Þjóðviljinn - 03.01.1957, Side 12
IOOVUJIN
Frá einni áramótabrennunni í Reykjavík. — (Ljósm. Sig. Guðm.).
Nær 50 áramétabrennur í Reykjavík
Allf friðsamf og sfórslysalausf um áramófin
— Eru þeffa þriÓju friSsömu áramófin i röS
Nær 50 áramótabrennur voru haldnar hér í Reykjavík þegar 3ji stýrimaður á Lagar-
á gamlárskvöld. Engin teljandi slys og engar óspektir fossi ætlaði að taka þátt í flug-
voru í bænum um áramótin og skemmtu menn sér me§ eldasýningum skipanna. Ætlaði
spekt og frið'i, sagði Erlingur Pálsson yfirlögregluþjónn hann að skjota neyðarkallsflug-
viðtali við’ Þjóðviljann í gær. eldi' Flugeldnr 1>e?si. fór ekki
upp ems og hann atti að gera,
Þetta er þriðja árið í röð sem Reykvíkingar skemmta
sér um áramótin að hætti siðaðra mann svo til fyriiv
myndar má teljast.
Skemmt með tónlist
Þrjú íþróttafélög höfðu
stórar brennur en auk þess
voru nokkrar stórar brenn-
ur á annarra vegum. Lög-
reglan hafði í förum nokk-
ra talstöðvabíla og bíla út-
búna með hátalara og útvarp-
aði músik. Var þetta einnig
svo um síðustu áramót og er
mjeg vinsælt. Var mjög fjöl-
mennt við þessar brennur og
skemmtu menn sér vel.
Athafnasainir menn
Smábrennurnar voru mjög
margar. Fengu strákar leyfi
til að' hafa smábrennur viðsveg-
ar um bæinn og voru hinir
duglegustu við að safna efni til
þeirra — voru það sérstaklega
starfsglaðir menn er þar voru
að verki.
Smábrennurnar hófust flest-
ar fyrr en hinar stærri, eða
um kl. 9 og var lokið er hinar
stærri hófust.
Engin umferðarslys
Engin umferðarslys urðu um
áramótin og engin slys í sam-
bandi við brennurnar. Hinsveg-’
ar hafði Slysavarðstofan tölu-1
j vcrt að gera um kvöldið við
: minuiháttar meiðsli er menn
munu liafa hlotið heima hjá
sér, sennilega við heimagerðar
sprengjur. Engin slík meiðsli
munu þó hafa verið alvarleg.
Slys á Lagarfossi
Eina umtalsverða sl.ysið sem
lögreglunni er kunnugt um var
heldur sprakk hylkið sem hann
var í og með svo miklum krafti
að stýrimaðurinn kastaðist
meðvitundarlaus niður. Kvikn-
aði i hári hans. Gert var að
meiðslum hans í Slysavarðstof-
unni og reyndust þau minni en
óttazt hafði verið og er talið
að hann muni ná sér bráðlega.
Framhald á 3. siðu.
Krúst|@}| ber loS á
Stalín í skálaræðu
Á nýjársnótt hélt sovétstjórnin veizlu í Kreml og tók
Krústjoff, framkvæmdastjóri kommúnistaflokksins, þar
til máls.
;--reié viðskipti i
Akur-
emni
r
a
i gær
Til veizlunnar var boðið er-
lendum sendimönnum og frétta-
mönnum.
Krústjoff, sem flutti hina
frægu leyniræðu um misgerðir
Stalíns á flokksþinginu í
Moskva í fyrra, komst svo að
orði í veizlunni á gamlárskvöld,
að Stalín hefði verið „mikill
marxisti og mikill baráttumað-
ur gegn heimsvaldastefnunni.“
„Þegar um baráttuna gegn
heimsvaldasinnum er að ræða
erum við allir Stalínistar",
bætti hann við og benti á fé-
laga sína í forsæti miðstjórnar
kommúnistaflokksins. Einnig
sagði Krústjoff, að hann og fé-
lagar hans gerðu sér það vel
ljóst, að þeir bæru sinn hluta
af ábyrgðinni á því, sem miður
hefði farið á stjórnarárum
Stalíns.
Farið út í öfgar.
1 sovézka tímaritinu Heim-
speldvandainál sem kom út í
gær er kvartað yfir því, að end-
urmatið á hlutverki Stalíns,
sem kom fram á 20. flokksþing-
inu, hafi farið út í öfgar hjá
ýmsum. Sumir flokksmenn
varpi sér úr einum öfgunum í
aðrar og vilji níi hafa að engu
ýmsar kennisetningar, sem séu
í fullu gildi. IBorið hafi á sátt-
fýsi við borgaraleg hugsjóna-
kerfi. Til dæmis vilji nú sum-
ir hefya impressjónismann í
málaralistinni til skýjanna,
enda þótt vitað sé að hvað sem
impressjónistar kunni að hafa
afrekað sé andi impressjónism-
ans ósamrýmanlegur sannri
raunsæisstefnu. ,
Sovézka vísindaakadcmían
gefur út Heimspekivandamál
Nær allar verzlanir eru lok-
aðar 2. jan. vegna vörutalning-
ar, en á Akureyri var þó ein
verzlun sem ekki aðeins var op-
in í gær, heldur beinlínis opnuð
í gær, var það útsala Áfengis-
verzlunar ríkisins á Akureyri.
ÍBorgarar á Akureyri ákváðu
á sínum tíma að vera „þurrir“
og var þá áfengisútsölunni lok-
að. Á sl. hausti samþykktu þeir
að fá „vætu“ aftur og voru
áfengisbirgðirnar fluttar norð-
ur rétt fyrir jólin, en sala ekki
hafin fyrr en í gær. Viðskipti
gengu greiðlega að því sagt var.
1
Stjórnarkjör er yfirstandandi í Sjómannafélagi Reykja-
víkur. Kosið er alla virka daga frá kl. 10—12 f.h. og
3—6 e.h. í skrifstofu félagsins, Alþýðuhúsinu, 1. hæð.
Kosið er um tvo lista, A-lista fráfarandi stjórnar og
B-lista sem borinn er fram af starfandi sjómönnum.
Sjómenn, kjósið nú þegar, kjósið B-listann, vinnið
fyrir B-listann.
Munið: X B-listi
Fimmtudagur 3. janúar 1957 — 22. árgangur — 1. tölublað
leim mnna ekki eins gott velurfar
nú í nóv. og des. fyrir norðan
Sérkennileg áramótaskreyling
Sigllirðinga
Siglufirði. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
í nóvember og desember sl. var ákaflega gott veður
svo menn muna vart jafnmilda tíS hér á þessum árstíma.
Báðir bæjartogaramir komu
mn af veiðurn fyrir jólinn, ann-
ar 270 lestir en hinn 280. Voru
þeir báðir í höfn fram yfir jól-
in.
Á áramótunum var fjallshlíðin
skreytt hér að vanda. f brún-
inni á Hvanneyrarskál var
kveikt á 57 blysum, eða jafn-
mörgum og ár eru liðin af þess-
ari öid. Sá Skiðafélag Siglu-
fjarðar um þá skreytingu.
I hlíðinni beint uppi af bæn-
um mynduðu logandi kyndlar
ártalið 1957.
Þrjár stórar áramótabrenn-
ur vom haldnar og margar
smærri, er unglingar héldu. Á
gamlárskvöld voru skemmtanir
i þrem húsum og segir lögregl-
an allt hafa farið mj'g frið-
samlega fram um áramótin.
Kristján Eldjárn afhendir Snorra Hjartarsyni tilkynn-
ingu um utanfararstyrkinn.
Fyrsta úthlutun úr Rithöf-
undasióði ríkisútvarpsins
Snorri Hjartarson og Guðmundur Frímann
hlutu 8.500 kr. utaníararstyrk hvor
Á gamlársdag var í fyrsta skipti úthlutaö styrkjum úr
hinum nýja Rithöfundasjóð’i ríkisútvarpsins, og hlutu þá
skáldin Snorri Hjartarson og Guömundur Frímann,
8.500 kr. hvor.
Sjóður þessi var stofnaður
í sambandi við samninga ríkis-
útvarpsins og rithöfunda og
lagði ú'tvarpið fram stofnfé.
Verður vöxtum og öðrum tekj-
um úthlutað árlega, en óbundið
er hversu margir fá styrk
hverju sinni. Styrkina skal
nota til utanfai'ar, og er til
þess ætlazt að rithöfundar
leggi útvarpinu til nokkurt efni
úr ferðalagi sínu.
Ök í stolnum bíl á
nýársnótt
Á nýársnótt var stolið jeppa-
bíl hér í bænum og auglýsti
lögreglan eftir honum. Fannst
hann þá suður i Keflavík og
mun ekki enn vitað hver það
var sem ók héðan til Keflavík-
ur í stolnum bit á nýársnótt.
Styrkjunum var úthlutað
með viðhöfn í Þjóðminjasafn-
inu, og voru' þar staddir
menntamálaráðherra, sjóð-
Framhald á 3. síðu.
Skáiaferö ÆFR
Þrettánda-
fagnaður
ÆFR verður
haldinn í skál-
anum laugar-
daginn 5. jan-
úar. Eins og að undanförnu
verður þar margt til skemmt-
unar. Farið verður frá Tjarnar-
götu 20 kl. 6 síðdegis á laug-
ardag. — Félögum er vinsam-
lega bent á að tilkynna þátt-
töku sem allra fyrst í skrif-
stofu ÆFR, sem opin er dag-
lega kl. 10-19. — Skálastjóm.