Þjóðviljinn - 30.03.1957, Qupperneq 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 30. marz 1957
Vörn Bfcsriia Benedlktssonar
lÖjarni Benediktsson gerði í
" íyrradag örlitla tilraun til
að verja lánveitingar Spari-
sjóðs Reykjavíkur til Helga
Eyjólfssonar. Helzta röksemd
Bjarna er sú að með hinum
mörgu iánum til Helga sé verið
að greíða fyrir byggingu íbúða
yfir það fólk sem ekkí hafi
nein fjárráð og verði því að
búa í leiguíbúðum. Kveðst
Bjarni af þessum ástæðum
hafa staðið að því að afhenda
eínum auðmanni og húsabrask-
•ara helming þeirra lána sem
sparisjóðurinn tók að sér að
láta af hendi samkvæmt iög-
unum um veðlánakerfið íhald-
ið í Sparisjóði Reykjavíkur
var sem sagt að iiugsa urn fé-
laust og fátækt fólk þegar það
afgreiddí 24 lánin til Helga
Eyjólfssonar en lét jafnmarga
lánaumsækjendur sem voru að-
eins að byggja yfir sjálfa sig
synjandi frá sér rara!
Tj’kki verður sagt að þessi
röksemd Bjarna Benedikts-
sonar sé beinlínis sannfær-
andi. í fyrsta lagi er íhaldið
þekkt að öðru fremur en að
hafa áhuga fyrir bygg'ingu
leiguíbúða. Þannig hefur það
t. d. verið ófrávikjanleg stefna
þess á annan áratug að selja
þær ibúðir sem bærinn byggir.
Stendur þó vissulega engum
nær en sjálfu bæjarfélaginu að
hafa forgöngu um byggingu
leiguíbúða handa því fólki sem
ekki getur á annan hátt kom-
izt í mannsæmandi húsakynni.
Það er þessi stefna íhaldsins
•að hýrast í braggahverfum
Reykjavíkur, þar af yfir helm-
ingur böm á viðkvæmasta
vaxtarskeiði. íhaldið hefur
aidrei síðan það var neytt til
að leigja Skúlagötuíbúðirnar
látið það sjónarmið ráða við
ráðstöfun íbúða sem reistar
hafa verið á vegum bæjarins
hverjir hafa haft brýnasta þörf
heldur hafa peningaráð manna
ráðið úrslitum. Aldrei hefur
annað heyrzt en Bjarni Bene-
diktsson hafi verið þessari
stefnu fyllilega samþykkur
enda næsta ólíklegt að hún hafi
ekki fallið í geð manns sem
eitt sinn lýsti því yfir að ,,það
væri ekki í verkahring bæjar-
ins að sjá fyrir þessum þörf-
um manna'1.
Skjólstæðingur Bjarna Bene-
diktsonar hafði heldur ekki
meiri áhuga en svo fyrir að
leigja út þær íbúðir sem hann
átti fyrir við neðanverðan
Rauðarárstíg að hann seldi þær
íbúðir um leið og hann réðist
í byggingaríramkvæmdir sínar
við Bogahiíð. Þessi vinur fá-
tæklinganna sem Bjarni Bene-
diktsson bar meira fyri.r brjósti
an alla aðra lánaumsækjendur,
og afhenti helming veðlánanna
frá sparisjóðnum, hjó því veru-
legt skarð í leiguíbúðir í bæn-
um til þess að losa fé til Boga-
hlíðarhúsanna. Myndu vafa-
laust margir þeirra manna sem
eru af litlum efnum að baslast
við að koma upp eigin íbúð
hafa talið sig standa sæmilega
að vígi í sporum Helga Eyjólfs-
sonar þótt þeir hefðu ekki notið
þeirrar sérstöku og óvenjulegu
fyrirgreiðslu sem hann átti að
mæta hjá Sparisjóði Reykja-
víkur fyrir atbeina Bjarna
Benediktssonar.
Qú staðreynd að Bjami Bene-
^ diktsson hefur séð sig til
þess neyddan að gera opinbera
i fc
i!
heldur fund í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu mánudaginn
1. apríl 1957 n.k. kl. 20.30.
Umræðuefni: Launamál kvenna.
Framsögumenn: Valborg- Bentsdóttir,
Anna Loftsdóttir, Inga Jóhannesdóttir og
Petrína Jakobsson.
Að loknum framsöguræðum verða frjálsar umræður
um málið.
Stjórn B.S.R.B. er sérstaklega boðið á fundinn.
Öllum konum, sem taka laun hjá ríki eða bæ, er heimil
þátttaka í fundinum, og er þess vænzt að þær fjölmenni
á fundinn. Félagsstjórnln
tilraun til að bera blak af lán-
veitingunum til Helga Eyjólfs-
sonar sýnir hve mjög er að
honum kreppt út af málinu.
Þetta er eklcert undarlegt. Það
gat ekki hjá því farið að 24
lán til eins og sama manns
vektu almenna athygli og rptt-
mæta gagnrýni þegar vitað er
að þúsundir efnalítilla ein-
staklinga fá enga úrlausn í
vandræðum sínum hjá þessari
sömu lánastofnun. Sparisjóður-
inn tók að sér að láta tiltekna
upphæð af hendi til útlána á
vegum veðlánakerfisins og vit-
anlega var tili þess ætlast
að hún kæmi sem flestum að
gagni sem eru að berjast við
að koma upp íbúðum. Stjórn
Sparisjóðs Reykjavíkur með
Bjarna Benediktsson í broddi
fylkingar hefur hins vegar litið
öðruvísi á. Hún hefur talið það
skyldu sína að verja 24 lánum
til að auð'velda fésterkum bygg-
ingabraskara að komast yfir
margar íbúðir meðan fjöldi
manna sem minna má. sín
verður að bíða með hús sín
hálfbyggð og fær hvergi lán til
að fullgera þau. Með þessu at-
ferli hefur Bjarni Benediktsson
og samherjar hans brugðist
herfilega þeim trúnaði sem
þeim var sýndur þegar sú
lánastofnun sem þeir bera á-
byrgð á fékk úthlutunarréttinn
á framlagi hennar til veð-
lánakerfisins
Þessi misnotkun á framlagi
sparisjóðsins verður á eng-
an hátt afsökuð með viðbárum
Bjarna Benediktssonar í Morg-
unblaðinu. Afsakanir hans eru
svo veikburða og gagnsæjar að
þær blekkja engan. Það sem
Aðstoðum bílu
á vegum úti
Jtvegum verkstæðispláss og
geymslu til skemmri tíma ef
óskað er.
Símar 82560 og 7259.
Saumanámskeið
hefst 4. apríl i Mávahlíð 40,
Þátttakendur eru beðnir að
tala við mig sem fyrst.
Brynhildui
Ingvarsdótik
wmmmmA
ið Buðína
í kvöld klukkan 9. — Hljómsveit Björn.s R,
Einarssonar og Gunnars Ormslevs leika.
Aðgöngumiðar seldir milli kl. 5 og 7 í kvöld
í Búðinni. Árshátíðarnefad FRS
einfaldlega hefur gerst er það,
að íhaldið hefur enn á ný sýnt
og sannað hvei'ra hagsmuria
það þjónar og að það svífst
einskis í þeirri þjónustu. Það
eru hinir fáu og ríku sem hafa
forgangsréttinn þ.ar sem íhaldið
situr að valdaaðstöðunni. Vara-
formaður SjáL?.-jtæðisflokksins
taldi réttara að veita einum
„athafnamanni“ á aðra milljón
króna af fé veðiánakerfisins en
að aðstoða 24 e'mstaklinga sem
eru með eigin íbúðir í smíðum.
Þessi afstaða Bjarna Benediks-
sonar er að sjálfsögðu í fullu
samræmi við ilokksstefnuna,
þar sem „hagsmunir okkar“
eiga að ganga fyrir öllu öðru
samkvæmt yfirlýsingu Ólafs
Thors á síðasta landsfundi. En
hún er eigi að síður röng og
í algjörri andstöðu við réttar-
vitund alls almennings. Og hún
er enn eitt dæmið um hve
brýnt það er að draga úr völd-
um og áhrifaaðstöðu Sjálfstæð-
isflokksins, ekki aðeins á Al-
þingi og í ríkisstjórn, heldur
einnig £ peningastofnunum
landsins.
TRÚLOFUNARHRINGIR
Fjölbreytt úrval af
STEINHRINGUM
18 og 14 karata.
— Póstsendum —
ru
J 4 UTBREIÐIÐ
4 ÞJÓDVU TANN
Enn nm Rúsdýraáburð — Hvenær er bezt að
beia á túnin — Kópavogsvagnarnir
SVIPALL skrifar: ,,í sunnu-
dagsblaði Þjóðviljans 24. marz
s.l., skrifar einhver E.P. bú-
fræðingur í hæjarpöstinn, um
þann furðulega fyrirburð sem
honum finnst: að. bera húsdýra-
áburð á tún að vetri til ofan
á snjó og klaka. Og segir hann
það andstætt gömlum kenning-
um og venjum. En mér verð-
ur á að spyrja: Hvar var mað-
urinn fyrir rúmum 50 árum,
þegár hann útskrifaðist frá
þessum „ágætasta“ búnaðarhá-
skóla? Eg vissí ekki betur en
einmitt á þessum árum væri
það mjög algengt, að menn
bæru á tún s£n á veturna, og
meira að segja veit ég til þess,
að sumir bændur liafa þann
sið nú á tímurn. Eg man vel
eftir því, að mjög voru skipt-
ar skoðanir bænda um það,
hvort betur gæfist að bera á
túnin á vorin eða veturna. Eg
sá það oft hjá þeim, sem báru
á að vori til, sérstaklega ef það
var nýlegur húsdýraáburður,
að hann harðnaði oft á túnun-
um og gekk sama sem ekkert
niður í túnin, svo að hann rak-
aðist að mestu leyti af aftur,
og urðu þá sáralítil not af hon-
um fyrir túnin.
En þótt nýr skitur væri bor-
inn á og dreift úr honum yfir
snjó eða klaka á vetuma, þá
var hann auðiwminn á vorin
og gekk vel ofan í túnin.
En hvað kenningurmi viðvík-
ur á þeim árum, hjá þeim sem
höfðu þekkinguna og valdið
til þess að prédika fyrir lýðn-
um, hvort heldur það hét bú-
fræði eða guðfræði, þá ætti
hann sá góði búfræðingur að
minnast þess, af sennilega eig-
in reynslu, að mannanna börn
eru breisk og vilja mjög hafa
sína siði og reynslu, jafnvel
þótt búfræðingar af „ágæfc-
ustu“ skólum prédiki fyrir
þeim, það sem koma skal “
ÞÁ ER HÉR bréf frá Kópa-
vogsbúa: „Bæjarpóstur góður.
Eg ætla ekki að þreyta þig
með löngu máli, heldur aðeins
biðja þig fyrir smá athuga-
semdir, varðandi áætlunarferð-
ir hérna um Kópavoginn. Þeg-
ar Kópavogskaupstaður tók við
rekstri strætisvagnanna hingað
um síðustu mánaðamót. var
gefin út ferðaáætlun yfir allar
ferðir dagsins, og miðað var
við burtfarartíma vagnanna úr
Lækjargötu. Nú er það kunn-
ugt, að það er talsvert löng
leið, sem hvor vagn þarf að
fara, og vagnarnir eru misjafn-
lega fljótir í ferðum, þannig
að það er dálítið erfitt fyrir
fólk, sem ætlar að ná í vagn-
inn hér á Kópavogsveginum að
reikna nákvæmlega út, hvenær
hann muni verða á ferðinni, e£
það veit aðeins hvenær hann
lagði af stað úr Lækjargötu.
Vagninn getur hægiega verið
allt að 10 mínútum fljótari
eina ferð en aðra, eftir því
hvernig er að fara, hve margt
fólk er með honum o. fl. Er þá
hætt við að einhverjir missi af
lionum, og langt að bíða eftir
næsta vagni. Væri ekki hægt
að taka það upp í áætlunina,
að vagnarnir færú ekki frá
ákveðnum stoppistöðvum hér í
Kópavogi fyrr en á ákveðnum
tíma? E. t. v. væri erfitt að
koma þessu við, en ég held,.
að það yrði til þó nokkurs
hagræðis fyrir fólk hér, sem.
þarf að komast til Reykjavík-
ur“.
Skyrtur sem koma fyrir hádegi eru tilbúnar að kvöldi
Þvottahúsið EIMIR
Bröttugötu 3A — Simi 2428