Þjóðviljinn - 25.01.1957, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 25.01.1957, Blaðsíða 5
Föstudagur 25. janúar 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (5 E. L. M. Burns, kanadíski liers- hiöí'ftinginn, sera hefur verið fomiaður vopnahlésnefndar SÞ I Falestínu síðan í ágúst 1949 og er nú yfirmaður löggæzhi- liðs SÞ sem gæta á friðarins á landamærum ísraels og Eg- yptalands. Ibúðir á Islandi stæm*i en á öðnnn Norðurlöndmn Fimm herbergja ibúðir og stærri eru all- miklu fleiri í bæjum hér á landi f skýrslu sem gefin hefur verið út í SvíþjóÖ kemur í Ijós aö hvei-gi á Norðurlöndum eru íbúðir yfirleitt jafn- I stórar og á íslandi. Þó munar þar litlu á íslandi og Dan- mörku. Það verður einnig l.ióst af þessari skýrslu, sem sænska hag- stofan gaf út, að meira er byggt af stórum íbúðum á ís- landi en i nokkru öðru Norður- landa. 28,9% allra ibúða í bæjum á íslandi eru 5 herbergja ibúðir eða stærri. Samsvarandi hlut- fallstala er í Danmörku 27,3%, Harðar árásir demókrata á stefnu Eisenhowers Samþykkja ekki tillögur hans um steínuna gagnvart löndunum við botn Miðjarðarhafs Leiötogar demókrata í öldungadeild Bandaríkjaþings gagnrýndu í gær harölega stefnu Bandaríkjastjórnar í löndunum fyrir botni Miöjaröarhais og voru einkum haröorðir í garö Dullesar utanríkisráðherra. Foster Dulles mætti í gær í þriðja sinn á sameiginlegum fundi landvarnanefndar og ut- anrikisnefndar öldungadeildar bandaríska þingsins til að gefa þeim skýrslu um afstöðu Banda- ríkjastjórnar til landanna fyrir botni Miðjarðarhafs og hinar nýju tillögur Eisenhowers for- seta um það mál. Hörmulegar afleiðingar Fulbright, öldungadeildarmað- ur írá Arkansas, einn helzti tals- maður demókrata um utanríkis- mál, gagnrýndi harðiega stefnu stjórnarinnar og athafnir Dull- esar utanríkisráðherra. Fulbright sagði að síðan Dull- es hefði tek}ð við stjórn utan- ríkismála hefðu samskipti Bandaríkjanna við aðrar þjóðir komizt í verra horf en þær hefðu verið í áður á þessari öld. Núverandi utanríkisstefna Bbbdaríkjanna hefði leitt til þess að sambúðin við nánustu bandamenn þeirra hefði stór- versnað. Hann lagðist gegn þvi að þing- ið samþykkti að veita Eisenhow- er forseta sérstaka heimild til að ráða stefnunni gagnvart lönd- unum fyrir botni Miðjarðarhafs, nema að vel athuguðu máli. Dulles biöur um traust Dulles svaraði því til að ástandið fyrir botni Miðjarðar- hafs væri nú mjög hættulegt og tvísýnt. Þingið yrði að sýna Eisenhower forseta jtr'aust ef Bandaríkin ættu að geta gert sér vonir um sigur í átökunum við Sovétríkin um áhrif í þessum Iöndum. Bretar leita skæruliða í suðvesturhluta Kýpur Segjasi hafa handtekið þijá leiðtoga þeirra og tekið mikið af vopnura og skotfærum Brezkir hermenn hafa aö undanförnu gert mikla leit aö stoövum skæruliöa á Kýpur og stendur sú leit enn. Bretar tilkynntu í gær aö þeir hefðu handsamaö þrjá af leiðtogum skæruliða. Fimm þúsund sterlingspund köfðu verið lögð til höfuðs hverjum þeirra, eða samtals um 700.000. krónur. Tveggja þess- ara manna, Karadimas og Greorgiadis, hefur verið leitað eíðan í október í haust, en þá sluppu þeir úr haldi í Nicosia. Sá síðarnefndi slapp úr sjúkra- húsi þar í borg, eftir að nokkr- ir félagar hans höfðu ráðizt á brezku hermennina sem gættu hans. Fjórir menn biðu bana 3 þeirri viðureign. Bi-etar segjast hafa hand- tekið 15 aðra. skæmliða og hafa tekið mikið af vopnum og skot- færum. Leitinni sem nær yfir 1500 ferkílómetra svæði í fjöllum á suðvesturhluta eyjarinnar verð ur haldið áfram, og segja Bretar að hún sé mesta aðgerð þeirra. gegn skæmliðum siðan stríðið hófst á Kýpur. Þeir segjast hafa fundið marga felustaði skæruliða fjöllunum og fjallaþorpum og hafi ýunsir þeirra verið á prestsetrum. í Noregi 17%, í Svíþjóð 11,3% og í Finnlandi 6,2%. í ýmsum öðrum löndum eru stórar íbúðir algengari, i Bretlandi er hlut-y fallstalan 52,2%, í Hollandi 62,8 en hins vegar aðeins 19,1 í . Frakklandi. Meðalstórar íbúðir, 3—4 her- bergja, eru tiltölulega fleiri á íslandi en í Svíþjóð og Finn- landi, 59,3% á móti 43,6 og 25,5, en færri en í Danmörku, 65,8% og Noregi 60,0%. Smáíbúðir, 1—2 herbergja eru tiltölulega fæstar í Danmörku, 6,9%, en næst kemur ísland, 11,8, þá Nor- egur, 23,0, siðan Svíþjóð 45,2 og síðast Finnland, 68,3. Hinn mikli fjöldi smáíbúða i Svíþjóð og Finnlandi á rætur sínar m. a. að rekja til þess að þar hefur verið leitazt við að leysa húsnæðisvandamálið með því að byggja sem flestar ibúð- ir, þó það yrði til þess að þær yrðu minni. Á íslandi hafa hins vegar aðallega verið byggð- ar stóríbúðir og má t. d. nefna að í Reykjavík var tæplega helmingur nýbyggðra íbúða á árunum 1949—54 5 herbergja og stærri. Herstöðvor ó tunglinu? Bandaríski eldflaugafræðing- urinn G. E. Pendray sagði ný- lega samkvæmt Reuter, að það ríki sem fyrst yrði til að koma sér upp eldflaugastöð á tungl- inu myndi ná hernaðarlegum yfirráðum á jörðinni. Hann taldi að slíkt yrði kleift innan 20 ára. Pendray sagði að fyrsta ríkið sem eignaðist eldflaugastöð á tunglinu myndi drottna yfir heiminum, af því að hið litla þyngdarafl á tupglinu myndi gera því kleift að senda afl- litlar, ódýrar eldflaugar út í geiminn og til jarðarinnar fyr- ir aðeins sjötta hluta þess fjár sem kostar að skjóta eldflaug út í geiminn frá jörðinni. Hann taldi að það væri þetta fyrst og fremst sem væri ástæð- an til þess að stórveldin eru svo fús til að eyða óhemjufé í til- raunir með eldflaugar. Sérfrceðingar Sameinðu þjóðanna koma víða viö. Þeir gera jarðfrœðilegar athuganir í Himalajafjölluvi; þeir reyna aö koma mönnum upp á aö borða fisk; þeir leita uppi fílaveiðimenn til að benda þeim á að taka upp sam- vinnurekstur í verzlun með fíla; þeir gei-a tilraunir með að framkalla rigningu. Hér á myndinni sést einn þeirra, s&rfrœðingur í nautgriparækt, í Honduras þar sem hann miðlar bœndum af þekkingu sinni. Mótmæli wegn skipim Speidels • r sem Skipun Hans Speidels í eitt æðsta herstjórnarembætti Atlanzbandalagsins hefur mælzt illa fyrir í öllum þeim löndum Evrópu sem urðu fyrir baröinu á hinum þýzka her og foringjum hans í síðasta stríöi, ekki sízt í Frakk- landi. Franska blaðið Le Monde skýrir frá þvi að haldinn hafi verið fundur í samtökum manna sem börðust í frönsku and'- spyrnuhreyfingunni á stríðsárun- um („l’Association national des anciens eombattants de la res- istance") til að taka afstöðu til skipunar Hans Speidels í eitt æðsta herstjórnarembætti Atl- anzbandalagsins, en hann er nú orðinn yfirmaður landherja bandalagsins í Mið-Evrópu. Funduriim sem haldinn var skömmu áður en skipun Speid- els var staðfest samþykkti eftir- farandi ályktun: ,,Ýmsar fréttastofufi'egnir hafa hermt að undanfömu, að til stæði að skipa þýzka hershöfð- ingjann Hans Speidel, fyrrver- andi herráðsforingja þýzka hers- ins í Frakklandi og herráðsfor- ingja Rommels í hernaðinum í Normandí, í embætti yfirmanns landshers Atlanzbandalagsins í Mið-Evrópu. ___ Við tölum í nafni allra þeirra manna úr andspyrnuhreyfing- unni, hverjar sem skoðanir þeirra eru, sem eru innan okkar samtaka, og við erum viSsir um Stúdentar o® lögre«la í á- tökmn í Sevilla á Spáni Óeiröir hafa orðiö víöa á Spáni þegar aimenningur undir forystu stúdenta hefur risiö upp gegn hækkun far- gjalda með strætisvögnum. Óeirðir þessar hófust í Barce- lona, en nu hafa einnig borizt fregnir af slikum óeirðum í Sevilla. Borgarbúar þar hættu flestir að ferðast með sporvögnunum þegar fargjaldahækkunin gekk í gildi. Á föstudag í síðustu viku réðust stúdentar á sporvagn í borginni, skipuðu þeim örfáu farþegum sem i honum voru að fara út og veltu honum síðan á hliðina. Lögreglan kom á vett- vang og varð að skjóta aðvör- unarskotum áður en henni tókst stuðning allra frelsisliða og allra þjóðrækinna Frakka; við teljum okkur skylt vegna minn- ingar þeirra, sem voru myxlir og stráfelldir i N-Frakklandi, í Rúðuborg, í Tours, í d’Auboue og í Brest á ábyrgð Speidels og við lýsunx því yfir að Frakkland mun ekki þola að her þess verði lagður undir yfirstjórn Speid- els eða nokkui's annars þýzks hei’shöfðingja.“ Serkir búa sig undir verkfall Dreift hefur verið ílugmiðum meðal Serkja sem búsettir eru í París og er skorað á þá að leggja niður vinnu þá viku, senx búizt er við að umi'æður urn Alsírmálið standi á allsherjar- þingi SÞ. í flugmiðunum var sagt aó verkfali myndi gert í Alsír ú sama. tíma. Ráðagerðir eru uppi um að byggja tvö ný risastór farþega- skip sem sigla eiga milli Evrópu og Bandaríkjanna. Skipin eiga hvort um sig að vera 90.000 lestir. Talið er'að hægt verði að lækka farmiðana allverulega x verði, svo að lægsta fargjald frá Bi-etlandi til Bandarikjanna og heim aftur verði 125 dollarai'! um 2.000 krónur. Skipin, sem eiga að heita Un- ited Nations og Mayflower III eiga að geta flutt 9.000 farþega að dx-eifa mannfjöldanum sem hvort. í þeim eiga að vera loik- safnazt hafði saman. Skotunum I hús, kvikmyndahús, danssalir og var svarað með steinkasti. | alls konar veitingastaðir.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.