Þjóðviljinn - 18.04.1957, Page 6

Þjóðviljinn - 18.04.1957, Page 6
ÞJÓÐVILJINN_ — Fimmtudagur 18. april l957 ÞiOÐViumH Kvikmynda- og leikýnmgar á Útgefandi: Sameiningarflokkur alpýðu — Sósialistaflokkurínn „Öðrum fórst en ekki þér” t tegar frumvarpið um hús- næðismálastofnun og bygg- ingarsjóð rikisins kom til 1. umræðu í efri deild Alþingis á dögunum kom það í hlut Gunnars Thoroddsens borgar- stjórá Reykjavíkur að hafa orð fýrir stjórnarandstöðunni. Af því sem Morgunblaðið hef- ur haft eftir Gunnari er ljóst að hann hefur slegið mjög úr og í um afstöðu sína til máls- íns. Er þó greinilegt að ekki vantaði viljann til að ráðast gegn þeim stórmerku nýmæl- um sem í frumvarpinu felast en hins vegar er farið vægi- lega í sakirnar af ótta við al- menningsálitið sem þegar hafði skipað þessu húsnæðis- málafrumvarpi ríkisstjórnar- innar á bekk með stærstu og beztu málum sem fram hafa komið; á Alþingi. Eitt ! var þó sem mjög hneykslaði borgarstjórann í Reykjavík og hann fór ekki dult nSeð í ræðu sinni. Og það var að gert skyldi ráð fyrir því í fpumvarpinu að íbúðir af hóflegri stærð skyldu að öðru jöfnu sitja fyrir um lán frá toyggingarsjóðnum og veðlána- kerfinu meðan verið væri að útrýma húsnæðiseklunni og vinna búg á leiguokrinu. Þetta taldi Gunnar Thoroddsen hina mestu firru og hikaði ekki við að fullyrða að það væri ætlun ríkisstjórnarinnar og þá ekki sizt Hannibals Valdimarssonar að banna byggingu fjögurra toerbergja íbúða! Þetta er av.ðvitað einbert hugárfóstur Gunnars Thor- oddsens og íhaldsins. Um slíkt toann er ekki eitt einasta orð í frumvarpi ríkisstjórnarinnar. Þvert á móti er lögð áherzla á að reistar verði íbúðir sem Bvari , þ:'rfum hverrar fjöl- skyldu., Hitt liggur í augum uppi ao eigi að vinna bug á húsnæðisskortinum og afleið- ingum hans verður að gæta |>ess áð hagnýta sem bezt það fjármágn og vinnuafl sem þjóðin getur varið til íbúða- toygginga. Verkefnið verður ekki leyst með óskipulögðum óhófsbyggingum, sem brask- arar og^peningamenn sækjast' mest eftir og íhaldið telur til fyrírmyndar, heldur með skyn- samlegu skipulag á byggingar- starfseminni þar sem leitazt er við að lækka hinn óhóflega toyggingarkostnað og byggja faiikinn f jölda af íbúðum handa Venjulegu fólki. Skorturinn á Sninni ibúðum og meðalstórum Sbúðum er langsamlega tilfinn- ^mlegastur eftir þróun síðustu ára og það eru einmitt slíkar ibúðir sem helzt eru viðráðan- legar því fólki sem býr við erfiðastar aðstæður. [vernig þróunin hefur verið í þessum efnum sézt bezt á því, að á árunum 1947—’55 jVoru byggðar hér í Reykjavík 3746 íbúðir og vantar þó a.m. k. 1644 íbúðir til þess að full- nægt sé byggingarþörfinni hiiðað við áætlunina frá 1946. Ef hóf hefði verið haft á íbúð- arstærðinni gátu þessar bygg- ingarframkvæmdir skilað 600 fleiri íbúðum á tímabilinu, eða •70 fleiri íbúðum á ári hverju eg minnkað húsnæðisskortinn eem því nemur. Hér er þó ekki 'Xáiðað við minni íbúðir en það að gert er ráð fyrlr 300 rúm- metra meðalstærð og myndu áreiðanlega flestir sem búa við húsnæðisskort, okurleigu eða í lélegu og heilsuspillandi hús- næði telja hag sínum ólíkt bet- ur borgið ættu þeir kost á slikum íbúðum með öllum nú- tíma þægindum. En þróunin hefur orðið í þveröfuga átt og þjóðinni til mikils skaða. Önn- úr hver íbúð sem byggð var árin 1954 og 1955 var 5 her- bergja og stærri, og hefur hlutfall þeirra íbúða því hækk- að úr 12,5% 1941—’'45 í 49,6% 1953 og 49,7% 1954. Þessi þróun hefur aðallega orðið á kostnað tveggja herbergja íbúðanna sem komust niður í 8,6% .heildartölunnar 1953 og. 8,8% 1954. Það liggur i augum uppi að ósk hverrar f jölskyldu er að búá það rúmt að sómasam- legt sé og það er æskilegt að hana sé unnt að uppfylla sem fyrst og bezt. Að því er líka stefnt með þeim aðgerðum sem fyrirhugaðar eru í hús- æðismálunum að frumkvæði núverandi ríkisstjómar. En því skyldi ekki gleymit, og sízt ætti Gunnar Thoi'oddsen að Iáta það líða sér úr minni, að hundruð reykvískra fjöl- skyldna búa við neyðarkost bragganna og annars heilsu- spillandi húsnæðis, auk allra þeirra sem verða að sætta sig við óhæfileg þrengsli og lé- legan húsakost af völdum íbúðaskortsins og óviðráðan- legs húsnæðiskostnaðar. Það eru þarfir fólks, sem íhaldið hefur vanrækt á smánarlegan hátt langt á annan áratug, sem ráðstafanir hins opinbera í lánamálum verða að miðast við á undan öllu öðru. Það væri óverjandi að láta íburð- armiklar og dýrar lúxusbygg- ingar gróðamanna og brask- ara sitja fyrir þeirri opinberu aðstoð sem unnt er að láta í té meðan fjöldi fólks býr við algerlega ófullnægjandi hús- næðisskilyrði. Það sat vissulega sízt á Gunnari Thoroddsen að veitast að þeirri fyrirætlun ríkisstjómarinnar að tryggja sem skynsamlegasta hagnýt- ingu byggingarefnis og fjár- magns í því skyni að koma upp sem flestum ibúðum af hóflegri stærð og leysa hús- næðisvándamál alþýðunnar. Gunnar Thoroddsen hefur í rúman áratug veríð oddviti þeirrar fylkingar í bæjarstjóm Reykjavíkur sem bar siðferði- leg skylda til að leysa hús- næðisvandamál bæjarins en hefur gjörsamlega brugðizt henni og hindrað allar raun- hæfar aðgerðir. Gunnari Thor- oddsen ferst því sannarlega sízt að hafa uppi hávaða og andmæli þegar fulltrúar al- þýðustéttanna í ríkisstjórn leggja til glímu við þann draug sem ónytjungsháttur bæjarstjómaríhaldsins hefur vakið upp og magnað á und- anförnum ámm. Borgarstjór- anum í Reykjavík væri sæmra að hafa hægt um sig, biðja af- sökunar á eigin vanrækslu í húsnæðismálunum og fagna því framtaki sem birtist í því fmmvarpi sem Hannibal Valdimársson hefúr undirbúlð og lagt fyrir Alþingi. Á annan í páskum sýnix Leikfélag Reykjavíkur Brown- ingþýðinguna eftir Terence Rattigan í Iðnó. Eins og menn muna hefur sýning þessi hlotið einróma lof allra, sem séð hafa, ekki hvað sizt leikur Þorsteins Ö. Stephen- sen, sem sést hér á myndinni ásamt Þorsteini Gunnarss. ~r' . mm Páskamyndin í Bœjarbíói í Hafnarfirði nefnist Rauða háríð, ensk mynd með Moria Shearer í aðalhlutverki. Farortœki Framhald af 4. síðu. að framleiða og notaðar era á vagninn P-70. Á öllum svið- um stendur efni þetta jafn- fætis venjulegum stályfir- byggingum og á nokkram sviðum hefur það stóra yfir- burði.“ I Állir biðjá um \ Víðfræg, ítölsk mynd. sýnd í Laugarássbíói Páskamynd Laugarássbíó.j er hin fræga kvikmynd Madda- lena, sem ítalska kvikmynda- félagið Titanus lét gera í til— efni af 50 ára afrnæli símu,. en þetta félag hefur sent frá. sér margar af ágætustu kvik- Það má geta þess að lok- um að tvö síðustu árin hafa Svíar keypt um 11.000 bíla af gerðinni P-70 og eldri teg- undinni — DDR. Eins og nú stendur virðast Austur-Þjóð- verjar vart geta sinnt eftir- spurninni eftir plastbílunúm, er það vegna þess að þeir þurfa að flytja inn plasthrá- efnið, en fá minna af því en þeir vilja. MARTA TOREN í hlutverki Maddalenu myndum síðustu ára, t.d. var Frakkinn, sem Laugarássbíó" sýndi nýlega, frainléidd af Tit- anus. Laugarássbíó hefui’ nú. gert samning um sýningar át beztu myndum þessa félags koma kvikmyndirnar hingað beint frá ítaliu og eru me& ítölsku tali en enskum skýr- ingartexta. Gífurleg aðsókn hefur veriS að myndinni Maddalenu, þar sem hún hefur verið sjmdf. bæði í Evrópu og Ameríku. Marta Toren, sem leikur að- alhlutverkið, Maddalenu, fékk gullverðlaun fyrir leik sídjq í myndinni, en aðrir leikendur era hver öðram snjallari og; nægir þar aðeins að nefná. Gino Cervi. Þar sem buizt er við mik- illi aðsókn að myndinni, en Laugarássbíó rúmar tiltölu- lega fáa áhorfendur, verður- sýningum fjölgað þannig, að myndin verður sýnd kl. 4, 6n 8 og 10. Það er sérstakt ánægjueffni,. að þessi kunna mynd skuli sýnd hér jafn fljótt og raun ber vitni. i < < ■ • • . m ‘ : Fall Babýlonar heitir páskamyndin í Stjörnubíói. Þettd j er bandarísk mynd, sem gerist á * *dögum Nebúkadnesar \ konungs í Babýlon. íburðarmikil mynd. Aðalleikendurnir } j sjást hér á myndinni: Richard Conte og Linda ChristíaH.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.