Þjóðviljinn - 13.01.1957, Qupperneq 9
Sunnudagnr 13. janúar 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (9
^ ÍÞRÓHIR
RlTSTJÓRfe FRtMANN HELGASON
Wié árumót: þriðja grein:
Er lélagsáhugi að dvína vegna
vöniunar á ungl ingaleiðtogum?
I síðustu grein var rætt um
þá tregðu sem maður verður
var við hjá mönnum að taka
að. sér störf fyrir félögin sem
eru að einhverju leyti bind-
andi eða krefjast einhverrar
fórnar á tíma og kröftum.
Það er eins og að manni
finnisi að þetta fari versnandi,
eða það getur líka verið að
hinar bættu aðstæður krefjist
svo miklu meiri mannafla en
áður var að áhugavinnukraftur
félaganna aukist ekki að sama
skapi og möguleikarnir til
aukins félagsstarfs.
Fleira mun það sem truflar.
Mikilli vinnu er oft um kennt
hvað rnenn séu tregir til starfs
og æfinga. Hin mikla vinna
gefur, af sér mikla peninga
milli handa, og margan hendir
að kjósa heldur að kaupa sér
skemmxun fyrir græddan eyri.
Það er hægara og fljótfengn-
ara eft árangur í félagsstarfi
eða við íþróttaiðkun.
Margir hafa viljað taka
þessa vinnuafsökun alvarlega,
og í mörgum tilfellum er það
hægt. Við nokkuð nákvæma
athugun á þessu fyrirbæri yfir
nokkurt tímabil, kom í ljós
að afsakanir vegna vinnu voru
sannar í annað hvert sinn, en
alltaí var vinna notuð sem af-
sökun, þessir piltar voru ekki
lakari drengir en gerist, en
samt tóku þeir til þessara ráða
til að losna við félagslegar
skyldur. Þetta er ærið íhug-
unarefni fyrir þá sem íþrótta-
hreyfingunni stjórna. Þetta
gæti 'bent m. a. til þess að fé-
lagsáhugi væri minnkandi.
Ekkert mun hafa verið gert til
að rannsaka þetta af ábyrgum
aðilum, en þess er full þörf,
að reyna að finna hvað veldur
því að íþróttahreyfingin verð-
ur ár eftir ár að hvíla á
sömu fáu herðimum sem í
flestum tilfellum eru ofhlaðn-
ar.
E ngllijagast arf ið
vasKrækt
Árið sem leið gaf lítil fyrir-
heit meðal félaganna yfirleitt
um ,að nein stefnubreyting
væri um starf þeirra meðal
unglinganna. Þar eru að vísu
nokkur félög sem gera heiðar-
legar tilraunir til þess að sinna
þessum þætti félagslífsins, en
þau eru allt of fá. Ef til vill
er þar að finna eina þýðingar-
mikla ástæðu tii þessara van-
halda. Hingað til hefur í-
þróttahreyfingin ekki verið á
verði um þennan þátt félags-
lífsins. Samt er það svo að
þar á að leggja grundvöllinn
undir félagslífið. í þann jarð-
veg á að sá því fræi sem á að
bera ávöxt síðar meir. En það
er ekki von til þess að betur
takist, meðan yfirstjórnir mál-
anna, héraðsstjórnir og félög
taka ekkí höndum saman til að
leysa þetta sameiginlega mál.
Þebta á að vera stefnuskrár-
mál, sem aldrei er frá hvikað
og tekið með í ársáætlun sem
fast mál. Hér ber sjálfsagt að
sama brunni og áður: og sömu
kveinstafir: það vantar menn.
Við segjum alltaf að í-<
þróttahreyfingin sé hreyfing
æskunnar, en við gleymum að
byggja hana upp sem slíka.
Við segjurn að íþróttirnar eigi
að vera fyrir fjöldann, en við
getum ekki tekið á móti fjöld-
anum, til þess vantar menn
sem vilja vinna af áhuga að
málinu.
Við hvetjum foreldra til þess
að senda okkur börnin sín en
við verðum að segja við börnin:
Okkur vantar menn til þess
segja ykkur til í félagslegum
og íþi-óttalegum efnum. Og
þannig eru hundruð og þús-
undir ungmenna skrifuð inn í
félögin en þau verða aldrei
annað en nafn í félagaskrá, og
það þótt aðstaða sé til að taka
á móti þeim.
Það er einmitt á þessum
aldri sem á að sá anda og hug-
sjón íþróttanna í huga unga
fólksins.
Það eru haldin þing sam-
banda og ráða árið um kring
með litlu millibili, og á þetta
heyrist varla minnst og ekkert
raunhæft gert, engin samþykkt
gerð sem þó oft er gripið til
þegar friða á samvizkuna. Aft-
ur á móti er karpað um smá-
muni tímum saman, atriði sem
enga þýðingu hafa fyrir stax-f-
ið í heild. Á þessu ári verður
Ársþing íþróttasambands ís-
lands haldið. Það er hirm eig-
inlegi aðili sem á að láta þetta
mál til sín taka fyrst og fremst,
og ganga frá samstarfi við alla
aðila niðurúi’. Þar verður að
ganga frá áætlun um unglinga-
leiðbeinendur í öllum íþrótta-
félögum sem ungt fólk safnas't
í. Til þess vex-ður að veita
nokkurt fé, það er óhjákvæmi-
legt og því er ekki betur var-
ið til annars. Þá fyrst er von
til þess að skipulegt æskulýðs-
starf geti þróazt í íþróttahreyf-
ingunni.
Þá fyrst er í rauninni kom-
inn grundvöllur fyrir unglinga-
ráð ÍSÍ að starfa, en þau hafa
aldrei getað aðhafst neitt, fyrst
og fremst vegna deyfðar og
drunga sem ríkt hefur í félög-
unum um þessi mál.
Endui-skoðun íþróttalaganna
og leiðbeinendur
Á árinu sem var að líða voru
íþróttalögin endurskoðuð eftir
16 ár. í því sambandi var
skorað á íþróttaforustuna að
beita sér fyrir því að fella
nýjan kafla inn í lögin sem
markaði nokkur tímamót, fyrir
íþróttahreyfinguna. Var hann
á þá lund að ætluð yrði á ári
hverju nokkur fjárupphæð til
þess að hægt væri að ráða
leiðbeinendur í ýmsum íþrótt-
um til að starfa á íþi-óttasvæð-
um þann tíma sem skólar störf-
Framhald á 10. síðu.
Sviar hafa setí 29 met i fr]áh-
um íþróttum i ár
1 Svíþjóð hafa verið sett 29
met í frjálsum íþróttum á þessu
ári, 27 þeirra eru ný met en
tvö eru metjöfnun (langstökk
karla og kvenna). Tvö af þess-
um 27 eru sett af landssveit-
um.
KARI.AR:
200 m Jan Carlsson 21,2
800 m Dan Wærn 1,48,9
880 jardar Dan Wærn 1,49,2
1000 m Dan Wærn 2,20,9
1500 m Dan Wærn 3,42,0
1500 m Ingvar Ericsson 3,41,2
Hindr. Gunnar Tjörnebo 8,48,0
1000 m boðhl. sveit MAI 1,55,0
Langstökk Torgny Wáhlander
7,53.
Kúluvarp: Erik Uddebom 16,68
Kúluvarp: Erik Uddebom 16,69
Kúluvarp: Erik Uddebom 16,72
Sleggjukast: Birgir Asplund
58,56
Stúlkurnar tvær á myndinni eru í hinum fræga, sænska
sýningaflokki Idla-flickor.
Sleggjukast:
59,02.
Birgir Asplund
KONUR:
100 m: Ulla-Bidtt Olofsson 11,9
80 m grind.: Stina Cronholm
11,6
80 m grind.: Stina Cronholm
11,5
4X100 m: sveit frá Ymer 50,1
4X200 m: sveit frá Ymer
1,45,2
Langst. Greta Magnússon 5,69
Hástökk: Gunhild Larlting 1,65
Hástökk: Gunhild Larking 1,67
Spjótkast: Ingrid Almqvisfc
48,56
Spjótkast: Ingrid
48,69
Spjótkast: Ingrid
51,60.
4X100 m Trollsás-Malmros-
Westlund-Jan Carlsson 40,7
4x400 m Brennström-Jan
Carlsson-Lennard Johnsson-
Alf Pettersson 3,11,4.
Almqvisfc
Almqvisfc
Dr. Hallgrímur Helgason
ílytur erindi í svissneska
útvarpið
í kvöld, sunnudag 13. janúar,
kl. 0,20 eftir miðnætti að ís-
lenzkum tíma, flytur dr. Hall-
grímur Helgason í svissneska
útvarpið Beromiinster eidndi
með fjölmörgum söngdæmum.
um elztu alþýðumúsík íslend-
inga. Nefnist erindið „Hljómar
frá löngu liðnum öldum“. Að
loknum þessum þætti syngur
Eskild Rask Nielsen frá kon-
unglegu óperunni í Kaupmanna-
höfn nokkur af lögum Hall-
gríms til kl. 1.15. — Utvarp
Svisslendinga er á bylgjulengd
567 m.
Brasilíumenn bezfir i knattspyrnunni
Ef maður lítur yfir- listann
um landsleiki þá sem háðir
hafa vérið á árinu 1956 verður
maður fljótt var við það að
löndin í Suður-Ameríku vii’ðast
langduglegust í leikjunum. Arg-
entínumenn hafa t.d. háð 17
leiki á árhxu, og þeir láta sér
ekki nægja að leika einn leik á
ári við grannríkin. Fjórir leikir
voru þreyttir við Uruguay og
jafnmargir við Brasilíu, og svo
er áhuginn mikill að fólk þreyt-
ist aldrei að koma og horfa á
þessa leiki.
CBÍrasilía hefur þó háð flesta
leiki á árinu eða 23 alls, þar
af þrjá við Tékkóslóvakíu.
Brasilía er líka það land, sem
er með bezta útkomu eftir árið.
Þjóðverjunum hefur ekki tek-
izt að komast uppúr öldudaln-
um sem þeir hurfu í strax eft-
ir sigux-inn í H.M. 1954. Á
þessu ári hafa þeir háð 9 leiki
og unnið aðeins tvo.
Þrátt fyrir það að Rússar
yrðu ÓL-meistarar á árinu var
fi’ammistaða þeirra síðari hluta
ársins ekki eins góð og búizt
hafði verið við, og hafa þeir
orðið fyrir mikilli gagnrýni. í
fyrsta simi tapaði liðið heima
fyrir Ungverjum, það var
skömmu eftir að þeir tóku á-
kvörðunina urn að hætta við
Melboui-neför með knattspyrnu-
lið sitt.
Ungverjarnir töpuðu líka
heima á árinu og var það móti
Tékkum, en það hafði ekki
komið fyrir 14 sl. ár.
Bi’ezka landsliðið hefur ekki
tapað neinum leik á árinu og
hefur það þó leikið 9 leiki.
Telja kunnugir að miklar líkur
verði til þess að Bretar verði
erfiðir á H.M. næsta ár.
Lúxemborg, sem við kom-
umst í kynni við í sumar í
fyrsta sinn, varð óvenju sig-
ursælt. Undanfarin ár hefur það
yfirleitt tapað fyrir nágrönn-
um sínum og það þó þeir fái
að leika með A-lið sitt móti B-
liðum grannlandanna. Nú brá
svo við að þeir unnu alla leiki
sína við B-liðin: Frakkland 2:0,
IBelgíu 1:0 og Sviss 4:1.
Sem kunnugt er háði landslið
okkar tvo landsleiki, við Eng-
land og Finnland. Til gamans
verður getið leikja þessara
landa á árinu:
Finnland
Finnland
Finnland
Finnland
Finnland
Finnland
England
England
England
England
England
leiki þá sem leiknir voru á ÓL
Melborunie í nóv.des. Listinn
er ekki í þeirri röð sem leikirnir
vom leiknir:
Ástralía — Japan 2:0
Ástralía ■
Búlgaría
England
England
Indland -
Búlgaría
Indónesía
Indónesía
Júgóslavía
Að lokum er svo skrá yfir
leiki 56 landa sem leikið hafa
landsleiki á árinu 1956:
23 11 6 6 37-26 28
17 10 5 2 24-13 25
13 10 1 2 32-11 21
— Indland 2:4
— Sovétríkin 1:2
— Thailand 9:0
— Búlgaría 1:6
— Júgóslavía 1:4
— Indland 3:0
— Sovétríkin 0:0
— Sovétríkin 0:4
a — Bandaríkin 9:1
a — Þýzkaland 2:1
i —Júgóslavía 1:0
Brasilía
Argentína
Sovétríkin
England
atvinnum. 9
áhugamenn 7
Jugóslavía " 14
Ungverjaland 10
Búlgaría
630 25-9 15
41221-14 9
6 2 6 42-2114
5 2 3 23-19 12
7 511 20-8 11
England 1:5 Holland 7 51115-13 11
Svíþjóð 1:3 Uruguay 9 4 2 3 11-10 10
ísland 2:1 TékkóslóVakia 11 4 2 5 16-17 10
Noregur 1:1 Chile 10 41519-17 9
Danmörk 0:4 Skotland 5 2 30 7-4 7
(HM) Pólland 0:5 ítalía 6 312 8-5 7
Búlgaría 3:3 Svíþjóð 6 231 9-7 7
Danmörk 2:1 Sviss 7 2 3 2 12-14 7
Island 3:2 írland 3 30 0 9-2 6
Thailand 9:0 Kórea 4 301 6-2 6
Búlgaría 1:6 Frakkland 5 3 0 2 12-9 6
Burma 2:0 Pólland 8 2 2 4 14-14 6
;r á eftir listi yfir Tyrkland 7 2 23 9-11 6
Noregur
Portúgal
V-Þýzkaland
Costa Rica
2 2 3 11-14
211 8-5
2 161 ‘ -19
212 li-. I
6
5
5
FramhaM á 10. siðu.