Þjóðviljinn - 04.04.1957, Page 12

Þjóðviljinn - 04.04.1957, Page 12
Loftleiðir flytja go$a gesti til fslands Hiúoviuin Fimmtudagur 4. apríl 1957 — 22. árgangur — 79. tölublað Myndii'nar voru teknar á Reykjavíkurflugvelli um kl. 6 í gærmorgun við komu flugvélar Loftleiða frá New York. Meðal farþega var danski landkönnuðurinn og rithöfundurinn Peter Freuclien og kona lians og Smetanakvartettiim tékkncski. — Ljósm. Vigfús Sigurgeirsson. Brezkir verkamensi fordæma llnkn forustumanna sinna Segjast hverfa nauSugir aftur til vinnu Verkamenn í helztu iðnaðarborgum Bretlands mót- mæltu á fjöldafundum í gær ákvörðun forustumanna sinna um að aflétta verkföllum skipasmiða og vélsmiða. Framkvæmdanefnd sambands ■yélsmiða og skipasmiða sam- J>ykkti í fyrradag að verkfall- Inu skyldi hætt meðan stjórn- Bkipuð nefnd kynnir sér mála- vexti í deilunni og semur til- lögur um lausn hennar. Sam- þykktin var gerð með atkvæð- um stjórna starfsgreinasam- Ijanda sem hafa 710.000 verk- íallsmenn innan vébanda sinna, FundiS fé á gullströndinni 1 dag opnar Pétur Hoffmann Salómonsson enn eina sýningu á gripum er hann hefur fundið I fjörunni hjá öskuhaugunum, »— en þann stað eru margir nú farnir að nefna „gullströnd- ina“, segir hann. Á sýningu þessari verður jmikið af silfurborðbúnaði, arm- böndum og hringjum, bæði úr silfri og gulli, sem Reykvíking- ar hafa týnt á sl. ári, og lent .hafa á öskuhaugunum. — Þeir sem geta sannað eignarrétt sinn á einhverjum þessara gripa fá .þá afhenta aftur, eins og venja Péturs hefur verið á undan- förnum árum. Þá mun Pétur einnig hafa á sýningunni málverk af hinni .víðkunnu „orustu í Selsvör". Sýningin er í Listamanna- skálanum og verður opin fram yfir helgina. Kvenfélag sósíalista Kvenfélag sósíalista lield- ur félagsfund í kvöld kl. 8.30 í Tjarnargötu 20. Dagskrá: Gunnar Jóhannsson alþingismaður flyt- ur erindi um stjórn- málaviðhorfið. Kaffidrykkja. Konur fjölmennið mætið stundvíslega. og en fulltrúar 449.000 verkfalls- manna vildu halda verkfallinu áfram sleitulaust. Hlaupizt undan merkjum Á útifundum í gær víða um Bretland voru samþykktar með þorra atkvæða ályktanir, þar sem meirihluti sambandsstjórn- ar er víttur fyrir að hafa hlaup- izt undan merkjum í deilunni. Verkfallið hafi þegar verið bú- ið að bera þann árangur að atvinnurekendur hafi fallizt á að ganga til samninga, og þeim sigri hafi átt að fylgja eftir með því að halda verkfallinu áfram. Ályktanir, sem gengu í þessa átt, voru samþykktar á úti- fundum víða í London og ná- grenni, í Manchester, Sheffield, Belfast, Bristol, Southhamton og fleirí borgum. Halda áfram verkfalli Á nokrum stöðum var ákveð- ið að halda verkfallinu áfram. Er þar aðallega um að ræða staði, þar sem atvinnurekendur höfðu tilkynnt, að þeir myndu ekki taka hluta verkfallsmanna aftur í vinnu fyrst um sinn. Þannig er ástatt í ýmsum verk- smiðjum og skipasmíðastöðvum við ósa árinnar Tyne, í Glasgow og víðar. Ketilsmiðir í Birken- head samþykktu að halda verk- fallinu áfram, vegna þess að atvinnurekendur hafa tekið aft- ur kauphækkun þá sem þeir féllust á að veita í haust. Á sunnudaginn verður haldinn í Liverpool fjöldafundur ketil- smiða úr borgum við Mersey- ósa til að ákveða frekari að- gerðir í þessu máli. 1 dag leggja fulltrúar verka- lýðsfélaganna sinn málstað fyr- ir stjómskipuðu rannsóknar- nefndina.. „Syngjandi páskar44 Félags íslenzkra einsöngvara Félag íslenzkra einsöngvara efnir á næstunni til fjöl- breyttrar skemmtunar í Austurbæjarbíói. „Syngjandi páska“ nefna söngvararnir skemmtun sína, sem verður með líku sniði og í fyrra. Skemmtun þessa heldur fé- bjarnardóttir, Ævar Kvaran og lagið til styrktar starfsemi Jón Sigurbjörnsson. Karl Guð- sinni, en það hefur m.a. í hyggju að efna til tveggja eða fleiri hljómleika á hausti kom- anda, þar sem félagsmenn munu eingöngu syngja óperulög og önnur klassísk tög. Annast Fritz Weisshappel undirbúning þessara tónleika. Syngjandi páskar eru hins- vegar eingöngu helgaðir óper- ettulögmn og öðra af léttara taginu. Verða þar sungnir ein- söngvar, tvísöngvar, þrísöngvar og kvartettar, fluttur gaman- þáttur og dansar sýndir. Söngv- aramir, sem fram koma, eru Kristinn Hallsson, Guðmunda Elíasdóttir, Þuríður Pálsdóttir, Guðmundur Guðjónsson, Gunn- ar Kristinsson, Ketiil Jensson, Þuríður Pálsdóttir, Svava Þor- mundsson fer með gamanþátt- inn, en dansana sýna Bryndís Schram og Þorgrímur Einars- son. Ævar Kvaran verður kynn- ir. Söngvararnir munu koma fram í skrautlegum búningum, en sviðskreytingar hefur Loth- ar Grund gert. Félag íslenzkra einsöngvara hleypti Syngjandi páskum af stokkunum um páskaleytið í fyrra. Varð þessi skemmtun mjög vinsæl og urðu sýningar sex. Er vart að efa, að svo verði einnig nú, en „frumsýn- ingin“ verður n.k. sunnudags- kvöld kl. 11,30. Óperutónleikar Sinfóníu- hljómsveitarinnar í kvöld Stjórnandi Paul Pampichler, einsöngvarar fíanna Bjarnadóttir og Guðmundur Jónsson SiiifóníuMljónisveit íslands efnlr i kvöld til óperatónleika í Þjóðleikhásjnu. Stjórnandi hljónisveitarinnar er Paul Pampichlcr en einsöngvarar Hanna Bjarnadóttir og Guðmundur Jónsson. Viðfangsefni Sinfóníuhljóm- sveitarinnar í kvöld eru, að einu undanskildu, sótt í óperur: ar- íur, dúettar, forleikir og hljóin- sveitarþættir, alþekkt, vinsæl og aðgengileg verk. Fyrst verður leikinn Sigurmars úr óperunni Aidu eftir Verdi, þá Ballaða eft- ir Herbert Hriberschek, fyrsta hornleikara hljómsveitarinnar, síðan syngur Hanna Bjarna- dóttir aríu úr Madam Butterfly eftir Puccini og Guðmundur Jónsson aríu úr Grímudans- leiknum eftir Verdi. Hljóm- sveitin leikur þessu næst Fjórar sjávarmyndir úr óperunni Peter Grimes eftir Benjamin Britten, en þetta er sú ópera sem mesta sigurför hefur farið um heim- inn síðustu áratugina og gerði tónskáldið heimsfrægt. Að loknu hléi verður leikinn for- leikur óperunnar Donna Diana eftir Reznicek, Hanna syngur aríu úr Rakaranum frá Sevilla eftir Rossini og Guðmundur söng nautabanans úr Carmen Dregið á 12. flokki D.A.S. I gær var dregið í 12. flokki D.A.S. 1. vinningur var einbýl- ishúsið Ásgarður 4, Reykjavík, og kom á miða nr. 36627 (í um- boðinu Vogar Suðurnesjum). Sá, sem hreppti þennan glæsi- lega vinning er Hannes Guð- jónsson, Lindarbrekku, rúml. fimmtugur verkamaður. 2. vinn- ingur, sendiferðabifreið, kom á miða nr. 35892 (umb. Austur- stræti 1), eigandi: Frú Anna Ólafsdóttir, Skipasundi 71, Reykjavík. 3. vinningur, Morris fólksbifreið, kom á miða nr. 2299 (Hafnarfirði), eigandi: Sigurður Guðjónsson, Suður- götu 49, Hafnarfirði. 4. vinning- ur, rússnesk landbúnaðarbifreið, kom á miða nr. 58506 (Austur- stræti 1), eigandi: Kristinn Dagbjartsson, Laugavegi 28b, afgreiðslumaður í Málaranum. Hanna Bjarnadóttir eftir Bizet. Þá verður fluttur allangur kafli úr 3. þætti óper- unnar Rigoletto eftir Verdi, þar sem skiptast á aríur og tví- söngvar, en að lokum leikur hljómsveitin vals úr Rósaridd- aranum eftir Richard Strauss. Framhald á 3. síðu. Hvar eru leiklistarunnendumir? Leikfélagið varð að hætta við sýninguna í gærkveldi vegna lítillar aðsóknar Jón Sigurbjörnsson leikari, formaður Leikfélags Reykja- víkur, kallaði blaðamenn á sinn fund í gær og fórust honum orð á þessa leið: Þrátt fyrir afbragðsdóma leiklistargagnrýnenda er lítil sem engin aðsókn á sýningar Leikfélagsins á „Browning- þýðingunni" og „Iíæ, þarna úti“. Um kl. 3 í gær höfðu verið pantaðir og seldir 60 miðar, og sáu forráðamenn Leikfélagsins sér ekki fært að sýna fyrir svo fáa og aflýstu því sýningunni. Á sunnudag- inn verður sýnt aftur — í síð- asta sinn — ef það sýnir sig, að fólk kæri sig ekki um leik- ina. Sjaldan hefur nokkur sýn- ing hlotið jafn einróma lof gagnrýnenda, og er það ekki sársaukalaust fyrir Leikfélag- ið ef bæjarbúar ætla með tóm- læti sínu að „fella“ sýninguna. Þvi verður ekki trúað að ó- reyndu. Vetnistilrðninir Framhald af 1. síðu. raunum með kjarnorkuvopn verði hætt. Heitið er á ríkis- stjórnina, að senda öllum ríkis- stjórnum sem hlut eiga að máli raunhæfar tillögur um þetta efni, og fresta jafnframt brezku vetnissprengingunum það lengi, að tími gefist til að athuga svör sem berast frá öðrum ríkj- um. Byrjað í maí Kjarnorkumálanefnd Banda- ríkjastjórnar lét það boð út ganga í gær, að prófanir kjarn- orkuvopna á hennar vegum myndu hefjast á ný á tilrauna- svæðinu í Nevada um miðjan næsta mánuð. Sprengingum verður haldið áfram með nokkr- um hvíldum í allt sumar. Segir kjarnorkumálanefndin, að þarna eigi að reyna sprengjur, sem hafi tiltölulega lítimi sprengi- mátt.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.