Þjóðviljinn - 05.04.1957, Síða 6

Þjóðviljinn - 05.04.1957, Síða 6
6) — í>JÖÐyiWINN Föstudagvr 5. apríl 1957 Þióðviliinn Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýöu — Sósialistaflokkurinn Ihaldið og bankarnir að er fyrír löngu lands- kunnugt hneyksli hvernig jþröngsýn eiginhagsmunaklika innan Sjálfstæðisflokksins hef- i ur hreiðrað um sig í lána- stofnunum þjóðarinnar. Aðal- foankarnir báðir, Landsbank- j ínn og Útvegsbankinn, hafa raunverulega verið gerðir að i íjölskyldufyrirtækjum Thors- Bettarinnar. Sjálfstæðisflokkur- ‘ iinn, sem er í algerum minni- i liluta með þjóðinni, hefur I itryggt sér meirihluta í banka- j etjórnunum og fjölskyldumeð- ■ limir Thorsættarinnar tróna £ bankastjórastöðum beggja í foankanna. ■Jétur Benediktsson hefur það * hlutverk að gæta hags- s íí&una ættarinnar í Landsbank- ; Enum, en hann er tengdason- ! ar ættarhöfðingjans Ólafs S'hors. 1 Útvegsbankanum ' ráða þeir ríkjum Jóhann Haf- j etein, tengdasonur Hauks • ÍThors og Gunnar Viðar mágur ; Thorsbræðranna. Með þessari j valdaaðstöðu hefur fámenn en f valdamikil klíka í þjóðfélaginu j Stryggt sér undirtökin í banka- iserfi þjóðarinnar og notar þau i táspart til að ívilna sjálfri sér n>g þeim sem henni standa ; Eiæstir, meðan ýmis þjóðnytja- fyrirtæki búa við algjöran Skort á rekstrarfé og allur al- r Oienningur fær litla eða enga I lyrirgreiðslu á vandamálum ! einum. f '1 ð þessu er vifeið í gær í ! grein í Tímanum og kom- j Lzt að orði á þessa leið eftir að * Sýst hefur verið misnotkun Sijálfstæðisflokksins á valda- ■ aðslöðunni í bönkunum: !: . ..Bezta dæmið er rekstrarlán f Kron. Sl. ár mun sala Kron ! iíiafa numið um 36 milljónum isróna. Sjálfstæðisbankastjór- f Onum þótti hæfilegt rekstrar- Ííán þvi til handa kr. 60.000. 'JL sama tíma hafa alls kyns Rkransalar og braskarar mok- ,« aö fé úr lánastofnunum. Það ! «r þessi ósómi sem verður 'j Srifinn út. Ríkisstjórnin verð- j yr nú að ganga þannig til f verks, að smánarbletturinn f verði þveginn af íslenzku lána- f ólitík, svo mynd verði á“. Undir þessi ummæli Tímans skal fyllilega tekið. Þótt Kíjálfstæðisflokkurinn kveini ssú og kvarti yfir væntanlegri fcreytingu á bankalöggjöfinni œg væntanlegum valdamissi í fcönkunum er það ekkert efa- tmál að þjóðin í heild ætlast til að hér sé tekið rösklega til fcöndunum og fyllsta réttlæti toyggt. Bankastofnanir lands- áns eiga ekki að vera til fyrir íáa útvalda, ekki að verá fjjjónustutæki fámennrar f íbraskaraklíku heldur lyfti- etöng atvinnulífsins og þeirra framkvæmda sem þjóðinni eru aauðsynlegar á hverjum tíma. Það er vonlaust að bankarnir gegni þessu sjálfsagða hlut- verki meðan þeim er stjórnað í þágu Thorsaranna og þeim sem næstir þeim standa. Með- £ an svo er ganga braskararnir þar um garða eins og fjár- magn bankanna og sparifé þjóðarinnar sé þeirra einka- eign. I skjóli þessara yfirráða reyndi valdaklíka Sjálfstæðis- flokksins að hindra fyrir fáum dögum að nokkurt fé fengizt til íbúðarhúsabygginga og hefði tekizt það ef atvinnu- leysistryggingasjóður og al- mannatryggingar hefðu ekki hlaupið undir bagga með veð- lánakerfinu fyrir frumkvæði Hannibals Valdimarssonar fé- lagsmálaráðlierra. egar hnekkja á ofurvaldi Sjálfstæðisflokksins í bankamálunum reka blöð flokksins upp hin ferlegustu gól um „herferð" og „ofsókn- ir“ eins og kemur fram í for- ustugrein Morgunblaðsins í gær. Þetta mun engan blekkja. Það sem íhaldið óttast er að einræðisvald Thorsaranna yfir lánastofnunum landsmanna verði nú loks brotið á bak aft- ur og að þjóðin sjálf fái um- ráð yfir bönkum sínum. Það er vitanlega hin fráleitasta firra að slíkt beri nokkur ein- kenni herferðar gegn lána- stofnunum eða ofsókna í þeirra garð. Hins vegar sýnir þessi áróður Sjálfstæðisflokks- ins að forkólfar hans eru teknir að rugla saman einka- hagsmunum Thorsaranna og sjálfum lánastofnununum. Þeir eru með öðrum orðum farnir að líta á banka þjóðarinnar og aðrar lánastofnanir hennar sem óumbreytanlegt og rétt- mætt áhrifasvið Thorsættar- innar. að er þetta viðhorf Sjálf- stæðisflokksforkólfanna sem þjóðin neitar að viður- kenna lengur í verki og þess vegna krefst hún þess að eft- irieiðis þjóni bankarnir þörf- um og hagsmunum þjóðarinn- ar sjálfrar, atvinnulífs hennar og nauðsynlegustu fram- kvæmda. Fyrir þeim kröfum verða þröngsýn eiginhags- munasjónarmið að víkja og það jafnt þótt þau séu borin uppi af aðilum sem telja sig eiga að njóta sérréttinda í þjóðfélaginu. Sú tíð verður því vonandi brátt að baki að Kveldúlfur og önnur brask- fyrirtæki Thorsættarinnar geti gengið í bankana eins og þeir væru hennar einkasjóðir, og látið þá halda uppi fyrirtækj- um sem raunverulega eru fyr- ir löngu gjaldþrota. íhaldið er svo óheppið að hafa sjálft ný- lega minnt á starfshættina í lánamálum þar sem það hefur svo til óskoruð yfirráð. Tutt- ugu og f jögur lán til gróða- j mannsins Helga Eyjólfssonar : af fé hins almenna veðlána- j kerfis hafa orðið til að minna. marga á hve háskalegt það er hagsmunum almennings að valdið í lánsfjármálum sé í höndum manna sem hafa það höfuðsjónarmið að hlynna að fjársterkum flokksgæðingum en ganga fram hjá hagsmun- um og þörfum fjöldans. Oft hafa frönsk leikskáld deilt hlífðarlaust á blekking- ar ósvífinna lækná, dregið misbeitingu læknavísindanna sundur og saman í háði; þar er sjálfur Moliére fremstur í flokki. Á okkar öld er fræg- astur skopleikur þeirrar ætt- ar „Knock“ eftir Jules Rom- ains, hið fjölgáfaða og mikils- virta skáld, og var fyrst sýnd- ur árið 1924, en í þann mund náði bamsleg trú og óskorað traust manna á almáttka töfra læknislistarinnar há- marki. Það var Louis Jouvet sem hóf leikrit þetta til al- þjóðlegrar frægðar, það hefur staðizt ágang áranna og kom- izt í tölu sígildra háðleika, enda ágæta vel samið verk, ádeilan markviss og gerhugs- uð, skopið béizkt og mergjað. En það er nokkuð beinabert engu að síður, fátækt að djúptækum mannlýsingum og 1 Bílferðin. Jean (Indriði Waage), dr. Parpalaid (I.árus Pálsson), frú Parpalaid (Arndís Björasdóttir) og- Knock (Rúrik Haraldsson). Þjóðlelkhúslð __________________t DOfíTOR fíNOCfí eftir JULES ROMAINS Leikstjóri: Indriöi Waage litríkum atburðum — skáldið beinir orku sinni óskiptri að einu efni, hinni skýru og snjöllu meginhugsun verður allt annað að lúta. Hinn óskammfeilni en ó- mótstæðilegi postuli læknis- listar og veikinda, svikahrapp- urinn Knock, sezt að í frönsku sveitahéraði þar sem sárfáir hafa áður leitað læknis, enda heilbrigði með albezta móti; það virðist lítt fýsilegt hlut- skipti framagjörnum manni. En mergjaðar aðferðir hans, geigvænlegar fortölugáfur, kemur hverjum sem hann lystir í rúmið og gerir að auðmjúkum og örbjarga þræl- um læknavísindanna, hins nýja galdurs. Eftir þriggja mán- aða þrotlausa baráttu lít- ur hann hróðugur yfir hérað sitt, voldugur, vellríkur og vinsæll, honum hefur tekizt að breyta hundruðum heimila í spítala þar sem Ijós loga um nætur, þar sem angistarfullir sjúklingar hvolfa í sig meðul- um, mæla sig á fárra tíma fresti, vaka og biðja. Niður með alla heilbrigði, veikindin og læknisfræðin lifi! Bitur og beinskeytt ádeila skáldsins er að sjálfsögðu mjög færð í stílinn, leikurinn ósvikið grín og snertir sízt af öllu góða lækna, velgerða- menn mannkynsins. En hann á sér engu síður trausta stoð í veruleikanum sjálfum, við könnumst við flest það sem fyrir augun ber úr daglegu lífi, af eigin spurn og raun. Og doktor Knock er annað og meira en tröllaukinn svikari og frekjumaður í læknastétt, hann er fylltur. sönnu trúar- ofstæki, heilagri köllun, lækn- ingar og sjúkdómar eru hon- um árátta og rótgróin hug- sjón, sjálfur tilgangur lífsins. Hann er ímynd þeirra póli- tísku og andlegu skottulækna sem of margir og voldugir hafa gerzt á síðari árum, manna sem reynt hafa að sefja heilar stéttir og þjóðir, Bernard bamakeimarl og Knoek (Klemenz Jónsson og Rúrik Haraldsson), glögg mannþekking og bjarg- fðst trú á blessun sjúkdóm- anna lyfta brátt grettistökum, hann vinnur skjótan og alger- an sigur. Enginn fær staðizt áróður þessa snjallmælta spá- manns, nýtízk verkfæri, mynd- ir, línurit og uppdrætti, sefj- andi töfraþulur, ókennileg og ægileg sjúkdómsheiti — hann steypa þær í mót kenninga sinna, beygja þær undir vald sitt með illu og góðu — hann er óhugnanlegt fyrirbæri, hættulegur maður. Ég er þvi miður ókunnugur skoplist Frakka og treystist lítt að dæma um heildarsvip þessarar sýningar og listrænt gildi. Indriði Waage er leik- stjóri og leggur sýnilega litla áherzlu á léttleika og hraða, dvelur rækilega við hvert at- riði; það er eins og hann vilji treina hið stutta leikrit sem allra lengst, lýsa öllu eins skýrt og skilmerkilega og verða má. Leikurinn fer held- ur dræmt af stað, í fyrsta þætti nýtur fyndni skáldsins sín ekki til fulls. Tæknileg Svartklædda konan og Knock (Anna Guðmundsdóttir og Rúrik Haraldsson). vandamál bílferðarinnar hefur leikstjóranum tekizt furðuvel að leysa, þótt hvorugt hreyf- ist úr stað, landslagið eða bíll- inn. Lárus Ingólfsson sér um tjöld og búninga. Otsýnið yf- ir hálenda og frjósama sveit- ina er snoturt og milt á að líta, og salurinn í gistihúsinu smekklegur, þar er allt eins snprfusað og skoplegu ætluri- arverki hans sæmir. Rúrik Haraldssyni er falið hið mikla og torvelda hlut- verk Knocks og mjög að verðleikum, þar koma að góðu haldi gervileiki hans, þrótt- mikil framkoma, linittileg orð- svör og mergjuð kímni. Fram- sögnin er ekki alltaf nógu fáguð og skýr framan af leiknum, og fyrir kemur að Knock verður of góðlátlegur og meinhægur í höndum hans, og ekki sá válegi ofstækismað- ur sem hann á að vera; en túlkun Rúriks er jafnan hlut- verkinu trú og æ öruggari og snjallari er á líður. Mest er um það vert hversu ljós og Hfandi hin öra þróun Knocks er í meðf^rum leikarans — hann ber greinileg merki hins óþekkta og óreynda læknis í upphafi, manns sem aðrir hafa leikið á, en vex ásmegin er hann glímir við sjúklinga sína og umhverfi í öðrum þætti og berst til úrslita. Enn markvissari og þróttmeiri er Framhald á 8. síðo.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.