyptaland og var það í annað sinn. Kenneth Younger, þingmaður Verkamannaflokksins, sagði að árás Breta og Frakka á Egypta hefði skapað alvaiiegt ástaiuf á alþjóðavettvangi og komið af stað sundrung í brezka samveld-, inu. Hann sagði að brezka stjórn- in hefði ekki séð fyrir tíunda liluta af því sem myndi hljótast af árásarstríðinu. Hefur stjórnin gert sér grein fyrir, hvernig verður ástatt, ef Sovétríkin senda sjálfboðaliða til Egyptalands? spurði hann, Því lengur sem við höldum hersveit- um okkar í Egyptalandi, for- dærndir sem árásarmenn af al- menningsáliti heimsins, því meira eykst hættan á að Sovét- ríkin sendi Egyptum hernaðarað- stoð og sjálfboðaliða, sagði hann. Hann lauk máli sínu með að krefjast þess að brezku hersveit- irnar í Egyptalandi yrðu þegar í stað kallaðar heim. Atkvæðagreiðsla um van- trauststillöguna átti að fara fram um eða eftir miðnætti í nótt. Brezkir ráðherrar segja af sér Einn af aðstoðarráðherrum brezku stjórnarinnar, forstjóri efnahagsdeildar fjármálaráðu- neytisins, sir Edward Boyle, sagði í gær af sér embætti í mótmælaskyni við árásarstyrj- öldina á hendur Egyptum. Annar brezkur ráðherra, Anthony Nutt- jng, aðstoðarutanrikisráðherra, sagði af sér á sunnudaginn af sömu ástæðu. Aðrir embættismenn brezku stjórriarinnar hafa gert slíkt hið sama, þ. á. m. William Clark, kunnur blaðamaður sem fyrir nokkrum mánuðum gerðist blaðafulltrúi Edens forsætisráð- herra, og haft er fyrir satt, að nokkrir kunnustu leiðtogar í- haldsflokksins, þ. á. m. Butler innsigiisvörður og fyrrverandi fjármálaráðherra, hafi sett Eden þá úrslitakosti fyrir nokkrum dögum, að þeir myndu segja af sér, ef hann féllist ekki þegar í stað á að lýsa yfir vopnahléi i Egyptalandi. Flugvél frá Braathen ferst Flugvél frá flugfélagi Braath- ens fórst í fyrradag á Leið frá Niðarósi til Oslóar. Flugvélin rakst á fjallshlið skammt frá sænsku landamær- unum. Flak hennar fannst í gær og höfðu 10 menn sent í henni voru komizt lífs af, en tveir beðið bana. Framferði íhaldsins IÚ1AKERTI — SKRAUTKERTI — RIÚMAKERTI Tékknesku kertin eru komin. — Takmarkaðar birgðir. Pétur Pétursson, heildverzlun, Hafnarstræti 4 — Sími 1219 og 82062. Framhald af 1. síðu þola að þessir samansaumuðu fjárplógsmenn drottni lengur yfir mikilvægasta atvinnuvegi þjóðarinnar. Af því stafar heift- in sem birtist í skrílsuppþotinu í fyrradag; þess vegna er reynt að hagnýta hina geigvænleg- ustu heimsviðburði í þágu auðs og valda. ★ Buddunnar lífæð. Þetta augljósa samhengi hef- ur komið skýrt fram í heild- salablaðinu Vísi undanfarna daga. Daginn eftir að fréttist um hina hörmulegu viðburði í Ungverjalandi bar heildsala- blaðið fram kröfu um að ríkis- stjórnin segði af sér. Daginn eftir ítrekaði það kröfu sína og bætti þá við þeim rökstuðningi að stjómin ætlaði „að vinna á verzlunarstéttinni með því að Ieyfa ekld svo háa álagningu að hún standi undir rekstrinum". Þarna kom það þegar í ljós að það var buddunnar lífæð sem sló í brjóstinu á heildsölunum; tilgangurinn var sá að nota harmtíðindin í Ungverjalandi til að tryggja heildsölum nægi- lega háa álagningu. Svona frámunalega auðvirðileg er stjórnmálabarátta Sjálfstæðis- flokksins. ,,Samúð" nazistanna. Og hvernig ætti hún að vera öðruvísi ? Peningaklíka Thors- aranna hefur reynt að tryggja völd sín með því að skipa um sig sveit harðsnúinna nazista, þeim hefur verið raðað í ýms ar mestu valdastöður þjóðfé. lagsins og þeir hafa nú forustu fyrir æsingum og skrilslátum í- haldsins. Mennirnir sera dáðil Hitler og þjóðamorð hans með- an hann var nokkurs megnug* ur þykjast nú hafa gerzt máls- svarar lýðræðis og matmhelgi! Sérstakrar frægðar hefur Sig- urjón Sigurðsson getið sér, nazistaleiðtoginn sem Bjarni Benediktsson gerði að lögreglu- stjóra, er hann bjó í haginn fyrir skrílslætin í fyrradag. Hann lét loka Túngötunni fyrir bílaumferð — eins og gert er þegar lögreglan leyfir mann- fundi — og gerði ekki nokkra minnstu tilraun til aé binda endi á framferði hvítliðanna. Það er smán fyrir Islendinga að þola slikan mann í lögreglu- stjórastarfi, og eftir framferð- ið í fyrradag hlýtur ha.nn að hafa unnið sér til þeirrar ó- helgi sem nægi. Verður að kveða niður. Allir ærlegir íslendingar hljóta að kveða upp hinn þyngsta áfellisdóm yfir of- stækiskliku íhaldsins. Það er siðleysi og lítilmennska, sem ekki á að þola, að gera. óbæri- legar raunir milljóna manna að tæki til að vernda og efla gróða og völd lítillar sérhagsmuna- klíku. Slíkt siðleysi verður al- menningsálitið að kveða. niður í eitt skipti fyrir öll í tslenzkri stjórnmálabaráttu. STEIMP UwKmvec 3» — Síml 822M FJöIbreytt trvmi mf •telnhringnm. — Fóstsemdnw.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.