Þjóðviljinn - 09.04.1957, Blaðsíða 12
Við hvað á að miða sakxiæmi
vínandamagn í Móði ökumcama
UmrceSur á Alþingi vegna ákvœSa I
frumvarpi til nýrra umferSalaga
Frumvarp til umferöalaga, mikill lagabálkur, var til
2. umræöu á fundi efri deildar Alþingis í gær.
Friðjón Skarphéðinsson flutti
jframsögu af hálfu allsherjar-
nefndar, er flutti allmargar
breytingartillögur við frumvarp-
lð.
Ágreiningur var um eitt atriði
I tilíögunum, við hvað miða
ekyldi saknæmt vinandamagn í
blóði ökumanna. Flutti einn
nefndarmanna, Alfreð Gíslason,
itillögur aðrar en nefndin, og
gerði hann grein fyrir þeim á
þessa lejð:
í frumvarpi til umferðalaga
fjallar 25. greinin um akstur og
Sfengi. Þar er Því slegið föstu,
iað ef vínandamagn í blóði öku-
manns mælist 0,60%o til l,30%o,
ekuli hann eigi taiinn fær um
að stjórna ökutæki örugglega.
Afli Hornafjarð-
arbáta skemmist
Hornafjarðarbátar urðu að
landa afla sínum á Austfjörð-
um sl. fimmtudag svo að við
jþað varð fiskurinn í netum
þeirra tveggja og þriggja nátta,
þar sem ekki hafði verið unnt
að draga nema helming net-
anna vegna illviðris; Á föstu-
ðag var aftur komið gott veð-
ur og tókst bátunum þá að
ídraga öll net sín sem þá voru
órðin illa farin. Afli bátanna
var mjög mikill, eða samtals
164,7 lóstir á 7 báta, eða 25,5
iestir af slægðum fiski með
haus á bát. Lifrarmagn var
18% lestir. Fiskurinn var mjög
slæmur og fór mikið af hon-
um í beinamjöl.
Kviknar í vélbáti
á hafi úti
Aðfaranótt sl. laugardags
kviknaði í vélbátnum Kristni
ÍGK 40 er hann var á leið til
lands. Tókst að koma bátnum
til Reykjavíkur og er hann
lagðist þar að bryggju um kl.
«4 um nóttina var talsverður
eldur í vélarrúmi og lest báts-
íns, einnig milli þilja. Slökkvi-
liðið var til taks á bryggj-
unni er báturinn var dreginn
að og tókst að slökkva eldinn
tiltölulega fljótt, en skemmdir
eru miklar.
Mikil hrifning
Á sunnudagskvöld voru ein-
þáttungarnir, Hæ, þarna úti og
ÍBrowning — þýðingin, sýndir
fyrir fullu húsi, og voru undir-
tektir leikhúsgesta með af-
brigðum góðar. Er tjaldið féll
í lokin ætlaði lófatakinu aldrei
að linna, og voru leikendur
kallaðir fram hvað eftir annað.
Það er ef til vill að bera í
bakkafullan lækinn, að hrósa
leik og leikstjórn, en það var
auðheyrt á leikhúsgestum að
Jþeim fannst mikið til um
frammistöðu leikara og þá sér-
etaklega Þorsteins Ö. Stephen-
eens, sem er ógleymanlegur í
hlutverki sínu.
Nemi vínandamagiiið í blóði
hans l,30%o eða meira, þá
skoðast hann óhæfur með öllu
til að stjórna vélknúnu ökutæki.
★ Markið 0.60%o
er of hátt
Markið 0,60%o virðist valið
nokkuð af handahófi. í grein-
argerð er bent á, að hjá Norð-
mönnum sé það 0,50%o, en
0,80%o hjá Svíum. Er svo að
sjá sem höfundar frumvarpsins
hafi óskað að þræða meðalveg-
inn, viljað fara bil beggja og að
talan 0,60%o sé þannig til kom-
in.
Nú er það viðurkennt af þelm,
sem til þekkja, að ökuhæfni
manns, er neytt hefur áfengis,
skerðist til muna áður en vín-
andamagnið í blóði . hans nser
0,60%o. Þetta vita höfundar
frumvarþsins, það sýnir greinar-
gerðin, en þar segir svo orð-
rétt á bls. 30: „Samkvæmt vís-
indalegum rannsóknum og raun-
hæfum prófunum hefur reynsl-
an orðið sú, að 0,50%o vínanda-
magn í blóði skerði hæfni all-
flestra manna svo, að varhuga-
vert megi teljast, að þeir aki
bifreið eða vélknúnum ökutækj-
um yfirleitt.“
★ Eitthvað aiuiaíí
en uinferðaröryggi
Þessi staðrej'nd, sem viður-
kennd er í greinargerðinni, er
sniðgengin í sjálfu frumvarpinu.
Þar er leyft vlnandamagn í blóði
ákveðið hærra en það magn,
sem þó skerðir hæfni allflestra
manna til aksturs, Með þessu
er verið að gera einhverju öðru
en umferdaöryggi hátt undir
höfði.
Á árunum 1947—52 gerði
stjómskipuð nefnd í Svíþjóð
samtals 3000 prófanir á mönnum,
er neytt höfðu áfengis, í því
skyni að fá samanburð á vín-
andamagninu í blóði þeirra og
aksturshæfninni. Leiddu þær
prófanir það m, a. í ljós, að
vínandamagnið 0,30%o—0,50%o
tvöfaldaði slysahættuna. Þessi
niðurstaða mun hvergi hafa ver-
ið véfengd, þótt dregizt hafi um
of að sníða lög í samræmi við
hana,
★ Ábyrgðarleýsi gagnvart
vegfarenduin
Markið 0,60%o vínandamagn í
blóði er of hátt. Það er hreint
ábyrgðarleysi gagnvart vegfar-
endum að staðnæmast við það
nú, þegar kunnugt er orðið um
hættu hinnar léttu vímu. Nær
lagi hefði verið að setja mark-
ið við 0,30%o, að ég ekki íali um
að láta alla hækkun á vínanda-
magni í blóði, hversu lítil sem
hún er, jafngilda skertri hæfni
til aksturs. Eg áræði þó ekki að
bera slíkt fram í tillöguformi
Framhald á 3. síðu.
HMHSVUJIN
(Þriðjudagur 9. apríl 1957 — 22. árgangur — 83. tölublað
Viðræður aðila handrita-1
inálsius em mikilvægar -
— segir próí. Erik Warburg, rektor ' I
Kaupmannahafnarháskóla
Prófessor Erik Warburg, rektor Kaupmannahafnarhá-
skóla, hefur nú dvalizt hér á landi ásamt konu sinni I
nokkra daga í boö’i Dansk-íslenzka félagsins. Talaði
hann á árshátíð félagsins sl. laugardag og í gær flutti
hann erindi á fundi Læknafélags Reykjavíkur.
Eins og áður hefur verið
skýrt frá liér í blaðinu, er Er-
ik Warburg prófessor heims-
kunnur læknir og vísindamað-
ur, einkum fyrir störf sín á
sviði hjartasjúkdómanna. Hann
er fædáur 1892, varð prófessor
í læknisfræði við Kaupmanna-
hafnarháskóla árið 1931 og
jafnframt yfirlæknir ríkisspít-
alans árið eftir. í fyrra var
Warburg kjörinn rektor há-
skólans.
Blaðamenn áttu þess kost í
gær að ræða skamma stund við
prófessor Erik Warburg í
danska sendiráðsbústaðnum við
Hverfisgötu, þar sem þau hjón*
in búa meðan þau dveljast hér.
Lýsti prófessorinn ánægju sinni
yfir að hafa fengið tækifæri tii
að heimsækja Island nú fyrsta
sinni, hann hefði við störf sín
í Kaupmannahöfn haft talsverð
kynni af Islendingum, nokkrir
verið nemendur sínir við há-
Peler Freuchen endurtekur fyririest-
ar sinn og kvikmyndasýningu í kvöld
Aðsókn að fyrirlestri Peter Freuchen í Gamla bíói á
sunnudaginn var slík að margir uröu frá að hverfa. Hef-
ur því verið ákveöið að hann endurtaki fyrirlesturinn
í Gamla bíói kl. 7 í kvöld.
Peter Freuchen kann þá list
að halda tilheyrendum sínum
vakandi allt frá þvi hann mæl-
ir fyrstu setninguna þar til
liann yfirgefur sviðið, og það
enda þótt hann hefði ekki tal-
að um Eskimóana: „Þetta dul-
arfulla fólk sem hefur breiðzt
yfir hálfa jarðkringluna á norð-
urhjaranum, allt austan frá
Síberíu vestur til Alaska. En
þarna norður í ‘timburleysinu
hefur þessi þjóð lært að bjarg-
Nýstárleg sýning
Listsýningarnar í Regnbogan-
um hafa vakið mikla athyglj og
ánægju listunnenda hér í bæ.
Nú er röðin komin að frú Bar-
böru Árnason, listmálara, og
sýnir hún gólfteppi unnin með
aladínnál á striga. Allt efni í
teppin er innlent og einnig
allir litirnir, nema svartur lit-
ur. Formin eru óhefðbundin,
og sagði frúin að þau væru
unnin í stíl við létt og nýtizku-
leg húsgögn. Aðeins tvö teppi
eru til sölu, en hægt er að
gera pantanir á teppum í
Regnboganum, eða hjá sjálfri
listakonunni ef fólk óskar.
Frúiu sagði að það væri á-
nægjulegt að fá að sýna í
Regnboganum, þetta væri
skemmtilegur sýningarstaður.
Sýningin stendur yfir í hálfan
mánuð.
ast af á eigin spýtur, byggt
hús sín úr snjó og gert báta
úr skinnum. I dag eru Eski-
móar ekki lengur samir og áð-
ur fyrr. Mál þeirra og lífs-
hættir gerbreyttir. Nú búa þeir
í húsum og hafa eignazt vél-
báta. En með „menningunni"
fengu þeir einnig skæðan vá-
gest: berklaveikina. En Freu-
chen kvað áætlun um að út-
rýma berklaveikinni á Græn-
landi á næstu 20 árum. Dan-
mörlc hefur fengið það verkefni,
sagði hann, að leiða þessa þjóð
fram til nútímamenningar.
Að loknu erindi sínu sýndi
Freuchen kvikmynd frá Græn-
landi.
Hann endurtekur erindi sitt
í Gamla bíói í kvöld kl. 7.
Ók drukkinn
og skemmdi
ffóra bíla ]
Kl. 5.20 í gærmorgun hringdu
íbúar við Skólavörðustíg á
lögreglustöðiná og tilkynntu að
í þann mund hefði bifreið verið
ekið með feiknahraða eftir göt-
unni og beygt inn Týsgötu. Er
lögreglumenn fóru að athuga
þetta, kom í ljós, að bifreið-
inni R-4580 hafði verið ekið
aftan á annan bíl á móts við
húsið nr. 41 við Freyjugötu
og áreksturinn verið svo harð-
ur, að bíllinn kastaðist yfir
götuna og lenti á tveim bifreið-
um sem þar voru. Urðu
skemmdir á öllum bílunum
fjórum. Stjórnandi R-4580 slas-
aðist nokkuð, en lögregluþjón-
arnir töldu að hann hefði ver-
ið greinilega undir áhrifum á-
fengis.
Erik Warburg
skólann, sem verið hafi raun-
verulega háskóli íslands um
aldaraðir eða allt þar til stofn-
aður var háskóli hér á landL
Við Kaupmannahafnarháskóla
stunda nú milli 5 og 6 þúsund
stúdentar nám, sagði rektor-
inn.
Ekki leyst í eiiini svipan
Það sem vakið hefur mesta
athygli mína á þeim stutta
tíma sem ég hef dvalizt hér
á landi, sagði Warburg rektor,
eru hinar miklu framfarir sem
hér liafa orðið á skömmum
tíma og bjartsýnin, sem mér
virðist almennt ríkjandi. Hann
lýsti og aðdáun sinni á vinnu-
heimilinu að Reykjalundi, en
rektorinn hefur ferðazt nokk-
uð um næsta nágrenni Reykja-
víkur.
Er talið beindist að' hand-
ritamálinu vildi rektorinn lítið
láta liafa eftir sér annað en
að þar væri mál, sem ekki yrði
leyst í einni svipan. Lausn
þessa viðkvæma máls tæki sinn
tíma, en forsendur hennar væm
viðræður milli aðila.
Maður bráðkvadd-
ur á götu í gær
1 gærmorgun varð aldraður
maður bráðkvaddur á götu
skammt frá kolaporti Sigurðar
Ólafssonar við höfnina. Maður-
inn hét Björn Bjarnason, til
heimilis á Langholtsvegi 45, 73
ára að aldri.