Þjóðviljinn - 13.01.1957, Síða 11
83. dagur
Ferö vélanna yfir þetta djúp var aðeins sýnileg vegna
siglingaljósanna. Ljósin á Fjórum-tveim-núll voru á víxl
rauð, hvít og græn eins og venja er á farþegavéium.
Ljósin á björgunarvélinni breyttust ekkert. Þær komu
næstum samstundis út úr skýjaþykkninu í vestri og
héldu þfram að bakkanum í austri eins og þær væru
teymdar af ósýnilegum þráðum.
í nokkrar mínútur þokuöust þær samsíða yfir gjána,
gáfu hvor annarri merki með lendingarljósunum, eins
og eldflugur. Þegar vélarnar nálguðust austurbakkann
var hægt að marka smæð þeirra af því hve hægt þær
virtust fara. Þrátt fyrir raunverulegan hraða. þeirra,
virtust þær skreiðast áfram í austurátt, og þegar skýin
gleyptu þær að nýju var eins og þau yröu þeirra ekki
vör.
Mennirnir sem réðu hinni haltrandi ferð vélarinnar
Fjórir-tveir-núll, voru löngu hættir að hugsa um loftiö
umhverfis. En þó færði skýjarofiö þeim nokkra fróun,
því aö þeir sáu raunverulega hina vélina og gátu nú
trúað því að þeirra eigin heimur heföi ekki sleppt af
þeim hendinni. Þegar þeir sáu B-17 í raun og veru, sáu
tignarlegar útlínur hennar bera við stjörnubjartan him-
in, var þaö þeim meira virði en öll loftskeytasamtöl við
ópersónulegar raddir. Þótt þeim væri ljóst að mennirnir
á B-17 voru þess ekki megnugir að færa þéim bráða
hjálp — þeir gátu ekki fleygt út kaðli og dregið skrapa-
tólið heim — þá losnuðu þeir við þá tilfinningu að þeir
væru utan við heiminn. Þetta ásamt meiri kyrrð í lofti
og uppstyttunni varö til þess að þeim varð léttara um
hjartað, og breytni þeirra varö aftur eins og þeir gætu
ráðið einhverju um framtíðina. Og þeir horfðu með á-
kefð út um gluggann til vinstri, hölluðu sér hver yfir
annán, skyggðu fyrir augu og störðu á B-17, drukku í
sig fögnuðinn yfir nærveru hennar.
Sullivan rauf leiðslu þeirra rétt áður en þeir hurfu
inn í austurvegginn, og rödd hans hafði endurheimt
nokkuð af festu sinni.
,,Hobie“, sagöi hann einbeitnislega. „Farðu nú aftur í.
Ban kemur í þinn stað. Taktu Gibson stelpuna með þér
og búöu farþegana undir nauðlendingu. Þú hefur næg-
an tíma .... og þú skalt nýta hann. Eg kveiki á ör-
yggisbeltamerkinu tíu mínútum áður en við skellum
okkur niður. Hafðu þá allt tilbúið. Þegar ég kveiki á
Reykingar bannaðar, þá skorðið þið Spalding ykkur.‘.‘
„Hvað um afturdyrnar?“ Hobie tók af sér heyrnartæk-
in og hengdi þau varlega á krók við hliðina á sætinu.
Hann strauk ósjálfrátt yfir hárið og reis á fætur. Ungt
andlit hans var rennsveitt og augu hans voru þokuleg,
eins og hann hefði verið að vakna. Hann virtist jafn-
vel yngri en tuttugu og tveggja ára, það var eins og
þreytan og áhyggjurnar hefðu fært hann nær bernsku
sinni. „Hvenær á ég að opan afturdyrnar?“
„Strax og þú ert viss um að við séum stanzaðir. Flýttu
þér ekki .... mundu það. Komdu fólkinu út á flekann
og bíddu eftir okkur eins lengi og þú getur. Ef við
getum öll verið saman .... þá verður þaö þeim mun
skárra.“
„Allt í lagi.“ Hann steig niður af pallinum við hliðina
á Sullivan. Hann leit hugsandi á Leonard og síðan á
Dan. Þetta var aðskilnaður sem honum var sýnilega
þvert um geð. Nú yrði hann að taka ótal ákvarðanir á
eigin spýtur, og þótt þær væru ef til vill smávægilegar,
þá vissi hann að þær urðu að vera réttar.
„Gangi ykkur vel, strákarj" sagði hann vandræðalega.
Hann reyndi að brosa og gekk siðan meö semingi að
dyrunum aftur í. Þpgar hann gekk gegnum áhafnar-
klefann tók hann Gibson stelpuna niður af hillunni
sem hún var á. Þetta var lítil, ótrúlega fullkomin sendi-
stöð sem hafði hlotiö nafn af löguninni á hylkinu sem
hún var í. Hobie, sem var alls ekki viss um uppruna
nafnsins, því að 'hann minntist þess ekki að hafa
nokkru sinni séð kvenmann í kvikmyndum sem bar
nafnið Gibson, hugsaði einkum um tæknilega mögu-
leika tækisins. Hann rifjaði upp í huganum hverju það
gat áorkað, og mundi þaö að þótt hann gæti haldið á
því undir hendinni, haföi það bjargað fjölmörgum
mönnum í neyð. Ef snúið var sveif hejrðist S O S merk-
ið í hundraö mílna fjarlægð og hvaða skip eöa flugvél j
,*m var gat heyrt það. Hanr, vlssi að þetta tæki var af 1
Sunnudagur 13. janúar 1957 — ÞJÖÐVILJINN — (11
nýjustu gerö og útbúið með nýrri neyðarhringingu.
Þetta var í rauninni dásamlegt, lítið tæki, sem þoldi
hina verstu meðferð — en samt sem áður hélt Hobie
því varlega upp að síðunni þegar hann gekk út um
dyrnar.
„Gott og vel, Dan,“ sagði Sullivan. „Eg skal taka við
henni.“ Hann hallaði sér fram og tók um stýrið meöan
Dan smeygði sér út úr sætinu. Augu þeirra mættust
um leiö og þeir skiptu um sæti, en þeir sögöu ekki neitt.
Vélin kipptist til um leið og hún fór aftur inn í skýja-
þykkniö og regnið helltist aftur reiðilega yfir þá.
Dan settist ekki strax í sæti Hobies. Sullivan hafði
sett á sig heyrnartækin, og ef þörf var á sambandi
næstu mínúturnar, gat hann sjálfur séð um að koma
boðum sínum.
Dan virti fyrir sér mælana og neyddi sjálfan sig til
að lesa af þeim með bölsýni. Svo framkvæmdi hann ein-
faldan reikning. BenzínmagniÖ í öllum geymunum var
nú tvö hundruð og tuttugu gallón! Tvö hundruð og
tuttugu gallón í flugvél sem eyddi því nær tvö hundruö
gallónum á klukkustund. Þetta voru einfaldar jöfnur.
Of einfaldar. Eitthvað hlaut aö gerast bráðlega.
Leonard beygði sig yfir rafmagnshæðarmæli sinn og
stoppúriö og reyndi að sannprófa vindhraöann, sem
hann var þegar búinn að mæla. Dan þokaði sér til
hans.
„Nokkuö nýtt um vindinn, Lennie?“
„Nei.“
„Þá erum við ekki sérlega vel birgir?“
„Nei. Eg vildi óska .... Ó, guð minn góður, ég vildi
óska að við hefðum benzín í tíu mínútur í viðbót. Að-
eins tíu mínútur . . . . “
„Ertu viss um að það nægði, Lennie? Ertu alveg viss
núna? Dan var aöeins eilítið forvitnislegur, og rödd
hans var eins róleg og um venjulega flugferð væri aö
ræða. Hann hefði eins vel getað verið aö spyrja Leonard
aö því, hvort hann vissi hvað mörg mörk hefðu verið
skoruð í fótboltakeppni. Sem hann stóð þarna og neri
örið á kinninni með hægð, hafði hann róandi áhrif á
Leonard og hann hló beizklega.
„Eins og þeir segja í bókunum .... Nú hef ég gengið
nákvæmlega úr skugga um rétta stöðu okkar. Tíu
mínútna benzínmagn í viðbót gæti bjargað okkur.“
„Hvað þyrfti að hvessa mikið til að koma þessu í
kring?“
„Um tuttugu hnúta á næstu klukkustund.“
„Þú biöur ekki guö um lítið.“
„Það er óhugsandi, svo að ég bið þess ekki einu sinni.
Skólanemarnir
Framhald af 1. síðu.
fjölda eru 26 gagnfræðaskólar
og héraðsskólar, 10 húsmæðra*
skólar og 14 iðnskólar. Fastir
kennarar við þessa skóla eru
452.alls. Þar af 111 konur og
auk þess margir stundakenn-
arar. I gagnfræðastigsskólun-
um eru 5930 nem., húsmæðra-
unum 343 nem., bænda- og
garðyrkjuskólum 79 nem. Alls
munu vera í framhalds- og sér-
skólum um 10 þús. nemendur.
Skólabyggingar
I fjárlögum 1956 er veitt fé
til framhalds byggingar barna-
skóla á 24 stöðum og 18 nýrra
barnaskóla. Þá er í sömu lögum
veitt fé til framhalds bygginga
skólunum 343 nem., bænda- og
gagnfræðaskólana á Siglufirði,
Vestmannaeyjum og eins nýs
gagnfræðaskóla í Reykjavík.
Undirbúningi að byggingu
Kennaraskóla Islands og Hús-
mæðrakennaraskóla Islands er
að mestu lokið.
Nýr gagnfræðaskóli tók til
starfa í Reykjavík.
Orlof fengu 8 barnakennayar
á þessu ári og 11 framhalds-
skólakennarar. Dveljast þeir nú
flestir við nám erlendis eða hér
í Reykjavík.
83 millj. kr.
Gjöld vegna skólamája 1955 -
urðu kr. 73.863.033.63. Heildaij-
útgjöld ríkissjóðs voru það ár
kr. 512.492.362.17. Fjárlög
1956 gera ráð fyrir kr.
83.401.657.00 til skólamála.
Ný láunalög geVigu í gildi í
byrjun ársins, mun ha^gstæð-
ari fyrir kennara 'en hin éldri.
Þrátt fyrir það gekk m jög treg-
lega að ráða kennara 'áo 'ýms-
um skólum. Var komið frám í.
nóvember þégár því váf TOKið.
H.H.Í.
S.Í.B.S.
D.A.S.
Happdrætti Háskéla Islands
Til ÞRIÐJUDAGS hafið þér forgangsrétt að fyrrí
númerum yðar.
Eftir þann dag má selja þau öðrum.
10000 vinningar samtals 13.440.000,00 kr.
Hæstu vinningar HÁLF MILLJÓN króna
Enginn vinningur lægri en 1000 krónur.
Útgefandl: Sameinlngarflokkur alþýíu - Sósiallstaflokkurlnn. - Ritstjórar; Magnús Kiartan...-n
^ób ), Slguróur Ouðmundsson. — Préttarltstjórt; Jón Biarnason. — Blaðamenn: Asmundur Sigur-
_ jónsson, BJarnl Bencdlktsson, QuSmundur Vigfússon, fvar H. Jónsson, Magnús Torfi Ólafsson. —
AuglyslngastJórl: Jónstelnn Haraldsson. — Rltstjórn, afgrelSsla, auglýslngar. prentsmlðja: Skólavörðustig 19. — Simi 7500 (3
” Askriftarverð kr. 25 á ménuSt i Rcykjavik og nágren nJ: kr. 22 anngrsstaSar. - LausasöluverS kr. 1. - PrentsmlSJ*
ÞJóðvllJani b.f
þlQÐVILilHK