Þjóðviljinn - 01.05.1957, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 1. mai 1957 — 22. árgangtir — 97. tölublað
MÓDVILJINN 1
er 20 síður í
Allir eitt undir merkjum samtakanna
Vimiandi alþýða Reykjavílmr! Svaraðu suiKlrungartilrami
íhalds og atvirniurekendaþjóna ineð því að fylkja þér
einhuga í kröfugöngu verkalýðssamtakamia
í dag, 1. maí, ber verkalýður allra landa fram kröfur sínar. í dag safnast
reykvísk alþýða einnig út á götuna og ber fram kröfur sínar um breytt og
betra þjóðfélag, — kröfur um atvinnuöryggi, aukinn kaupmátt launanna,
mannsæmandi húsnæði fyrir ai.ía, réttlátari skiptingu þjóðarteknanna. Og
síðast en ekki sízt krefst íslenzk aiþýða þess að hinn erlendi her hverfi úr
iandi, að íslendingar búi einir og óáreittir í landi sínu.
I bráðum þrjá tugi ára hafa
íslenzk verkalýðssamtök borið
fram í kröfugöngum og á úti-
fundum 1. maí kröfur sínar til
valdhafanna um betra og rétt-
látara þjóðféiag. Þeir myndu
þykja fámennir í dag hópamir
sem fyrstu árin sýndu þá dirfð
að krefjast réttar síns í 1. maí-
kröfugöngum. Auðstétt Reykja-
víkur henti skít og æpti ókvæð-
isorð að hinum fyrstu kröfu-
göngumönnum verkalýðssam-
takanna. 1 Morgunblaðinu voru
hin fyrstu hátíðahöld reykvísks
verkalýðs 1. maí talin ganga
glæpi næst.
Hin fámenna forustusveit
fyrstu áranna æðraðist ekki við
aðkast yfirstéttarinnai. Og með
hverju árinu fjölgaði þeim
verkamönnum sem varð það
Ijóst að verkalýðurinn, fólkið
sem framleiðir lífsgæðin, á skil-
yrðislausa kröfu til ]>ess að ráða
hvernig þeim er skipt. Dagur
verkalýðsýns varð fljótlega við-
urkenndur, og um nær tvo tugi
ára hefur reykvískur verkalýð-
ur — þrátt fyrir mismunandi
skoðanir um ýmis mál — mætzt
i einni fylkingu á götunni 1.
mai.
Þess vegna vekur það nú
mesta furðu og fyrirlitningu,
að eimnitt nú skuli fiiiltrúar
mokkurra félaga í Reykjavík
taka á sig þá ábyrgð að rjúfa
einingu verkalýðssamtakanna 1.
mai og neita öllu sainstarfi við
stéttarbræður sína. Það vekur
ekki hvað sízt furðu í þessu
sambandi að þeir skuli nota
sem átyllu til þessa verknaðar
kröfuna um að íslendingar lifi
frjálsir, einir og óháðir í landi
sínu, án setu erlends hers.
Munu félagsmenn viðkomandi
félaga Iítt þakka þessum „for-
uistumöimum" símim það, að
fcafa gert sig að afglöpum
frammi fyrir öllum heimi.
Mennirnir sem rjúfa ein-
inguna gera það ekki vegna
hagsmuna verkalýðsins, þeir
gera það ekki til að krefjast
hærra kaups, aukins kaup-
máttar launanna, styttri
vinnutíma, betra húsnæðis,
allar þessar kröfur verka-
lýðsins verða bornar fram
af reykvískri alþýðu í dag.
Það er aðeins einn aðili sem
hefur hag af sundrungu ís-
lenzks verkalýðs: íhaldið, at-
vinnurekendurnir, auðstétt-
in á íslandi. Það er heldur
ekki samkvæmt vilja verka-
fólks í Alþýðuflokknum að
nokkrir „forustumenn“ þess
flokks hafi hlýðnazt íhald-
inu og rofið einingu verka-
lýðsíns. Þess vegha mun
verkalýðurinn í Alþýðu-
flokknum svara þessari í-
'haldsþjónustu foringjanna
með því að fylkja sér eftir
sem áður undir merki verka-
lýðssamtakanna í dag.
Reykvísk alþýða! f dag svar-
ar þú sundrangarbrölti íhalds-
þjónanna með því að fylkja þér
út á götuna undir merM reyk-
vískra verkalýðsfélaga og AI-
þýðusambamds fslands.
Hátíðahöldin í dag verða með
svipuðu sniði og undanfarin ár.
Um kl. 1.30 e.h. verður byrjað
að safnast saman undir merkj-
um samtakanna við Iðnó.
Kröfugangan hefst kl. 1.50.
Lúðrasveit verkalýðsins og
Lúðrasveitin Svanur leika fyrir
göngunni og á útifundinum.
Kröfugangan fer um eftirtaldar
götur: Vonarstræti, Suðurgötu,
Aðalstræti, Hafnarstr., Hverfis-
götu, upp Frakkastíg, niður
Skólavörðustíg, Bankastræti og
staðnæmist á Lækjartorgi.
Á Lækjartorgi hefst útifund-
ur. Þar tala Hannibal Valdi-
marsson, forseti Alþýðusam-
bands fslands og Guðmundur J.
Guðmundsson starfsmaður
Dagsbrúnar. Fundaretjóri verð-
ur Björn Bjarnason, formaður
Fulltrúaráðs verkalýðsfélag-
anna.
í dagskrá útvarpsins i kvöld
tala Hannibal Valdimarsson
félagsmálaráðherra, Eðvarð
Sigurðsson varaforseti Alþýðuw
sambands fslands og Sigui'ðuB
Ingimundarson formaður B.3,
R.B. Einnig syngur Söngfélag
verkalý’ðssamtakanna i Reykja*
vík. J
Þeir tala á útifundinum
GUBM. J. GUÐMUNDSSON
HANNIBAL VAUDIM.ABSSON
• •
SAKARUPPGJOF
I gær undirrituðu handhafar forsetavalds sakaruppgjöf til handa
þeim 20 fslendingum sem dæmdir vora eftir athurðina 30. marz 1949
í gær fengu þeir tuttugu menn sem dæmdir voru eftir
atburöina 30. marz 1949 algera sakaruppgjöf. Haföi dóms-
máíaráöherra boriö fram tillögu um þaö efni, og hún
var staöfest í gær af handhöfum forsetavalds, forsætis-
ráöherra, forseta Sameinaös Alþingis og forseta Hæsta-
réttar.
Meö sakaruppgjöfinni hafa verið afmáöir dómar sem
vöktu þjóöan-eiöi á sínum tíma, og þaö er Þjóöviljanum
sérstök ánægja aö geta sagt frá þessum tíöindum 1. maí
því sakaruppgjöfin hefur jafnan veriö krafa verklýös-
hreyfingarinnar.
í réttarofsóknunum eftir at-
burðina 30. marz vora tuttugu
menn dæmdir í þungar refsing-
ar, sektír og fangelsanir og
átta þei.rra sviptir mannrétt-
indum. fslendingar þeir sem
fyrir réttarofsóknunum urðu
og voru dæmdir í Hæstarétti
12. maí 1952 vora þessir:
Stefán Ögmundsson: 12 mán-
aða fangelsi, sviptur mann-
réttindum..
Alfons Guðmundsson: 12
mánaða fangelsi, sviptur mann-
réttindum.
Jón Kristinn Steinsson: 12
mánaða fangelsi, skilorðsbund-
ið, sviptur mannréttindum.
Magnús Jóel Jóhannsson: 7
mánaða fangelsi, sviptur mann-
réttindum.
Stefnir Ólafsson: 7 mánaða
faiigelsi, sviptur mannréttind-
um.
Jón Múli Ámason; 6 mánaða
fangelsi, sviptur mannréttind-
um.
Magnús Hákonarson: 6 mán-
aða fangelsi, skilorðsbundið.
Stefán Sigurgeireson; 6 mán-
aða fangelsi, sviptur mannrétt-
indum.
Garðar Öli Halldórsson: 5
mánaða fangelsi, sviptur mann-
réttindum.
Friðrik Anton Högnason: 4
mánaða faugelsi, skilorðsbund-
ið.
Kristján Guðmundsson: 4
mánaða fangelsi.
Ólafur Jensson: 4 mánaða
fangelsi.
Jóhann Pétursson: S mánaða
fangelsi.
Árni PáJsson: 3 mánaða
fangelsi, skilorðsbundið.
Gísli Rafn ísleifsson: 3 mán-
aða fangelsi, skilorðsbundið,
Guðmundur Helgason: 3 mán-
aða fangelsi., skilorðsbundið.
Páll Theódóreson: 3 mánaða
fangelsi, skilorðsbundið.
Hálfdán Bjarnason: 30 daga
varðhald, .••kilorðsbundið,
Stefán Oddur Magnússon:
2500 kr. sekt,
Guðmun dur J ónsson: 1500
kr. sekt.
ýlf 27.364 undirskriítir
Dómar þessir vöktu reiði og
furðu f&lendinga, og nokkru
eítir að þeir voru kveðnir upp>
var myndud nefnd, sem í áttw
sæti 28 þjóðkunnir íslendingar,
gekkst hún fyrir undirskrifta-
söfnun þar sem farið var fran*
á algera sakarappgjöf og birti
um það ávarp til þjóðarinnar.
Formaður nefndarinnar vai?
Guðmundur Thoroddsen próf-
essor, en I framkvæmdanefnd
voru Bergur Sigurbjörnsson,
Björn Bjarnason og Þorvaldun
Þórarinsson. Á tæpum mánuði
var beiðnin um sakaruppgjöfl
undirrituð af hvorki meira nó'
minna en 27.364 íslendinguml
úr öllum flokkum og stéttum,.
Voru undirski’iftirnar afhentar
dómsmálaráðherra 15. ágústi
1952, en 9. sept. var Ásgeiri
Ásgeirssyni forseta afhent á-
\arp um sakaruppgjöfina og
hét hann því þá að sjá um aö
málið fengi formlega aígreiöslu,
Framhlald á 12. síðu. j