Þjóðviljinn - 03.01.1957, Side 10

Þjóðviljinn - 03.01.1957, Side 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 3. janúar 1957 Líf ið getur þorrið Framhald af 7. síðu vera langt frá þeim. Og stúlk- urnar í Rúdasgötu eru víst í hálfgerðu svelti. (I þessum götum eru stúdentaheimili hag- fræðiháskólans). Þeir eru að spila hérna drengirnir, en það vantar hið villta fjör og hlát- ursskeilina, sem venjulega fylgja slíku hér í landi. Þeir láta sér nægja að mala í hálf- um hljóðum. Rétt í þessu heyri ég að drengirnir okkar hefðu hjálp- að til að slökkva í vöruhúsinu. Fimm eða sex þeirra hugrökk- ustu eða fífldjörfustu (um það eru skiptar skoðanir) skruppu yfir og sprautuðu vatni og kolsýru í eldinn, báru til vör- ur, og réðu ásamt starfsfólki verzlunarinnar, sem bjó hið næsta, fljótt niðurlögum elds- ins. Skemmdir urðu litlar. Til hvers þeir voru að ieggja sig í lífshættu, úr því þeir fengu ekkert fyrir það? Jambi sagðj: Sumpart vegna TIL LIGGUB LEIÐIN hættunnar sjálfrar (Ungverjar nota í því sambandi latneska orðið virtus), sumpart vegna þess að ríkið fyrir hönd okk- ar á þetta og við megum ekki láta það eyðileggjast. Það væri margra milljóna tap. „Hvað, ert þú að skrifa nið- ur hugsanir þínar?“ sagði einn pilta við mig; ég þekki hann ekki með nafni. ,,Ágætt, ef það skyldi verða að gagni, þótt seinna yrði“. Það fólst von- leysi í þessum orðum. Ég veit hvað að baki liggur. Allir ótt- ast að þetta leiði til heims- styrjaldar eða að minnsta kosti til útrýmingar ungverskr- ar þjóðar. „Reykirðu?" spyr Rúdolf, sá sem kunni sem flestar kímnisögur um kvöldið. „Nei, þakka þér fyrir, ég er svo heppinn að hafa ekki van- ið mig á það. Á byltingartím- um er slæmur siður að reykja, því .að tóbakið getur þorrið“. Og ég bæti við og reyni að vera fyndinn: ,,Á byltingar- tímum er slæmur siður að éta, því að maturinn getur þorr- ið“. Rúdolf brosir dauflega og segir: „Á byltingartímum er slæmur siður að lifa, því að lífið getur þorrið“. — Einn kemur niður með blý- klump í annarri hendi. Hann hafði svifið inn um glugga á þriðju hæð. Blýið var brot úr sprengjuvörpu. Rúðan, sem það gerði gat á var sú eina sem brotnaði í húsinu í öll- um átökunum. — Á miðvikudaginn, að mig minnir, var matvælaskemman við Dimitrofftorg opnuð og rænd. Það var soltið fólk. Við horfðum á, hvemig það kom til baka berandi feng sinn: mjöl, kjöt, niðursuðuvörur. Fólkið í húsunum á móti hneykslaðist einhver ósköp, og ein húsfreyjan var svo sköru- leg að ráðast á smádrengpatta og hrifsa af honum kexpoka. Hann lagði grátandi á flótta, en konan sneri aftur með sig- urbrosi og heilagri vandlæt- ingu. Hún lét sér nægja að ráðast að þeim fullorðnu með orðum. Sætabrauðsbakarinn seldi tertubita fyrir 20 for- intur, og virtist enginn hneykslast á því ráni. Stúdent- arnir horfðu á þetta afskipta- lausir. I mensu okkar voru miklar matarbirgðir, sem borizt höfðu að gjöf úr sveit- inni nokkrum dögum áður. Þennan dag var byrjað að ræna vöruhús og verzlanir (ég á hér ekki við matvöru). Dag- inn eftir var það komið í al- gleyming. Hafi hinir góðu borgarar hneykslazt á matar- stuldi soltins fólks, sem ekki átti annars úrkosta en taka matinn þar sem hann var til, þá gerðu þeir það ekki siður þegar fólkið fór að afla sér fatnaðar á hampalausan hátt. Þeir kölluðu það skríl og steyttu hnefana. Ég vissi, að þjófarnir voru ekki allir fyrr- verandi tukthúslimir eða stór- borgardreggjar, eins og marg- ir vildu vera láta. Sumir þeir, sem ég þekkti bezt meðal stúd- entanna, komu heim með al- fatnað; frakka, baðslopp, hanzka og svo framvegis. Einn tók bara pyngjur og skart- gripi og hugðist selja seinna. Þeir kinokuðu sér við að við- urkenna stuld sinn og sögðu að það væri nær, að þeir, Ungverjar, nytu vamingsins heldur en Rússar færu að hnupla honum. Hvort Rússar hefðu gert það? Þeim er trú- andi til þess, var svarið. Ég er ekki viss um að þessi siðfræði, þó sterk sé, hafi al- gjörlega nægt þeim drengjun- um til afsökunar i sjálfs sín augum. Ég heyrði þá að minnsta kosti aldrei hælast um þetta athæfi. Það er eitt- hvað að, ef Ungverji státar sig ekki með nýfenginn hlut. Bæjarpósturinn Framhald af 4. síðu. fólk fer á skemmtanir, hvort sem það hefur í rauninni efni á því eða ekki, og mér fyndist engin goðgá, þótt rannsakað væri, hvort ekki eru tilbok að draga úr hinu óhóflega verði á veitingum og aðgöngumið- um hjá danshúsum bæjarins. o O o EN SEM SAGT: Árið 1956 ér liðið í aldanna skaut,. árið 1957 er að hefja göngu sína, og nýtt ár leggur okkur öll- um nýjar skyldur á herðar. Augiýsing um greiðslu á tollum Athygli er vakin á því, að þeir, sem eiga fulltil- : búin tollskjðl innlögð fyrir gildistöku laga um útflutningssjóð o.fl., geta greitt af þeim eftir eldri lagaákvæðum til og með 5. janúar 1957. Hafi tollarnir ekki verið greiddir í síðasta lagi 5. janúar veröa gjöldin reiknuð að nýju eftir hin- j um nýju lögum. Jafnframt er skorað á þá, sem eiga óuppgerðar fjártryggingar fyrir aðflutningsgjöldum aö gera þær upp fyi'ir sama tíma. TöUstjóraskrifstofan, Arnarlivoli. j Augiýsið í Þjóðviljanum > Verð miðans er óbreytt kr. 20,00. ★ Aðeins heilmiðar útgefnir. Vinningar falla því ós kip tir I hlut vinnenda. 65 þúsund miðar útgefnir. ★ Sé fyllsta heppni með, getur ársmiði, sem kostar aðeins 240 krónur, færi eiganda sínum vinninga að fjárhæð kr. 2.800.000,00 Með árinu 1957 hækkar heildarfjárhæð vinninga um kr: 2.300.000,00 og verða alls: kr. 7.800.000,oo Vinningar skiptast þannig: 3 vinningar á hálf milljón hver, 4 á 200.000,00, 6 á 100.000,00, 12 á 50.000,00, 100 á 10.000,00, 150 á 5.000,00 og 4725 vinningar frá kr. 500,00 upp í kr. 1.000,00. Miðasala er hafin. ★ Dregið í 1. flokki 10. janúar annars 5. hvers mánaðar. ★ Viðskiptavinir hafa forgangsrétt áð númerum sínum til 5. janúar n.k. ★ Öllum hagnaði er varið til nýbygginga að Reykjalundi, glæsilegasta, vinnuheimili, sem reist hefur verið fyrir öryrkja a Norðurlöndum.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.