Þjóðviljinn - 15.02.1957, Page 3

Þjóðviljinn - 15.02.1957, Page 3
Föstudagur 15. febrúar 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (3 A annað hundrað landanir Slysavarnadeildin Ingólfur 15 ára í dag eru rétt 15 ár liðin síðan slysavarnadeildin ,,Ing- ólfur“ var stofnuö í Reykjavík, en þá var Slysavarnafé- laginu breytt í landssamband og því stofnuö sérdeild í Reykjavík. Framhald af 12. síðu. við Breta hófst. Hvetur fundurinn því til mikilla takmarkana á aflasölum tog- ara á erlendan markað“. 1 því sambandi er rétt að geta þess, að hér er um mis- skilning aÖ ræða þegar talað er um aukningu á Siglingum togaranna eftir að löndunar- deilan við Breta leystist. Fyrsti íslenzki togarinn land- aði í Bretlandi 28. nóvember sl. — Landanir erlendis voru: í október 26, í nóvember 24, í desember 22, í janúar 22, í febrúar um 10 og í marz verða sennilega um fimm landanir er- lendis. Ástæðan fyrir hráefnaskorti hjá frystihúsunum er hins vegar sú, að stöðug ótíð und- anfarið hefur orsakað alveg sérstakt aflaleysi hjá togurun- um. Kyolegur mál- fliÉiingtir ★ Tíminn birti í gær hlið við hlið mynd af frásögn Morg- unblaðsins um verðhækkun á sykri og gamla frásögn úr Þjóð- viljanum þar sem stjórn íhalds og Framsóknar var kennt um verðhækkun á appelsínum Síð- an segir biað forsætisráðherr- ans að þá fyrst fari stjórnar- andstaða Morgunbiaðsins að verða herfileg þegar það fari „sem ákaflegast að feta í fót- spor kommúnista í stjórnar- andstöðunni“ ★ Þetta er kynlegur mál- flutningur. Eins og Þjóðvilj- inn hefur skýrt frá hefur nú- verandi ríkisstjórn ekki lagt eyrisskatt á sykur, sú vöru- tegund hækkar einvörðungu af erlendum ástæðum, okkur ó- viðráðanlegum. Stjórn íhalds og framsóknar lagði hins vegar sérstakt hatur á ávexti á sin- um tima; hún lagði á þá alla hina almennu skatta sina sem námu 10—20% og þar að auki 30% aukagjald. Síðan heimil- aði hún ótakmarkaða álagn- ingu ofan á það, svo að ekki var að undra þótt henni tækist að hækka ávextna geysilega í verði. ★ Vandséð er á hvaða for- sendum Tíminn talar um hlið- stæður í þessu sambandi. Hitt er augljóst að við blaðið eru menn sem ekkert hafa lært og engu gleymt og finna hjá sér hvöt til að verja samstjórn í- halds og Framsóknar, verð- bólgustefnu hennar og hömlu- lausa skattpíningu. Þeir virð ast ekki hafa tekið eftir þvi að forustumenn Framsóknar segj- ast nú hafa ver'ð andsnúnir þessari stefnu og vilji óðfúsir faka upp nýtt og betra líf. En Timamenn fá nóg að gera ef þeir ætia í senn að berjast gegn íhaldinu og verja allt sem íhaldið hefur gert í sam- vinnu við■ Frnmsókn! Meðalafli í janúar mun hafa verið um 1-200 tonn á skip, en meðalafli ársins 1956 5-600 tonn á mánuði, eða um 400 tonnum meiri á skip á hverjum mánuði. Um 20 togarar stund- uðu veiðar fyrir heimamarkað í mánuðinum og hefur veðrátt- an þannig haft af fiskvinnslu- stöðvunum um 8000 tonn hrá- efnis. Afleiðing þessa aflaleysis á rekstur togaranna er hins veg- ar sú, að tekjur hvers skips minnka um ca. kr. 400.000.00 á mánuði eða kr. 13.000.00 á dag. Getur hver maður séð hvaða afleiðingu það hefur fyr- ir útgerð, sem var fjárhagslega illa stödd fyrir. MikiU feávaði Alþýðublaðið birf r í gær stóran ramma og segir að kosningarn í Þrótti á Siglu- firð: hafi leitt „í ljós stór- kosilegt fylgistap kommúnista .....marki tímamót í sögu fé- lagsins .... segja má nú að valdatimabili kommúnista í Þrótti sé að ljúka .... Fylgið hrynur af kommúnistum vegna þjónkunar þeirra við erlenda ofbeldisstefnu" osfrv. osfrv. ★ Þetta er óneitanlega mik- ill hávaði. En hvaða „straum- hvörf“ hafa þá orðið á Siglu- firði? Stjómin var öll sjálfkjörin að undanskildum einum manni, Alþýðuflokksmanninum Jó- hanni Möller. Hann hefur ver- ið ritari í félaginu að undan- förnu en nú kom fram tillaga um að leysa hann frá því starfi, vegna þess að hann er einn af þeim ólánsmönnum Al- þýðuflokksins sem æfinlega eru reiðubúnir til að gerast hlaupagikkir íhaldsins. Jóhanni Möller tókst hinsvegar að halda vel’i í kosningunum með sam- eiginlegum stuðningi Alþýðu- flokks. íhalds og Framsóknar — og Morgunblaðið, málgagn atvinnurekenda, var svo ánægt að það birti þriggja dálka fyrirsögn um þennan stórfellda sigur Sjálfstæðisflokksins' ★ Það var þannig eining í Þrótti um alla þá „kommún- ista“ sem uppstillingarnefnd stakk upp á. Ágrein ngurinn var cingöngu um einn fram- bjóðanda úr Alþýðuflokknum. Honum tókst að halda velli með stuðningi atvinnurekenda- flokksins. Þetta eru hinar ó- brolnu staðreyndir málsins — t lefni hinna ferlegu óhljóða Alþýðublaðs'ns um fylgishrun og tímamót! Það er auðséð að Alþýðublaðið telur það hið mesta undur að Alþýðuflokks- manni skuli takast að ná end- urkosn'ngu í verklýðsfélagi, og hafa þeir varla fengið harðari dóm hjá öðrum. Ulfljótur, tíma- rit laganema 10 ára í dag I dag er tímarit lagastúdenta, Úlfljótur, 10 ára. 15. febrúar 1947 var ákveðið á fundi í Ora- tor, félagi laganema við Há- skóla íslands, að efna til út- gáfu tímarits og kom fyrsta hefti þess út nokkrum dögum síðar undir fyrrgreindu nafni. Siðan hefur Úlfljótur komið út nær óslitið og reglulega í 10 ár. Jafnan hefur verið kapp- kostað að í hverju hefti væri a. m. k. ein grein lögfræðilegs efnis og hafa ýmsir mestu laga- menn hér á landi átt greinar í ritinu. Um tíma var Úlfljót- ur eina fræðiritið í lögfræði á tslandi og ekkert lögfræðitima- rit hér á landi hefur komið lengur út. — í dag kemur út 1. tbl. 10. árg. af Úlfljóti. Hefst það á greininni Véfang eftir Ólaf Lárusson prófessor. Þá eru í heftinu þættir úr sögu Orators, er núverandi ritstjóri Benedikt Blöndal hefur tínt saman, viðtal við fyrsta rit- stjóra Úlfljóts, Þorvald G. Kristjánsson o. fl. Á morgun 16. febrúar, af- mælisdegi Hæstaréttai’, efna laganemar til árlegrar hátíðar í Silfurtunglinu. tJS auknum viðsJciptum er auglýsing i Þjóðviljanum Hinn 15._febrúar 1942 var, að tilhlutan Slysavarnafélags ís- lands haldinn fundur í kaup- þingssalnum til þess að stofna deildina. Forseti Slysavarnafé- lagsins Guðbjartur Ólafsson, stjórnaði fundinum, en Árni Arnason kaupm. var ritari fund- arins. Fyrsti formaður deildarinnar var kosinn séra Sigurbjörn Ein- arsson, sem var það í nokkur ár. Aðalverkefni deildarinnar hef- ur jafnan verið það að safna fé til slysavarnastarfseminnar og hefur hún, á liðnum 15 árum, alls lagt rúmlega hálfa milljón króna til höfuðstöðva Slysa- varnafélagsins, hefur fé þetta einkum safnazt á merkjasölu- daginh, 11. maí, en einnig á sýn- ingum í Tívolí og á björgunar- sýningum, sem deildin hefur gengizt fyrir. „Ingóifur“ hefur gengizt fyrir útvarpskvöldum fyrir SVFÍ, lát ið halda fræðslunámskeið, slysa- varnavikur o. fl. Ennfremur er starfandi björgunarsveit á veg- um deildarinnar, sem oft hefur veitt hjálp þegar skip hefur strandað hér í nágrenninu. Þá hefur og stjórn deildarinnar stutt mjög að byggingu björgunar- skýlis hér í Reykjavík. Séra Jakob Jónsson var for- maður deildarinnar um árabil, en núverandi formaður er séra Óskar J. Þorláksson. f tilefni afmælisins, gengst slysavarnadeildin „Ingólfur“ fyr- ir kvikmyndasýningu í Gamla Bíó á morgun (laugardag) þar verður m. a. sýnd hin vinsæla látrabjargsmynd í þýzkri út- gáfu. Formaður deildarinnar mun flytja stutt ávarp á undan sýningunni. Hljómsveitar- stjóri Framhald af 12. síðu. stjórnað hljómsveitum víða utan heimalands síns sem gest- ur, m.a. í Póllandi, Ungverja- landi, Englandi, Austurríki og Frakklandi og víðar í Vestur- Evrópu. Á öllum þessum stöð- um hefur hljómsveitarstjórn Smetácek hlotið hina beztu dóma gagnrýnenda. Er blaða- menn ræddu við hinn tékkneska hljómsveitarstjóra og forstöðu- menn Sinfóníuhljómsveitarinnar í gær, kvaðst Jón Þórarinsson framkvæmdastjóri hljómsveit- arinnar vænta þess fastlega að tónleikarnir á mánudagskvöld- ið yrðu mjög góðir og eftir- minnilegir, æfingar og undir- búningur fyrir tónleikana und- anfarna daga sýndu að hér væri á ferðinni mjög snjall hljómsveitarstjóri. — Þess skal að lokum getið.að ekkert tón- verkanna á efnisskrá Sinfóníu- hljómsveitarinnar hefur áður verið flutt hér opinberlega. ALLT Á SAMA STAÐ Ný tegund ai CHflMPIOM-bílkertum: „KRAFTKVEIKIUKERTI" (Poweifire) Bifreiðin eykur afl sitt að mun við notkun nýrra OHAMPION „Kraftkveikjukerta“ (Powerfire). Ný 5 grófa CHAMPION „Kraftkveikjukerti (Powerfire), gefa fljótari og öruggari ræsingu. Ný CHAMPION „Kraftkveikjukerti“ (Powerfire) eyða benzín- inu ekki að óþörfu og skemma ekki vélina. Hinar stórkostlegu nýju „kra,ftkveikju“- (Powerfire) platínur endast betur en venju- legar. — Gjörnýta afl vélarinnar. Biðjið aðeins um CHAMPION „KRAFTKVE1KJU“ (Powerfire) bifreiðakerti H.F. EGILL VILHIALMSS0N — LAUGAVEG 118 —SÍMI 81812 IR KHAK1 -A>

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.