Þjóðviljinn - 05.04.1957, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 05.04.1957, Qupperneq 12
Hflðovmm Föstudagur 5. apríl 1957 — 22. árgangur — 80. tölublað. Notið tækifærið og látið bólu- setja ykkur gegn mænuveiki Mænusóttarbólusetning á fullorðnu fólki hefur nú I staðiö yfir um nokkurt skeið. Er ákveðiö að gefa fólki upp aö 45 ára aldri kost á henni. Smetana-kvartettinn; frá vinstri: Jirí Nóvák, fyrsta fiðla, Lubomír Kostecký, önnur íiðla, Ant- onín Kohoufc, selló, og dr. Milan Skampa, víóla. Koma Smetana-kvartettsins er mikill tónlistarviðburður Heldur tónleika í kvöSd, annað kvöld og á mánudagskvöld í Austurbæjarbíói í kvöld og annað kvöld leikur hinn heimsfrægi Smet- ana-kvartett frá Tékkóslóvakíu í Austurbæjarbíói fyrir styrktarfélaga Tónlistarfélagsins. Hefjast tónleikamir kl. 7 bæöi kvöldin. Á sama tíma á mánudagskvöldið heldur kvartcttinn síöan almenna tónleika á sama stað, en meö breyttri efnisskrá. Eins og skýrt var í fréttum kvartettsins fyrir 20 árum og blaðsins í gær, komu þessir Busch-kvartettsins skömmu eft- frægu tónlistarmenn hingað til Reykjavíkur snemma sl. mið- vikudag frá New York, en Ikvartettinn er á heimleið eftir langa og glæsilega hljómleika- ferð um Bandaríkin. Á styrktarfélagatónleikunum f kvöld og annað kvöld leikur Smetanakvartettinn kvartett í C-dúr K465 eftir Mozart, kvart- ett nr. 2 „Ástarbréf" eftir Le- os Janácek og kvartett í e-moll iílJr ævi minni) eftir Bedrich fímetana. Á almennum tónleik- unum n.k. mánudag verða flutt verk eftir Beethoven, Brahms qg Dvorák. Merkur tón- iistarviðburður Er Ragnar Jónsson, formað- ur Tónlistarfélagsins, kynnti kina tékknesku tónlistarmenn fyrir hlaðamönnum í gær, kvað hann tvo tónlistarviðburði minnistæðasta og bera hæst í BÖgu félagsins: komu Pragar- ir lok síðustu heimsstyrjaldar. Nú væri heimsfrægur strok- kvartett enn kominn hingað á vegum Tónlistarfélagsins, kvart ett sem sagður er sá bezti í Tékkóslóvakíu, en þar hefur lengi ríkt mikill og almennur áhugi fyrir kammertónlist. Vorosjiloff, forseti Sovétríkj- anna, mun koma í opinbera heimsókn til Indónesíu í maí. Hann endurgeldur þar með heim- sókn Sukamos, forseta Indónes- íu, til Sovétríkjanna í fyrra. Tildrögin að stofnun Smet- ana-kvartettsins voru rakin hér í blaðinu í fyrradag og verða ekki endurtekin nú, en fjór- menningarnir heita: Jirí Novák (1. fiðla), Lubomír Kostecký (2. fiðla), dr. Milan Skampa (víola) og Antonin Kohout (sélló). 32 tónleikar í Bandaríkjunum Þeir félagar kváðust hafa haldið samtals 32 tónleika í 27 stærstu borgum Bandaríkjanna, m.a. 5 í New York. Héðan fara þeir til Tékkóslóvakíu, þar sem þeir munu þó aðeins stanza í tvær vikur eða svo, en halda síðan í hljómlefkaferð til Vest- ur-Þýzkalands. 1 næsta mán- uði leika þeir síðan á Vorhátíð- inni svonefndu í Prag og síðar í sumar á tónlistarhátíðinni í Björgvin í Noregi. Nú munu starfandi um 20 kvartettar í Tékkóslóvakíu, þar af 10 í höfuðborginni Prag. Er áhugi fyrir kammermúsík mik- ill og almennur þar í landi, og fer stöðugt vaxandi að sögn þeirra félaga, þar sem mun meiri áherzla er nú lögð á tón- listarkennslu í skólum en áður var. Það hefur komið í ljós að fólk er mjög áhugalítið fyrir bólusetningunni og hafa þeir aldursflokkar, sem þegar hafa verið boðaðir, þ.e. 16—25 ára, aðeins mætt að litlum hluta. Af þessu tilefni þykir rétt að vekja athygli á eftirfai-andi: Nú fer í hönd sá árstími, sem mænusóttar verður lielzt vart, og því nauðsynlegt að leita bólusetningar sem fyrst. Nokk' um tíma þarf til að ónæmi myndist, og getur því orðið of seint að hefja bólusctningu þeg- Ritgerðasam- keppni Norræoa félagsins Nonræna félagið hefur ákvcðið að efna til ritgerðasamkeppni í samráði við fræðslumálaskrif- stofuna og er ritgerðarefnið: Hvert Norðuriaudanua mundir þú helzt vilja heimsækja og hvers vegna? Öllum unglingum á aldrin- um 15—17 ára er heimil þátt- taka, en veitt verða verðlaun fyrir beztu ritgerðina. Loftleið- ir h.f. býður sigurvegaranum í samkeppninni ókeypis flugferð til kjörlands hans og heim aft- ur og vikudvöl á sumarskóla í landinu. Ritgerðimar skulu hafa bor- izt Norræna félaginu í Reykja- \úk (box 912) fyrir 10. maí n.k. ásamt nafni, heimilisfangi, fæð- ingardegi og ári. Svikamylla ihaldsins í husnæðismálum V eii Jóhann Hafsfein ekki af andi sparifjármyndun e I m m I s m m m s m m * Vantar röskan ungling til blaðburðar LAUGARÁSINN Skólavörðtustíg 12 Afgreiðslan. — Sími 7500. ' Jóhann Hafstein bankastjóri Otvegsbankans, maðurinn sem ásamt Pétri Benediktssyni hefur lýst yfir þeirri stefnu Sjálfstæðisflokksins, að hank- arnir skuli ekki lána eyri til íbúðarhúsbygginga, hélt mikla ræðu á Varðarfundi í fyrra- dag til þess að réttlæta þessa afstöðu íhaldsins. Skýring hans er sú að bankarnir geti ekki lánað fé, þar sem mjög stórlega hafi dregið úr spari- fjármyndun í landinu. Birtir hann tölur „um hin ískyggi- legu umskipti í sparif jármynd- uninni“ og þykist þar með hafa fundið hin algildu rök. Hins vegar víkur hann ekki að því hvers vegna sparifjársöfn- un hafi minnkað; bankastjór- inn virðist líta á það fyrir- bæri eins og fyrirrennari hans á kreppuna! En sparif jármyndun og hús- byggingar eru í augljósu sam- hengi. Þegar íhaldið hélt því með hinum háværustu orðum að tryggja hverjum manni 100.000 kr. lágmarkslán sem vildi byggja íbúð, réðust þús- undir manna í framkvæmdir. Loforðin reyndust síðan að verulegu leyti svik, og menn stöðvuðust unnvörpum í miðj- um klíðum, fjárþrota. Þá var það að sjálfsögðu úrlausn flestra að leita til vanda- manna sinna, vina og kunn- ingja og fá að láni hjá þeim handbært fé til að geta haldið áfram. Af þessari ástæðu sog- aðist verulegur hluti af spari- fjármyndun landsmanna beint í íbúðarhúsabyggingar, án milligöngu bankanna. Þetta er ástæðan til „hinna ískyggi- legu umskipta í sparifjár- mynduninni"; þar er ekki um hverju minnk- sfafar? neitt dularfullt fyrirbæri að ræða eins og bankastjórinn virðist halda, heldur efnahags- þróun sem er eðlileg afleiðing af loforðum íhaldsins annars- vegar og vanefndum þess hins vegar. En þannig er þá svikamylla íhaldsins í framkvæmd: Fyrst er Iofað stórfé til íbúðarhúsa- bygginga. Síðan ráðast þús- imdir manna í framkvæmdir í trausti þess. Því næst cru Ioforðin vanefnd á liinn lierfi- legasta hátt. Þá reyna hús- byggjendur að bjarga sér með því að fá lán Iijá vinum og kunningjum. Við það minnkar að sjálfsögðu sparifjármynd- unin. Og loks nota banka- stjórar íhaldsins „minnkandi sparifjármynduu“ sem rök- semd til þess að neita að lána nokkurn eyri til íbúðarhús- bygginga! ar faraldur er byrjaður, auk þess sem þá kann að verða erf- iðara um framkvæmd slíkrar bólusetningar. Á það má einn- ig benda að mænusótt er allt að því jafn tíð meðal fullorðinna sem barna, og eitirköst oft al- varlegri. Þeim tilmælum er því alvar- lega beint til þeirra, sem vilja notfæra sér bólusetninguna að láta slíkt eigi dragast og koma til bólusetningar á þeim tímum, sem auglýstir eru. Ennfremur skal á það minnt, að ef fulls árangurs er vænzt af bólusetn- ingunni, ber að koma til 2. og 3. bólusetningar á tilsettum tíma. (Frá borgarlækni) Nokkrar tilslak- anir á Kýpnr Harding, landstjóri Breta á Kýpur, tilkynnti í gær að gerð- ar hefðu verið nokkrar tilslak- anir á herlögunum sem þar eru í gildi. Héreftir verða menn að- eins dæmdir til dauða ef þeir gera sig seka um vopnaburð, vopnabeitingu eða sprengjutil- ræði. Þá hefur verið dregið úr ritskoðun blaða og tveir af æðstu mönnum grísku kirkjunn- ar sleppt úr stofufangelsi. Fellyljir valda manntjóni í USA Mikið óveður hefur gengið yfir stóran hluta Bandaríkj- anna undanfarna daga og vald- íð gífurlegu tjóni. Manntjón hefur einnig orðið, a.m.k. 17 menn hafa beðið bana og 250 slasazt. Þrír fellibyljir sem gengu yf- ir Missisippifylki í fyrradag og gær ollu miklum usla, meðal annars stórskemmdum á heilsu- hæli einu. 50 sjúklinganna þar urðu fyrír meiðslum. Úrhellisrigningar hafa hleypt vexti í fljót sem flætt hafa yfir stór svæði. Sæmilegur afli í Eyjum — lélegur annarsstaðar Vestmannaeyjabátar öfluðu mjög sæmilega í fyrradag. All- margir bátar fengu 10—11 lest- ir, og einstaka bátur betri afla. Færabátar voru mjög fáir á sjó vegna veðurs. Afli Sandgerðisbáta var rýr í fyrradag, 3—5Vá lest á bát. Keflavíkurbátar fengu lítinn afla, eða 2—4 lestir á bát. Nokkrir bátar voru komnir að kl. rúmlega 18 í gær og höfðu enn sem fyrr sáralítinn afla.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.