Þjóðviljinn - 10.03.1957, Page 5
I
Sunnudagur 10. marz 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Tindar Tatrafjalla gnœfa yfir Strbavatn, sem
liggur hæst vatnanna í Tatrafjöllum í 1350 metra
hæö yfir sjávarmál. Greniskógur umlykur vatnið
og teygir sig upp fjallshlíðarnar.
Tatrafjöllin háu eru meðal
hæstu fjallgarða Evrópu,
ganga næst Alpafjöllum,
Kákasusfjöllum og Pyrenea-
fjöllum. Hæstu tindarnir eru
hátt á þriðja þúsund metra.
Þau eru víðfræg fyrir stór-
hrotna og sérkennilega nátt-
úrufegurð, heilsusamlegt lofts-
lag og þurrviðri. Fjöllin hafa
með lögum verið gerð að ein-
um af þjóðgörðum Tékkóslóv-
akíu, sem nær yfir 120.000
liektara. Þar eiga villtur gróð-
ur og fjölskrúðugt dýralíf
griðastað undir þverhníptum,
gnæfandi tindum innanum
hyldjúp og blátær fjallavötn.
Fterðamaður, sem leggur leið
sína eftir sléttunni til Tatra-
fjallanna háu í fyrsta skipti,
á í vændum tilkomumikla
sjón. Allt í einu rísa hvassir
graníttindar upp fyrir sjón-
oeildarhringinn og virðast ó-
ti-úlega nálægir.
Hvergi fyrirfinnst fjöl-
breyttara landslag, fjölskrúð-
ugri gróður og dýralíf, marg-
víslegri bergmyndanir og önn-
ur eins mergð hrífandi útsýn-
isstaða á jafn litlum bletti
og í þjóðgarðinum í Tatraf jöll-
unum háu; fjallgarðurinn all-
u-r er ekki' nema 26 km lang-
ur. Á gönguferð blasir stöð-
ugt við nýtt útsýni, loftslag
og gróðurfar taka ótrúlega
skjótum breytingum í snar-
bröttum hlíðunum.
Við rætur Tatrafjalla hafa
risið upp ferðamannahótel og
hressingarhæli. Þar gefst
Tékkóslóvökum, sem heilsu
sinnar vegna þurfa á fjalla-
loftslagi að halda, kostur á að
dvelja, og þar er tekið á
móti ferðafólki frá öðrum
löndum.
Norðaustur af Tatraf jöllun-
um háu liggur annar fjall-
garður, mun lægri í lofti en
einnig frægur fyrir náttúru-
fegurð. Hann nefnist Pieniny
og er að mestu í Póllandi en
að nokkru í Tékkóslóvakíu.
Þarna er friðlýstur þjóðgarð-
ur, sem er paradís jurtafræð-
inga og annarra, sem unun
hafa af fjölbreyttum gróðri.
Dýralíf er einnig mjög fjöl-
skrúðugt í Pieninyþjóðgarðin-
um. Fjöllin eru ekki ýkja há,
fáir tindar ná yfir 1000 m.,
en þau eru engu að síður til-
komumikil og sérkennileg. Um
dalina bugðast lygnar ár
milli svipmikilla bakka.
Það er mikið starf að halda
þjóðgarði eins og Pieniny ó-
spilltum af manna völdum,
varðveita upprunalegan svip
náttúrunnar og sérkenni.
Sjáldgæfustu jurtirnar og
dýrin eru vernduð með sér-
stökum girðingarhólfum inni
í sjálfri þjóðgarðsgirðingunni.
Skyldi einhvern sem þetta
les fýsa að ferðast til Tékkó-
slóvakíu, skal honum bent á
að sendiráð Tékkóslóvakíu,
sem er til húsa á Skólavöi’ðu-
st. 45, útvegar landvistarleyfi
og veitir upplýsingar um dval-
arkostnað og önnur átriði.
í skógunum norðan og vestan í Tatrafjöllum á
Tatrabjörninn heimkynni sín. (Efri myndin til
hœgrí). — Þótt fjöUin faldi hvítu er notalegt að
njóta sólarinnar við fjallavötnin. (Myndin til
vinstrí). — Kláfur flytur fólk 5900 metra leið upp
í 1710 metra hœð við Lomnnický Stít. Á vetrum
sœkir skíðafólk mjög til Tatrafjalla. (Neðri mynd-
in til hægri).