Þjóðviljinn - 03.01.1957, Side 11
Fimmtudagur 3. janúar 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (11
aga eftir ERN&ST GANN ) .
IÍH
74. dagur
gerist áttu að láta sem þú vitir ekki neitt?“ Hann sneri
sér aftur að símanum.
,,Roman . . . . ? Eg veit þaó ekki. Eg var að koma hing-
að. Bíddu andartak . . . . “
Boyd leit yfir borðið á Garfield.
,,Herra Garfield? Tók þessi Roman einhvern tíma þátt
í kappflugi?“
Garfield leit varla upp úr skýrslunum sem hann
var að blaða í.
„Já. Þaö er langt síðan“.
„Já .... Wayne. En hvað kemur það áhugamálum
lesenda við? Þetta flugfélag hefur flogið meira en þrjá-
tíu milljón mílur án þess að skerða hár á höfði nokkurs
farþega. Viö höfum fengið öryggisviöurkenningu í þrjú
ár samfleytt og við fáum hana líka í ár. Hringdu bara^
í fíugmálastjórnina .... sóaðu peningum þínum í
langlínusamtal við Washington, ef þér sýnist svo.
Hringdu í CAA og CAB. Þeir vita ekki neitt. AuÖvitað
viljum við vinna með ykkur. Þið getið fengið allar upp-
lýsingar beint héðan, ef þið getið bara dokað við og
gefiö mér tíma til að afla þeirra. Ég var rétt að koma
hingað! Sæll!“
Boyd hvæsti gremjulega þegar hann skellti tólinu á.
„Hérra Garfield .... Getið þér séð af mínútu handa
mér?“
„Svona þar um bil. Hvaö er að?“ Garfield var þrek-
vaxinn, traustlegur maður. Djúpstæð grá augu hans
voru nú alvarleg og rödd hans var róleg. Of mörg ár
sem eytt var í áhyggjur um líf annarra og baráttu við
höfuðskepnurnar bak við skrifborð, höfðu gert hann
gamlan fyrir tímann. Hann var þreyttui' maöui'. Ást
hans á flugi var löngu úr sögunni.
„Blöðin liggja 1 mér. Hvaö á ég að segja þeim?“
„Hvernig væri að segja þeim aö fara til fjandans?11
„Þér vitið að það get ég ekki“.
Garfield andvarpaði. Ég veit þaö. Hvaö getið þér hald-
ið þeim lengi í skefjum?“
„Ef til vill klukkutíma í viöbót. Þeir kveina um morg-
unútgáfurnar“.
„Klukkutími er ef til vill nóg. Þetta er mjög alvar-
legt“.
„Er það svo slæmt?“
„Það lítur ekki vel út“. Garfield virtist gleyma Mal-
colm Boyd. Hann sneri sér að Lyle Meekei', sem stóð
við hliö hans. „Við getum alveg eins horfzt í augu við
þaö núna, Lyle. Ef skýrslur um eldsneyti og veður eru
réttar, þá eru engar líkur til að Sullivan hafi það“.
„Þetta veröur löng nótt“.
„Ekki eins löng fyrir okkur og Sullivan. En það er
bezt að láta hendur standa fram úr ermum strax.
Hvernig væri að síma til Honululu eftir réttum farþega-
lista og hafa upp á þeim sem þarf aö gera aðvart því
að þeir verða margir. Ég skal sjá um fjölskyldur áhafn-
arinnar þegar þar að kemur. Ég veit ekki hvers vegna,
en það er rétt að fá lækni flugfélagsins til að vera
viðbúinn líka — ef ske kynni að kraftaverk gsröist. Og
við skulum sjá . . . . “ Garfield neri augun með snubb-
óttum fingram. „Það er víst ekki annað í bili. Það má
hafa samband við tryggingarfélagiö .... þeir vilja hafa
mann hér útfrá, og þaö þarf að ná í hreyflaviðgerðar-
mennina, og það er eins gott að þeir hafi eitthvaö sér
til afsökunar. Ef þér er sama þótt þú sjáir um þetta,
þá hef ég meiri tíma til aö athafna mig hér, og ég ætla
að reyna að koma boðum til Sullivans. Er það 1 lagi?“
„Vissulega. Ég verð á skrifstofu minni“.
„Já, og pósthúsiö. Spyröu Honululu eftir pósti og
hvort nokkur ábyrgðarpóstur sé í vélinni. Þeir vilja
sjálfsagt fá að vita um þaö. Hinir geta beðið til morg-
uns“.
Garfield beit enn fastar um vindilirm og teygði sig
eftir símskeytablokk á borðinu. Hann skrifaði vand-
virknislega með stórum upphafsstöfum.
SULLIVAN —• 420
BENDI ÞÉR Á AÐ REYNA LÆGSTA R. P. M. OG
NOTA HÁMARKSBENSÍNMAGN. GÆTI SPARAÐ
NOKKUR GALLÓN. GANGI YKKUR VEL OG VIÐ
VONUMST EFTIR YKKUR. — GARFIELD
' Þegar Garfield var búinn að skrii'a naín sitt undir
þetta var hann á báðum áttum hvort hann ætti að
senda það. Hann vissi að Sullivan væri nú kominn í
samband við björgunarflugvélina og það var ólíklegt
að hann kynni að meta ráöleggingar frá skrifboröinu,
þegar hann var í svo bráðri hættu. En samt sem áður
var það skylda Garfields að ganga úr skugga um aö
Sullivan fengi alla hugsanlega hjálp, hversu lítilmótleg
sem hún kynni að vera. Ráðlegging hans var gamal-
kunn í sambandi viö benzínsparnað, og sennilega þekkti
Sullivan hana —en það gat líka veriö að honum heföi
ekki dottið hún í hug 'í ringulreiðinni. En svo gat líka
verið að kringumstæöurnar væru þannig að rangt væri
að reyna þetta — ef vélin væri þegar farin aö fljúga
illa. Sullivan yröi sjálfur að taka ákvöröun um þetta.
Hann rétti umsjónarmanninum miðann.
„Getið þér komiö þessu til Sullivans?“
„Ég get reynt það, herra Garfield“.
„Þá skuluð þér gera það. Er allt annað í lagi?“
,,Já, herra“.
„Veðrið hérna nokkuö aö skána?“
„Ég er hræddur um ekki“. Umsjónarmaðurinn rétti
honum gnlt blaö í stað símskeytisins. „Það koma nýjar
veöui’fregnir eftir tíu mínútur?“
„Við þurfum aö fá aukafregnir eftir svo sem klukku-
tíma“.
f þréttir !
Framhald af 9. síðu.
rnenn hennar séu sér þess með-
vitandi að hún beri þetta naín.
Ekki hefur heyrzt að á ár-
inu hafi verið lögð áætlun um
að vinna að auknum viðgangi
glímunnar.
Badminton á vaxandi vin-
sældum að íagna, en húsnæðis-
vandræði tefja mjög íyrir
meiri -þátttöku í þeirri íþrótt.
Aðrar greinir sem t minna
kveður að; Skautahlaup seni
alltaf verður háð hinu um-
hleypingasama tíðarfari hér, er
næstum útilokað að iðka sem
keppnisíþrótt á svipaðan hátt
og aðrar greinar íþrótta.
Fimleikar eru iðkaðir allvíða
en þeir koma lítið fram. og
eins og verið hefur eru þœir
ekki notaðir sem undirbygg-
ing undir aðrar íþróttir eins
og' hægt er og sjálfsagt, og
heldur ekki til að gera fólkið
. vinnuhæfara.
Sem sagt, árið hefur verið
hvað íþróttaiðkun snertir,
þrátt fyrir allt, nokkuð gott,
en bak við þetta allt standa
aðrir þættir íþróttahreyfingar-
innar, og verður vikið að þei-rn
síðar.
Að róla sér og vega salt
Það er gömul íþrótt
barna að róla sér og
vega salt, og varla er
hætta á að sá siður
leggist niður.
Það er nauðsynlegt
að börnum gefizt
kostur á að stunda
þessar listir sínar, og
því skyldi komið- upp
rólu bæði inni í íbúð-
inni og úti í garðshorni. Hér
eru nokkrar gerðir af rólum,
sem hver maður ætti að geta
smíðað sjálfur. Einfaldast er að
snúa eldhúshnallinum við,
bregða tveimur sterkum taug-
um í kross undir setuna og
vinda þeim svo utan um þver-
slána milli stólfótanna, festa
þeim svo að síðustu á sterka
króka í dyragættinni. En séu
krakkarnir tveir, sem skemmta
þarf, geta þau fengið tækið
sem sýnt er á myndinni, til að
vega salt á. Það má kaupaj
þetta tæki tilbúið, en óþarfi
ætti það að vera, jafn einfalt og
það er, svo hverjum manni ætti
að vera treystandi til að smíða
það. Utanhúss má setja upp
rólu milli tveggja sterkra stoða,
ef ekki næst til tveggja nógu
sterkra trjágreina. Stoðirnar
eru fyi-st tjargaðar í endana,
sem reknir eru niður í jörðina,
síðan verður að reka þá h.u.b.
1 metra niður og styrkja þá
með stórum steinum. Þverslá
sem komið er fyrir lítið eitt
undir yfirborði moldar, styrkir
stoðirnar vel. Til frekari ti’ygg-
ingar má styrkja stólpana of-
anjarðar með skástoðum. Auð-
vitað má ekki setja lítil börn í
svona rólu. Handa þeim er bezt
að gera rólu eins og ^ ^em
sézt á næstu mynd, en liún er
hengd upp í köðlum en sætið
Stærri börn sem eru
farin að lesa um
Tarzan, mundu helzt
kjósa sér hina þriðju og síð-
ustu af rólunum. Þrjár sterkar
fjalir eru settar vandlega sam-
an efst, svo að úr þeim verður
pýramídi, tveggja metra hár.
En niður úr samskeytunum
hangir taug, sem barnið getur
■■ ir . Ll o o
' 9 O / \ \o\
haft úr sterkum segldúk og
gerð göt fvrir fæturna. Gott er
að hafa bryddingar úr mjúku
efrii á börmumim, svo að þeir
særi ekki hörundið.
haft til að stíga í, og rólað sér
í eins og i líönum frumskóg-
anna. Það má höggva þrep í
fjalimar, svo að bai’ninu veit-
ist auðveldara að klifra upp.
!■ i n «■ nAifci Úts-fan.lt: Saroetnlnearflokkur alþýSu — SóstaUstaflokkurlnn. — Rltstiórar: Magnús Kiartan*—a
OSOÐVlLIlNVf Struróur G-uöaiundsson. — Préttarit-stjóri: Jón BJarnason. — BleSamenn: Ásmundur Stsur-
" * jónsson. Biarnt Bonedlktsaon, Guómundur Vigfússon. ívar H. Jónason, Magnús Torfl Ólafsson —
augl#sUlga.sU6rl: Júnstelnn Haraldsson. — RitsUdrn. afereiösi a. auelíslnsar. prentsmlSia: Skðlavöraustig 19. — Sinn 7500 3
tinur). ÁskHttarvórð kr. 25. á ro&nnól i ReylMavilt og nkgren ts.1; kr. 22 aar--i»t*6ar. - LausasöluverB kr. 1. — PrentsmiSla
í»355vnjani h.t.