Þjóðviljinn - 18.04.1957, Qupperneq 9
Fimmtudagur 1S. aprfl 1957 — ÞJÓÐVILJINN ~ (9
Þvi miðux- verður ekki hægt að
gefa tæmandi -lýsingu á leik
þessum, þar sem fréttamaður í-
þróttasíðunnar varð að gera sér
að góðu að standa á bekks-
enda i öðrum enda hússins með
standandi fólk í kring og gilda
súlu sem skyggði á stóran hluta
af gólfinu. Það varð þó séð að
leikurinn var jafn, og ákaflega
spennandi frá upphafi til enda.
Þjóðverjarnir höfðu til að
bjrja með yfir í mörkum en FH
jafnaði og í síðari hálfleik höfðu
þeir næf alitaf forustu og um
skeið. munu þeir hafa haft 3
mörk yfir en Þjóðverjum tókst
að jafna á siðustu mínútum
leiksins. A þeim hluta gólfsins
sem til sást léku Þjóðvsrjar
mjög ólöglega og hefði Hannes
mátt taka miklu meira en hann.
Hassioch slgroði KR 14:12
S.l. föstudag háðu Þjóðverj-
arnir sinn þriðja leik hérlend-
is. Mættu þeir nú Reykjavik-
urmeisturunum, KR. L'eikur
þessi var mjög jafn allt frá
upphafi til leiksloka. Fyrstu 15
mín. leiksins voru þó KR-ingar
oftast 1—2 mörk yfir og vírtust
hafa frumkvæðið í le’iknum. En
á síðustu 10 mín. fyrri hálfleiks
tókst Þjóðverjunum að jafna og
jafnframt að ná 2 marka for-
skoti.
Fyrri hálfleikur var vel leik-
inn af beggja hálfu og bar nú
mun minna á hörðum leik en í
þeim tveim leikjum, sem Þjóð-
verjarnir höfðu leikið hér áður
og' má án efa þakka það rögg-
samri leikstjórn dómarans Aksel
Koldste. .Leikstáðan var því 11:9
Hassloch í vil í leikhléi. f siðari
hálfleik harðnaði leikurinn að
mun og beittu menn nú ó-
spart handleggjunum í því skvni
að hindra mótherja sinn. Þetta
má glöggt ráða af markatölunni,
því að síðari hálfleikur endaði
3:3 og eru það óneitanlega fá
mörk í 30 mín. hálfleik. Var leik-
wr Beggja liðanna í síðari hálf-
leik' fremur þunglamalegur og
einkenndíst meira af hörku en
leikni. Leikurinn endaði 14:12
Hassloch í vil og er vart hægt að
segja, að um verðskuldaðan sig-
ur hafj verið að ræða. Jafntefli
hefði verið mun sanngjarnara
eftir gangi leiksins.
Lið Þjóðverjanna sýndi nú
ekki eins góðan leik og áður.
Léku þeir nú mun hægar og
stafár það líklega af þreytu. Enn
sem.fyrr var Stahler bezti mað-
ur liðsins, (skoraði 9 mörk)
knattmeðferð hans er mjög góð,
hann er sá maður, sem gengi
þessa liðs byggist á og án hans
væri það ósköp álíka að getu til
og hérlend lið.
Lið KR sýndi nú sinn bezta
leik í vetur, voru þeir nú mun
„léttari í spilinu“ en í undan-
förnum leikum. Vörn þeirra var
mjög sterk og stóð sig vel í þeirn
miklu átökum, er urðu í síðari
hálfleik. Beztir í liði KR voru
Þórir, Karl og Guðjón. Mörk KR
skoruðu: Karl 3, Ilörður 2,
Reynir 2 og Þórir 2.
Dómari í leik þessum var Aks-
el Koldste, danskur dómari, sem
verið hefur hér ásamt konu
sinni, Valborgu, á vegum Hand-
knattleiksráðs Reykjavíkur. Stóð
hann sig vel í þessum leik,
einkum í fyrri hálfleik.
Eftir leikinn bauð Handknatt-
leiksdeild KR Þjóðverjunum tíl
kaffidrykkju í félagsheimilinu
við Kaplaskjólsveg. Var þar veitt
af mikilli rausn og voru menn
Hans Stahler
þar í góðum fagnaði fram yfir
miðnætti. Var þetta hóf til mik-
ils sóma fyrir Handknattleiks-
deild KR og' augljóst, að allir
KR-ingar stóðu einhuga að öllum
undirbúningi þess.
c.r.
gerði. Það er því augljóst að
þetta þýzka lið hefur engan
læi'dóm að flytjá um túlkun laga
og anda leiksins, og er vel að
íslenzkir handknattleiksdómarar
og leikmenn hafa aðfar skoðanir
á þeim atriðum. Ekki var að-
staða til þess að rita niður
hverjir skoruðu mörkin eða í
hvaðá röð þáu komu.
í knattleikni eru þessir þýzku
leikmenn á svipuðu stigi og
bcztu menn okkar, nema að því
er snertir Korn og Stahler, sem
eru beztu menn Þjóðverjanna.
FH sýndi enn sem fyrr að þeir
eiga góða handknattleiksmenn,
og er þessi frammistaða liðsins
með miklum ágætum.
Dómari vár Hannes Sigurðs-
son.
Blaðamehn hornrekur
Það óvenjulega skeði að tíð-
indamaður íþróltasiðunnar varð
svolítið síðbúinn til leiks þessa
og var leikurinn byrjaður þegar
hann kom. Var húsið þá svo þétt-
skipað áhorfendúm að ekki var
viðlit að komast nema rétt inn
úr dyrunum.
Ekki þýddi að ryðjast augna-
blik í gegnum mannþyrpinguna
til sæta sem blaðamönnum eru
ætluð, því þau fyrirfinnast ekki
í húsinu. Ef þeir koma ívið of
seint kemur það þeim einum við
hvar þeir hanga eða standa. Þeir
verða að skrifa það á sinn reikn-
ing. Húsinu virðist ekki koma
það hót við hvort blaðamenn
hafi aðstöðu til að sjá það sem
fram fer eða ekki, ef svo hefði
ver.ið væri það fyrir löngu búið
aðlgera sinar ráðstafanir. Aðilan-
ur sem sá um leikinn, ÍR, virðist
Framhald á 11 síðu.
Nælonsokkar
m
Perlonsokkar |
Nælonuiidirfainaðnr |
Fjölbreytt úrval
Heildsölubirgðir.
§laeið h.f.
Garðastræti 2 — Sími 5333
IR varo Islandsmeistari
köríuknattleik 1957
Sigiaði Gosa naumlega í úrslitaleik
r
1
Sl. sunnudag lék ÍKF gegn KR
og sigraði með 46:35.
Á mánudágskvöld voru háðif
2 leikir í m.fl. karla. ÍR:Gosi
34;33. Þessi leikur réð úrslitum
í mótinu. Leikurinn var afar tví-
sýnn og jafn. f fyrri hálfleik
leiddu Gosar allan tímann. þar
til skömmu fyrir hlé að ÍR-ing-
um tókst að jafna og stóðu leik-
ar 17:17 í hléi. Framanaf seinni
hálfleik skiptast liðin á að hafa
frumkvæðið, þar til um miðjan
hálfleikinn, að ÍR komst 5 stig
yfir, en Gosar unnu mjög á í
lokin og höfðu næstum náð að
jafna við leikslok. Það hvoru
megin sigurinn hafnaði var
hending ein. ÍR-ingar náðu ekki
því létta spili sem hefur ein-
kennt leiki þeirra að undan-
förnu, enda völduðu Gosar þá
mjög vel. Þó brá því fyrir og
varnarleikurinn var góður, svo og
körfuskot, sérstaklega Helga Jóh.
(15 st.). Að öllu samanlögðu eru
ÍR-ingar vel að meistaratitlinum
komnir, hafa sýnt jafnbezta leik-
ina. Gosar komu nokkuð á ó-
vart og juku allmjög við hróður
sinn. Samleikurinn var mjög líf-
legur, varnarleikurinn ágætur,
en verulegs taugaósiyrks gætti í
körfuskotum. Beztur var Geir
(13 st.) svo og Ólafur.
Annar leikur kvöldsins ÍS:KR
55:43. Stúdentarnir byrjuðu létt
og höfðu forustuna allan fyrri
hálfleik. Eftir hlé tóku KR-ingar
góða skorpu og komust yfir, en
stúdentar svöruðu með rólegu
og yfirveguðu spili og unnu mjög
örugglega. Langskæðastur þeirra
stúdenta var Þórir, sem skoraði
hvork; nieira né minna en 30 st.
Af KR-ingum var Pétur Rögn-
valdsson stighæstur (13 st.).
Síðasti leikurinn í m.fl. karla
var háður í gær og lék þá ÍKF
við ÍS.
Nú verður hié á mótinu
fram yfir páska. Verður Jeikið
23. apríl og 26. apríl í II. og III.
fl. karla og í meistarafl. kvenna.
G. G.
Munið páskablómin
BI.ÓM & HÚSGÖGN
Laugavegi 100.
■■■■■■■■■■*•»■•■■■
r
1
aniun
a
í hiuidraðatali frá Freyju, Víking og Nóa
Kaupið meðan úrvalið er mest.
Matvömbuðir
««■•■■■■■■(!■■■■■■■■•■■■■■■•■■■■*»■■
■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■***■■»■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■•■«••■•
Málverkasýning
Baldurs Edwins
í Þjóðminjasafninu. — Opin daglega, alla bæna-
og páskadagana kl. 2 til 10.